Morgunblaðið - 06.11.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER1985
Hvar er sjálfs-
eignarstefnan í
húsnæðismálum ?
eftir Guðlaug
Ellertsson
Það er dæmigert fyrir íslensk
stjórnmál, að aðalstarf stjórn-
málamanna er að burðast viö að
leysa mál eftir að þeir eru sjálfir
búnir að setja þau í hnút. Þetta
er skiljanlegt að því leyti, að þá
tekur fólk frekar eftir því, sem
Guðlaugur Ellertsson
„Við þurfutn fjármagns-
nýtingarstefnu á öllum
sviðum þjóðlífsins í stað
þeirrar fjármagnssóun-
arstefnu, sem fylgt hefur
verið síðustu 40 ár
a.m.k.“
þeir eru að gera. Fyrirbyggjandi
aðgerðir, sem miða að þvi að greiða
úr málum áður en í óefni er komið,
hafa ekki eins mikið auglýsinga-
gildi. Þetta er eins með afbrýðisöm
börn, sem sækjast frekar eftir
neikvæðari athygli en engri.
Ég hygg, að flestir samnefndar-
menn mínir í milliþinganefnd um
húsnæðismál geti staðfest það, að
ég hafi ekki legið á liði mínu varð-
andi gagnrýni og ábendingar til
úrbóta.
Til þess að sjálfseignarstefnan
i húsnæðismálum geti gengið upp,
þarf a.m.k. annað af tvennu að
koma til, þ.e. stórhækkuð laun eða
stóraukið framlag ríkisins til hús-
næðismála. Hvorugt virðist vera á
döfinni hjá núverandi ríkisstjórn.
Þjóðin hefur lengi búið við rúss-
neskt vöruskömmtunarkerfi í pen-
ingamálum, sem „fjórflokkurinn"
(Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur, Alþýðubandalag og Al-
þýðuflokkur) hefur staðið dyggi-
lega vörð um. Það er að því leyti
verra hér en í Rússlandi, að þar
er almenningur yfirleitt afgreidd-
ur éftir röð. Hér á ég við það, að
pólitísk úthlutun fjármagns nær
langt út fyrir ríkisútgjöldin, hún
er einnig allsráðandi í sjóða- og
bankakerfinu.
Annað innanmein í íslenskum
þjóðarbúskap er vinnulöggjöfin, en
þar er fámennisvald hjá atvinnu-
rekendum og verkalýðshreyfingu
allsráðandi. Með vinnustaðasamn-
ingum eru meiri líkur til þess, að
samningar taki að einhverju leyti
mið af stöðu einstakra fyrirtækja
og keðjuverkföll verði útilokuð.
Skattalögin á að nota sem hag-
stjórnartæki en ekki eingöngu sem
tekjuöflunarleið fyrir atkvæða-
kaup.
Varanleg lausn húsnæðismála
fæst ekki nema með gjörbreyttri
efnahagsstefnu, þar sem almenn
löggjöf miðast við það, að skyn-
samlegar ákvarðanir frá sjónar-
hóli einstaklinga og fyrirtækja
verði jafnframt þjóðhagslega hag-
kvæmar.
Við þurfum fjármagnsnýtingar-
stefnu á öllum sviðum þjóðlífsins
í stað þeirrar fjármagnssóunar-
stefnu, sem fylgt hefur verið síð-
ustu 40 ár a.m.k.
Stjórnkerfisbreytingar, sem
Bandalag jafnaðarmanna hefur
bent á, og miða að því, að völd og
ábyrgð fari saman, eru nauðsyn-
legar við framkvæmd slíkrar
stefnu.
Höfundur er vidskiptafræðingur og
starfar hjá Húsasmiðjunni.
Brezki sérfræðingurinn, Antoni EIIis, leiðbeinir um gæði skinna. Morgunbiaðia/ Bem hard
Kennsla í skinnaflokk-
un fyrir refabændur
Kleppjárnsreykjum. 26. október.
BREZKUR sérfræðingur hjá
brezka fyrirtækinu Hudson’s Bay
hefur að undanförnu ferðast um
landið til að kenna loðdýrabænd-
um að flokka og meta refaskinn
með tilliti til lífdýra, ásetnings og
pelsunar.
Hann hitti loðdýrabændur af
Vesturlandi á dögunum á Gríms-
stöðum í Reykholtsdal, en þar
reka hjónin Guðmundur Krist-
insson og Steinunn Garðarsdótt-
ir refabú. Eftir sýnikennslu á
lifandi refum var farið í félags-
heimilið á Logalandi og hélt
Bretinn þar fyrirlestur, einnig
skýrði hann mál sitt með sýningu
á myndbandi. Mikill áhugi er
meðal bænda á refaræktinni.
