Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
25
Göngubrú byggð yfir
Fúlukvísl á Kili
— Opnar nýjar gönguleiðir á hálendinu.
NÝ GÖNGUBRÚ var sett á ána Fúlukvísl á Kili helgina 23.-25.
ágúst sl. Það var Ferðafélag íslands, sem stóð fyrir framkvæmdum
þessum.
Brúin var flutt fullsmíðuð á
staðinn og sett upp af hópi
sjálfboðaliða. Pétur Guðmunds-
son, Páll Sigurðsson og Axel
ólafsson smíðuðu brúna. Gerðu
þeir það i sjálfboðavinnu í frí-
stundum sínum í sumar. Brúin
er úr járni og mjög traust að
allri gerð.
Þessi nýja göngubrú opnar
nýja gönguleið á Kili, það er frá
Hvítárnesi um Þverbrekkumúla,
en þangað var erfitt að komast
fyrir tilkomu brúarinnar, vegna
þess að oftar en ekki reyndist
ógerlegt að vaða Fúlukvísl. Frá
Þverbrekkumúla er gengið í
Þjófadali og þaðan til Hvera-
valla. Ferðafélagið hefur reist
sæluhús það þétt á þessari leið
að hæfileg dagleið er á milli
Hér standa brúarsmiðirnir og aðstoðarfólk þeirra á nýju brúnni að verki loknu.
Nirra- _ Sú fyrsta var á Syðri-Emstruá, ofskvísl, Farið við Hagavatn og
Þessi göngubrú er hin fimmta byggð 1978. Síðan hafa verið nú siðast á Fúlukvísl.
sem Ferðafélagið hefur byggt. settar brýr á Ljósá, Kaldakl- <úr tréttatilkynningu.)
Skákþing ís-
lands í
drengja-
og telpna-
flokki
SKÁKÞING íslands í drengja- og
telpnaflokki verður haldið dagana
13.—15. september næstkomandi.
Tefldar verða 9 umferðir eftir
Monrad-kerfl og er umhugsunartími
á skák 40 mínútur. Þrjár umferðir
verða tefldar hvern keppnisdag.
Föstudaginn 13. september verður
teflt frá klukkan 19—23, en laugar-
dag og sunnudag verður teflt frá
13—18.
Þátttaka er heimil öllum 14 ára
og yngri og fer skráning fram
sama dag og skákþingið hefst, frá
kl. 18.30. Þátttökugjald er 200
krónur og teflt verður á Grensás-
vegi 46 i Reykjavík. Skákstjóri
verður ólafur H. ólafsson.
Werner Schulze og Elisabeth
Zajac-Wiedner.
Tónverk fyr-
ir hvali og
kontrafagott
íslandsvinurinn Werner
Schulze er nú á ferð um Norður-
lönd ásamt píanóleikaranum
Elisabeth Zajac-Wiedner. Schulze
hefur sérhæft sig i leik á kontra-
fagott. Þau nefna sig Zwio.
Þau munu halda hér þrenna
tónleika, í Valaskjálf 8. sept-
ember, Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 10. september og í
Langholtskirkju 12. september.
Tvö verk verða frumflutt hér
í ferðinni, Trio fyrir Zwio eftir
Schulze sjálfan og „Fjórir þætt-
ir fyrir kontrafagott og nótna-
borðshljóðfæri" eftir Helmut
Neumann.
Ennfremur mun Schulze
flytja verk sitt „Tvíleiksverk
fyrir nokkra hvali og kontra-
fagott“ en það er tileinkað hvöl-
um og upptaka með söng hnúfu-
baka notuð.
NÚERGULUD
TÆKIFÆRI!
AÐ EIGNAST TECHNICS
HUOMTÆKIA SERSTOKU
TILBOÐSVERÐI
FJÓRAR fullkomnar samstæöur meö öllu í
fallegum skáp, meö litaðri glerhurö og loki.
System z-120 ............ 32.500 stgr.
System Z-100 (mynd)........36.900 stgr.
System z-200 ..............46.900 stgr.
System z-300 ..............53.900 stgr.
Útborgun frá kr. 5.000.-
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VEUA VANDAÐ.
£
WJAPIS