Morgunblaðið - 09.02.1982, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1982
Fram á enn möguleika
þegar ein umferð er
eftir í úrvalsdeildinni
EINN LEIKIJR fór fram í úrvalsdeildinni í körufknattleik um helgina. Fram
sigradi lið KR í spennandi leik í Hagaskóla með 74 stigum gegn 71. Staðan í
hálflcik var 35—34 fyrir Fram. Leikur liðanna var mjög sveiflukenndur þótt
hann væri jafn. Með sigri sínum í leiknum á Fram ennþá von um að verma
efsta sætið í deildinni. Nú er ein umferð eftir í mótinu og lið UMFN gæti
hæglega tapað tveimur leikjum og þá væri kominn spenna í mótið.
Hittnin ekki góð:
KR-ingar tóku þegar forystuna í
leiknum í byrjun fyrri hálfleiksins
og léku allvel. Það tók leikmenn
Fram nokkurn tíma að komast í
gang. Það var ekki fyrr en á 12.
mínútu leiksins sem þeim tókst að
jafna og þá var staðan 12—12.
Hittni leikmanna beggja liða var
frekar slök en varnarleikurinn
hinsvegar allgóður. Framarar sigu.
síðan hægt og bítandi framúr
KR-ingum þótt munurinn væri
ekki mikill. En KR-ingar slepptu
þeim aldrei langt framúr sér og
aðeins eitt stig skildi liðin í hálf-
leik.
Miklar sveiflur í
síðari hálfleik:
Mikill kraftur var í leikmönnum
KR í byrjun síðari hálfleiksins.
Þeir náðu aftur forystunni í leikn-
um og komust í 41 stig gegn 35. En
þá tóku leikmenn Fram aftur við
sér og staðan breyttist aftur Fram
í hag 46—43. Þá var aftur komið
að KR og tölur eins og 61—56 fyrir
KR sáust á töflunni. En þá datt
leikur KR nokkuð niður. Þeir voru
með forystu 63—58 er botninn
datt úr leik þeirra. Leikmenn
Fram börðust vel og náðu yfir-
höndinni í leiknum komust í 69
stig gegn 63 stigum KR: Þá voru
áðeins fimm mínútur eftir af
leiknum.
KR-ingum gekk afar illa að
skora þessar síðustu mínútur
leiksins og Fram komst í 73—65,
og náði að gera út um leikinn. Að
vísu klóruðu KR-ingar í bakkann
undir lokin og minnkuðu muninn
miKiii Krauur var i leiiuuuiiiiuiu unuir lOKin Og minnKi
Finnur og María
sigruðu á Siglufirði
niður í 71—73 en það dugði ekki
til, Fram átti síðasta orðið í leikn-
um og sigraði.
Liðin
Stu Johnsson í liði KR bar af og
skoraði 34 stig, Jón Sigurðsson
lenti í villuvandræðum og varð að
hvíla lengi í síðari hálfleiknum.
Garðar átti sæmilegan leik en
minna bar á öðrum. Ungu menn-
irnir í liði KR komu sæmilega frá
leiknum og eiga framtíðina fyrir
sér.
Lið Fram lék oft vel og verður
gaman að sjá síðustu viðureign
Fram og UMFN í mótinu að þessu
sinni. Símon Ólafsson lék mjög vel
í liði Fram ásamt Val Brazy. Þá
átti Viðar skínandi góðan leik
bæði í vörn og sókn. En Viðar hef-
ur nýlega verið valinn í lands-
liðshóp í körfuknattleik. Þorvald-
ur var og drjúgur og Þórir Ein-
arsson kom vel frá leiknum.
Stig KR: Johnsson 34, Garðar
12, Jón 9, Stefán 8, Páll 4, Ágúst 2,
og Birgir 2.
Stig Fram: Brazy 26, Símon 19,
Viðar 15, Þorvaldur 7, Þórir 5,
Björn 2. — j>r.
