Morgunblaðið - 09.02.1982, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9, fíBBRÚAR 1982
Flokksdeildir
gegn Schmidt
H«nn, H. ffbrúar. Al\
ÞRJÁR DKILDIR vesturþýzka sósíaldemókrataflokksins hafa snúizt önd-
veróar gegn varnarmálastefnu Helmut Schmidts kanzlara, þrátt fyrir áskor
un frá kanzlaranum um að flokkurinn sameinist fyrir mikilvægar fylkiskosn-
ingar á þessu ári og aðeins nokkrum dögum eftir sigur hans í atkvæða-
greiðslu á þingi um traustsyfirlýsingu á stjórnina.
Fulltrúar 70.000 flokksmanna
hvöttu til þess á fundi í Essen að
ekki yrði komið fyrir bandarískum
eldflaugum í Vestur-Þýzkalandi
meðan yfir stæðu viðræður
Bandaríkjamanna og Rússa í Genf
um fækkun kjarnorkuvopna.
Meirihluti fundarmanna rétti
upp hönd þegar tillagan var borin
undir atkvæði og samþykkti hana.
Ennfremur var skorað á Bonn-
stjórnina að hætta öllum undir-
búningi fyrirhugaðrar staðsetn-
ingar 108 Pershing 2 og 96 stýri-
eldflauga seinni hluta árs 1983.
Önnur og minni flokksdeild
samþykkti samhljóða áskorun um
að frestað verði staðsetningu
bandarískra eldflauga. Enn ein
flokksdeild, í Bæjaralandi, gekk
lengra og samþykkti tillögu um að
ákvörðun NATO um staðsetningu
eldflauganna yrði hnekkt og stað-
setning nýrra bandarískra eld-
flauga yrði ekki leyfð.
í fyrra hótaði Schmidt að segja
af sér ef sósíaldemókratar styddu
ekki ákvörðun NATO um stað-
setningu nýrra bahdarískra eld-
flauga eftir 1983 ef Rússar drægju
ekki úr kjarnorkuviðbúnaði í Evr-
ópu fyrir þann tima.
Sérfræðingar telja atkvæða-
greiðslurnar í flokksdeildunum
ótvírætt áfall fyrir Schmidt, sér-
staklega atkvæðagreiðsluna í Ess-
en, hefðbundnu vígi hægri arms-
ins sem Schmidt tilheyrir. Það dró
þó úr áfallinu að fulltrúar 137.000
flokksmanna lýstu yfir stuðningi
við ákvörðunina um NATO-
eldflaugarnar á fundi í Dortmund.
Þetta er fjölmennasta deild
flokksins.
Áður en atkvæðagreiðslan í
Essen fór fram sagði Schmidt að
úrslitin um traustsyfirlýsinguna
væri stórkostlegur sigur eftir
margra mánaða þjark. Hann sagði
að eining væri bráðnauðsynleg
fyrir mikilvægar fylkiskosningar í
Neðra-Saxlandi, Hamborg og
Hessen síðar á þessu ári.
Mikill halli á nýjum
fjárlögum Reagans
Krá Onnu Hjarnadóttur, frótta-
rilara Mhl. í Wa.shint'ton, H. fehrúar.
KÍKISSTJÓRN Ronald Reagans
Kandaríkjaforseta lagði fram fjárlög
fyrir árið 1983 í handaríska þinginu
um helgina. Reiknað er með 91,5
milljarða dollara halla á fjárlögn-
uum, en alls munu útgjöld ríkis
verða 757,6 milljarðar dollara og
tekjur þess 666,1 milljarður dollara.
Htgjöld ríkisins til varnarmála, í
heilbrigðis- og lífeyristryggingar
fyrir fátæka og aldraða og í greiðsíur
á vöxtum af lánum munu aðeins
aukast. Öll önnur útgjöld ríkisins
verða skorin niður.
Hallinn á fjárlögunum hefur
verið gagnrýndur harðlega. Reag-
an lagði megináherslu á nauðsyn
þess að ná fram hallalausum fjár-
lögum sem allrafyrst fyrir ári, en
nú telur hann það ekki eins mik-
ilvægt. David Stockman hagsýslu-
stjóri sagði um helgina, að kaup-
sýslumenn í Wall Street myndu
ekki bregðast illa við hallanum og
vextir myndu lækka þrátt fyrir
hazin. En kaupsýslumenn voru
ekki eins jákvæðir og Stockman og
margir óttuðust að vextir myndu
jafnvel hækka enn og seinka fyrir
batnandi efnahagsástandi.
