Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985
33
Ályktun útifundar um dagvistarmál:
Námskeiðin leysa
ekki fóstruskortinn
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á útifundi, sem Samtök foreldra barna
á dagvistarheimilum Reykjavíkur héldu á Lækjatorgi mánudaginn 2. sept-
ember sl.:
„Við foreldrar höfum miklar
áhyggjur af því ástandi sem skap-
ast hefur á dagvistarheimilunum
og varðar fyrst og fremst aðbúnað
og uppeldi barnanna okkar. Fóstr-
ur koma ekki til starfa og erfitt
reynist að fá ófaglært fólk til
frambúðar.
Ljóst er að undirrót þessa
ástands eru skammarleg kjör
starfsfólks, bæði faglærðs og ófag-
lærðs, sem eru engan veginn í
samræmi við ábyrgð og mikilvægi
starfs þeirra.
Við fögnum að sjálfsögðu nám-
skeiðum sem stuðla að betri
menntun ófaglærðs starfsfólks, en
vekjum athygli á að þau leysa alls
ekki fóstruskortinn.
Foreldrasamtökin skora á yfir-
völd að vinna varanlega lausn á
þessu vandamáli í samráði við
fóstrur og aðra hagsmunaaðila, í
staðinn fyrir eilífar bráðabirgða-
lausnir sem bitna á börnunum.
Framtíð komandi kynslóða er
þess virði!“
Starman í Stjörnubíói
STJÖKNUBÍÓ hefur hafið sýningar
á bandarískri kvikmynd, Starman,
sem John Carpenter leikstýrir. Hún
er önnur vinsælasta bíómynd þessa
árs í Bandaríkjunum. Aðalhlutverk
leika Karen Allen og Jeff Bridges.
Myndin fjallar um Jenny sem er
nýlega orðin ekkja. Eina nóttina
vaknar hún upp við hljóð í íbúð
sinni. Á stofugólfinu liggur eitt-
hvert furðukvikindi, likast barni
sem stækkar í einni svipan og verð-
ur fullorðinn maður, alveg eins í
útliti og eiginmaður hennar sálug-
ur.
Fyrirbærið er Starman, vera frá
fjarlægu stjörnukerfi, miklu þró-
aðri en við jarðarbúar. Starman
þarf að komast á ákveðinn stað í
Arizona innan þriggja daga og bið-
ur hann Jenny að hjálpa sér. Henni
verður ekki um sel en á engra kosta
völ.
Hefst nú ferð þeirra sem er ekki
auðveld, því margir vilja Starman
feigan.
Fríkirkjan í Reykjavfk
Barnastarf
Fríkirkj-
unnar að
hefjast
FRÍKIRKJAN í Reykjavík hefur
barnastarf vetrarins á sunnudag-
inn með því að messað verður
fyrir börn. Hefst messan kl. 11.
Slíkar messur verða á hverjum
sunnudegi í vetur eins og verið
hefur. Þar er Guðspjallið utlistað
í myndum, börnunum kenndir
barnasálmar og bænir. Nú er verið
að skrá börn til fermingar í Frí-
kirkjunni, en fyrsti spurningatím-
inn verður laugardaginn 28. sept-
ember.
Leiðrétting á
verðkönnun
á skólavörum
f VERÐKÖNNUN á skólavörum,
sem birt var nýverið, var sagt að
skólataska af gerðinni Amigo, bak-
taska (vörunúmer 32), hafi kostað
1.053 kr. í Bókaverslun ísafoldar og
jafnframt var sagt að það hafi verið
lægsta verð á þessari gerð af skóla-
tösku. f Ijós hefur komið að hér var
um ódýrari gerð af skólatösku að
ræða heldur en spurt var um í könn-
uninni. Rétt verð á skólatöskunni er
1.428 kr. og er munur á hæsta og
lægsta verði því 90 kr. í stað 374 kr.
Jafnframt var sagt að skólataska
af gerðinni Scout mini kostaði
1.542 kr. I Bókabúð Safamýrar.
Þessi skólataska er hins vegar ekki
til í þessari verslun og er hér um að
ræða verð á dýrari gerð af tösku
sem heitir Scout I.
Verðlagsstofnun biðst velvirð-
ingar á fyrrgreindum mistökum
sem voru ófyrirsjáanleg sökum
þess að upplýsingar frá viðkomandi
verslunum voru ekki réttar.
(Fréttatilkynning)
fr!xtiiííTi«' •' • mv wif niihitf* .11
Vitnisburður Vernharðs í Holti
um heyrúllupokana okkar
Ný, hagkvæmari tækni við heyverkun
Vemharður Sigurgrímsson, Holti II, Stokkseyrarhreppi, segir:
„Eg notaði heyrúllupoka í fyrrasumar og tel þetta mjög hag-
kvæma heyverkunaraðferð. Hún er alls ekki dýrari en aðrar að-
ferðir, t.d. súgþurrkun en heyið verkast mun þetur. Eitt sinn hirti
ég hálfþurrt hey af sama teig f rúllupoka og f súgþurrkun. Poka-
heyið reyndist miklu lystugra, kýrnar átu það langtum betur.
Besta verkun næst, fái heyið að þorna einn dag."
Plastprentspokarnir öruggir
„í fyrra tók ég 200 heyrúllupoka frá Plastprenti. Aðeins einn poki
ónýttist (fyrir slysni). Eg reyndi einnig útlenda poka (þynnri gerð)
en það komu myglublettir við saumana. Plastprentspokarnir eru
alveg lausir við slíkt. Við lofttæmum alla pokana með ryksugu,
það auðveldar lokun og flýtir fyrir verkun." £
Stórminnkuð áhrif ótíðar <
„Ég hef ekki pokað mjög blautt gras en tilraun sýndi að ekki sak-
aði þótt pollur væri í grænfóðurspokum. Pokarnir geta staðið úti
fram eftir vetri, varðir vindi og skepnum. Það sparar hlöðurými.
Hjá mér stóðu úti 20 pokar með þurrkuðu byggi fram að jólum.
Ég er þess fullviss að pokun er verkunaraðferð framtíðarinnar.
Hey þarf aldrei að hrekjast. Þurrhey má poka á svipstundu, byrji
að rigna. Ég geri ráð fyrir að pakka í400 Plastprentspoka í sum-
ar."
f Plastprent hf.
Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf.
Höfðabakka 9. Sími 685600.
■Tmmsfi u<o- isntthltob t.«untj?. mirs.
r rt'w