Morgunblaðið - 09.02.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1982
37
brugðust, því 22. des. sl. fór hún
aftur á Borgarspítalann þar sem
hún lést 2. febrúar.
Friðný átti marga góða vini sem
fylgdust með líðan hennar, reyndu
að aðstoða hana og létta henni
sjúkdómsbyrðina. Ég veit að hun
sjálf og systkini hennar þakka
þeim af alhug. Ég held að ég halli
ekki á neinn, þó að ég nefni auk
Herdísar, Pálínu Hafsteinsdóttur,
sem Friðný kynntist á vinnustað.
Friðný hafði þá venju að nota
mikið eignarfornöfn með nöfnum
þeirra sem henni þótti vænt um.
Eins og hún sagði „Stína mín“ og
„Herdís mín“ var það einnig hún
„Pálína mín“.
Við erum mörg sem söknum
Friðnýjar, en nú sem endranær er
tómarúmið og söknuðurinn mest-
ur hjá hennar nánustu; Friðjóni
sem var hennar stoð og stytta í
veikindum hennar og Öllu sem
vegna sinna veikinda gat ekki ver-
ið nálægt systur sinni. Þeim báð-
um, mági hennar Arne, Herdísi og
bræðrabörnum Friðnýjar votta ég
innilega samúð mína og minnar
fjölskyldu.
Friðný talaði síðustu mánuðina
mikið um bernskustöðvarnar, þar
sem foreldrar hennar hvíla. Hug-
ur hennar dvaldi við foreldrana og
bernskuheimilið. Sjálfsagt slítur
maður aldrei til fullnustu upp alla
þá rótaranga sem festast þar sem
barnsskónum er slitið.
I dag verður Friðný jarðsett í
Fossvogskirkjugarði við hlið
Sveins bróður síns, sem hún hafði
svo miklar mætur á. Ég trúi því að
nú líði henni vel, umvafin ást
löngu látinna foreldra og systkina.
Elskulegri frænku minni þakka
ég góða samfylgd.
Guð blessi Friðnýju.
Ingibjörg Jónsdóttir
Friðný Sigúsdóttir, skrifstofu-
stjóri er látin. Hún andaðist 2.
þ.m. eftir þungbæra sjúkdóms-
legu, og stríð við ólæknandi sjúk-
dóm.
Friðný Sigfúsdóttir fæddist á
Norðfirði 23. desember 1917, dótt-
ir hjónanna Ólafar Guðmunds-
dóttur og Sigfúsar Sveinssonar,
kaupmanns og athafnamanns þar.
Hún stundaði þar almennt skóla-
nám, varð gagnfræðingur, en
hleypti heimdraganum jafnskjótt
og möguleikar leyfðu, og hélt utan,
því að hugur hennar stóð til frek-
ara náms. Stundaði hún m.a. nám
við „Kebmandsskolen" í Kaup-
mannahöfn og lauk þaðan prófi.
Æfistarf hennar má segja að
hafi hafist, er hún í október 1947
réðst sem ritari á skrifstofu póst-
og símamálastjóra, sem þá var
Guðmundur Hlíðdal. Átti sú
skrifstofa eftir að verða starfs-
vettvangur hennar allt þar til yfir
lauk, við sívaxandi umsvif, fyrst
með Guðmundi Hlíðdal, eins og
fyrr segir, þá með Gunnlaugi
Briem og að síðustu með Jóni
Skúlasyni.
Friðný Sigfúsdóttir átti þannig
að baki nærri 35 ára starf hjá
Póst- og símamálastofnuninni
sem ritari, fulltrúi og skrifstofu-
stjóri á skrifstofu póst- og
símamálastjóra, sem m.a. felur í
sér yfirumsjón með aðalskjala-
safni stofnunarinnar og öllum er-
indum til og frá yfirstjórn stofn-
unarinnar. Af trúmennsku, alúð
og samviskusemi rækti hún starf
sitt, tókst á við verkefni dagsins af
einbeitni og festu. Oft var eril-
samt, margir þurftu að eiga við
hana orð, samstarfmenn sem að-
rir. Öllu þessu tók hún með jafn-
aðargeði og öryggi þeirra, sem
vaxa með hverjum vanda.
Friðný Sigfúsdóttir axlaði
þannig léttilega byrðar starfsins
fyrir sakir elislæga mannkosti og
haldgóða menntun, ekki síst í
tungumálum, en um hendur henn-
ar fóru hvern dag erindi til stofn-
unarinnar og frá á ensku, frönsku
og þýsku, auk Norðurlandamála.
Vegna hinnar góðru dönskukunn-
áttu var henni oftar en hitt falið
að vera ritari á norrænum póst-
og símaráðstefnum og samdi
fundargerðir þeirra. Ennfremur
voru heni falin vandasöm þýð-
ingarverkefni.
Friðný Sigfúsdóttir var há vexti
og grönn, tíguleg í fast, fáguð í
framkomu. Hún hafði yndi af list-
um, sótti reglulega hljómleika.
Lengst af hafði hún samastað hjá
vinkonu sinni, Herdísi Guð-
mundsdóttur, en fyrir nokkru
hafði hún keypt sér íbúð og búið
sér vistlegt heimili, sem bar
smekk hennar og snyrtimennsku
fagurt vitni.
Samstarfsmenn hennar og vinir
minnast hennar með virðingu og
þökk.
Blessuð sé minning Friðnýjar
Sigfúsdóttur.
Rafn Júlíusson
Okkur langar með fáum orðum
að minnast vinkonu okkar, Frið-
nýjar Sigfúsdóttur, sem lést í
Reykjavík 2. februar sl.
