Morgunblaðið - 06.11.1985, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER1985
17
Útvarpsþættir Þráins
Bertelssonar á bók
NÝTT líf hefur gefid út bók eftir
Þráin Bertelsson. Bókin heitir „Þad
var og ... “ og eru í henni 33 þiettir,
sem Þráinn flutti í ríkisútvarpinu.
Á kápusíðu bókarinnar segir:
„Nokkur undanfarin ár flutti Þrá-
inn Bertelsson útvarpsþætti og
nefndi þá „Það var og... “ Þessir
þættir urðu fljótlega vinsælir og
vöktu umtal, enda kom Þráinn víða
við og fjallaði um ýmsar hliðar
mannlífsins á sinn einlæga og
glettna hátt. Þessi bók geymir úr-
val þessara þátta sem birtast hér
á prenti i fyrsta sinn. Þar á meðal:
Saklaus leikur, Árshátíð unglinga-
vandamálsins, Þjóðleg reisn, fjað-
urskreyttir flókahattar, Innvortis
ræsting, Þar sem heimsfrægðinni
er úthíutað, Á köldum klaka,
Hlutabréf í sprengjuforða, Skelfi-
legur sjúkdómur, Undraglugginn,
Nýju stigvélin hans Guðmundar,
Seðlabanki eða Tívolí? Stefnumót
við múmíu, Yndislegt fólk, Islend-
ingar.
Frá boði sem haldið var vegna nafnbreytingar Menntastofnunar íslands og
Bandaríkjanna. Frá vinstri: Nancy Lammerding Ruwe, sendiherrafrú, Nic-
holas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, og Þorbjörn Karlsson, prófessor, formaður stjórnar stofnunar-
innar.
Menntastofnun íslands og Bandaríkjannæ
6 milljónir í
styrki í vetur
Menntastofnun íslands og Banda-
ríkjanna, Fulbright-stofnunin, styrk-
ir 17 Bandaríkjamenn og 25 íslend-
inga til náms í vetur, samtals er
upphæðin 145.000 dollarar, um 6
milljónir íslenskra króna.
Frá þvi stofnunin var sett á
laggirnar árið 1964 hafa um 120
bandarískir námsmenn og 250 ís-
lenskir hlotið styrk.
Samkvæmt samningi ríkis-
stjórna Islands og Bandaríkjanna
var nafni stofnunarinnar breytt
1. september síðastliðinn — áður
var hún nefnd Menntastofnun
Bandarikjanna á íslandi. Nýja
nafnið ber það með sér að stofnun-
in er í raun réttri byggð á sam-
starfi tveggja þjóða.
Hlutverk stofnunarinnar er að
sjá um framkvæmd námsaðstoðar
við íslendinga, sem lokið hafa há-
skólaprófi og hyggja á framhalds-
nám við háskóla í Bandaríkjunum,
svo og aðstoð við Bandaríkjamenn
er vilja stunda framhaldsnám við
Háskóla íslands. Einnig veitir
stofnunin styrki til rannsókna og
fyrirlestra í báðum löndunum.
Stjórn stofnunarinnar er skipuð
fulltrúum beggja landa — og nú-
verandi formaður stjórnarinnar er
Þorbjörn Karlsson, prófessor.
Heiðursformenn eru ávallt
menntamálaráðherra fyrir hönd
íslands og sendiherra Bandarikj-
anna.
96 sögur af Oktavíu
— eftir Véstein Lúðvíksson
(JT ER KOMIÐ hjá Máli og menn-
ingu nýtt skáldverk eftir Véstein
Lúðvíksson og nefnist það Oktavía.
Vésteinn hefur áður skrifað skáld-
sögur, smásögur og leikrit og i
fyrra kom út eftir hann bókin Mað-
ur og haf, sem er önnur þeirra bóka
sem tilnefndar eru til bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs i ár
af íslands hálfu.
