Morgunblaðið - 02.03.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARS 1985
51
n tj1 ✓v „
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS „ „
ÉÉtfg tí tf
Útlendingar í „ís-
lenskum“ stöðum
Víðförull skrifar:
„Útrás íslendinga á erlendum
mörkuðum og í alþjóðaviðskipt-
um,“ nefndi einn af hinum yngri
forsvarsmönnum okkar i rekstri
fyrirtækja stefnu þá er fylgja
skyldi í framtíðinni.
Þetta er skörulega mælt og í
anda framsýni og dirfsku, sem
okkur er nauðsynlegt að hafa uppi
nú á tímum. — Það er líka vel
fylgst með því, hvernig málum er
skipað hjá hinum stærri fyrir-
tækjum íslenskum, sem hafa um-
fangsmikla starfsemi erlendis,
líka því, hvernig og hverjir það
eru sem ráðast til forstöðu þess-
ara fyrirtækja.
Það kemur þess vegna á óvart,
þegar eitt af hinum íslensku fyrir-
tækjum snýr við blaðinu á þessu
sviði og ræður ekki lengur íslend-
ing til að hafa með höndum yfir-
stjórn á umfangsmesta svæði sínu
erlendis.
Þannig hafa Flugleiðir hf. ný-
lega ráðið forstöðumann og yfir-
mann allrar starfsemi þeirra vest-
anhafs, og sækja hann til Svíþjóð-
ar! Jafnvel þótt sá sami maður sé
hagvanur hjá félaginu og hafi
starfað áður hjá þessu félagi vest-
anhafs finnst mörgum sem þarna
hefði einmitt átt að vera íslend-
ingur, eins og hingað til hefur ver-
ið.
Vafalaust er hægt að prjóna alls
kyns útskýringar við ráðstöfun á
stöðu þessa lykilembættis Flug-
leiða hf. vestanhafs. Hitt virðist
þó vera skýringin, fljótt á litið, frá
almenningi séð, að innan Flug-
leiða hf. hafi ekki fundist hæfur
starfskraftur til að skipa þessa
stöðu.
Á öllum tímum eru áreiðanlega
margir þess fýsandi innan hinna
stærri fyrirtækja, íslenskra, sem
hafa starfsemi erlendis, að „ganga
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisfóng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir
liggja hér í dálkunum.
upp“ eins og það er stundum kall-
að og takast á við sífellt viðameiri
og ábyrgðarfyllri verkefni.
Hér er eitt dæmið um hið gagn-
stæða, sem hingað til hefur átt sér
stað hjá íslenskum fyrirtækjum,
að ráða íslendinga til að vera í
forsvari fyrir starfsemi sinni á
erlendri grund.
Og hafi ekki hæfur maður fund-
ist innan viðkomandi fyrirtækis
til að skipa slíkar stöður, eins og
hér virðist vera raunin, þá hafa
hin stærri fyrirtæki leitað fyrir
sér á íslenskum vinnumarkaði og
alltaf fundið hæfa aðila. — Síð-
asta dæmið hér um er, þegar
Coldwater réði forstjóra fyrirtæk-
is vestanhafs úr röðum íslenskra
aðila, sem þekktir voru fyrir góða
hæfileika úr fyrra starfi.
Að öllum bollaleggingum
slepptum er ótrúlegt, að innan
Flugleiða hafi ekki verið áhugi
fyrir hendi hjá starfsmönnum
fyrirtækisins að hreppa þessa
mikilvægu stöðu hjá íslensku
fyrirtæki í Bandaríkjunum. Þessi
ráðstöfun er að minnsta kosti ekki
til að auka hróður okkar i „útrás
íslendinga á erlendum mörkuðum
og alþjóðaviðskiptum".
Skortur á skilningi
borgaryfirvalda
6327—6364 hringdi:
Hún hefur verið mikið á milli
tannanna á fólki hér í borg sú
varhugaverða stefna að þétta
hyggð í borginni. Það er nú einu
sinni svo að til þess að mann-
skepnunni líði vel þarf hún að
hafa töluvert olnbogarými. Þetta
hafa nágrannaþjóðir okkar verið
að uppgötva á síðustu árum þar
sem verið er að rifa niður heilu
húsin í borgum þeirra vegna
harmakveina um útivistarsvæði.
Væri nú ekki ráðlegt að við
lærðum af reynslu þeirra í stað
þess að falla í sömu gryfju? Enda
verður aldrei hægt að byggja
endalaust í miðborginni og gömlu
hverfunum. En spurningin er:
Hvar á að draga mörkin?
Vilji hins almenna borgarbúa er
augljós því það hefur varla risið
sú bygging í gömlu hverfunum svo
ekki hafi mótmæli komið víðsveg-
ar frá. Hér virðist því vanta skiln-
ing borgaryfirvalda á óskum og
þörfum almennings.