IJregið hefur úr verðbólgu und-
anfarið og reiknað er með að hún
verði 7,3 prósent í ár. Atvinnuleysi
er hins vegar mikið og reiknað
með um 8,9 prósent atvinnuleysi í
ár.
Demókratar og margir repú-
blikanar hafa brugðist neikvætt
við fjárlögunum. James R. Jones,
demókrati og formaður fjárlaga-
nefndar fulltrúadeildar þingsins,
sagði, að reiknað hefði verið með
of skjótri uppsveiflu í hagkerfinu
við gerð fjárlaganna og spáði að
hallinn yrði mun hærri en efna-
hagsráðgjafar Reagans reikna
með. Hann sagðist búast við að
repúblikanar og demókratar
myndu vinna saman að því næstu
árin að minnka hallann og dreifa
niðurskurðinum öðruvísi en stjórn
Reagans hefur gert.
Repúblikanar stóðu sameinaðir
að baki fjárlagafrumvarpi Reag-
ans fyrir árið 1982. „Repúblikanar
sem ég tala við eru hræddir við
hallann," sagði Robert Dole, repú-
blikani og formaður fjármála-
nefndar öldungadeildarinnar.
Leiðtogar repúblikana í báðum
deildum þingsins sögðu að það
yrði erfitt að koma fjárlögunum
óbreyttum í gegnum þingið.
Stærsta skartgripa-
ránið í fjöldamörg ár
Osk». 4. frbrúar. Krá Jan Krik Kaurc.
fróllarilara Morifunblaósins.
KITT stærsta skartgriparán í Noregi
í mörg ár var framið aðfaranótt
þriðjudags, er þjófar komust undan
með ránsfeng úr gulli, sem metinn
er á um 2,5 milljónir norskra króna.
Gullið var geymt í bíl, sem stóð inni
í bílskúr á afskekktum stað nokkra
kílómetra utan við Osló.
Aðeins nokkrum metrum frá
bílskúrnum bjó konan, sem
skartgripirnir tilheyrðu. Starfar
hún sem sölumaður hjá stærsta
gullverslunarfyrirtæki Noregs.
Ekkert hefur frést til þjófanna,
sent komust að ránsfengnum með
því að brjóta rúðu í bílskúrnum og
taka síðan afturrúðu bílsins úr. I
farangursgeymslu bifreiðarinnar
voru skartgripir að verðmæti 2,5
milljóna norskra króna.
Ekki eru nema nokkrar vikur
síðan konan komst að þeirri niður-
stöðu við tryggingarfyrirtæki, að
henni væri óhætt að geyma varn-
inginn í bílnum á nóttunni. Áður
höfðu skartgripirnir verið geymd-
ir í læstum skáp á skrifstofu
hennar. Viðvörunarkerfi var tengt
við bílinn, en tengingin náði ekki
til afturgluggans og því fór sem
fór; þjófarnir sluppu burt óséðir.
Sir Freddy Laker bjartsýnn meðan allt lék í lyndi.
Símamynd'AI*.
Gjaldþrot Freddie Lakers í brennidepli í Englandi:
The Times segir Laker
hafa verið þröngv-
að til gjaldþrots
— Breska ríkisstjórnin tryggir British Airways á sama tíma 53 milljón punda lán
Krá Hildi llelgu Siguróardóttur, fréttaritara Mbl. í Lundúnum, 8. febrúar.
MIKIL SPKNNA ríkir nú í Dindon í herbúðum Jreirra, sem gera sér vonir um
að bjarga megi Laker Airways á elleftu stundu. IIr því fæst varla skorið fyrr en
á morgun, en aðilar sem til þekkja eru svartsýnir á að það muni takst.
BBOsjónvarpsstöðin hafði í kvöld eftir ónafngreindum aðilum í fjármálaheim-
inum: „Við erum fullir aðdáunar á Freddie Laker, sem persónu og því sem
hann hefur fengið áorkað á undanrörnum árum, en skuldir hans eru hreinlega
of háar til að honum verði bjargað."
