Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
31
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 400 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 35 kr. eintakiö.
Sameining
fyrirtækja
að er athyglisvert að
fylgjast með straum-
um, sem setja mark sitt á
íslenzkt viðskipalíf um
þessar mundir. Um alllangt
skeið hafa staðið yfir við-
ræður um hugsanlega sam-
einingu eða samvinnu ís-
bjarnarins og Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur. I Morgun-
ilaðinu í gær er skýrt frá
>ví, að Sjóvátryggingafélag
slands, hafi keypt rúmlega
ælming hlutafjár í Hag-
tryggingu hf. Fyrir nokkru
kom fram að Trésmiðjan
Víðir hefði leitað eftir
samstarfi við önnur fyrir-
tæki á sama sviði með
sameiningu í huga. Lengi
hefur verið rætt um mynd-
un stærri eininga í olíu-
verslun og skipaflutning-
um. Þessir straumar eru
vísbending um, að ákveðin
endurskipulagning er í
gangi í atvinnulífinu. At-
vinnufyrirtækin leita leiða
til þess að auka hagkvæmni
í rekstri um leið og stærri
einingar hafa meiri getu til
nýrrar uppbyggingar. í
umræðum hér hefur verið
reynt að gera hugsanlega
sameiningu ísbjarnarins og
BÚR tortryggilega. Slíkur
hugsunarháttur er í ætt við
þá útkjálkamennsku, sem
Albert Guðmundsson, fjár-
málaráðherra, hafði orð á í
eftirtektarverðum sjón-
varpsþætti, að setti um of
mark sitt á umræður hér á
íslandi. Þar er augljóslega
um að ræða tækifæri til að
efla verulega fiskvinnslu og
útgerð í Reykjavík. Sú efl-
ing kemur atvinnulífinu í
höfuðborginni til góða, og
þ. á m. launþegum. Þess
vegna er það mikil þröng-
sýni að leggjast gegn slíku
samstarfi eða sameiningu.
Vafalaust má færa rök að
því, að tryggingafélögin séu
of mörg. Sameining eða
kaup eins fyrirtækis á öðru
í þeirri þjónustugrein er
líkleg til þess að skapa
öflugri fyrirtæki á þessu
sviði. Hvarvetna í hinum
vestræna heimi eru trygg-
ingafélög sterk fyrirtæki,
sem eiga m.a. ríkan þátt í
að skapa líflegan fjár-
magnsmarkað í viðkomandi
löndum. Líklegt má telja,
að öflugri tryggingafélög
gætu átt verulegan þátt 1
uppbygingu nýs fjármagns-
markaðar hér. Iðnfyrirtæk-
in, sem hafa þreifað sig
áfram í útflutningi á und-
anförnum árum eru vafa-
laust flest of lítil og hafa
því lítið bolmagn til fram-
leiðslu og útflutnings. Þau
geta staðið frammi fyrir
því, að útflutningsstarfsemi
þeirra gangi svo vel, að þau
geti ekki staðið undir vel-
gengninni! Samruni fyrir-
tækja á þessu sviði getur
því verið af hinu góða.
Menn verða hins vegar
að gera sér grein fyrir því,
að sameining fyrirtækja er
vandasöm eins og berlega
kom í ljós, þegar flugfélögin
tvö voru sameinuð. Þess
vegna er vandi fyrirtækja
ekki leystur bara með sam-
einingu. Hún skapar hins
vegar tækifæri, sem ella
væru ekki fyrir hendi.
Líflegri verzlun með
hlutabréf getur stuðlað
mjög að þessari þróun. Það
er forvitnilegt að fylgjast
með því, sem hefur verið
að gerast í Noregi og Dan-
mörku í verzlun með hluta-
bréf. í þessum löndum virð-
ist hafa orðið einhvers
konar sprenging í hluta-
bréfaviðskiptum, sem mik-
ill kraftur er nú í. Almenn-
ingur fjárfestir óspart í
hlutabréfum ekki sízt ungt
fólk. Það er nauðsynlegt að
sparnaður í formi hluta-
bréfakaupa verði metinn til
jafns við annan sparnað.
Vissulega hafa skref verið
stigin í þá átt. En því verki
þarf að ljúka. Heilbrigður
hlutabréfamarkaður mun
stuðla að öflugri einingum
í atvinnulífinu og þær munu
ýta undir aukin viðskipti
með hlutabréf og þar með
að sparnaður fólks renni
beint til atvinnulífsins.
