Morgunblaðið - 09.02.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, J>RIDJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1982
Matthías Bjarnason:
Ráðuneyti ákvarð-
ar lagasetningu
Ekkert samráð við sjávarútvegsnefndir
þingsins, sagði Garðar Sigurðsson (Abl)
Harðar umræður urðu í neðri deild Alþingis í gær, er Garðar Sigurðs-
son (Abl) mælti fyrir nefndaráliti um ákvörðun 7% olíugjalds af fisk-
verði óskiptu til fiskiskipa. Hann sagði þetta mál hafa verið ákveðið og
afgreitt án samráðs við sjávarútvegsnefndir þingsins og áður en það var
kynnt á Alþingi, sem standi nú frammi fyrir gerðum hlut, eins og
afgreiðslustofnun. Ekki sé þó fært annað en fylgja málinu eftir, þar sem
það hafi verið ein af forsendum fiskverðsákvörðunar og samkomulags í
kjarasamningum hagsmunaaðila í sjávarútvegi. En þetta er auðvitað
röng aðferð, sagði Garðar, að mál sem þetta skuli afgreitt af aðilum úti
í bæ, en þingið látið koma að gjörðum hlut.
• Matthías Bjarnason (S) sagði
lögum um olíugjald hafa verið
breytt þrisvar sinnum á árinu
Matthías Bjarnason (S) hefur
mælt fyrir frumvarpi til breytinga
á tekju- og eignaskattsiögum, þess
efnis, að skattaðili geti farið fram
á frestun skattlagningar á sölu-
hagnaði af landi bújarða, ófyrn-
anlegum náttúruauðæfum á bú-
jörðum, atvinnuhúsnæði, tækjum,
bátum og öðrum eignum, sem not-
aðar eru í atvinnurekstri, um
tvenn áramót frá söludegi, enda
afli hann sér sambærilegra eigna
eða íbúðarhúsnæðis allt að þeim
stærðarmörkum, sem greinir í 16.
gr. viðkomandi laga, í stað hinna
seldu eigna innan þess tíma og
færist þá söluhagnaðurinn fram-
reiknaður samkvæmt ákvæðum
26. gr. til lækkunar stofnverði
hinnar nýju eignar. Nemi stofn-
verð hinnar nýju eignar lægri
fjárhæð en söluhagnaðinum telst
mismunurinn til skattskyldra
tekna. Þessi meðferð söluhagnað-
ar er því aðeins heimil að seljandi
1981: Fyrst ákveðið 5% í janúar-
mánuði, síðan lækkað í 2,5% í apr-
il en loks hækkað í 7,5% í nóvem-
hafi haft atvinnurekstur á hinni
seldu eign að aöalstarfi í a.m.k. 5
ár á sl. 8 árum á undan söludegi og
stundi atvinnurekstur á sama hátt
á hinni keyptu eign eða eigi hið
keypta húsnæði í a.m.k. tvö ár eft-
ir kaupdag.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að
til viðbótar fyrningu samkvæmt
38. grein sé heimilt að fyrna eign-
ir, samanber 32. grein, um fjár-
hæð jafna skattskyldum hluta
söluhagnaðar af fyrnanlegum
eignum á sama rekstrarári og
söluhagnaður færist til tekna.
Frumvarpið gerir og ráð fyrir
að 53. grein laganna falli niður.
I ákvæðum til bráðabirgða seg-
ir: „hafi verið lagður tekjuskattur
eða önnur opinber gjöld á skatt-
þegn vegna tekjufærslu sam-
kvæmt 53. grein á skattframtölum
1980 og 1981 skal skattstjóri
endurreikna gjöld hans miðað við
það að tekjufærsla sé felld niður.
ber. Nú hefur það í raun verið
ákvarðað af viðkomandi ráðu-
neyti, án samráðs við þingið eða
sjávarútvegsdeildir þess, að lækka
þetta gjald í 7% (þ.e. um V4%).
