Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
T1L FÖSTUDAGS „
'-UMura*i-uM-UU
Sjónvarpið og Víetnam
íslendingur skrifar:
Sjónvarpið ætlar ekki að gera
það endasleppt með stríðið í Víet-
nam. Það hefur nú verið tekið til
umfjöllunar oftar en nokkurt ann-
að stríð og túlkunin hefur verið I
ýmsum myndum. Eitt gengur þó
ávallt sem rauður þráður I mynd-
um þeim, er sjónvarpið islenska
sýnir um stríð þetta. Það er áróð-
ur gegn Bandarikjunum.
í myndinni, sem sýnd var i sjón-
varpinu sl. mánudagskvöld (2.9.)
var ekki nóg með, að myndin sýndi
aðeins eina hlið málsins, þ.e. túlk-
un á „ósæmilegri" hegðun banda-
ríska sendiherrans í Saigon, svo
og allra annarra aðila, sem i
bandaríska sendiráðunu voru
(nema „auðvitað" blaða- og frétta-
manna, sem alltaf eru „góðu“
drengirnir), — heldur mátti sjón-
varpið til með að leika eitt lag i
Iok dagskrárinnar — við hæfi
myndarinnar.
Lagið höfðaði einmitt til þeirra,
sem horfðu á myndina með þeim
þankagangi, sem til var ætlast —
óbeit á öllu bandarisku — og var
lagið og textinn kyrjaður með
grátstaf í kverkunum um „gróða-
fikn mannanna" og síðasta „gest-
inn“, væntanlega einn þeirra, sem
ekki komust með sendiráðsmönn-
unum bandarisku frá Víetnam!
Já, ekki batnar sjónvarpið, þótt
endurskipulagning hafi verið gerð
þar innanhúss nýverið. — En er
sjónvarpið t.d. á kafi i klámi og
eðlunaraðferðum lindýra og ann-
Þessir hringdu .. .
Kurteis 03
J. hringdi og hafði eftirfarandi
að segja:
Fyrir stuttu þurfti ég að
hringja í 03 til að fá upplýsingar
um simanúmer nokkurra manna
sem ég gat ómögulega fundið i
simaskránni. í 03 varð ung
stúlka fyrir svörum sem var svo
liðleg og elskuleg á allan hátt að
ekki verður komist hjá þvi að
þakka fyrir það viðmót sem hún
sýndi.
Það er líklega að bera i bakka-
fullan lækinn að segja að oft
vilji það brenna við að borgarar
mæti fremur hryssingslegu við-
móti hjá hinu opinbera en fyrir
hlýlegt viðmót og liðlegheit ber
vissulega að þakka.
arra málleysingja, eins og myndin
á undan Víetnam-myndinni sýndi.
Er virkilega einhver eða ein-
hverjir dagskrárgerðarmanna eða
sem hafa með val efnis að gera
með ástalíf dýra á heilanum? —
Og eitt er einnig athyglisvert. Það
er, að flestar and-bandariskar
myndir og þættir í íslenska sjón-
varpinu, ásamt eðlunaraðferðum
dýranna koma nú orðið frá Bret-
landi. — Kannske hefur það ávallt
verið svo, eða um langan tíma, án
þess, að maður hafi tekið eftir því,
sérstaklega.
Og hér er enn komið að öðrum
þætti til íhugunar. Er það tilvilj-
un, að flestir þessir þættir, sem
hugsanlega gætu komið inn hjá
þjóðinni varanlegri andúð á
Bandaríkjamönnum (meira þarf
þó til en íslenska sjónvarið til að
heilaþvo landsmenn) eru breskir?
Ég held ekki. Mín skoðun er sú,
að þeir er ráðið hafa dagskrá sjón-
varpsins eða hafa lykilaðstöðu tii
að festa kaup á þessum misheppn-
aða áróðri, vilja sýna áhorfendum,
að hið engilsaxneska efni, sem
menn hafa verið að biðja um að
hafa í meirihluta, sé bara „allt
svona“, ekkert nema andúð í garð
Bandaríkjanna! Og svo séu þessar
dýralífsmyndir — allt um eðlun-
araðferðir dýranna. — Svona sé
nú efnið, a.m.k. það breska!