Pétur Pétursson skrifar um kosningabaráttuna í Svíþjóð:
Hver verður forsætisráðherra
vinni borgaraflokkarnir sigur?
Hver verður forsætisráðherra ef
borgaraflokkarnir vinna?
Það er venjan hér í Svíþjóð að
hafa kosningafund nokkru fyrir
kosningarnar þar sem forsætis-
ráðherrann og flokkleiðtogi sá
sem fyrir situr og sá leiðtogi
stjórnarandstöðunnar sem lík-
legur þykir að mynda stjórn ef
stjórnarskipti verða, leiða saman
hesta sína. Á tveim seinustu
fundum af þessu tagi voru það
þeir Olof Palme og Torbjörn
Ftldin, en að þessu sinni voru það
Olof Palme og hin nýi flokks-
foringi móderata Ulf Adelson
sem stigu í pontuna. Móderatar
hafa meira fylgi en allir hinir
borgaraflokkarnir til samans og
margir telja hann sjálfsagðan
sem forsætisráðherra ef núver-
andi stjórn fer frá. Þetta er fyrsta
kosningabarátta hans sem
flokksleiðtoga, en hann er samt
ekkert feiminn við tilhugsunina
um að verða forsætisráðherra og
lítillætið virðist ekki há honum
um of.
Ýmislegt skilur á milli
í skattamálum. orkumálum og
umhverfisverndarmálum skilur
mikið á milli Miðflokksins og
Móderataflokksins. Sérfræðingur
Miðflokksins í skattamálum lýsti
því yfir að flokkur hans mundi
aldrei standa að samstjórn sem
beitti sér fyrir stefnu móderata
í skattamálum. Ulf Adelsohn
hefur við ýmis tækifæri látið í
ljósi þá skoðun sína að mengun-
arvandamálið sé of mikið upp
blásið og iðnaðinum og land-
búnaðinum sé gert óþarflega
erfitt fyrir með öllum þeim var-
úðarráðstöfunum sem annað
hvort sé þegar búið að innleiða
eða eigi samkvæmt stefnu ann-
arra flokka að koma í framtíð-
inni. Hann hefur og sagt að það
sé fáránlegt að ætla sér að leggja
niður kjarnorkuverin sem fram-
leiða stóran hluta af því rafmagni
sem iðnaðurinn og heimilin nota.
Til að undirstrika trú sína á
kjarnorkuverin sagðist hann
mundi vilja synda sér til hress-
ingar í kælivatni eins kjarnorku-
versins sem hann heimsótti á
kosningaferðalagi sínu. Þetta er
gjörsamlega andstætt stefnu
Miðflokksins sem beitir sér fyrir
því að afnema kjarnorkuverin
sem fyrst, og ekki síðar en árið
2010.
Staða Fálldins formanns
Miðflokksins
Undanfarið hefur ýmislegt
dregið úr trú manna á leiðtoga-
stöðu Fálldins innan Miðflokks-
ins og þetta hefur haft áhrif á
tiltrú margra á honum sem
væntanlegum forsætisráðherra.
Á seinasta landsfundi Mið-
flokksins gekk ýmislegt á annan
veg en hann hefði viljað. Þingið
samþykkti að beita sér fyrir
lækkun eða afnámi virðisauka-
skatts á matvælum og mótmælti
Gösta Bohman á blaðamannafundi
lækkun sjúkradagpeninga sem
Fálldin hafði áður tekið undir.
Gösta Bohman leggur á ráðin
Gösta Bohman, fyrrverandi
formaður Móderataflokksins, tel-
ur nú að tími sé komin til þess
að flokkur hans fái forsætisráð-
herrastólinn. Baráttugleði hans
er ósvikin í þessum kosningum.
Hann hefur látið ýmislegt frá sér
fara í þessari kosningabaráttu
sem fyrrverandi samherjum hans
í samstjórnum borgaraflokkanna
líkar miður. Ummæli hans um
heilsu Fálldins og líkurnar á því
að hann dragi sig til baka úr
pólitíkinni að kosningum loknum
hleyptu illu blóði í leiðtoga Mið-
flokksins. Fálldin sagði að þessar
bollaleggingar fyrrverandi leið-
toga móderata væru út í bláinn
og sennilega til komnar til þess
að veikja traust manna á stöðu
Miðflokksins og leiðsögn hans.