Við sjálfstæðismenn deilum hart á
þessa málsmeðferð og þau vinnu-
brögð, að það sé ákvarðað í ráðu-
neyti, hvernig lagasetningu Al-
þingis skuli háttað, og teljum virð-
ingu og starfsrétti Alþingis stór-
lega misboðið.
Fulltrúar sjálfstæðismanna í
nefndinni, Pétur Sigurðsson og
Halldór Blöndal, auk mín, höfum
lýst því yfir, að við teljum að hlut
útgerðarinnar í olíuverði eigi að
bæta með sameiginlegum aðgerð-
um, enda margföldun olíuverðs á
heimsmarkaði utanaðkomandi
áfall fyrir þjóðarbúið í heild, sem
sjómenn eiga ekki einir að bera, en
þrátt fyrir þessar marggefnu yfir-
lýsingar hefur sjávarútvegsráð-
herra ekki séð ástæðu til að taka
upp viðræður við okkur um breytt
fyrirkomulag.
Alþingi stendur nú frammi fyrir
orðnum hlut, ákvörðun ráðuneytis
um olíugjald og samningum sjó-
manna og útvegs eftir verkfall,
sem skaðað hefur þjóðarbúið mik-
ið, og því á þingið engra annarra
kosta völ en láta þetta frumvarp
ná fram. Við sjálfstæðismenn
munum því ekki greiða atkvæði
gegn því, hins vegar sitja hjá.
Matthías spurði loks sjávarút-
vegsráðherra um þróun olíuverðs,
sem nú virtist fara lækkandi, eftir
fréttaskrifum í erlendum fagrit-
um, og væri æskilegt, að ráðherra
léti þinginu í té greinargerð um
stöðu og horfur í olíuverðsmálum.
• Sighvatur Björgvinsson (A) sagði
m.a., að sjávarútvegsráðherra og
fleiri framsóknarmenn hefðu látið
hafa eftir sér, bæði í þingræðum
og fjölmiðlum, að leggja beri olíu-
gjaldið í núverandi mynd niður. í
orði hefðu þeir framsóknarmenn
því skoðun á málinu, en í reynd
létu þeir að vilja Alþýðubanda-
lagsins. Þingflokkur framsókn-
armanna væri nánast sem gólf-
þurrka Alþýðubandalagsins í nú-
verandi stjórnarsamstarfi. Þetta
hefði sannast margoft en hvað eft-
irminnilegast nú í þessu olíu-
gjaldsmáli, að ógleymdri „niður-
talningunni".
• Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra sagði raunverð
olíu til útvegs hafa verið einu pró-
sentustigi lægra í árslok 1981 en
1980. Spár stæðu til áframhald-
andi olíuverðslækkunar næstu
misseri og væri brátt að vænta yf-
irlits frá viðskiptaráðuneyti um
stöðu og horfur í þessum málum.
Rýrnun nýkrónunnar og innlend
verðbólga væri þó þess valdandi,
að verðlækkun benzíns og olíu er-
lendis segði ekki til sín í verðlækk-
un hér heima, því miður. Hann
taldi mál hafa þróast það hratt á
seinustu dögum samninga í sjáv-
arútvegi, að ekki hefði unnizt tími
til að hafa samráð við sjávarút-
Psoriasis og
exemsjúklingar
Ákveöið er að stofna til 2ja hópferða fyrir psori-
asis og exemsjúklinga til eyjarinnar Lanzarote,
10. apríl og 22. apríl.
Dvalið veröur á heilsustööinni Panorama. Fyrirkomulag veröur
meö svipuöum hætti og í fyrri ferðum.
Þeir, sem hafa áhuga á aö taka þátt í þessum ferðum, vinsam-
lega fáiö vottorö hjá húösjúkdómalækni um þörf á slíkri ferö og
sendiö þaö merktu nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri og síma til
T ryggingayfirlæknis,
Tryggingastofnun ríkisins,
Laugavegi 114, 3. hæö.
Umsóknir veröa aö berast fyrir 1. marz.
Tryggingastofnun ríkisins.
