Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
59
Einkunnagjöfin:
Ragnar er efstur
IBK með hæstu einkunn
NÚ ÞEGAR aðeins eru tvær um-
feröir eftir í fyrstu deildarkeppn-
inni í knattspyrnu er ekki úr vegi
aö líta aöeins á hverjir eru meö
forystu í einkunnagjöfinni hjá
okkur. Þaö er Ragnar Margeirs-
son, sóknarmaöurinn snjalli há
ÍBK, sem hefur forystuna — hefur
hlotiö 3,50 stig. Annar er Guöni
Bergsson, varnarmaðurinn hjá
Val, meö 3,25 í meöaleinkunn. Hér
á eftir fer listi yfir þá leikmenn
sem fengið hafa 2,60 eöa meira í
meöaleinkunn í sumar.
RagnarMargeirsson.íBK 3,50
Guöni Bergsson, Val 3,25
Valþór Sigþórsson ÍBK 3,19
Karl Þóröarson, ÍA 3,13
GuömundurÞorbjörnsson, Val3,07
Hálfdán Örlygsson, KR 3,07
Baldvin Guðmundsson, Þór 3,07
Þorsteinn Bjarnason, ÍBK 3,07
Sævar Jónsson, Val 3,06
GuömundurSteinsson, Fram 3,06
Ómar T orfason, Fram 3,06
Siguróli Kristjánsson, Þór 3,06
FreyrSverrisson, ÍBK 3,00
Guömundur T orfason, Fram 2,94
Helgi Bentsson, ÍBK 2,94
Sveinbjörn Hákonarson, ÍA 2,93
Björn Rafnsson, KR 2,88
HöröurJóhannesson.ÍA 2,88
Einar Ásbjörn Ólafsson, Víöi 2,85
HannesJóhannsson.KR 2,85
BirkirKristinsson, ÍA 2,81
Siguróur Lárusson, ÍA 2,80
Gísli Eyjólfsson, KR 2,80
GunnarGíslason, KR 2,80
Ólafur Þóröarson, ÍA 2,75
GísliHeiöarsson.Víöi 2,75
Ásgeir Elíasson, Fram 2,75
Jónas Róbertsson, Þór 2,75
HalldórÁskelsson.Þór 2,75
Stefán Jóhannsson, KR 2,75
Halldór Halldórsson, FH 2,69
Guöjón Þóröarson, ÍA 2,69
DaníelEinarsson, Víöi 2,69
IngvarGuömundsson, Val 2,69
Friörik Friöriksson, Fram 2,69
WillumÞórsson.KR 2,69
GrímurSæmundsen, Val 2,67
Viöar Þorkelsson, Fram 2,64
Árni Sveinsson, ÍA 2,63
ViöarHalldórsson.FH 2,63
Siguröur Björgvinsson, ÍBK 2,63
Guömundur Erlingsson, Þrótti 2,60
Á eftir þessum leikmönnum
koma margir rétt á hæla þeim en
einn leikmaöur er þaö sem staðið
hefur sig mjög vel í þeim leikjum
sem hann hefur leikiö í sumar. Þessi
leikmaöur er Sigurjón Kristjáns-
son, ÍBK. hann hefur leikiö átta
leiki til þessa fyrir Keflvíkinga í 1.
deildinni og meöaleinkunin hjá
honum er 3,75. Hann er ekki meö í
þeirri upptalningu sem hér var á
undan þar sem hann hefur leikiö of
fáa leiki til aö komast inn á töfluna.
Þegar einkunnagjöfin er skoöuð
nánar eftir aö 16 umferöum er
lokiö í 1. deildinni kemur í Ijós
aö Keflvíkingar hafa hæstu meö-
aleinkunnina. Aöferðin til aö finna
út þessa meðaleinkun er sú aö
viö leggjum saman eínkunnir
þeirra 11 leikmanna sem hefja
leikinn og fáum þannig út heildar-
einkunn fyrir hvern leik. Síöan
leggjum viö alla 16 leikina saman
og deilum síðan í þá tölu meö 16.
