Morgunblaðið - 09.02.1982, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1982
47
Menntaskólinn við Sund:
Þorravaka hefst á morgun
IÍAGANA 10.—16. febrúar verður
haldin árleg Þorravaka í Mennta-
skólanum við Sund. Þá daga er m.a.
boðið upp á fjölbreytta dagskrá, sem
opin er almenningi. Kennir þar
margra grasa:
Miðvikudaginn 10. febr.: Kl.
13.00 setning, kl. 20.30 tónleikar,
Mezzoforte og Jóhann Helgason,
fimmtudaginn 11. febr.: Kl. 13.00
Þórhallur Vilmundarson, örnefna-
fræðingur, ræðir kenningar sínar,
kl. 15.00 Krossinn og hnífsblaðið
(kvikmynd), föstudaginn 12. febr.:
Kl. 13.00 Þórarinn Eldjárn kynnir
verk sín. Lesið úr verkum Vitu
Andersen. Klassískur gítarleikur.
Kl. 20.00 Vísnavinir. Mánudaginn
15. febr.: kl. 13.00 Tappi tíkarrass
spilar, kl. 13.30 uppgjörið, kl. 14.30
sýnishorn frá Fjalakettinum, kl.
20.00 uppákomukvöld fram-
haldsskólanna. Laugardaginn 13.
febrúar verður skemmtun með
óvæntum uppákomum nemenda
frá morgni til kvölds. — Auk þess
verður þriðjudagurinn 16. kynn-
ingardagur þar sem sýnt verður
það helsta úr skólalífinu. Foreldr-
ar og grunnskólanemar eru hvatt-
ir til að mæta, segir í frétt frá
skólanum.
Háskólabíó:
„Silver Dream Racer“
- Ný og fullkomin hljómflutningstæki tekin í notkun
HÁSKÓLABÍÓ frumsýnir nú mynd-
ina „Silver Dream Racer“, en sögu-
þráður myndarinnar fjallar um tvo
karla og konu, sem eiga sameigin-
legt áhugamál, vélhjólakappakstur.
Myndin er sýnd með „Dolby
Stereo“ hljóm, en bíóið hefur nýlega
endurnýjað hljómflutningstæki sín.
Aðalhlutverk myndarinnar leik-
ur David Essex söngvari, en einnig
leikur Cristina Raines í myndinni.
Essex leikur vélhjólaáhugamann-
inn, sem reiðubúinn er að hætta
öllu til að sigra andstæðinga sína.
„En fleiri hafa áhuga á sigrinum
og ung ekkja vill hefna dauða eig-
inmanns síns á vélhjóla-
brautinni," segir í kynningu bíós-
ins á myndinni.
Eins og segir hefur Háskólabíó
nú endurnýjað hátalarakerfi sitt
og hefur verið komið fyrir í stað
venjulegra bíóhátalara þrem tvö-
földum JBL-hátölurum, sem hver
um sig er 2,30 metrar að hæð og
1,40 metrar að breidd. Vega þeir
tæpt tonn. Voru þeir valdir sam-
kvæmt ráðleggingum frá Dolby-
verksmiðjunum. I kynningu Há-
skólabíós segir að fullyrða megi að
þessir hátalarar séu hinir stærstu
og kraftmestu, sem séu í bíóum
hérlendis, enda hafi hljómburður
gjörbreytzt í húsinu.
Cristina Raines og David Ks.sex í hlutverkum sínum í „Silver Dream Racer“.
Voru látnir þrífa eggin
Nokkrir piltar hugðust gamna sér eitthvað sl. laugardag og hentu all-
mörgum eggjum í dyr Alþingishússins. Varð af því nokkur sóðaskapur, en
brugðið var skjótt við og náðust piltarnir eftir skamma stund. Var þeim
gefinn kostur á að þrífa eftir sig og útveguðu þingverðir sápu og tilheyr
andi. Sluppu piltarnir því með skrekkinn og voru ekki teknar af þeim
skýrslur hjá lögreglunni. Ljósm. Júlíus.
Fjallað um Bröttugötu
6 í borgarstjórn:
Samþykkt ad gefa
handhafa næst
hæsta tilboðs kost
á að ganga inn í
hæsta boð
BORGARSTJÓRN samþykkti á
fundi sínum fimmtudaginn 4. febrú-
ar, að gefa tilboðshafa næsthæsta
tilboðs í húsið Brattagata 6, kost á _
að ganga inn í hæsta tilboð sem
barst í eignina, en handhafi þess til-
boðs féll frá tilboði sínu. Það tilboð
hljóðar upp á rúma milljón króna.