Og sjónvarpið kemst upp með
þetta, í óþökk almennings. Fjöl-
skyldusjónvarp? — Hvað er það
nú? — Afþreyingarefni? — útilok-
að — ekki nógu mikil ádeila á pen-
inga, velgengni, vesturlönd! —
Löður, sællar minningar, fékk að
lafa á því, að vinstri mönnum við
sjónvarpið fannst votta fyrir
ádeilu þar á vestrænt samfélag. —
„Löður," sögðu þeir, „OK, þeir eru
þar þó með svertingja, a.m.k.“
Það má með sanni segja, að is-
lenska sjónvarpið hafi verið and-
vana fætt með stofnun þess. Það
var engin leið til þess að reka það
Vegna sól-
ríks sumars
Júlíus Þórðarson, Akranesi, skrif-
ar i tilefni af sólríku sumri við
Faxaflóa:
Hækkar sólin hægt um jól,
hér við norðurpólinn.
Tímans hjóli f stjörnu stól,
stjórna máttar sjólinn.
Möndull jarðar mjakast til,
máttarvöld bregðast eigi.
Sólin hækkar hér um bil,
hænufet á hverjum degi.
Elskum lífið blóm og börn,
Birki, Reyni, Víði.
Sögufugla og einnig örn,
allt sem sólin prýðir.
og er ekki enn. Það væri gaman að
vita, hve rekstrartapið var mikið á
sl. ári. Maður heyrir sjaldan tölur
yfir rekstur þess, aðeins hve mikið
fé þurfi til að gera „þætti", sem
enginn vill sjá og mætti henda út í
hafsauga. Enda er þeim pening-
um, sem varið er í að gera t.d.
innlenda „skemmtiþætti“ í raun
hent út í hafsauga.
Kannski væri ekki svo galið
fyrir sjónvarpið að sækja um
styrk til valdhafa í Víetnam, svo
ötulir sem sjónvarpsmenn hafa
verið við að kynna íslendingum
þetta kommúnistariki.
Um fjár-
veitingar
þingsins
H.Kr. skrifar:
Spurt var um erindi sem átti að
vera úr brag um Jakob kaupmann
Jónsson á Seyðisfirði.
Vísan er úr Alþingisrímunum,
5. rímu. Hún er svona:
Stefán Sveinsson sigla vildi
sér til gagns og skemmtunar
kvaðst hann aftur kominn skyldi
kenna mönnum reykingar.
Einhverjum hefur dottið i hug
að þetta gæti átt við Kobba og
engu skeytt þó að stuðlar spilltust.
Ríma þessi er um fjárveitingar
þingsins til einstakra manna og
stétta eins og fyrsta erindið gerir
grein fyrir:
Það er eitt af þingsins verkum
— þangað skal nú víkja mál —
út að hluta mönnum merkum
mótað fagurt Rínarbál. Rínarbál
er gull.
Stefán þessi Sveinsson sótti um
utanfararstyrk til að læra reyk-
ingu matvæla. Rímurnar segja svo
frá afgreiðslu á erindi hans:
Þingmenn bentu á tóbakstollinn,
töldu skaðlegt þvíumlíkt,
sögðu að mætti sjálfur skollinn
senda menn að læra slíkt.
Ríman getur sem sé um ýmsar
fjárbeiðnir sem synjað var:
Súrir mjög á svipinn fóru
sumir burt og fengu ei neitt,
en þeir furðu fáir vóru:
féð er löngum óspart veitt.
Hvort Seyðfirðingar hafa
eitthvað ort í tilefni af væntan-
legu tóbaksumboði Kobba síns
kann ég ekkert að segja.
Microline182/192/193
Ny kynsloð
tölvuprentara!
Kostimir eru ótviræðir:
• Þriöjungi minni og helmingi léttari en áöur.
• Miklu hljóðlátari en áöur.
• Fullkomlega aðhæföir IBM PC og sambæri-
legum tölvum.
• Tfengjast öllum tölvum.
• Prenta 160 stafi á sekúndu, skáletur og
gæöaletur.
• Notandi getur sjálfur hannaö eigin leturgeröir.
• Fullkomin varahluta- og viöhaldsþjónusta.
• Til á lager.
Nýjungamar koma alltaf fyrst frá MICROLINE.
Það er því engin furöa að
MICROLINE em mest
seldu tölvuprentarar á íslandi.
ímíkSoI
Skeifunni 11 Sími 685610