Morgunblaðið - 06.11.1985, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÖVEMBER1985
59
ÆBt
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁMÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bjargar bjór
mannslífum?
Velvakandi góður!
Morgunblaðið birti 30. október
frétt frá fréttaritara sínum í
London. Fréttinni er sett tvídálka
fyrirsögn með stóru letri, enda er
efnið merkilegt: „Bjór bjargar
mannshTi.'*
Síðan er frá því sagt að maður-
inn sem í lífshættuna komst, Paul
Jenkins heitir hann, hafi verið
staddur á bjórkrá. Hann var í
skyrtu úr eldfimu efni. Fréttarit-
arinn segir að þetta hafi einhver
drykkjufélagi hans vitað, því að
hann hafi borið eld að manninum.
Það virðist ekki þykja neitt frétt-
næmt þó að reynt sé að kveikja í
manni á bjórkrá í Bretlandi. Nú,
skyrtan fuðraði upp, stóð í ljósum
loga og eigandi hennar varð
hræddur þar sem hann gerði sér
ljóst að líf hans var í hættu. Neyð-
aróp hans heyrðust langar leiðir.
Og nú kemur að því sem er efni
í tvídálka fyrirsögn. Nokkrir af
fastagestum krárinnar voru svo
klárir í kolli að þeir gerðu sér ljóst
að hér var voði á ferðum. Þeir
hvolfdu úr bjórkollum sínum yfir
eldinn í skyrtunni og slökktu hann.
Það bjargaði lífi mannsins sem að
vísu er skaðbrenndur.
nægir eindálka fyrirsögn 6 síðum
aftar en fréttin frá London.
H. Kr.
spurt og svarad
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
Bílalest rússneska
utanríkisráðherrans
Og fréttaritarinn dáist að fórn-
fýsi og göfuglyndi fastagestanna
„sem fórnuðu bjórnum sínum til
að bjarga lífi hans“.
Svo bætir fréttaritarinn því við
„að eitt er víst að Paul Jenkins er
ekki manna líklegastur til að beita
sér fyrir bjórbanni í Bretlandi".
Nú má vel vera að einhverjum
finnist það vafasamir skemmti-
staðir þar sem ekki þykir tiltöku-
mál eða fréttaefni að kveikt sé í
lifandi mönnum. Hvað veldur þeim
ósköpum?
í þessu sama Morgunblaði er
sagt frá ályktun kirkjuþings um
áfengismál á íslandi. Ritstjórninni
finnst allt minna til um það. Þar
Spurt:
Sigurjón Gunnarsson hafði
samband við Velvakanda vegna
komu rússneska utanríkisráðherr-
ans hingað til lands. Taldi hann
að mikil slysahætta hefði skapast
vegna akstursmáta bílalestarinnar
í gegnum bæinn.
Biður hann vinsamlegast um
skýringar lögreglustjóra á akst-
urslagi lögreglunnar og einnig
spyrst hann fyrir um heimild lög-
regluþjóna til að aka á ólöglegum
hraða í gegnum þéttbýli þegar
engin hætta er á ferðum og skapa
þannig gífurlega slysahættu að
ástæðulausu.
Ætlar Sigurjón það varla í þágu
rússneska utanríkisráðherrans
eða íslensku þjóðarinnar að einu
kynni hans af íslenskri menningu
tengist ólöglegum akstri.
Svarað:
Velvakandi sendi spurningu
Sigurjóns skriflega til Sigurjóns
Sigurðssonar lögreglustjóra og fer
svar hans hér á eftir:
„Vísað er til bréfs Morgunblaðs-
ins, varðandi heimild lögreglunnar
til undanþágu frá reglum um há-
markshraða.
Ökutæki lögreglunnar eru, þeg-
ar brýna nauðsyn ber til, undan-
þegin ákvæðum umferðarlaga um
hámarkshraða, enda séu notuð
tilskilin ljós- og hljóðmerki.
Þegar utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna kom í heimsókn til lands-
ins 30. október sl. var lögreglunni
falið að fylgja bifreiðum gestanna
og fylgdarliðs þeirra, m.a. frá og
til Keflavíkurflugvallar. Yfirleitt
sér lögreglan um slíka fylgd við
opinberar heimsóknir. Þá er um-
ferðarlöggæzlan aukin og aksturs-
leiðin valin fyrirfram. Lögreglu-
bifreiðum og -bifhjólum, sem
fylgja, er ekið með rauðum aðvör-
unarljósum, heldur hraðar en í
venjulegu eftirliti en að jafnaði
innan leyfilegra hraðamarka. Þess
er gætt að aksturinn valdi sem
minnstri hættu. Rík áherzla er á
það lögð við lögreglumenn að þeir
aki ávallt með fyllstu aðgát, eink-
um þegar þeir nota heimild til
undanþágu frá reglum um há-
markshraða.
Lögreglumönnunum, sem fylgdu
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
bar að fara eftir þeim reglum sem
hér hefur verið lýst og könnun
hefur ekki leitt í ljós annað en að
þeir hafi unnið starf sitt af sam-
vizkusemi og áfallalaust."
Sigurjón Sigurðsson,
lögreglustjóri.
VÍKURBRAUT SF.
KÁRSNESBRAUT 124, KÓP. S: 46044
_ /með_
Cremedas
— hesta umhirda sem þú getur veitt húd þinni.
Hin einstœða samsetning Cretnedas veitir húd
þinni þann raka, sem nauðsynlegur er í okkar
hreytilega loftslagi kulda, hita og vinda.
Notaðu Cremedas Nordic andlitskrem eitt séreða
undir „make up“, og Cremedas „bodykrem “ eða
„bodylotion“ í hvert sinn eftir bað.
JOPCO HF. VATNAGÖRÐUM 14 - SiMAR/39130, 39140