• Garðar reynir að skjóta en er umkringdur leikmönnum Fram. Sí-
mon og Þorvaldur eru greinilega ekki á því að láta Garðar skora.
KEPPT var á Siglufirði um helgina í
skíðagöngu, en þar fór fram bikar
keppni Skíðasambands íslands.
Keppt var í 15 km göngu. Finnur
Konráðsson frá Olafsfirði sigraði,
gekk vegalengdina á 38 mínútum 29
sek. Annar varð Þröstur Jóhannes-
son frá ísafirði á 39,44 og í þriðja
sæti varð Guðmundur Garðarsson
frá Ólafsfirði, gekk á 41,46 mín. Sig-
urvegari í kvennaflokki varð María
Jóhannesdóttir frá Siglufirði.— ÞR.
Öruggur tuttugu s|iga
sigur UNIFN gegn IR
95 kepptu á stór-
svigsmóti Ármanns
Um helgina fór fram stórsvigsmót
Armanns í Bláfjöllum. 95 keppendur
voru skráðir í keppnina.
Ilelstu úrslit urðu þessi:
Keppt í stór-
svigi á Akureyri
KEPIT var í tveimur flokkum á
Akureyrarmótinu í stórsvigi um
hclgina. í flokki 13—14 ára drengja
sigraði Guðmundur Sigurjónsson
KA á 103,98, Guðmundur Magnús-
son KA varð annar á 108,08 og
Hilmir Valsson Þór varð þriðji á
111,32. í flokki 15—16 ára drengja
sigraði Tryggvi Haraldsson KA á
134,23, Ingólfur Gíslason l>ór varð
annar á 134,76, og Rúnar Kristjáns-
son KA varð þriðji á 137,00.
sb./gg.
13—15 ára stúlkur:
Kristín Ólafsdóttir KR 103,65
Helga Stefánsdóttir ÍR 106,17
Bryndís Viggósdóttir KR 106,63
Drengir 13—14 ára:
Sveinn Rúnarsson KR 101,66
Þór Jónsson ÍR 104,46
Gunnar Smárason ÍR 105,95
Drengir 15—16 ára:
Ásmundur Helgason ÍR 112,11
Gunnar Helgason ÍR 114,03
Hermann Valsson ÍR 115,39
Kvennaflokkur:
Ásdís Alfreðsdóttir Á 110,11
Guðrún Björnsdóttir Vík. 119,94
Björk Harðardóttir Á 138,09
Karlaflokkur:
Kristinn Sigurðsson Á 105,39
Einar Úlfsson Á 105,41
Jónas Ólafsson Á 106,19
ÞR.
UMFN—ÍR 100:80 (43:41)
LÍKURNAR fyrir því að íslands-
meistaratitillinn hafni syðra jukust
til muna á föstudagskvöldið, þegar
UMFN sigraði ÍR-inga, í Njarðvík-
unum, með 100 stigum gegn 80, eftir
að hafa leitt í hálfleik, með aðeins
tveggja stiga mun, 43:41. UMFN
heldur því nokkuð öruggri forustu í
deildinni með fjórum stigum um-
fram skæðasta og erfiðasta keppi-
nautinn, Frammara, en einmitt við
þá eiga Njarðvíkingar að reyna sig á
fostudaginn syðra og er þess leiks
áreiðanlega beðið með mikilli eftir
væntingu af körfuknattleiks-
áhugamönnum.
Allt benti til þess að Njarðvík-
ingar ætluðu að vinna stórsigur á
IR-ingum, þegar á fyrstu mínút-
unum. Hratt spil og einstök
ákveðni sumra leikmanna UMFN,
eins og Jónasar Jóhannessonar í
fráköstum og Jóns Viðars, sem
gætti Bob Stanleys eins og sjaáld-
urs auga síns, kom illa við ÍR-
ingana. Þeim mistókst flest á
meðan heimamenn „röðuðu" í
körfuna svo fyrr en varði var stað-
an orðin 19:7, en þá tókst ÍR-
ingum að ná hraðanum niður,
hófu göngubolta og „stilltu upp“ í
mestu rólegheitum og skipulögðu
sóknaraðgerðir. Aðallega var þar
að verki Kristinn Jörundsson, sem
hóf kerfin eða braust í gegn um
Njarðvíkurvörnina, eins og honum
hefur verið lagið í 15 ár, að fróðra
manna sögn.