Bohman væri að reyna að fá
atkvæði frá Miðflokknum yfir til
Móderataflokksins. Fálldin lýsti
því yfir að hann væri með hesta-
heilsu og að þetta væri ekki síð-
asta kosningabarátta hans sem
flokksleiðtoga.
Bohman sagði einnig að hann
gæti vel hugsað sér að móderatar
mynduðu einir minnihlutastjórn
ef litlu miðflokkarnir yrðu of
erfiðir í samstarfi og settu fram
of harðar kröfur varðandi sam-
eiginlegan stjórnarsáttmála.
Þessu hefur Fálldin svarað með
því að segja að sem betur fer sé
Bohman ekki lengur í fyrirsvari
fyrir móderötum.
Formaður frjálslynda, þ.e.a.s.
Þjóðarflokksins, Bengt Wester-
berg hefur lýst því yfir að hann
telji það alls ekki sjálfsagt að
Adelsohn verði forsætisráðherra.
Það hefur verið haft eftir honum,
að miðflokkarnir tveir eigi það
mikið sameiginlegt, að það sé
eðlilegt að forsætisráðherrann
komi úr öðrum hvorum þeirra.
Lokaspretturinn
ræður úrslitum
Möguleikar Fálldins til að
styrkja stöðu sína innan fylking-
ar borgaraflokkanna byggjast á
því að minna verði tekið eftir
átökunum milli stóru flokkanna
tveggja, móderata til hægri og
sósíaldemókrata til vinstri. Þar
ber meira á stórum orðum og
persónulegum ásökunum en mál-
efnalegum umræðum, sem falla
betur við stíl Fálldins. Bæði Olof
Palme og Ulf Adelsohn eru stórir
í kjaftinum og eiga það til að
spila á tilfinningar hlustenda og
skemmta fylgismönnum sínum
með því að mála upp grýlumyndir
af hvor öðrum.
Þessi baráttuaðferð liggur
fjarri skapgerð Fálldins og á því
vann hann í kosningunum 1976
og 1982. Staða hans getur ráðist
af því hvernig síðasti hluti kosn-
ingabaráttunnar þróast.
Lundi, Svíþjóð 29.8. '85.
Ulf Adelsohn
— leiðtogi Moderata
Thorbjörn Falldin
— leiðtogi Miðflokksins
Bengt Westerberg
— leiðtogi Þjóðarflokksins
Slagorö sænska
Umhverfisverndarflokksins:
„Ekki gull — heldur
grænir skógar“
Einn af minni flokkunum sem
taka þátt í kosningabaráttunni hér
í Svíþjóð er Umhverfisverndar-
flokkurinn — hinir grænu. Merki
flokksins er gulur fífill og grænar
fíflablöðkur. Þessi flokkur var
stofnaður haustið 1981 af fólki sem
var óánægt með það hvernig stærri
flokkarnir sinntu umhverfisvernd-
armálum. Hreyfingin á móti
kjarnorkuverunum var einnig í
bakgrunninum, margir þeirra sem
tóku hvað virkastan þátt í þeirri
hreyfingu gengu í hinn nýstofnaða
flokk, sem tók til óspilltra mál-
anna við að byggja upp deildir og
flokksfélög víðsvegar um landið.
Flokkurinn bauð fram i flestum
kjördæmum við seinustu kosning-
ar, haustið 1982. Hann fékk 1,7%
atkvæða í þingkosningunum sem
ekki nægðu til að koma manni á
þing þar sem til þarf 4% — ráð-
stöfun sem beinlínis er gerð til að
hindra tilkomu lítilla þingflokka
er mundi gera stjórnarmyndanir
erfiðari. Flokkurinn fékk 1,6% í
sveitarstjórnarkosningunum, sem
fóru fram samtímis, og fékk þar
með inn menn í 90 sveitarfélög eða
u.þ.b. þriðjung sveitarfélaga. Tals-
menn flokksins eru vongóðir um
að nú takist að koma mönnum inn
á þing, en skoðanakannanir gefa
ekki tilefni til slíkrar bjartsýni.
Þær benda til þess að flokkurinn
fái í mesta lagi 2,5%.
Nýr flokkur — nýr heimur
Samkvæmt kenningum flokks-
ins er núverandi flokkaskifting
algjörlega úrelt svo og sú hug-
myndafræði sem hún byggist á.