Að velja dýr til ásetnings er
vandaverk og verður að taka tillit
til margra þátta. Nefna má yfir-
hár, undirhár, háralengd, hára-
mýkt, lit og stærð dýra. Þegar
dýr eru tilbúin til pelsunar, en
svo er sagt þegar dýri er slátrað,
eru skinnin verðmest í um viku-
tíma og þarf þennan tíma að
fylgjast mjög náið með skinnun-
um. Þá má nefna að ekki er talið
æskilegt að pelsa nema í þurru
veðri og helzt frosti.
— Bernharð.
Hópurinn sem sótti námskeiðið.
Áttunda ársþing Félags
farstöðvaeigenda haldið
ATTUNDA ársþing Félags farstöðva-
eigenda var haldið í Reykjavík í
byrjun september sl. Þingið sóttu 73
fulltrúar _ deilda hvaðanæva af
landinu. Á ársþingum er fjallað um
skipulagsmál félagsins, lögum
breytt, kosnar milliþinganefndir,
sem vinna að ýmsum málefnum sem
snerta rekstur og stjórn samtakanna,
auk þess sem kosin er landstjórn.
í landsstjórn voru kosnir: Örn
Bernhöft formaður, Garðabæ, Júl-
íus Högnason varaformaður,
Keflavík, ólafur Á. Steinþórsson
ritari, Borgarnesi, Bjarni S. Jónas-
son gjaldkeri, Reykjavík, Guð-
mundur Sigurðsson, Reykjavík,
Úlfar Ármannsson, Hafnarfirði,
og Einar Brynjólfsson, Hellu,
meðstjórnendur. I varastjórn voru
kosin: Vigdís S. Baldvinsdóttir,
Keflavík, Indíana Ólafsdóttir,
Dalasýslu, og Ægir Kristinsson,
Fáskrúðsfirði.
Félag farstöðvaeigenda á íslandi
var stofnað á árinu 1970. Tilgangur
þess er að gæta hagsmuna þeirra,
sem eiga farstöðvar, en það eru svo
nefndar CB-talstöðvar með sendi-
og móttökutíðnina 27 MHz. Þessar
farstöðvar eru öryggis- og fjar-
skiptatæki með takmarkað sendi-
svio og mioast aeiidaskipting fé-
lagsins við það svæði, sem sendi-
styrkur takmarkar með góðu móti.
Þegar eru starfandi 26 deildir á
öllu landinu. Félagsmenn eru nú
um 8.000 talsins og er FR því með
stærri félagasamtökum hérlendis.
Auk þess að gæta hagsmuna fé-
lagsmanna, t.d. með því að annast
ýmis samskipti við opinbera aðila,
svo sem Póst & síma í sambandi
við tæknileg málefni sem snerta
Frá ársþingi Félags farstöðvaeigenda á íslandi, sem haldið var f 8. sinn í byrjun september sl.
fjarskipti, er rekin ýmis þjónustu-
starfsemi á vegum FR fyrir félags-
menn. Deildir starfrækja sérstök
radíó, sem opin eru daglega á
ákveðnum tíma, en þau veita t.d.
félagsmönnum símaþjónustu
Þannig getur FR-félagi, sem ei
staddur í Reykjavík og er mei
farstöð í bíl sínum, kallað upp
Radíó 5.000 og náð sambandi nán-
ast hvert sem er með síma um
farstöð.
Félagið gefur út tímarit, Rás 6,
sem dreift er til félagsmanna með
fréttum af starfi deilda auk ýmissa
tæknilegra upplýsinga, sem varða
fjarskiptamál. Félagið hefur tekið
virkan þátt í skipulagðri öryggis-
þjónustu við almenning við ýmis
tilefni, svo sem með uppbyggingu
fjarskiptakerfa í samvinnu við
Félag íslenskra bifreiðaeigenda.
Auk þess hafa FR-deildir starf-
rækt þjónustu um verslunar-
mannahelgar undanfarin ár auk
samstarfs við björgunarsveitir,
Slysavarnafélagið og Almanna-
varnir rikisins.
Skrifstofa Félags farstöðvaeig-
enda er í Siðumúla 2, Reykjavík,
simi 34100, en deildir um land allt
hafa einnig opnað skrifstofur, sem
gefa upplýsingar þeim sem óska
inngöngu í FR.
Fréttatilkynning