Saxaðist óðum á forskot UMFN,
svo að munurinn var aðeins tvö
stig í hléi, en Hilmar Hafsteinsson
þjálfari sá að við svo búið mátti
ekki standa. Svefnmeðul ÍR-inga
hættu að virka á heimamenn, þeg-
ar þeir settu að nýju á fulla ferð í
byrjun seinni hálfleiks. Var þá
ekki að sökum að spyrja. Njarð-
víkurvélin hikstaði ekki eftir það,
og svo bættist við að Bob Stanley,
var kominn með fjórðu villuna
þegar í fyrri hálfleik og gat því
, ekkj bei,t,t sér að fu|lu,í þeim seinni
og hafði það sitt að segja fyrir
ÍR-inga, sem óttuðust það sýni-
lega að missa hann út af þá og
þegar.
Elnkunnagjöfin
KR:
Birgir Mikaelsson 6
Jón Sigurðsson 7
Garðar Jóhannsson 6
Kristján Oddsson 6
Stefán Jóhannsson 6
Ágúst Líndal 6
Páll Kolbeinsson 6
Fram:
Þorvaldur Geirsson 7
Viðar Elíasson 7
Símon Olafsson 8
Björn Magnússon 5
Ómar Þráinsson 5
Þórir Einarsson 7
Lárus Örnólfsson 5
UMFN:
Valur Ingimundarson 8
Jónas Jóhannsson 8
Jón Viðar Matthíasson 7
Ingimar Jónsson 5
Gunnar Þorvarðarson 6
Sturla örlygsson 4
Brynjar Sigmundsson 4
Smári Traustason 4
ÍR:
Kristinn Jörundsson 8
Jón Jörundsson 7
Ragnar Torfason 7
Benedikt Ingólfsson 6
Sigurður Þórisson 5
Hjörtur Oddsson 5
Sigmar Karlsson 4
Nokkur harka færðist um tíma í
leikinn. Hinn skapríki Bob Stan-
ley undi illa gæslu Jóns Viðars og
struku þeir vanga hvors annars,
þegar hitna tók í kolunum. Dóm-
ararnir, bræðurnir Sigurður og
Gunnar Valgeirssynir, máttu því
hafa sig alla við að flauta og
lækka rostann í leikmönnum, með
stundum of löngum samræðum,
því ekki voru allir beinlínis sam-
mála úrskurðum þeirra, þar á
meðal Agnar Friðriksson, liðs-
stjóri ÍR-inga, sem fékk ekki þá
mínútu til leikmannaskipta, þegar
um meiðsl er að ræða. Sú regla
virðist eitthvað fara á milli mála
hjá dómurum og ekki í fyrsta sinn
sem hún gleymist að því er okkur
var tjáð.
Að vanda var það Danny Shouse
sem var besti maður UMFN, en
Jónas, Jón Viðar og ekki hvað síst
Valur Ingimundarson voru sann-
arlega f egsinu sínu í leiknum. ,
Kristinn Jörundsson, Bob Stan-
ley og Jón Jörundsson báru ÍR-
liðið uppi ásamt Ragnari Torfa-
syni. emm
STAÐAN
Staðan í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik er nú þessi þegar ein um-
ferd er eftir:
Njarðvík
Fram
Valur
KR
ÍR
ÍS
15 12 3 1301:1177 24
15 10 5 1245:1150 20
15 9 6 1235:1189 18
15 8 7 1157:1226 16
15 5 10 1169:1250 10
15 1 14 1208:1363 2
Næsti leikur í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik fer fram á miðviku-
dagskvöld í Hagaskóla, þá leika kl.
20.00 lið ÍR og Vals.
- ÞR