Morgunblaðið - 09.02.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1982
5
Guðmundur
Eyþórsson
látinn
UM HELGINA lést í Hafnarfirdi
Guðmundur Eyþórsson, loftskeyta-
maður, 57 ára að aldri. Hann var
borinn og barnfæddur Hafnfirðing-
ur, sonur hjónanna Guðrúnar Sig-
urðardóttur og Eyþórs Þórðarsonar,
sem bæði eru látin, en áttu heima
við Hraunstíg.
Guðmundur varð loftskeyta-
maður frá Loftskeytaskólanum á
heimstyrjaldarárunum. Fór hann
þá á togara úr Hafnarfirði. Hann
var ekki lengi til sjós. — Varð
loftskeytamaður hjá Morgunblað-
inu og annaðist móttöku erlendra
fréttaskeyta frá London um
margra ára skeið. En tækniþróun-
in varð sú, að þess gerðist ekki
þörf að hafa loftskeytamann við
fréttamótttökuna. Varð Guð-
mundur þá handrita- og prófarka-
lesari við blaðið um árabil. Leysti
hann þau störf af hendi með prýði,
enda góður íslenzkumaður. Eiga
gamlir samstarfsmenn hans á
Mbl. góðar endurminningar um
Guðmund frá þessum árum.
Guðmundur Eyþórsson
loftskeytamaður.
Eftir að Guðmundur hætti
störfum á Mbl. fór hann aftur á
sjóinn. — Hin síðari ár gekk hann
ekki heill til skógar og voru þau
honum þung í skauti. Andlát hans
bar hljóðlega að. Hann lést í
svefni heima hjá sér.
Guðmundur var yngstur fjög-
urra systkina. Hann var ókvæntur
og barnlaus.
Björgvin Júníusson
á Akureyri látinn
Akureyri, 8. fubrúar.
BJÖKGVIN Júníusson, bíóstjóri,
varð bráðkvaddur við vinnu sína í
dag, 63 ára að aldri.
Hann fæddist á Akureyri 24. janú-
ar 1919 og var sonur hjónanna
Soffíu Jóhannsdóttur og Júníusar
Jónssonar vcrkstjóra. Að loknu
gagnfræðaprófi frá MA lærði hann
bakaraiðn og var um skeið starfs-
maður brauðgerðar KEA, en gerðist
brátt verksmiðjustjóri efna-
gerðarinnar Flóru og gegndi því
starfi í nokkur ár. Seinna varð hann
afgreiðslumaður hjá Flugfélagi ís-
lands en um 1970 gerðist hann bíó-
stjóri Borgarbíós, sem er eign templ-
ara á Akureyri, og gegndi því starfi
til dauðadags. Jafnframt var hann
tæknimaður og upptökustjóri Ríkis-
útvarpsins á Akureyri á annan ára-
tug.
Björgvin var lengi í hópi frækn-
ustu skíðamanna landsins, sigraði
í svigi á Thulemóti í Hveradölum
1938 og varð íslandsmeistari í
svigi 1942 og 1947, en það ár
Sýning Eggerts
Málverkasýning Eggerts Magn-
ússonar frá Bjargi í Djúpinu,
Hafnarstræti, verður framlengd
til sunnudagsins 15. febrúar. Að-
sókn hefur verið góð og margar
myndir selst. Sýningin er opin frá
kl. 11—23.30 daglega.
keppti hann einnig í heimsmeist-
arakeppninni í St. Moritz í Sviss
við góðan orðstír. Þá var hann
einn af brautryðjendum í svifflugi
á Akureyri. Hann átti mikið safn
segulbanda með röddum Akureyr-
inga og annarra Norðlendinga og
hugðist gefa þetta merkilega safn
sitt héraðsskjalasafninu á Akur-
eyri.
Björgvin var tvíkvæntur, fyrri
kona hans var Valgerður Þórólfs-
dóttir, sem látin er fyrir mörgum
árum, og áttu þau tvö börn. Síðari
kona hans er ísafold Jónatans-
dóttir og lifir hún mann sinn.
Sv.P.
Lítið miðar við gerð sérkjarasamnings
„Tilboð ríkisins ekki
viðræðugrundvöllur“
- segir Valgeir Gestsson, formaður Kennarasambandsins
EINS OG hjá öðrum ríkisstarfs-
mannafélögum hefur aðeins verið
haldinn einn fundur með full-
trúum Kcnnarasambandsins og
ríkisins um gerð nýs sérkjara-
samnings. Á þeim fundi lögðu
kennarar fram kröfur sínar, en
mest áherzla er lögð á verulega
tilfærslu kennara og skólastjóra í
launaflokkum. Fulltrúar ríkisins
buðu 0,5—0,7% launahækkun og
sagði Valgeir Gestsson, formaður
Kennarasambandsins, að það boð
væri enginn viðræðugrundvöllur.
Aðilar hafa þessa viku og þá næstu
til að ná samkomulagi, en þá fer
gerð sérkjarasamnings til Kjara-
nefndar lögum samkvæmt.