Keflvíkingar hafa fengið 31,250
í meöaleinkunn fyrir leiki sína í
sumar, hæsta einkunn þeirra er 41
fyrir leikinn viö ÍA í síðustu umferö
en lægsta einkunin er 26 fyrir leik-
inn viö Skagamenn á Akranesi.
Skagamenn eru næstir meö
29,938 i meöaleinkunn. Hæst hafa
þeir fengiö 41 í 2. umferöinni þegar
þeir sigruöu Víöi 7:0 en lægst 19 í
leiknum viö KR á Akranesi.
Fjórum
sinnum
fimm
— Sigurjón
tvisvar
ÞAÐ SEM af er sumri hefur
aöeins fjórum sinnum verið
gefin einkunnin 5 fyrir frábæra
frammistööu í leik. Sveinbjörn
Hákonarson, ÍA, fékk fyrstur
fimm í sumar, þegar ÍA vann
Víöi 7:0 í 2. umferöinni.
Valgeir Baröason, einnig í ÍA,
fékk fimm þegar hann skoraöi
þrjú mörk í 6:2 sigri lA yfir Fram
í 9. umferð og Sigurjón Krist-
jánsson, ÍBK, hefur tvívegis
fengiö 5 í einkunn fyrir leik sinn.
Hann fékk 5 þegar ÍBK vann
Fram 3:0 í Keflavík í 10. um-
feröinni og einnig fékk Sigurjón
5 þegar Keflavík vann Þrótt í
Keflavík2:1 í 14. umferöinni.
Einkunnagjöfin er þannig aö
1 þýöir slakur, 2, þýöir sæmileg-
ur, 3 er góöur, 4 merkir mjög
góöur og 5 þýöir aö viökomandi
leikmaöur hafi sýnt frábæran
leik.
Fram er i þriöja sæti. Þeir haía
hlotiö 29,686 í meðaleinkun úr leikj-
um sumarsins. Hæsta einkunn
Fram liösins er 36 í leiknum viö KR
sem þeir unnu 4:1 í 6. umferöinni.
Lægstaeinkun Framer 18íleiknum
viö Akut nesinga í 9. umferö en þá
töpuöu þeir 2:6 á Skipaskaga.
Valsmenn koma næstir meö
29,500 í meöaleinkunn. Hæst hafa
þeir fengiö 36 þegar þeir unnu Þór,
3:0, hér í Reykjavík í 14. umferöinni
en lægst 19 í tapleiknum viö Víking
ífyrstu umferöinni.
KR-ingar hafa hlotið 28,936 stig
í meöaleinkun, hæst 37 en lægst
24. Hæstu einkunn fékk KR fyrir
leikinn gegn Þrótti sem þeir unnu
5:1 i 10. umferðinni en lægsta ein-
kunn liösins var er þeir lóku viö
Fram og töpuöu 1:4 í 6. umferö.
Þór hefur hlotið 28,186 stig fyrir
leiki sína í sumar. Hæstu einkunn
fékk liöiö þegar þeir léku viö ÍA í
fyrstu umferöinni og einnig þegar
þeir léku viö KR í síöustu umferö-
inni, 36 í hvort skipti. Lægstu ein-
kunn fékk Þór er liðið tapaöi fyrir
Val í Reykjavík, 3:0, í 14. umferð-
inni.
Víðir í Garöinum er næst í röð-
inni. Þeir hafa 27,125 í meðalein-
kunn, hæst 34 og lægst 17. Hæstu
einkun fékk liöiö þegar þeir töpuöu
fyrir Fram í Garöinum, 3:4 í 5. um-
feröinni og lægstu einkunina fengu
þeir þegar liöiö lék viö ÍA á útivelli
og tapaöi 0:7.
