Morgunblaðið - 02.03.1985, Blaðsíða 20
1
/o
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARS1985
Hringbrautarhestar í viðgerð
Tekin hefur verið niður til við-
gerðar höggmynd eftir Ragnar
Kjartansson, sem stóð á mótum
Smáragötu og Hringbrautar.
„Höfundurinn hefur fengið
styttuna til viðgerðar en hún er
unnin úr epósít. Síðan verður hún
send utan og tekin af henni
bronz-afsteypa,“ sagði Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri.
Ekki er vitað hvað viðgerðin
tekur langan tíma, en höggmyndin
verður ekki á sínum stalli í sumar.
Vonast er til að hún verði komin
aftur á sinn stað fyrir stórhátíð
Reykjavíkur 1986 og þá í bronzi.
Iðnaðarbankinn
nútima banki
ELDHÚSKRÓKURINN
Hunang er til margra hluta gagnlegt. Það er til dæmis
upplagt að nota hunang í teið í stað sykurs.
Fljótandi hunang má einnig nota með ferskum ávöxtum
og jógúrt á eftirfarandi hátt:
Látið niðurskorna ávexti (eftir smekk) í skál, hellið jóg-
úrt yfir og dreifið síðan smá dreitli af hunangi efst.
Og svo gamla húsráðið að fá sér heita mjólk með hunangi
út í sé maður að kvefast.
Hunangskökur eru einnig góðar. Hunang hefur ótrúlega
mikið geymsluþol, á sæmilega köldum stað og með þéttu
loki yfir (í eldhúsgeymslu).
Hér kemur uppskrift af mjög endingargóðri hunangs-
köku:
í tvö form þarf: 4 egg, 275 gr sykur, 275 gr hunang, 275 gr.
hveiti, örlítið af pipar.
Þeytið saman egg og
sykur þar til ljóst og
létt. Velgið hunangið í
vatnsbaði þar til það er
vel fljótandi. Sigtið
hveitið í eggjamass-
ann, og bætið hunang-
inu varlega saman við
ásamt piparnum. Látið
í tvö smurð form. Þeir
sem kunna að meta
súkkat geta dreift ca.
hnefafylli af söxuðu
súkkati yfir hvora
köku áður en þær eru
settar í ofninn. Látið
kökurnar inn í kaldan
ofn og stillið á ca. 160
gráður. Kökurnar ættu
að vera bakaðar eftir um eina klukkustund. Prófið með
prjóni.
Hunang er líka róandi, og við svefnleysi getur verið gott
að drekka volga mjólk með hunangi út í. Gildir það jafnt
fyrir börn sem fullorðna.
Ef varirnar þorna og springa eins og til dæmis eftir
skíðaferðina, eða aðra útiveru, er einnig upplagt að smurja
þær með hunangi.
Og svo ein uppskrift að
lokum.
Hunangs-
greipaldin:
Tvö meðalstór greip-
aldin,
3—4 matsk. mjúkt
hunang.
Skerið ávextina í
tvennt og losið um
„kjötið" meðfram kant-
inum og inn að miðju.
Dreifið hunangi yfir og
setjið ávextina inn í
mjög heitan ofn (250
gráður), eða undir
grill, þar til hunangið
fer að krauma og líkj-
ast karamellum (núgg-
at). Berið fram strax á
eftir.