Morgunblaðið - 09.02.1982, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1982
7
Iðnrekendur
Heildverslun í örum vexti meö góö viöskiptasambönd
viö kaupfélög og verslanir út um land og í Reykjavík
óskar eftir innlendum vörum í umboössölu.
Uppl. í síma 11660 frá 9 til 5.
IITSALA UTSALA
Mikil verölækkun
Glugginn
Laugavegi 49.
HELGI JÓNSSON - LEIGUFLUG - AIRTAXI
REYKJA ViKURFLUG VELLI
Sími: (91 -)10880(91 -) 10858
Leiguflug
milli landa og
innanlands
CHILTON - HA YNES - AUTOBOOKS
fyrir flestar gerðir bfla fást hjá okkur.
Bókabúð Steinars, Bergstaðastræti 7,
simi 16070 - Opið 1-6 e.h.
Davíd Oddsson Sigurjón IVtursson
Leiguíbúðir og
fasteignaskattar
Davíö Oddsson, formaður borgar-
stjórnarflokks sjálfstæöismanna, geröi
nýlega á borgarstjórnarfundi úttekt á
rangfærslum Sigurjóns Péturssonar,
borgarstjórnarforseta, í svörum viö
fyrirspurnum um borgarmál í fréttatíma
útvarps. Þar sló borgarstjórnarforsetinn
um sig meö staöhæfingu um að 43
leiguíbúðir væru í byggingu í borginni.
Þegar fariö var ofan í saumana á full-
yröingunni kom í Ijós að byggingarstig
þessara íbúöa var á teikniboröinu! Þá
geröi borgarstjórnarforsetinn mikiö úr
því, aö fasteignaskattar væru síöur en
svo hærri í Reykjavík en annars staöar.
Þar hélt hann sig einvörðungu viö
skattaprósentuna, án þess aö meta
skattagrunninn, en mismunandi fast-
eignamat veldur því aö fasteignaskattur
getur verö tvö- til þrefaldur þr. fermetra
í húsnæöi — í samanburði viö þau
sveitarfélög sem Sigurjón tíundaöi.
Hitaveita og
strætisvagnar
Davíd Oddsson rekur
umsögn borgarstjórnar
forsetans uni tvær borgar
stofnanir: Hitaveitu
Keykjavíkur og Strætis-
vagna Keykjavíkur. Hvor
ugt þessara þjónustufyrir
tækja haft styrkst undir
vinstri stjórn, þvert á móti
veikst, þrátt fyrir „félags-
málafvrirheitin".
(íegnum vísitöluleik og
verdlagshömlur hafi vinstri
menn hjá ríkisvaldi þrengt
svo aó Ilitaveitu Reykja-
víkur ad hún hafi staónad,
hvað boranir og heitavatns
öflun varðar, þann veg, að
íbúar á þjónustusvæði
hennar þurfi að búa við
mikið óöryggi á næstu ár
um — og jafnvel neyðar
ástand og skömmtun, ef al-
varleg kuldaköst gerir.
Borgarstjórnarforsetinn
hafi í afsökunarorðum sín-
um gefið flokksbræðrum
hans hjá ríkisvaldinu „tyllr
ástæðu til að þrengja enn
mjög harkalega að þessu
fyrirtæki".
Davíð sagði, að hagur
SVK hefði ekki batnað né
farþegum fjölgað undir
vinstri stjórn. Dæmigert
hefði verið að Sigurjón
l’étursson hefði staðhæft
að verið væri að kaupa 40
nýja strætisvagna þegar 20
væru nær lagi. Varðandi
Ikarus-vagnana og verð-
samanburð við aðrar teg-
undir hefði borgarstjórn-
arforsetinn hvorki getið
þess að Ikarus-vagnarnir
rúmuðu færri farþega og
hefðu verulega skemmri
endingartíma en viðmiðun-
arvagnarnir. I»essvegna
hefði verðsamanburðurinn
verið vægast sagt villandi.
I>á veit Sigurjón vel, sagði
Davíð, að borgarráð gaf
fyrir mörgum mánuðum út
fyrirmæli um að leysa
þessa vagna út, en það
dróst langtímum saman —
og skýríngin var sögð sú að
fjármagn skorti. Engu að
síður staðhæfir borgar
stjórnarforsetinn hið gagn-
stáeða í eyru samborgara
sinna.
Fasteigna-
skattar og
íbúdarbygg-
ingar
Davíð Oddsson gerði
samanburð á skattstofni til
fasteignaskatts í Reykjavík
og í þeim sveitarfélögum,
sem Sigurjón bar sig sam-
an við í útvarpsviðtalinu.
MaLsverð fermetra í ein-
býlishúsi í Keykjavík
(steinsteyptu) væri 5.969
krónur, en 2.652 á Stykk-
ishólmi og 2.356 í Siglu-
firði. „Það er þetta mat
sem skatturinn leggst á
þannig að í mörgum tilfell-
um er fasteignaskatturinn
hér í Kevkjavík, þar sem
sama álagningarprósenta
gildir, þrefalt hærri en í
þeim kaupstöðum sem Sig-
urjón var að bera sig sam-
an við,“ sagði Davíð.
Af hverju gat borgar
stjórnarforsetinn heldur
ekki sagt sannleikann um
leiguíbúðaafrek vinstri
meirihlutans, spurði Davíð.
Hann sagði 43 leiguíbúðir í
byggingu. „Ég spurði hann
að því í borgarráði, hvar
þessar byggingar væru,
þannig að hagt væri að
taka Ijósmyndir af þeim.
Eorsetinn benti á að þær
væru í hönnun, ekki í bygg-
ingu," sagði Davíð, hann
var hreinlega að fara með
rangt mál, ekki var nú virð-
ingin fyrir Keykvíkingum
meiri en það. „Hann þarf
að fegra hina vondu að-
stöðu, sem blasir við. Hann
getur það ekki öðru vísi en
vera með samfelld rang-
indi, ósannindi í stórum
stfl. Ivtta er náttúrulega
fyrir neðan allar hellur að
smekkleysi." I*að hafa ein-
faldlega ekki verið byggðar
neinar íbúðir á kjörtímabil-
inu.
„Is tta viðtal við forseta
borgarstjórnar var að mínu
viti fyrir neðan ailar hell-
ur,“ sagði Davíð um svör
Sigurjóns, „niðurlægjandi
fyrir borgarstjórn og
smekklaust í garð stjórnar
andstöðunnar." I»ví má
e.Lv. bæla við, að smekk-
lausast var það þó í garð
hlustenda. ekki sízt Keyk-
víkinga. sem vænta þess að
forsjármenn borgarinnar
fari nokkurn veginn með
satt mál er þeir koma
„upplýsingum" á framfæri
við umbjóðendur sína og
samborgara.
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ I
MORGUNBLAÐINU
HEIMIUSTÆKI BARNAFÖT HÚSGÖGN MATVÖRUR
Vörumarkaðurinnhl.
ÁRMÚLAIa