Sósíalismi og frjálshyggja eru úr-
eltar stefnur sem komu til í upp-
hafi iðnvæðingar þegar fátækt
ríkti og vanþróun. Nú er við allt
önnur vandamál að etja — vanda-
mál sem núverandi flokkar geta
ekki og vilja ekki horfast í augu
við, né heldur takast á við að leysa.
Umhverfisverndarflokkurinn
styður hugmyndirnar að baki vel-
ferðarríkinu, eins og frelsi, lýð-
ræði, félagslegt réttlæti, samstöðu
o.s.frv. en telur þessi hugtök nú
eingöngu orðin tóm. Núverandi
flokkar hafa misst sjónar á þess-
um hugsjónum og eru þrælbundnir
af efnahagsmálum þar sem ein-
ungis sé miðað við og hugsað út
frá hagvaxtarsjónarmiðum.
„Landið okkar er að verða að rusla-
haug,“ segja talsmenn flokksins,
„það er verið að eitra drykkjar-
vatnið, andrúmsloftið og fæðu
okkar — þetta endar með hörm-
ungum. Ragnarök eru endastöð
þessarar stefnu." Slagorð flokksins
Per Gahrton, „talsmaður" Umhverf-
isvcrndarflokksins á lokaspretti
kosningabaráttunnar.
er: „Ekki gull, heldur grænir skóg-
ar“. Hann fer ekki í felur með það
að í fyrst.u mun fólk þurfa að sætta
sig við skert kjör hvað varðar
efnahag, en það muni verða bætt
upp með gæðum, lífsgildi og heil-
brigðara lífi yfirleitt. Stefnu sína
telja leiðtogar flokksins í raun og
veru einu von mannkynsins, von
sem vel fari á að byrja að setja í
gagnið í Svíþjóð. Allt á þetta að
byggjast á nýju hugarfari og þar
hafa hugmyndafræðingar flokks-
ins mikið traust á kveneðlinu,
þ.e.a.s. hvernig konur hugsa, meta
hlutina og taka ákvarðanir. Hag-
vöxturinn er ekki eins rótgróinn í
hugsun þeirra samkvæmt þessu.
Flokkurinn vill dreifa ákvarðana-
tökunni sem mest, svo og fram-
leiðslu og skipulagningu allri.
Afvopnun er á dagskrá, kjarnorku-
vopnalaus Norðurlönd eiga að vera
fyrsta skrefið í átt til að gera
Evrópu að kjarnorkuvopnalausu
svæði. Varnir landsins eiga sem
mest að vera í höndum sjálfskip-
aðra sveita borgaranna sjálfra.
Landið á að vera sem mest sjálfu
sér nægt í efnahagsmálum, það
þarf að minnka utanríkisviðskipti.
Að sjálfsögðu vill flokkurinn
leggja niður kjarnorkuver í orku-
framleiðslu, banna notkun tilbúins
áburðar og eiturefna í landbúnaði
og stórauka rannsóknir og tækni-
þróun á sviði líffræði og nýrra
leiða í landbúnaði.
Vilja afnema atvinnu-
stjórnmálamenn
Flokkurinn hefur engan for-
mann og er það liður í endursköp-
un stjórnmálanna, þar sem gras-
ræturnar eiga að ná alveg upp í t
oppinn. Stjórnmál eiga samkvæmt
þessari stefnu að vera aukaverk
venjulegs fólks. Þannig slitna
stjórnmálamennirnir aldrei úr
tengslum við veruleikann og þau
vandamál sem við er að glíma
hverju sinni. Enginn má hafa
meira en eina trúnaðarstöðu eða
verkefni í einu og enginn fær undir
nokkrum kringumstæðum að
gegna opinberri stöðu í meira en
níu ár.
Engu að síður hefur flokkurinn
orðið að útnefna svokallaða tals-
menn. „Aðaltalsmaður" flokksins
í flestum málum er Per Gahrton.
Þótt hann sé ungur að árum, eða
rétt um fertugt, hefur hann verið
lengi í pólitíkinni — formaður
æskulýðsfylkingar Frjálslynda
þjóðarflokksins og þingmaður
nokkur ár. Gahrton hefur tekið
virkan þátt í þjóðmálum frá unga
aldri og skrifað nokkrar bækur og
fjölda greina í blöð. Um veru sína
á þingi skrifaði hann bók sem olli
miklum úlfaþyt þegar hún kom út
árið 1983. Gahrton var sérstaklega
óánægður með afstöðu flokks síns
í málefnum þróunarríkjanna og
umhverfisvernd. Einnig féll hon-
um illa flokksaginn. Þegar hann
yfirgaf flokk sinn og sagði af sér
þingmennsku hafði hann hvorki
mikið álit á þingmannshlutverk-
inu né möguleikum stjórnmála-
mannanna til að breyta heiminum
til hins betra. Þingið var að hans
dómi skrípamynd af lýðræðinu og
þingmenn yfirborgaðir trúðar lok-
aðir inni í sínum hólfum fjarri
fólkinu og raunveruleikanum.
