Morgunblaðið - 04.07.1985, Síða 46

Morgunblaðið - 04.07.1985, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JCLÍ 1985 0/1 iiivitutHH2 toterwr Æ Reykhólasveit: Ekkert nothæft steypuefni MiAhúsum, 28. júní. A REYKHÓLUM er unnið við að steypa plan á bryggju við Keykhóla- hötn. I»ar sem mjög erfitt er að fá gott steypuefni hér, var tekið það ráð að láta Karlsey sækja 200 tonn af sandi út í Ólafsvík. Steypuefnið sem við höfum yfir að ráða er fjörumöl og virðist hún menguð af lífrænum efnum og ber mikið á svokölluðum alkalí skemmdum sem trúlega verða ekki raktar til gallaðs sements. Engar skipulegar rannsóknir hafa farið fram á því hvort ekki sé hægt að finna steypuefni hér um slóðir, en á því er brýn þörf. Sveinn Mjög fáar kvartanir vegna mjólkurvara — segir í athugasemd frá Mjólkursamsölunni # VID ERUM í hjarta borgarinnar við Brautarholt. # VIÐ HÖFUM rúmgóðan sýningarsal og útisölusvæöi. # VID BJÓÐUM mikið úrval notaðra bíla af öllum gerðum. # VIÐ VEITUM góða og örugga þjónustu Undir fyrirsögninni „Nýtt hús, ný hönnun, súr rnjólk", þann 28. júní, skrifar Bragi Ásgeirsson listmálari um gallaða mjólk og fleira er snertir Mjólkursamsöl- una. Ég vil fyrir hönd Mjólkursam- sölunnar þakka honum fyrir þau vinsamlegu ummæli sem fram koma í greininni um útlitsbreyt- ingu umbúðanna hjá okkur og um ýmsar aðrar framfarir. í greininni kemur einnig fram að hann hefur oft keypt mjólk með skertu geymsluþoli og að verslunin þar sem mjólkin er keypt neiti að skipta gölluðu mjólkinni fyrir aðra ógallaða. Ástæðan á að vera sú að Mjólkursamsalan neiti versluninni um endurgreiðslu á viðkomandi vöru. Á rannsóknarstofu okkar rann- sökum við geymsluþol varanna sem seldar eru héðan og þegar ekkert óeðlilegt kemur fram og engar kvartanir berast teljum við eðlilega að ekkert sé að. Nú vildi svo til að til okkar hringdi starfsstúlka verslunar þeirrar er Bragi skiptir við og sagði að til sín hefðu borist kvartanir um gallað- ar mjólkurvörur. Þetta var þriðju- daginn 25. júní. Sama dag var far- ið í verslunina og þá kom i ljós að kælirinn þar var bilaður (hiti 12—13°C) og þar að auki var hluti af mjólkinni geymdur utan kælis. Þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis sér um eftirlit matvöruverslana var þetta til- kynnt þangað. Það skal tekið fram að til okkar höfðu engar kvartanir borist um gallaðar vörur úr þess- ari verslun né annars staðar frá. Við þær aðstæður er voru í þessari verslun skerðist geymsluþol var- anna svo mikið að þær verða ónýt- ar á stuttum tíma. Mjólkurvörur eru viðkvæmar og gallar geta því miður komið fram, en til þess að vita hvað er að þurfum við að fá að vita um þær kvartanir er fólk hef- ur fram að færa. í því skyni leggj- um við mikla áherslu á það að verslanir taki til baka gallaðar vörur og bæti þær (að sjálfsögðu á okkar kostnað) og komi þeim með næstu ferð mjólkurbílsins til okkar þannig að við getum rann- sakað vöruna og gert viðeigandi úrbætur. Þetta vita mjólkurselj- endur og milli þeirra og okkar er mjög gott samstarf á þessu sviði og get ég ekki skilið hvers vegna kaupmaðurinn gaf þau svör sem fram komu í greininni. Á rannsóknarstofu Mjólkur- samsölunnar starfar matvæla- fræðingur sem hefur m.a. það verkefni að taka við þeim kvörtun- um sem hingað berast. Hann gerir það sem hægt er til þess að tjón og óþægindi verði sem minnst fyrir neytandann, m.a. með því að senda eftir gölluðu vörunni í heimahús ef þörf krefur og skipta henni fyrir aðra nýja vöru eða bæta á annan hátt. Síðan gerum við okkar besta til þess að finna hvað er að og reynum að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Eg vil því hvetja alla neytendur mjólkurvara sem hafa kvartanir fram að færa að hafa samband við okkur í síma 10700 og hjálpa okkur til að hafa vörurnar sem bestar. Ég vil taka það fram að undan- farin þrjú ár höfum við fengið mjög fáar kvartanir, en takmark okkar er auðvitað að hafa þær sem allra fæstar. F.b. rannsóknarstofu MS Eiríkur Þorkelsson, forstöðumaður VIDEO VIDEO ISL fNSKUR TtXTI Laugarasbíof-., VIDEO Nyjar urvals myndir frá CIC video til af- greiðslu nú þegar VIDED Takmarkaö upplag. Vinsamlegast hafiö samband viö skrífstofuna milli kl. 10 og 12. Sími 38150 mEm VIOEO LAUGARASBIO

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.