Samtök psoriasis og exemsjúklinga
Breytingartillaga við skattalög:
Frestun skattlagn-
ingar á söluhagnaði
Garðar Sigurðsson
Sighvatur Björgvinsson
vegsnefndir Alþingis, svo sem
æskilegt hefði verið.
• Pétur Sigurðsson (S) benti m.a.
á, að skv. ákvörðun Alþingis væri
olía til húshitunar greidd niður.
Þar væri kominn skilningur á og
samþykki fyrir því, að verðþróun á
olíu undanfarin nokkur ár væri
utanaðkomandi áfall, sem þjóðin í
heild þyrfti að bera. Sama ætti að
gegna um fiskiskipin. Rangt væri
að sjómenn einir öxluðu þetta
áfall.
Sjávarútvegsráðherra talaði títt
um rangt form olíugjalds, eins og
nú væri framkvæmt, en jafnoft
léti hann lögfesta rangindin og
semdi jafnvel um þau framhjá Al-
þingi.
• Garðar Sigurðsson (Abl) sagði
sjávarútvegsráðherra ekki hafa
talað við sig, sem formann sjávar-
útvegsnefndar neðri deildar, um
olíugjaldsákvörðun. Ég hringdi
hinsvegar í ráðherra til að krefja
upplýsinga. Málið var heldur ekki
rætt að gagni í þingflokkum, eins
og ráðherra lætur liggja að, a.m.k.
ekki i mínum þingflokki, heldur
var einfaldlega afgreitt framhjá
þinginu. Ég get hinsvegar ekki tal-
að gegn olíugjaldi nú, meðan ekk-
ert annað og betra liggur fyrir til
að leysa vandann. Við stöndum
einfaldlega gagnvart orðnum hlut.
Garðar sagðist að gefnu tilefni
vilja láta koma skýrt fram, að sú
gagnrýni á vinnubrögð ráðherra,
sem fram kæmi í nefndaráliti,
hefði ekki síður verið frá fram-
sóknarmönnum i nefndinni en sér.
Á hitt væri og rétt að minna, að
olíugjaldið í núverandi mynd væri
fyrst komið frá sjávarútvegsráð-
herra Alþýðuflokksins. Gallinn
við þetta form, auk þess sem
gjaldið bitnaði á einni starfsstétt,
væri að olía væri bætt jafnt til
allra skipa, hvort heldur olía væri
5% af útgerðarkostnaði eða 25%,
eftir veiðiaðferðum. Sumir
græddu því á gjaldinu (síldveiðar,
jafnvel netabátar) en togarar yrðu
mjög illa úti.
iii
Matthías Rjarnason
Steingrímur Hermannsson
Stjórnarfrumvarp:
Blindrabóka-
safn Islands
Kram hefur verið lagt stjórnar
frumvarp um Blindrabókasafn ís-
lands. Það verður þrískipt: 1) út-
láns- og upplýsingadeild, 2)
námsbókadeild og 3) tæknideild.
Með Blindrabókasafni er ætlunin
að koma upp ríkisstofnun, sem
leysi af hólmi Hljóðbókasafn
Borgarbókasafns Reykjavíkur og
Blindrafélagsins, sem þjónustu-
stofnun við blinda og aðra þá sem
ekki geta fært sér í nyt venjulegt
prentletur.
Blindrabókasafn íslands skal
annast framleiðslu, útgáfu og
miðlun hljóðbóka og blindralet-
ursbóka með efni skáldverka og
fræðirita, þ.á m. námsgagna.
Menntamálaráðuneytið skipar
5 manna stjórn til 4ra ára: tvo
tilnefnda af Blindrafélagi, einn
tilnefndan af Félagi íslenzkra
sérkennara, einn tilnefndan af
Bókavarðafélagi íslands og einn
fulltrúa menntamálaráðuneytis.
Stjórnin gerir framkvæmdaáætl-
anir, staðfestir fjárhagsáætlanir
og ber ábyrgð á heildarstarfsemi
og fjárreiðum stofnunarinnar.
Veistu hvaöa litqónvaipstæki
feest meö útborgun firá
kr.2-3þus • og eftirstöóvum til alltaóömánaða?