í fréttatilkynningu útgefandans
segir:
„1 þessu nýja verki Vésteins
segir frá þvi að félag nokkurt
hyggst ráða sér framkvæmda-
stjóra en meðal umsækjanda reyn-
ist vera umdeildur félagsmaður,
Oktavía að nafni. Formaður fé-
lagsins gerir það að tillögu sinni
að stjórnin fjalli um umsókn
Oktaviu með þeim hætti að hver
hinna tólf stjórnarmanna segi af
henni átta stuttar sögur, og
rökstyðji þannig atkvæði sitt. I
bókinni eru þvi 96 stuttar sögur
af sömu konunni, og bregða þær
skemmtilegu og oft óvæntu ljósi á
tilveru okkar og samlíf."
Vésteinn Lúðvfksson
Oktavía er 100 bls. að stærð,
unnin og prentuð í Prentstofu G.
Benediktssonar og bundin i Bók-
felli hf. Kápu gerði Robert Guille-
mette.
Stálvík fékk
trollið í skrúfuna
Sólberg dró skipið til Siglufjarðar
Þráinn Bertelsson
Þetta er sjötta bók Þráins Bert-
elssonar. Helgafell gaf út fjórar
skáldsögur eftir hann 1970 til ’74
og í fyrra gaf Nýtt líf út barnabók
hans „Hundrað ára afmælið". Sú
bók var með myndum eftir Brians
Pilkington og fékk verðiaun
Fræðsluráðs sem bezta barnabók
ársins. Hún hefur verið þýdd á
nokkur tungumál.
„Það var og... “ er 268 blaðsíð-
ur, prentuð hjá Prismu.
TOGARINN Stálvík fékk í fyrra-
kvöld troll í skrúfuna þegar skipið
var að veiðum í Reykjafjarðarál.
Hafði Stálvík samband við togarann
Sólberg frá Ólafsfirði, sem var að
veiðum á Strandagrunni og bað um
aðstoð. Sólberg hélt til Stálvíkur og
var komið að Stálvík um kl. 1.30 í
fyrrinótt og um kl. 3 var búið að
festa vír í Stálvík, og Sólberg dró
skipið því næst til Siglufjarðar, og
voru skipin þangað komin um hádeg-
isbilið í gær.
Gunnar R. Kristinsson skip-
stjóri á Sólberg sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær: „Við vorum
staddir á Strandagrunni þegar
Stálvík hafði samband við okkur
um kl. 22 í gærkveldi og bað okkur
að draga sig inn, því þeir höfðu
fengið trollið í skrúfuna og voru
alveg stjórnlausir. Stálvíkin var
þá stödd á Reykjafjarðarál og við
vorum komnir að henni um kl. 1.30
í nótt, og vorum búnir að festa vír
í Stálvíkina um kl. 3. Þá settum
við á ferð til Siglufjarðar og þang-
að vorum við komnir um hádegi í
dag.“
Gunnar var spurður hvernig
veður hefði verið þegar þetta gerð-
ist: „Veður var að ganga niður. Það
hafði verið bræla. Það var norðan-
átt, um fimm vindstig en var að
lægja þegar við komum til þeirra."
Gunnar sagði að trollið hefði í
gær verið skorið úr skrúfunni á
Stálvíkinni og í ljós hefði komið
að skemmdir voru engar. Hélt
Stálvíkin því aftur til veiða sið-
degis 1 gær.
Gunnar sagði að Sólberg myndi
fá greiðslu fyrir aðstoðina sam-
kvæmt svonefndum Goðataxta, og
er þá átt við þann taxta sem björg-
unarskipið Goði setur upp fyrir
björgun. Gunnar sagðist ekki vita
hversu há sú upphæð væri, en það
væri komin hefð á hvernig greiðsl-
um fyrir slíkt væri háttað.
Með bættri aðstöðu í
nýjum húsakynnum í Mjóddinni
(Víðishúsinu)
getum við nú boðið fjölbreyttari
og betri þjónustu en áður.
öll innlend og erlend
bankaviðskipti.
Næturhólf — Geymsluhólf
Sími 78855.