En nú, nokkrum árum seinna, í
kosningabaráttu er ekki annað að
heyra á Per Gahrton en að það sé
hægt að bjarga heiminum með því
að kjósa hann inn á sama þingið.
Allir fíflar verða um síðir að bifu-
kollum, en bifukollur verða ekki
alltaf fíflar — þetta er lögmál sem
á við í pólitíkinni ekki síður en í
náttúrunni.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir R.W. Apple
Frú Margaret Thatcher
hyggst snúa vörn í sókn
MARGARET Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, gerði
mciriháttar breytingar á ríkis-
stjórn sinni á mánudagskvöld.
Var þar greinilega um djarfhuga
tilraun af hennar hálfu til þess að
snúa vörn í sókn, en vinsældir
hennar hafa farið mjög minnk-
andi. Skoðanakannanir hafa leitt
í Ijós að íhaldsflokkurinn hefur
tapað verulegu fylgi að undan-
förnu og óbreyttir þingmenn í
flokknum krefjast nú nýrra að-
gerða til þess að snúa þessari
þróun við.
Það er því ekki að ástæðu-
lausu að frú Thatcher hefur
einmitt nú gert umfangsmestu
breytingarnar á stjórn sinni í
sex ár. Hún skipaði nýja menn
í um þriðjung ráðherraemb-
ættanna og jafnframt gerði
hún Norman Tebbit, einarðan
hægri mann, að flokkksfor-
manni. Var sú ákvörðun greini-
lega tekin til undirbúnings
hugsanlegum þingkosningum
1987 eða 1988.
Það sem mest kom á óvart
við þessi mannaskipti, sem þó
hafði verið spáð mánuðum
saman, var skipun Leon Britt-
ans í embætti iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Tók hann
við því embætti af Tebbit. Hér
var greinilega um stöðulækkun
að ræða, en Brittan hefur legið
undir gagnrýni að undanförnu
fyrir slaka frammistöðu í fjöl-
miðlum. Þá er talið að hann
hafi einnig spillt áliti sínu
verulega, er hann kom í veg
fyrir fyrirhugaða útsendingu
BBC frá Norður-írlandi í síð-
asta mánuði.
Haft er eftir háttsettum
heimildarmönnum innan
íhaldsflokksins, að megin-
ástæðan fyrir flutningi Britt-
ans í annað embætti hafi þó
verið krafa óbreyttra þing-
manna flokksins um að
mannaskipti yrðu að minnsta
kosti í einu af þremur af valda-
mestu ráðherraembættunum.
Sir Geoffrey Howe utanríkisr-
áðherra er almennt talinn hafa
staðið sig vel og frú Thatcher
gat ekki skipað nýjan mann í
stað Nigels Lawson fjármála-
ráðherra án þess að gefa með
því til kynna breytingar á
efnahagsstefnu sinni, en víst
þykir, að til þess er hún ekki
reiðubúin. Þannig kom enginn
annar til greina en Brittan
varðandi flutning á milli emb-
ætta.
í sjónvarpsviðtali á mánu-
dagskvöld sagði frú Thatcher
að tilgangurinn með þessum
mannabreytingum væri að
kalla til „ný andlit" í því skyni
að gera það ljóst, „hve mikla
áherzlu hún legði á efnahags-
lífið og atvinnustarfsemina" og
til að koma stefnu stjórnarinn-
ar á framfæri á „meira sann-
færandi hátt“ en áður. „Nýja
stjórnin," bætti hún við, „mun
einnig í ríkum mæli gera það
að verkefni sínu að undirbúa
kosningabaráttuna fyrir næstu
þingkosningar."
Lítil stefnubreyting
Það er þó mat stjórnmála-
sérfræðinga að lítilla breyt-
inga sé að vænta á stefnu
brezku stjórnarinnar á næst-
Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra
Nigel Lawson, áfram fjármála-
ráðherra
unni og það jafnvel í barátt-
unni gegn atvinnuleysinu. Svo
hljóti að vera svo lengi sem
Lawson er fjármálaráðherra
og því helzti áhrifamaður
flokksins í efnahagsmálum.