Starfslið Sir Freddies hefur sýnt
mikla samstöðu með honum og
hélt í dag fylktu liði Jtil Downing
Street 10, þar sem afhentur var
hænalisti með 30.000 undirskrift-
um þess efnis að ríkisstjórnin gæfi
fyrirtækinu bankatraust þar til
möguleikar á áframhaldandi
rekstri hefðu verið kannaðir. Málið
snýst því á þessu stigi um það
hvort tekst að safna saman nægi-
legu fjármagni til að friða lána-
drottnana áður en opinberir um-
sjónarmenn ganga frá sölu á hluta
eða hlutum fyrirtækisins. „Við
viljum sýna að Sir Freddie nýtur
jafn mikils stuðnings á meðal
starfsfólksins og hann gerir hjá al-
menningi," sagði talsmaður starfs-
fólksins.
Talsmaður Freddie Lakers hefur
eftir Laker sjálfum að hann sé „af-
ar hrærður og þakklátur almenn-
ingi“ fyrir viðbrögðin við gjald-
þrotinu, enda hafa viðbrögð al-
mennings verið með ólíkindum
jákvæð miðað við hve slæmar af-
leiðingar þessi brotlending hefur
haft í för með sér fyrir þúsundir
manna. Er víst óhætt að segja að
sjaldan hafi nokkur maður fengið
jafn áþreifanlega sönnun fyrir
vinsældum sínum við það að fara á
hausinn.
Enn er unnið að því, að koma
þeim sem urðu strandaglópar við
hina óvæntu gjaldþrotsyfirlýsingu
til síns heima og gengur framar
vonum þar eð önnur flugfélög hafa
hlaupið undir bagga og leyft Lak-
er-farþegum að nýta auð sæti í vél-
um sínum.
Á elleftu stundu
The Times hefur í forsíðufrétt
eftir opinberum umsjónarmanni
Laker Airways, Bill Mackey, að
mikill áhugi ríki á meðal stórra
flugfélaga og ferðaskrifstofa
beggja vegna Átlantshafsins á að
komast yfir þann hluta fyrirtækis-
ins, sem lýtur að rekstri ferða-
skrifstofa. M.a. hefur Thompson,
sem er stærsta hópferðaskrifstofa
Breta, látið í ljósi áhuga á að
ganga inní hluta af þeim 160.000
bókunum, sem kunnugir í ferða-
mannaiðnaðinum segja, að Laker
og systurfyrirtækið Arrowsmith
hafi haft á sínum snærum. Telur
Maekey að það muni aðeins taka
2—3 daga að koma þeim eigenda-
skiptum í kring.
Mackey heldur fast við þá skoð-
un sína áð vonlaust sé að bjarga
fyrirtækinu frá því að vera boðið
út og einstaka rekstrarheildir
verði seldar hæstbjóðanda þrátt
fyrir straum tilboða um fjárhags-
aðstoð við Laker. Ber þar hæst til-
boð Orion, bankasamstæðunnar,
sem er útibú Royal Bank of Can-
ada í London, um 35 milljón punda
framlag til Lakers. Einnig vaxa ört
sjóðir, sem starfsfólk Lakers og
ýmsir einkaaðilar hafa komið á fót
og nema þær upphæðir nú þegar
milljónum punda.
Um tilboð Orion hefur Times
eftir Mackey, að því muni vissu-
lega gefinn gaumur, en að hann
telji ólíklegt að því verði tekið. „Ég
fæ ekki séð hvernig unnt er að
setja saman í skyndi raunhæfa
áætlun til bjargar, þegar fremstu
fjármálasérfræðingar Bretlands
hafa lagt sig alla fram við að gera
slíkt hið sama undanfarna tvo
mánuði án árangurs," segir Mack-
ey. Blaðið segir einnig að í gær hafi
Sir Freddie átt viðræður við nán-
ustu ráðgjafa sína og þar hafi m.a.
borið á góma þann möguleika að
hann stofnaði einskonar hlutafélag
með öðrum aðilum og reyndi að
kaupa aftur a.m.k. hluta fyrirtæk-
isins.
