Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
Einkaskólinn Tjarnarskóli settur á morgun í fyrsta sinn:
BMX
BMX
BMX
BMX
BMX
BMX
BMX
BMX
BMX
BMX
BMX
hanskar
hjálmar
grímur
peysur
buxur
skór
sokkar
hnéhlífar
púöar
merki
Verö staögr. frá
kr. 6.108
Lferslunin
Sendum í póstkrðfu.
Kreditkortaþjónusta.
Varahluta- og viðgerdarþjónusta.
SUÐURIANDSBRAUT 30 StMI 35320
Torfæruhjól
AHt fyrir BMX
r\n®
Diamant
S*E D^f
Hvít matar- og kaffistell úr þunnu, níðsterku postulíni í
hæsta gæöaflokki. __________________________________
Einföld, formfögur hðnnun.__________________________
Sænskt listahandbragö eins og þaö gerist best.
Þolir þvott í vél, springur
ekki né kvarnast._____
Hagstætt verö.________
Póstsendum
r
KostaJI Boda
- . —
Bankastræti 10 — Sími 13122
Nemendur 75 í þrem-
ur bekkjadeildum
7., 8. og 9. bekkja
— Auk Reykvíkinga sækja nemendur skól-
ann úr fimm nágrannasveitarfélögum
Tjarnarskóli, nýi einkagrunn-
skólinn við Tjörnina í Reykjavík,
verður settur í dag, fimmtudag.
Nemendur skólans á komandi
námsvetri verða 75 í þremur bekkj-
ardeildum 7., 8. og 9. bekkja. Nem-
endur eru að meirihluta úr Reykja-
vík en ennfremur úr Mosfellssveit,
Garðabæ og Kópavogi og af Kjalar-
nesi og Seltjarnarnesi. Auk skóla-
stjóra skólans, þeirra Maríu Sol-
veigar Héðinsdóttur og Margrétar
Theódórsdóttur, verða kennarar
við skólann átta og hefur verið
gengið frá ráðningu þeirra allra
nema eins.
Að sögn Maríu Solveigar Héð-
insdóttur, annars skólastjóra
Tjarnarskóla, sóttu á þriðja
hundrað nemendur um skólavist
og eru umsóknir enn að berast.
Auglýst var í kynningarbæklingi
um skólann að hann tæki 100
nemendur þennan fyrsta skóla-
vetur, en María sagði að við nán-
ari athugun á nýtingu skólahús-
næðisins hefði ekki verið unnt að
hafa þar fleiri en þrjá bekki án
þess að þurfa að tvískipta skóla-
haldinu og því ákveðið að fækka
nemendum um 25, þ.e. eina
bekkjardeild. Við val á nemend-
um var notuð sú aðferð að skipta
fjölda nemenda eftir skólahverf-
um í samræmi við fjölda þeirra í
þeim. Þó var til dæmis engin um-
sókn úr Háaleitishverfi, umdæmi
Álftamýrarskóla, og plássum
ætluðum því hverfi því úthlutað
nemendum úr öðrum hverfum.
Þegar hefur verið gengið frá
ráðningu sjö kennara auk þeirra
skólastjóranna, en væntanlega
verður gengið frá ráðningu þess
áttunda í dag, þ.e. handavinnu-
kennara. Kennararnir munu
kenna frá fjórum upp í tuttugu
og fjórar kennslustundir hver á
viku. Þá mun Stjórnunarfélag ís-
lands annast tölvukennslu fyrir
skólann I eigin húsnæði og út-
vega kennara til þess.
Kennarar þeir sem ráðnir hafa
verið við Tjarnarskóla eru: Elín
Thorarensen, Ellen Svavars-
dóttir, Rós Bender, Sigríður
Ólafsdóttir, Þórdís Kristinsdótt-
ir, Anna Bjarnadóttir og Álf-
heiður Sigurgeirsdóttir. Þá er
ritari við skólann í 60% starfi
Anna Laufey Þórhallsdóttir.
María Solveig var spurð hvort
engir karlmenn hefðu sótt um og
hvort hún teldi það skapa rétta
ímynd fyrir nemendur að enginn
karlmaður starfaði við skólann.
Hún svaraði því til að karlmenn
hefðu vissulega sótt um en þeir
sæktu yfirleitt um of mikla
kennslu til að unnt væri að koma
til móts við þær óskir við svo lít-
inn skóla. Að vísu gat hún þess
að sá kennari sem eftir væri að
ráða, þ.e. handavinnukennarinn,
gæti orðið karlkyns, en karlmað-
ur væri á meðal umsækjenda
sem eftir væri að velja úr. María
bætti því við, að mikill meirihluti
kennara grunnskólanna væri
kvenkyns, nema yfirleitt væru
skólastjórar karlkyns sem ekki
væri í Tjarnarskóla. Hún kvaðst
telja æskilegra fyrir nemendur
og alla aðila að kennarar væru til
helminga karl- og kvenkyns en
aðstæður leyfðu það því miður
ekki.
María sagði og í viðtali við
Morgunblaðið að fyrsti kennara-
fundurinn hefði verið haldinn á
þriðjudag. Þar hefði m.a. verið
ákveðið að Tjarnarskóli yrði
reyklaus skóli, hvorki starfsfólk
né nemendur fá að reykja innan
veggja skólans. Hún sagði að-
spurð í lokin að ekki væri komið
endanlegt svar frá Reykjavík-
urborg um styrkveitingu til skól-
ans, en sér skyldist að borgin
myndi a.m.k. greiða kostnað við
húsaleigu. Varðandi það hvort
önnur sveitarfélög sem nemend-
ur eru frá koma til með að greiða
hlutdeild í kostnaði vegna nem-
enda sinna sagði María að það
tengdist afgreiðslu Reykjavík-
urborgar og væri því ekki unnt
að segja til um það á þessu stigi.
Tjarnarskóli verður settur í
dag kl. 17.30 í Kvennaskólanum í
Reykjavík. Þá verða stundaskrár
afhentar og hefst kennsla nk.
mánudag, 9. september.
Hárskerasueinn
óskast í hluta eöa fullt starf.
Upplýsingar í síma 12725
kvöldsími 71669
RAKARASTOFAN
KIAPPARSTÍG