Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
23
Eru
þeir að
fá 'ann
■
v:
Vertíðarlok í Norðurá
Vertíðarlok urðu í Norðurá um
mánaðamótin og komu úr ánni um
1200 laxar sem verður að teljast
alveg bærilegt miðað við vatns-
leysið og slaka nýtingu veiðileyfa
mikinn hluta veiðitímans. Strax (
júlí tók vatn að þverra í ánni og
svo var komið, að menn gengu með
ánni og þekktu vart gðmlu góðu
veiðistaðina, klappir Og eyrar sem
áður tilheyrðu árbothinum stóðu'
langt upp úr og þefur rotnandi
vatnagróðurs fyllti vitin. Þrátt
fyrir þetta svo og að laxinn gekk
seinna en venjulega, komu góðar
göngur í ána og allt fram í ágúst-
byrjun eða svo var veiði góð, en
síðan tók hún að dala til muna þó
alltaf reyttist eitthvað á land.
Talsvert var af laxi í ánni í vertíð-
arlok og er það önnur saga en í
fyrra, er vart sást lax í ánni undir
það síðasta, enda var veiðin nú
rúmlega helmingi meiri og hefði
trúlegast verið mun meiri ef ytri
skilyrði hefðu ekki spillt veiðum
jafn rækilega og raun varð á.
Grímsá: Góð tala en
dofnandi veiði
Lífleg veiði hefur verið í Grímsá
Skipt um flugu undir Laxfossi f Norðurá. Myndin er síðan í júnf öndverðum,
en það fer stórum minna fyrir fossinum þessa dagana.
/
Mjólkurlítrinn
kostar 33,30 kr.
— Mjólkurvörurnar hækkuðu um 7—9%
MJÓLK og mjólkurvörur hskkuðu
í smásölu um 7-9% við verðlagningu
þeirra um mánaðamótin. Mjólkur-
lítrinn hekkaði úr 30,90 í 33,30 kr.,
eða um 7,8%. Nýtt verð kindakjöts
verður birt síðar í þessum mánuði.
Rjómalítrinn hækkaði úr 188,40
í 202,10 kr. (7,3%), undanrenna úr
21,20 f 22,80 kr. (7,5%), kíló af
skyri úr 52,10 í 56,30 kr. (8,1%),
kíló af smjöri úr 349,00 i 380,70
kr. (9,1%), 1 kg. af 45% osti hækk-
aði úr 289,50 í 310,60 kr. (7,3%)
og mysuostur hækkaði úr 111,20 í
119,00, eðaum 7%.
Verðlagsgrundvöllur landbún-
aðarvara, það er búvöruverðið til
bænda, hækkaði um 6,49% og
hefur hann hækkað um 37,46%
frá 1. september í fyrra. Voru
einstakir kostnaðar- og launaliðir
grundvallarins framreiknaðir f
samræmi við verðlagshækkanir
undanfarna mánuði. Sexmanna-
nefndin átti að semja um nýjan
verðlagsgrundvöll fyrir allt verð-
lagsárið en vannst ekki timi til
þess á þeim skamma tfma sem
nefndinni var ætlaður til verksins.
Má búast við að það verði gert
fyrir næstu verðlagningu, sem
taka á gildi 1. desember. Fimm-
mannanefndin sem ákveður heild-
söluverðið framlengdi einnig það
verðlagningarkerfi sem við lýði
hefur verið með framreikningi og
verðlagsráð, sem ákveður smásölu-
verðið, ákvað að sama smásölu-
álagning skuli gilda áfram á með-
an verið er að athuga verðlagning-
armálin í heild.
Aðalþing UNESCO í Sofia í Búlgaríu:
Menntamálaráðherra held-
ur utan í byrjun október
RAGNHILDUR Hclgadóttir, menntamálaráóherra, heldur til Sofia í Búlg-
aríu í byrjun októbermánaðar þar sem hún mun sitia aðalþing UNESCO,
Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, fyrir Islands hönd. Aðalþing
UNESCO er haldið annað hvert ár.
Menntamálaráðherra sagði f
samtali við Morgunblaðið að ráð-
herrar allra Norðurlandanna
myndu sitja þingið. „Við munum
fylgja fram okkar tillögum um
samdrátt í verkefnum og einföld-
un í kerfi UNESCO. Einnig mun-
um við leggja áherslu á að stofn-
unin haldi sig fyrst og fremst við
brýnustu mennta- og vísindamál f
stað þess að einbeita sér að ýms-
um pólitfskum verkefnum, eins og
þó nokkur tilhneiging hefur verið
til á undanförnum árum, og sætt
hefur gagnrýni," sagði mennta-
málaráðherra.
Aðalþingið hefst 7. október og
stendur fram í nóvember, en
menntamálaráðherra mun aðeins
dvelja ytra í nokkra daga.
meiri hluta sumars, en fyrir
nokkru tók hún að dofna, og er
vatnsleysi um kennt. Milli 1200 og
1300 laxar hafa verið færðir í bók,
en eitthvað af aflanum er tvíveidd-
ur lax og stafar það af því að út-
lendingum var gert að sleppa löx-
um sínum merktum f sumar. Ekki
er vitað hversu mikið magn er
tvfveitt, þvf einhver misbrestur
varð á þvf að merkja alla laxa sem
sleppt var. Bændur segja merkta
laxa ekki vera háa prósentu af
heildaraflanum og skv. þvi ætti
að vera mikill lax eftir { ánni.
Hollin hafa verið að fá 20—30 laxa
hvert að undanförnu, það eru tfu
stangir í tvo daga.
Gljúfurá: Væri betri ef
eitthvað væri af vatni
Um 140 laxar eru sagðir komnir
á land úr Gljúfurá f Borgarfirði
og er víst að sú tala væri hærri
ef áin væri ekki jafn vatnslítil og
hún hefur verið mikinn hluta
veiðitímans. Talsvert er af laxi í
ánni og er hann dreifður, einnig
hafa menn séð laxa stökkvandi f
ósnum og má búast við þvf að sá
lax sem þar hfrist muni æða upp
ána við fyrsta tækifæri. Laxinn
er nær allur smár í Gljúfurá, síðast
er fréttist höfðu aðeins tveir stórir
fiskar veiðst, annar 10 pund en
hinn 13pund.
Við höfum opnað aftur eftir gagngerar endurt>ætur
sem gera okkur kleift að veita fljótari og betri þjónustu.
Nú getum við tekið við bílum af öllum stærðum og gerðum.
Tryggðu þér öruggt eftirlit og umhirðu þess búnaðar
bílsins sem mest mæðir á. Með því að...
... taka upp símtólið og
panta tíma í síma 21246, eða
renna við á smurstöð Heklu hf.
Laugavegi 172. Þar sem...
... þú slappar af í nýrri
vistlegri móttöku, færð þér
kaffi og lítur í blöðin.
A meðan...
... við framkvæmum öll
atriði hefðbundinnar smumingar,
auk ýmissa smáatriða t.d.
smumingar á hurðalömum og
læsingum. Auk þess...
... athugum við ástand viftu-
reima, bremsuvökva, ryðvamar og
pústkerfis og látum þig vita
ef eitthvert þessara atriða
þarfnast lagfæringa. Allt...
... þetta tekur aðeins 15-20
mínútur og þú ekur á brott með
góða samvisku á vel smurðum bíl.