Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
17
Orgel-
leikur
Tónlíst
Jón Ásgeirsson
Fyrstu tónleikarnir á haustönn
1985 voru orgeltónleikar Björns
Steinars Sólbergssonar, sem í
nokkur ár hefur stundað nám i
Frakklandi og á eftir eitt ár enn
í framhaldsnámi þar. Að því loknu
mun hann taka við kirkjunni á
Akureyri, sem enn sem komið er
hýsir eitt mesta orgelið tiltækt
hérlendis. Björn Steinar er feikna-
lega efnilegur orgelleikari, leikinn í
besta lagi en nokkuð órólegur.
Þessi oróleiki var mest áberandi i
verkum meistara Bachs, sem vera
má að sé frönsk túlkun á honum,
þó heldur mætti álíta að ætti rót
sína að rekja til ákafa æskumanns-
ins en að um menningarleg ski!
sé að ræða. Þessi óróleiki var eink-
um áberandi í F-dúr-tokkötunni,
sem hefði mátt vera samferða fúg-
unni, og í tríósónötunni, nr. 5 i
C-dúr. Þrír sálmforleikir voru fal-
lega útfærðir, bæði hvað snertir
raddskipan og leik. Þrjú síðustu
verkin voru frönsk, tvö falleg verk
eftir Alain, Dórískur kórall og
Litanía og tónleikunum lauk á
prelúdíu og fúgu eftir Duruflé.
Verk Duruflé er frekar sundur-
laust og fúgan eiginlega varla
meira en framsaga, en verkið
endar þó með reisulegum loka-
kafla.
Það er margt mjög fallega gert
í orgelverkum Alain og í heild gott
jafnvægi í leik Björns Steinars.
Björn Steinar er eins og fyrr sagði
feikna efnilegur orgelleikari og í
höndum hans varð orgelið í Krists-
kirkju tilþrifamikið hljóðfæri.
í Kaupmannahöf n
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
A JÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
CAMKY
Það getur verið að ekkert sé nýtt
undir sólinni, en í „landi hinnar
rísandi sólar", virðist sífellt hægt
að gera betur. Toyota Camry er
fullkomið dæmi þess.Hann virðist
við fyrstu sýn ósköp venjulegur
5 manna fjölskyIdubílI, en við
nánari kynni kemur annað í Ijós. Þverstæð vél og framhjóladrif gera það að
verkum að innanrými er geysimikið. Sætin eru 1. flokks, (t.d. er hægt
að stilla bílstjórasætið á 7 mismunandi vegu).
Farangursrými í Camry Liftback er 1,17 m3,
sem er meira en margir stationbílar geta státað
af. Veltistýri, 5-gíra skipting (eða 4 stiga
sjálfskipting), loftbremsur, gasdemparar,
tannstangarstýri, gott miðstöðvarkerfi og
annar búnaður hafa líka sitt að segja um þægindi og góða aksturseiginleika.
1,8 eða 2,0 lítra bensínvél með rafstýrðri „beinni innspýtingu" og 1,8
lítra dieselvél með forþjöppu, hafa snerpu og kraften eru auk þess hljóð-
látar og eyðslugrannar. Verð frá kr. 529 þús.
TOYOTA
______Nýbýlavegi8 200Kópavogi S. 91-44144__________