Nú berjast íbúar Holtahverfis
hart fyrir því að halda útivistar-
og leiksvæðum fyrir börn og ungl-
inga í hverfinu, nánar tiltekið við
Stangarholt. Og samskonar bar-
átta er í Laugarneshverfi fyrir því
að halda grænu svæðunum á milli
Laugarneskirkju og Kringlumýr-
arbrautar. Það er sameiginlegt
með íbúum kringum áðurnefnd
útivistarsvæði að mikill hluti
þeirra eru tryggir stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins. Voru það
samtök verslunar- og verkamanna
úr Sjálfstæðisflokki sem á sínum
tíma byggðu upp drjúgan hluta af
byggðinni kringum kirkjuna,
kirkjutúnið og víðar neðst á Teig-
unum. Hafa þeir og síðar ýmsir
afkomendur þeirra unnið gott
starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn
fyrir hverjar einustu kosningar í
gegnum árin. Þetta sama fólk
gekk harðast fram í að verja
grænu blettina neðan við Laug-
arneskirkju og að Kringlumýr-
arbraut fyrir 12 til 13 árum er
byggja átti á þeim safnaðarheim-
ili. Var þá borgaryfirvöldum af-
hentur mótmælalisti með um 300
undirskriftum gegn eyðileggingu
Málvillur og orðskrípi
Á.H. skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég hefi undanfarið hlustað
talsvert á dægurtónlist og út af
fyrir sig er hún góðra gjalda
verð en það eru textarnir sem
mér finnst fari aftur með hverju
árinu sem líður, fyrir utan að
þessi skáldskapur hlýtur að
ofbjóða hverju íslensku brag-
eyra. Þar ægir öllu saman, rím-
leysu, jafnvel Ijótum orðum,
málvillum og alls konar orð-
skrípum. Ég er að hugsa hvort
lagahöfundar vilji ekki gera verk
sin þannig úr garði að þau lifi
meðal þjóðarinnar? Svo er þetta
leikið í útvarpið. Þar eigum viö
málsnilling sem á að gæta þess
að útvarpið sem er í vissum
skilningi uppeldisstofnun þjóð-
arinnar, flytji landsmönnum
ómengaða íslensku og fagurt
mál. Getur hann ekki haft áhrif,
t.d. þannig að þau lög sem ekki
hafa sæmilega texta fái ekki að-
gang að öldum Ijósvakans. En
eitthvað þarf að athuga þetta.
íslenskan á svo mikinn orða-
forða og fallegan að hún þarf
hvorki á rímleysum, erlendum
orðskrípum eða lélegum orðum
að halda. Allt skal vanda sem vel
á að standa.
þessara bletta. Þetta mótmæla-
plagg er enn í góðu gildi þó svo
borgaryfirvöld undir stjórn
Sjálfstæðisflokksins ætli að hunsa
það.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft því láni að fagna að geta
treyst á fast fylgi sitt enda hingað
til kunnað að rækta garðinn sinn.
En nú er svo komið hér við kirkju-
túnið að sumir íbúar sjá sér eigi
annað fært en flytja búferlum eft-
ir fjölda ára búsetu. Svo grátt get-
ur flokkurinn í borgarstjórn leikið
sína dyggustu stuðningsmenn og
heyrast nú hinir heitustu flokks-
menn í þessum hverfum segja með
sársauka í röddinni að aldrei oftar
muni þeir kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn í borgarstjórn. Og er hér um
allmörg atkvæði að ræða.
Hætt er við að flokkurinn tapi í
næstu borgarstjórnarkosningum
að ári því hverslags stefna er það
að breyta fyrirhuguðum spark-
völlum, róluvöllum og öðrum úti-
vistarsvæðum í steinsteypu. Er
þetta tilraun til að gera borgina
okkar óbyggilega mönnum?
Þessir hringdu . . .
Einnig athvarf
á Þing-
holtsstræti
Unnur hringdi:
Ég vil koma því á framfæri að
Reykjavíkurborg hefur í fjölda
mörg ár rekið gistiskýli með 18
rúmum að Þingholtsstræti 25
fyrir utangarðsfólk sem getur leit-
að þangað allan sólarhringinn.
Auk þess er þarna boðið upp á
ókeypis morgunmat.
Að greiða
með mynt
Jón skrifar:
Vegna atviks hér á Blönduósi,
þegar bankamaður greiddi fram
andvirði keyptrar bifrei,ðar kr.
53.000 með um 96 kg af mynt, en
þetta hefir orðið að blaðafregnum,
vil ég benda á, að einstaklingar
eru ekki skyldugir að taka við
hærri upphæð en kr. 500 sem
greiðslu í mynt. Er þessi ákvæði
að finna í lögum um gjaldmiðil ís-
lands nr. 22 frá 23. apríl 1968, 6.
gr.
Ef til vill ættu bankar og spari-
sjóðir að auglýsa þetta svo þessi
vitleysa endurtaki sig ekki.
Mitsubishi Starion
2000 Turbo
Þessi einstaki bíll er til sýnis og sölu í bílasýn-
ingarsal Heklu.
Allar nánari upplýsingar hjá Bílasölunni Bjöllunni,
sími 62-12-40.
Knattspyrnuþjálfari
óskast
Knattspyrnudeild Hugins Seyðisfirði óskar aö ráöa
þjálfara fyrir meistaraflokk sem leikur i 3. deild á komandi
keppnistimabili. Uppl. gefur Magnús Guömundsson i
sima 97-2467 (i matartima).
Knattspyrnudeild.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDADRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF.
BSLVANGURsf
Höföabakka 9. Símar 687300 og 39810.
Oldsmobile Cierra Brougham
6 cyl., diesel, árg. 1982, sjálfsk. vökvastýri, rafdr.
rúöur o.fl. Litur: hvítur. Allur í toppstandi. Til sýnis og
sölu aö Höfðabakka 9 laugardaginn 2. mars kl. 1—5.
Bladburóarfólk
óskast!
ilfofgmifrliifrifr
Austurbœr
Laugarásvegur 32—77 Lindargata frá 40—60
Síðumúli Miöbær I
Sóleyjargata Bergstaöastræti 1—57