Friðný var fædd á Norðfirði
23.12.1917, dóttir hjónanna Ólafar
Guðmundsdóttur og Sigfusar
Sveinssonar, kaupmanns og útge-
rðarmanns þar.
Hún stundaði nám í verzlunarf-
ræðum við „Kobmandsskolen" í
Kaupmannahöfn og lauk þaðan
prófi.
Eftir heimkomuna starfaði hún
fyrst hjá Ellingsen og síðan hjá
Ándvöku. Árið 1947 hóf Friðný
störf hjá Póst- og símamála-
stjórninni, en hjá þeirri stofnun
starfaði hún óslitið, þar til hún
veiktist á síðastliðnu ári, fyrst
sem einkaritari en síðast sem
skrifstofustjóri á skrifstofu póst-
og símamálastjóra.
Við minnumst margra ánægju-
legra stunda, er við áttum saman.
Friðný var greind og skemmtileg
kona, hreinskiptin og trygglynd en
umfram allt góð kona.
Hún var með afbrigðum fær og
samviskusöm til allrar vinnu.
Friðný bar sterkan persónu-
leika, sem aldrei gleymist þeim, er
henni kynntust.
Hún átti sér lifandi trú og
gamla, góða brosið hennar, einnig
fársjúkrar, sem lýsti svo vel æðru-
leysinu, mun fylgja okkur alltaf.
Við munum sakna hennar sárt.
Samúðarkveðjur sendum við
systur hennar, Aðalbjörgu, sem
búsett er í Danmörku, bróður hen-
nar, Friðjóni, hér í Reykjavík, og
ennfremur Herdísi Guðmundsdót-
tur, sem Friðný lengst af hélt hei-
mili með.
Guð blessi hana.
Vinkonur
Ég kveð Kjartan með þökk fyrir
liðna tíð og bið honum velfarnað-
ar. Ég sendi mínar innilegustu
samúðarkveðjur á Mjóeyrina, til
blessaðrar systur minnar, til þín
Guðný mín, dætra, tengdasonar og
barnabarna.
Kjartan Björgvinsson
- Minningarorð
Fæddur 21. maí 1921
Dáinn 31. janúar 1982
Mig langar að minnast frænda
míns, Kjartans, sem lauk sinni
jarðvist þann 31.1. 1982. Hann var
fæddur í Reykjavík þ. 21.5 1921.
Hann flutti ungur með foreldum
sínum austur á land, þau voru Sig-
urveig Kristjánsdóttir og Björgvin
Guðmundsson, sem bjuggu mest-
an sinn búskap á Eskifirði og þar
ólst Kjartan upp og bjó til dauða-
dags. Kjartan kvæntist eftirlif-
andi konu sinni, Guðnýju Stef-
ánsdóttur. Þau eignuðust þrjár
dætur: Rósu, gifta Þorsteini Sig-
fússyni, þau eiga 2 börn og búa á
ísafirði, Jónbjörgu, gifta Ásbirni
Sigurðssyni, þau eiga 1 dreng og
búa á Selfossi, og Sigurveigu sem
er við nám á Akureyri. Kjartan og
Guðný bjuggu allan sinn búskap á
Mjóeyrinni. Sá staður var honum
mjög kær og þar fékk hann að
ljúka æfi sinni. Þessi elskulegi
frændi minn var ávallt sami góði
og skemmtilegi frændinn frá
fyrstu tíð, var næstelstur í systk-
inahópnum, en þau voru 5 og einn
fósturbróðir. Kjartan var þeirrar
gæfu aðnjótandi að vera samvist-
um við móður sína allt sitt líf, sem
hann umvafði elsku og öryggi þeg-
ar aldurinn færðist yfir hana og
þegar hún varð fyrir þeirri sorg að
sjá af dóttur sinni fyrir 2 árum,
sem var mikill sjónarsviptir að.
Það eina sem hefir skyggt á lífs-
göngu Kjartans, var að heilsan
var ekki nógu góð. En þar var
hann alltaf eins og hetjan, sem
stóð eins lengi og stætt var. En
mig grunar að hann hafi verið
orðinn þreyttur síðustu 2 árin,
sem voru honum mjög erfið. Vinur
okkar dauðinn leysti hann af
hólmi.
„Óttinn við dauðann er eins og
ótti smaladrengsins við konung
sem vill slá hann til riddara. Og
hvað er að hætta að draga andann
annað en að frelsast frá friðlaus-
um öldum lífsins, svo hann geti
risið upp í mætti sínum og ófjötr-
aður leitað á fund guðs síns.
K.G.“
Ég bið Guð að styrkja ykkur.
Anna
dppkz
_ _
Apple-tölvu- og forritakynning
kl. 4-6
Þriöjud. 9. febrúar:
Visi Calc — Visiplot
Forrit, sem reiknar stór dæmi á sekúndum, sem
tæki þig daga eöa vikur. Tilvaliö fyrir áætlanagerö,
Miðvikud. 10. febrúar:
Lagerbókhald
fyrir þá, sem vilja hafa allt á hreinu.
Fimmtud. 11. febrúar:
Visi Calc — Visiplot
Forrit sem reiknar stór dæmi á sekúndum, sem tæki
þig daga eöa vikur. Tilvaliö fyrir áætlanagerö.
Föstud. 12. febrúar:
Viðskipta-
mannabókhald
VERSLIÐ f
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI
SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800
Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir.
Vinsamlega mætiö tímanlega.
EF ÞAÐ ERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR HF 80 23
...auðvitaö
GRUnDIG
LaugavegilO, sími 27788