Hafnfiröingarnir hafa hlotiö
26,000 stig í meöaltal, 34 mest og
18 minnst. Mest fékk FH fyrir leik
sinn viö IBK í 15 umferöinni en
honum lauk með 1:1 jafntefli í Hafn-
arfiröi. Liöiö fékk 18 í einkun fyrir
3:0 tap fyrir Val í f jóröu umferðinni.
Þróttur er í næst neösta sætinu.
Þeir hafa 23,936 í einkunn, hæst 32
en lægst 17. Hæstu einkunnina
hlaut liöiö i Keflavík í 14. umferöinni
þegar þeir töpuöu 1:2 en lægstu
einkunnina þegar liöiö geröi 2:2
jafntefli viö Víöi á Laugardalsvelli í
9. umferö.
Víkingar reka lestina hjá okkur,
hafa21,186ímeöaleinkunn. Hæsta
einkunn liösins er 30 og hlutu þeir
hana fyrir leikinn viö FH á Kapla-
krika, sem þeir reyndar töpuöu 3:4.
Lægsta einkunn Víkinga er 15 og
fengu þeir þá einkunn í 2. umferö
þegar liöiö tapaöi 3:0 fyrir Fram.
Morgunblaðið/Einar Valur
• Hinn snjalli og leikni leíkmaóur ÍBK, Ragnar Margeírsson, er efstur I
einkunnagjöf Morgunblaösins. Ragnar hefur leikió mjög vel í sumar og
verið ein styrkasta stoö Keflavíkurliösinc.
Urvalsliöiö:
Valinn maöur
í hverju rúmi
Ef reynt væri aö stilla upp liöi
út frá einkunnargjöfinni í sumar
þá yröi þaö þannig skipaö aö
Þorsteinn Bjarnason eöa Baldvin
Guömundsson yröu í markinu.
Varnarmenn yróu þeir Guóni
Bergsson og Sævar Jónsson úr
Val, Valþór Sigþórsson, ÍBK og
Hálfdán Örlygsson úr KR. Á miöj-
unni í þessu úrvalsliói leika þeir
Karl Þóröarson, ÍA, Siguróli
Kristjánsson, Þór og Ómar Torfa-
son úr Fram. Sóknarmenn liósins
eru þeir Ragnar Margeirsson,
Guömundur Steinsson og Guö-
mundur Þorbjörnsson.
Af þessu má sjá aö liöiö er mjög
sterkt og vaiinn maöur í hverju
rúmi. Framlínumennirnir hafa sam-
tals skoraö 27 mörk í leikjum sum-
arsins auk þess sem Ómar Torfa-
son hefur skoraö níu mörk, en hann
leikur á miöjunni hjá okkur. Varnar-
mennirnir hafa heldur ekki iátiö sitt
eftir liggja viö að skora mörk. Þeir
Guöni og Sævar hafa skorað sex
mörk fyrir Val í sumar og því hafa
leikmenn úrvalsliös okkar samtals
skoraö 42 mörk í sumar.
Punktamót
hjáGR
Punktamót í golfi verður haldiö á
velli GR, Grafarholtsvelli á sunnu-
daginn og er þetta mót meö fullri
forgjöf. Ræst veröur út frá kl. 9
árdegis til kl. 12.30.
t.á ****
• Keflvíkingar eru meö hæstu meöaleinkunnina í sumar. Á myndinni eru frá vinstri, Sævar Jónsson,
Ragnar Margeirsson, Sígurjón Kristjánsson, örn Guömundsson, Guöni Bergsson og fyrir aftan Guóna sér
í Stefán Arnarson. Ragnar hefur forystu ( eínkunnagjöf Morgunblaösins, Guöni Bergsson er í öðru sæti
og Sævar Jónsson er í því níunda til tólfta. Fremstur á myndínni er Sigurjón Kristjánsson sem hefur
tvívegis fengiö fimm í einkunnargjöfinni — hæstu einkunn sem gefin er.