Mackey er mjög jákvæður gagn-
vart þeirri hugmynd. „Freddie
Laker er dugnaðarforkur og hann
á eflaust eftir að láta til sín taka
aftur þótt svona hafi farið," segir
Mackey. En þeir, sem nú berjast
fyrir því að Laker Airways fái að
starfa áfram í heilu lagi telja
þessa hugmynd neyðarúrræði, sem
aðeins yrði gripið til ef ógeflegt
reyndist að bjarga fyrirtækinu í
sinni núverandi mynd.
Laker sckkur BA
Eins og fram hefur komið í
fréttum .eru nú uppi hugmyndir
um sölu á British Airways, sem
rekið hefur verið með tapi um
langt skeið. í ritstjórnargréin The.
Times segir: „Ekkert gæti verið
eins táknrænt fyrir muninn á
ríkisrekstri og einkaframtaki og
það sem hefur verið að gerast hjá
Laker og British Airways. Þessa
viku var Laker, sem tekist hefur
betur en öllum öðrum, að halda út-
gjaldaliðum sínum í lágmarki,
þröngvað til gjaldþrots. British
Airways sem hefur sýnt einstak-
lega slælega frammistöðu í því að
samræma rekstur sinn því ástandi,
sem nú ríkir í alþjóðlegum flug-
málum, er neytt til að taka auka-
lán upp á 53 milljónir punda með
tryggingu ríkisstjórnarinnar." I
niðurlagi leiðarans segir: „Stað-
setning markalínunnar milli ríkis-
rekstrar og einkaframtaks í iðnaði
er eitt af mikilvægustu verkefnum
ríkisstjórnarinnar, sem jafnframt
er það sem henni hefur farist verst
úr hendi við að framkvæma hingað
til. Ríkisstjórnin ætti að sýna
aukna festu í tilraunum sínum til
að auka umsvif einkaframtaksins á
markaðnum."
Þá birtir blaðið tölur yfir skuldir
nokkurra flugfélaga og er British
Airways þar efst á lista, skuldar
1.860 milljónir bandaríkjadala.
Fæst á hæla BA fylgir svo Pan
American með skuldahalla upp á
1.160 milljónir dala, en skuldir
Lakers nema 540 milljónum dala.
Ekki eru allir sammála um hvar
ferðaþáttur flugrekstrar sé best
kominn og í umræðum sem fram
hafa farið á þingi undanfarna daga
í kjölfar síðustu atburða sagði
Tony Benn, þingmaður verka-
mannaflokksins, m.a. að alþjóðleg-
ar flugsamgöngur væru hverju sinni
mikilvægari en svo, að forsvaran-
legt væri að hluti þeirra væri óá-
reittur í höndum einkaaðila, sem
gætu farið á hausinn þá og þegar
með ófyrirsjáanlegum afleiðing-
um. Eðli Laker-málsins sýndi svo
ekki yrði um villst að þjóðnýta
bæri öll flugfélög.
Lánastofnanir kippa
ad sér hendinni
„Tími ódýru flugfargjaldanna er
liðinn,“ segir Terence Cale, flug-
málasérfræðingur Times og rekur
síðan hvernig einokunaraðstaða
sú, sem mörg flugfélög nutu á
ákveðnum leiðum fyrir áratug síð-
an tryggði þeim lánstraust bank-
anna og segir lánastofnanir einnig
hafa haft trú á því að sílækkandi
fargjöld frá árinu 1978 myndu gera
fjárfestingu í flugsamgöngum
óarðbærári eftir því sem tímar
liðu. „Því var flugfélögum óspart
lánað,“ segir Terence Cale.
„Nú spá fjármálamenn 35%
hækkunum á Atlantshafsflugleið-
inni, sem 40 flugfélög töpuðu 600
milljónum punda á á síðasta ári.
Markaðurinn fyrir notaðan flug-
vélakost er dauður og flugfélögin
verða að draga enn frekar úr
launagreiðslum til starfsfólks. T.d.
nema launahækkanir starfsfólk
PanAm 200 milljónum punda.
Bankarnir sýna þess engin merki
að sýna linkind við innheimtu
skulda. Umskiptin frá mikilli lána-
gleði til hörkunnar og innheimtu-
aðgerða eru hafin," segir Terence
Cale í lokin. En á meðan kenna
bankarnir öllu og öllum frá
orkukreppunni til ofurtrausts
Freddie Lakers á sjálfum sér um
hvernig komið er. Þ.e. öllum nema
sjálfum sér.