„Við kennarar búum við það,
að við höfum ekki beina viðmið-
un við aðra launahópa, en við
getum aftur á móti miðað við
starfsmenn á almennum launa-
markaði, sem hafa svipaða
menntun og kennarar," sagði
Valgeir Gestsson. „Þar ber mikið
á milli kennurum í óhag. Mestu
kjarabæturnar hafa yfirleitt
fengist í gegnum aðalkjara-
samning og þó við vonumst eftir
lagfæringu í gegnum sérkjara-
samning þá yrði það varla til að
bæta kjör okkar fullkomlega.
Það er hins vegar gífurleg
óánægja meðal kennara og ef
ekki nást fram einhverjar lag-
færingar í þessum sérsamning-
um, þá tel ég ekki vafamál, að af
okkar hálfu sé allra veðra von.
Hver sá sem athugar laun kenn-
ara í dag sér að þau eru óviðun-
andi og við erum hreinlega að
missa fólk úr stéttinni.
Þegar í launagreiðslum ríkis-
ins finnst eins mikið misræmi og
finnst núna hlýtur að sjóða upp
ST/ERST félaga innan Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja er
Starfsmannafélag ríkisstofnana
með yfir 4 þúsund félagsmenn.
Kennarasambandið er næststærst
með tæplega 3 þúsund félaga.
í grein í Félagstíðindum
Starfsmannafélags ríkisstofn-
ana er fjallað um „fyrirheit ráð-
herra“ og greint frá því, að fjár-
máláráðherra hafi tvívegis gefið
fyrirheit um að við röðun í
launaflokka yrði tekið tillit til
kjara sambærilegra hópa á al-
mennum vinnumarkaði. I lok
greinarinnar segir svo:
úr. Ég tala nú ekki um þar sem
hægt er að gera beinan saman-
burð. Ef ekki fást lagfæringar
fyrir félagsmenn BSRB núna, þá
held ég að verið sé að etja hópum
út í alls konar aðgerðir," sagði
Valgeir Getsson.
Það kom því mjög á óvart, að í
viðræðum sem fram hafa farið,
býður fjármálaráðherra einung-
is 0,5% til 0,7% hækkun, en það
þýðir að einungis 6.-8. hver
maður innan félagsins myndi
hækka um einn launaflokk! Slíkt
boð er í engu samræmi við gefin
fyrirheit, sem SFR hlýtur að
gera kröfur til að staðið verði við
í sérkjarasamningi félagsins og
ráðuneytisins.
Ábyrgðarmaður Félagstíðinda
er Einar Ólafsson, formaður
SFR, og umsjónarmaður Elías
Snæland Jónsson.
Boð ríkisins er í
engu í samræmi
við gefín fyrirheit
- segir í Félagstídindum Starfsmannafélags ríkisstofnana
Hafnarfjörður:
56 lóðir auglýstar, þar
af 40 einbýlishúsalóðir
AUGLÝSTAR hafa verið lóð-
ir í Hafnarfirði undir 56
íbúðir. Flestar lóðirnar eru
við nýja götu á Hvaleyrar
holti við svonefnd Börð.
Reiknað er með að þarna
verði byggt á komandi sumri,
en lóðirnar eru nú þegar til-
búnar til byggingarfram-
kvæmda. Umsóknarfrestur
um þær rennur út um
mánaðamótin febrúar/mars.
Hér er um að ræða 40
einbýlishúsalóðir, 10 íbúðir
í raðhúsum, 2 í parhúsi og 4
í tvíbýlishúsum. Að sögn
bæjarverkfræðings, Björns
Árnasonar, er reiknað með
miklum fjölda umsókna.
Síðast þegar auglýstar voru
íbúðarlóðir í Hafnarfirði,
þá 40 talsins, voru umsókn-
ir á milli 350—360. Næstu
lóðaúthlutanir undir
íbúðarhúsnæði í Hafnar-
firði verða að sögn Björns í
Setbergslandi, en þar er
reiknað með að byggingar-
framkvæmdir hefjist
sumarið 1983.
I
Ritsafn Guómundar Daníelssonar
i
Guðmundur Daníelsson, frásagnameistari í 48 ár.
Ritsafn Guömundar Daníelssonar er 10 bækur. öll verkin eru frá
árunum 1948-1970 og sum þeirra hafa verið ófáanleg um hríð.
í ritsafninu eru skáldsögumar Blindingsleikur, Musteri óttans,
Hrafnhetta, Húsið, Turninn og teningurinn . Sonur minn Sinfjötli
og Spítalasaga.skáldverk utanflokka f bókmenntunum.
Einnig ferðasagan Á langferðaleiðum, veiðisagan Lands-
hornamenn - sönn saga í há-dúr og smásagnasafnið Tapað stríð.
Viðfangsefnin eru margvíslegog tekin fjölbreytilegum tökum, en
þróttmikill stíll og hröð og lifandi frásögn eru samkenni á öllum
verkum Guðmundar Daníelssonar.
Ritsafninu fylgir ellefta bindið með ritgerð dr. Eystcins
Sigurðssonar um verk Guðmundar; og skrá um útgáfur, ritdóma og
heimildir þeirra, sem Olafur Pálmason hefur tekið saman.
Góð bókmenntaverk í vönduðum búningi.
lögberg Bókafortag
Þingholtsstrætí 3, simi: 21960