Atkvæði féllu þannig í borgar-
stjórn að 11 fulltrúar greiddu
þessari tillögu atkvæði, tveir borg-
arfulltrúar, þau Albert Guð-
mundsson og Guðrún Helgadóttir,
voru á móti. Hins vegar sátu Ólaf-
ur B. Thors og Páll Gíslason hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Þegar þetta mál kom á dagskrá
kvaddi Albert Guðmundsson sér
hljóðs og lýsti því yfir að hann
væri andvígur þessari málsmeð-
verð. Taldi Albert að gefa ætti
j>eim tilboðshafa sem nú ætti
efsta tilboð, kost á að kaupa eign-
ina í samræmi við tilboð sitt. Ekki
væri eðlilegt að gefa honum kost á
að ganga inn í hæsta tilboð. Kvað
Albert slíkt furðulega málsmeð-
ferð og raunar óskiljanlega.
Söluverð Bröttugötuhúss
til verndunar í Grjótaþorpi
UMHVERFISMÁLARÁÐ Reykjavík-
urborgar samþykkti á fundi sínum 27.
janúar samhljóða svohljóðandi tillögu
frá Elínu Pálmadóttur:
Umhverfismálaráð vill beina því til
borgarráðs að fé það sem fæst við sölu
hússins Bröttugötu 6 verði notað til
kaupa eða viðgerða á öðru húsi í
Grjótaþorpi, sem vernda þarf.
Tilefni þessarar tillögu kvað Elín
það, að þegar menn voru á síðasta
kjörtímabili að reyna að finna fjár-
hagslegan grundvöll að verndun
þeirra húsa í Grjótaþorpi, sem æski-
legt væri að vernda, komu þeir
Hilmar Ólafsson, þáverandi for-
maður Þróunarstofnunar og Þórður
Þorbjarnarson, borgarverkfraeðing-
ur, með þá hugmynd að selja hús
borgarinnar í Grjótaþorpi með kvöð-
um um friðun og nota söluverðið til
að bjarga einhverju öðru húsi í
Grjótaþorpi, sem þyrfti að innleysa
til að geta komið verndun við, eða til
að gera við annað hús borgarinnar.
Þá var borgarminjavörður búinn að
gera úttekt á öllum húsum í þorpinu,
og þegar var komin fram og til um-
fjöllunar tillaga um skipulag þar
sem gert var ráð fyrir því að götur
yrðu óbreyttar, en fjárhagshliðin
var óleyst. Þetta hefur svo legið
niðri, þar til nú að ákveðið hefur ver-
ið að selja hæstbjóðanda Bröttu-
götuhúsið með kvöðum, en í þeirri
samþykkt fólst ekki að féð yrði notað
til verndunar í Grjótaþorpi, og renn-
ur því einfaldlega í borgarsjóð.
<Mlerp l.ækjartorg
k 1 A Æ HAFNARSTR
HAFNARSTRÆTI 22
NÝJA HÚSINU
VIÐ LÆKJARTORG
OPIÐ A VENJULEGUM
VERSLUNARTÍMA
LAUGARD. KL. 9-1.
HLJOMPLÖTUUTSALA UTGEFENDA
PÖNTUNARLISTI
PONTUNARSIMI 15310
KL. 10-22 ALLA VIRKA DAGA NEMA LAUGARDAGA KL. 10-16.
MEIRIHÁTTAR HLJÓM-
PLÖTUÚTSALAN FEBR. ’82
Þeir, sem óska eftir pöntunarlista, hringi í síma 15310. Viö sendum hann samdægurs, viðkomanda aö kostnaðarlausu. Ath.: Sýningarsalurinn er opinn alla
virka daga kl. 10—22. Laugardaga kl. 10—14.
Þar eru til sölu eftirmyndir og teikningar eftir Hauk Halldórsson, eftirmyndir eftir Jóhann G. Jóhannsson og grafíkmyndir eftir Richard Valtingojer Jóhannsson.
m ■■ m Viöskiptavinir geta hringt sér að kostnaðarlausu
/\|||BBeftir kl. 19.00 virka daga og laugardaga kl. 10—16.