Douglas Hurd, sem gegnt
hafði embætti írlandsmála-
ráðherra, var hækkaður í tign
og gerður að innanríkisráð-
herra. Hurd er 55 ára að aldri
og höfundur leynilögreglu-
sagna í frístundum. Hann er
talinn tilheyra frjálslyndari
armi íhaldsflokksins, sem virð-
ist hafa styrkt stöðu sína við
þessar breytingar á stjórninni.
Skipun Hurds sem innanríkis-
ráðherra eftir aðeins eitt ár
sem Srlandsmálaráðherra kom
mörgum á óvart, ekki sízt með
tilliti til þess að nú standa yfir
mikilvægar samningaviðræður
milli stjórnanna í Dublin og
London. James Prior lýsti
þessu sem mistökum enda þótt
hann lýsti sig almennt sam-
þykkan breytingunum á
stjórninni.
Tom King tekur við af Hurd
á Norður-írlandi. Er flutning-
ur hans úr embætti atvinnu-
málaráðherra talinn vera þátt-
ur í þeirri viðleitni að reyna að
leysa eitt mest aðkallandi
vandamál stjórnarinnar. Skoð-
anakannanir og aukakosningar
á undanförnum mánuðum hafa
leitt í ljós, að lítill árangur
stjórnarinnar í baráttunni við
atvinnuleysið á mikinn þátt í
minnkandi fylgi hennar. Nú
eru um 3,2 millj. manna at-
vinnulausar í Bretlandi.
Young lávarður, 52 ára millj-
ónamæringur, sem efnazt hef-
ur af sjálfuni sér, var skipaður
Norman Tebbit, hinn nýi formaður
íhaldsflokksins
atvinnumálaráðherra. Talið er
að frú Thatcher hafi meira álit
á honum en flestum öðrum
ráðherrum sínum. Hún lét
þessi orð falla um hann fyrir
nokkrum mánuðum: „Aðrir
skapa mér vandamál, hann
leysir þau.“
Áherzla á aukna
atvinnu
Til þess að sýna hve mikla
áherzlu hún leggur nú á að
draga úr atvinnuleysinu í land-
inu skipaði frú Thatcher einnig
annan ráðherra til að fást við
atvinnumálin. Það var Kenn-
eth Clarke, sem verið hefur
heilbrigðis- o'g tryggingamála-
ráðherra. Tveir aðrir nýir
ráðherrar eru taldir frjálslynd-
ir eins og Clarke. Þeir eru
Kenneth Baker, sem tók við af
Patrick Jenkin sem umhverfis-
málaráðherra og John Mac-
Gregor, sem flyzt úr landbún-
aðaráðuneytinu og verður að-
stoðarráðherra í fjármálaráðu-
neytinu.
Jenkin missti sæti sitt í
stjórninni rétt eins og Peter
Rees, forveri MacGregors í
embætti. Talið er að frú
Thatcher hafi mislíkað það
mjög hve óhöndulega Jenkins
tókst til með frumvarp það,
sem afnema átti ýms svæðis-
bundin stjórnvöld, þar á meðal
í London.
Enda þótt frú Thatcher hafi
hvað eftir annað sagt opinber-
lega að hún hygðist á ný skipa
Cecil Parkinson í valdamikið
embætti, virðist sem ráðgjafar
hennar hafi sannfært hana um,
að því fylgdi of mikil áhætta.
Þrátt fyrir viðurkennda hæfi-
leika hans sem talsmanns
stjórnarstefnunnar á vettvangi
fjölmiðla og þá einkum í sjón-
varpi, þá var hann látinn fara
úr stjórninni fyrir tveimur ár-
um, eftir að uppvíst varð um
ástarsamband hans og ritara
hans, sem síðan ól honum barn.
Tebbit, hinn nýi formaður
íhaldsflokksins, er 54 ára að
aldri. Hann er fyrrverandi
flugstjóri og hefur oft verið
talinn koma til greina sem
hugsanlegur eftirmaður frú
Thatcher. Hann særðist illa á
síðasta ári í sprengingu í hóteli
í Brighton, sem írski lýðveld-
isherinn stóð fyrir og kona
hans einnig, svo að hún er löm-
uð síðan.
(Höíundur greinarinnar er blaða-
maður við New York Times.)