Morgunblaðið - 02.03.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARS 1985
43
ÍSLENDINGAR í OREGON
„Blóta þorrann“
m
Islenskir nemendur við háskólana í Eugene, Corvallis og Portland
Oregon og fjölskyldur þeirra héldu Þorrablót í lok janúar á Columbia
George Hotel. Þarna voru samankomnir 50 til 60 landar. Þrenn íslensk
hjón búa þarna í næsta nágrenni og vinna eiginmennirnir á hótelinu þ.e.
þeir Ari Georgsson yfirmatreiðslumaður og aðstoðarframkvæmdastjóri,
Auðunn Sæberg Einarsson yfirþjónn og Birgir Stefánsson þjónn. Tvær
íslenskar stúlkur hafa einnig unnið þarna um skeið.
Menn tóku að sögn vel til matar síns, en þótti vanta hákarlinn og
brennivínið íslenska. Sungin voru ættjarðarljóð og dansað við börnin
fram undir miðnætti.
Placido er
forfallinn knatt-
spyrnuaðdáandi
Placido Domingo, ítalski
söngvarinn heimsfrægi hefur
áunnið sér gífurlegar vinsældir og
virðingu fyrir einhverja fáguðustu
söngrödd í klassískri tónlist sem
um getur. „Perhaps Love“, hver
man ekki eftir laginu á sam-
nefndri hljómplötu sem fór eins og
eldur í sinu á sinum tíma. Það
liggur fyrir stjörnum á borð við
Placido, að ferðast til flestra
heimshorna og koma fram á
söngskemmtunum og tónleikum,
jafnvel að leika í kvikmyndum, en
hann leikur aðalkarlhlutverkið í
nýrri kvikmyndauppfærslu af
Carmen.
Á svona maður einhver áhuga-
mál önnur en vinnu sina, eða hef-
ur hann tima þótt hann vildi
gjarnan? Svarið er já, Placido er
forfallinn knattspyrnuaðdáandi,
horfir á fótbolta við hvert tæki-
færi, en skemmtilegast þykir hon-
um að spila sjálfur og það gerir
hann hvenær sem færi gefst. „Það
er bara allt of sjaldan,“ segir hann
og bætir við að snerpan fari þverr-
andi. Hann hafi þó ekki hug á að
leggja skóna á hilluna nærri strax,
enda sé hann enginn atvinnumað-
ur í íþróttinni. „Bara verst hvað
maður er þreyttur eftir hvern leik
nú orðið, en þegar maður hefur
náð andanum aftur finnur maður
vellíðanina hrislast um kroppinn,“
segir söngvarinn frægi.
COSPER
„ Góí>\ mábur, pa getur augsýnilega t KkC rdðid \J\B
per'\r\gac)rícðqir\a,."
Cosrta
©t
9753
VIRÐISAUKA-
SKATTUR
— Kostir og gallar
Félag íslenskra iðnrekenda og Verslunarj'áð ís-
lands efna til sameiginlegs kynningarfundar um
virðisaukaskatt þriðjudaginn 5. mars nk. í Átt-
hagasal Hótel Sögu.
Dagskrá:
14.00—14.15 Mæting.
14.15— 14.30 Fundarsetning.
Ragnar S. Halldórsson formaður VÍ.
14.30—15.15 Kynning á virðisaukaskatti.
Árni Kolbeinsson, skrifstofustjóri fjármálaráðu-
neytisins.
15.15— 16.00 Kostir og gallar virðisaukaskatts.
Lýður Friöjónsson, fjármálastjóri. Halldór
Jónsson, framkvæmdastjóri.
16.00—17.30 Almennar umræður.
Fundarslit.
Fundarstjóri: Víglundur Þorsteinsson, formaður
FÍI.
^^FÉLAG ÍSLENSKRA A VERZLUNARRÁÐ
IIIIÐNREKENDA M ÍSLANDS
STÖDVID
meó AQUA SIGNAL
vatnsskynjaranum
Vatnstjón eru dýr og óþörf.
Nýi AquaSignal vatnsskynjarinn varar við
leka með 85 db hljóðmerki um leið og hann
kemst í snertingu við vatn eða aðra vökva.
Hann er fyrirferðarlitill og krefst ekki auka-
búnaðar. Hann gengur fyrir 9 volta rafhlöðu,
sem dugar til að gefa stanslaust hljóðmerki í
allt að 5 sólarhringa.
AquaSignal vatnsskynjarinn
er med 1 árs ábyrgð.
TEPPABÚDIN
SUÐURLANDSBRAUT 26 - SlMI 84850