Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1985
15
Við lærðum það í Noregi að
fylgja vörunni eftir alla leið inn í
verksmiðjuna. Nú erum við komn-
ir með svo mikinn búnað í Kanada
að það var annað hvort að hrökkva
eða stökkva. Fjarlægðin við mark-
aðinn hafði líka sitt að segja. Það
gefur augaleið að við gætum ekki
sinnt viðskiptavinum okkar eins
vel ef ekki væri okkar maður á
staðnum. Einnig höfum við gott af
því að vinna á erlendum mörkuð-
um og þjálfa okkar fólk.“
íslensk framleiðsla
Þorsteinn sagði að á þessu ári
yrðu 2/3 hlutar framleiðslunnar
fluttir út, annars vegar til Noregs
og hins vegar til Kanada. „Það
hefur verið stefna okkar frá upp-
hafi að framleiða búnaðinn hér
heima og við ætlum okkur að
halda því áfram svo framarlega
sem samkeppnisaðstaðan leyfir
slíkt. Með því móti hefur tekist að
skapa atvinnu og nýja þekkingu.
Okkur er það einnig metnaðarmál
að geta bætt við störfum fyrir
þann vaxandi hóp tæknimenntaðs
fólks sem útskrifast árlega úr há-
skólanum og finnur ekki störf við
sitt hæfi.“
Við leystum þau vandamál
fyrir mörgum árum sem erlend
fyrirtæki eru nú að kljást við
„Hvað varðar erlenda sam-
keppni er hun óveruleg. Hún kem-
ur frá bandariskum fyrirtækjum
og dönskum en hjá þeim er ekki
um að ræða heildarkerfi svipuð
okkar. Að baki okkar tækja liggur
margra ára þróunarstarf sem
önnur lönd búa ekki yfir. Þau
vandamál sem kanadísk fyrirtæki
eru að kljást við þessa stundina
leystum við fyrir mörgum árum og
þannig getum við haldið okkar
forskoti.
Við vinnum einnig mikið á því
að kerfin eru byggð upp í eining-
um sem auðveldar mjög aðlögun
að vissum aðstæðum. Þegar farið
er fram á breytingar getum við
skipt um ákveðna einingu og sinnt
óskum viðskiptavinarins fljótt og
vel sem er mjög óalgengt í þessum
viðskiptum því oftast þarf að um-
skrifa allt forritið þegar einhverj-
ar breytingar eru gerðar."
Marel er ánægjulegur vottur
um nýsköpun í ís-
lenskum iðnaði
„Séð í breiðara samhengi held
ég að Marel sé ánægjulegur vottur
um nýsköpun í íslenskum iðnaði á
því sviði sem margir binda miklar
vonir við. Við erum í þriðju iðn-
byltingunni hvað varðar hátækni-
iðnað, tölvuvæðingu, líftækni og
fleira í þeim dúr og við hjá Marel
erum stolt af þeim árangri sem við
höfum náð“, sagði Þorsteinn að
lokum.
í veislu með börnum á Eskifirði
Eskifírói, i. jnii. var að sumarleyfi era að hefjast og var þetta síðasti
MIKIÐ fjör var á dagheimilinu á Eskifirði fyrir helg- dagur fyrir leyfi sem barnaheimilið var opið. Allir
ina. Stórveisla var hjá börnunum. Fóstrurnar héldu máhiðu sig í skrautlegum litum og báru fallega hatta.
þeim grillveislu. Grillaðar voru pylsur og kók drukkið Var mikið líf í börnunum þegar fréttaritari Morgun-
með. Síðan var ýmislegt góðgæti á eftir. í tilefni dags- blaðsins bar að garði. Svo sem sjá má skemmtu börn-
ins skreyttu börnin sig og fóstrurnar einnig. Tilefnið in sér konunglega. Ævar
í dag kemur míní-serían Deceptions á mynd-
bandaleigur. Deceptions er einn besti mynda-
flokkur sem komiö hefur út hér á landi, enda
fara úrvalsleikarar meö aöalhlutverkin. Step-
hanie Powers (Mistral’s Daughter, Hart á móti
höröu) leikur tvíburasysturnar Stephanie og
Sabrinu af stakri snilld. Barry Botswick (A
Woman of Substance, Summer Girl) leikur
eiginmann Stephanie, Gina Lollobrigida
leikur Alessöndru prinsessu og Brenda
Vaccaro leikur hina slóttugu vinkonu
Stephanie.
Stephanie og Sabrina eru eineggja tví-
burasystur. Þær ákveöa aö skipta um
hlutverk í eina viku. Þær eru svo líkar
aö engan grunar neitt. En þrátt fyrir aö
þetta sé aöeins saklaus leikur í fyrstu,
gerast óvænt atvik sem valda því aö
systurnar eiga erfitt meö aö snúa aft-
ur til fyrra lífs þegar vikan er liöin. Er
vafamál hvort Stephanie getur
nokkru sinni snúiö til baka til eig-
inmanns síns og barna, eöa hvort
Sabrina fær nokkru sinni aö
handleika demanta sína á nýjan
leik. Reyndar æxlast málin
þannig aö systurnar eru báöar í
bráöri lífshættu.
Byggt á samnefndri metsölu-
bók eftir Judith Michael.
Deceptions er á
tveimur spólum
íslenskur texti
Einkaréttur á íslandi
Eínkaréttur
á ísiandi:
Seinni h/uti
wants to live
omarfs life.
best selling novel b\
ith Michael.
Dreifing
sUlnarhf