Morgunblaðið - 13.12.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
21
' / / / ; --............
Morgunbladid/ólafur.
Væntanlegir nýstúdentar, 10 Austfirdingar, einn Nordlendingur auk Suður-
nesjamanns.
Egilsstaðir:
Menntaskólinn út-
skrifar 12 stúdenta
Heilsumarkadurinn kynnir
NALARS TUNGUE YRNA L OKKINN
Hjálp í baráttunni viö aukakílóin og
reykingarnar.
Hannað og próffaö af lækni sem er sér-
fræöingur í reykinga- og offituvanda-
málum.
Algerlega hættulaust og auövelt í notk-
un. Bara þrýsta meö fingurgómunum.
Leiðbeiningar á íslensku fylgja meö.
Má setja og taka aö vild.
Hannað
með fyllstu
þægindi
í huga.
Leitið upplýsinga í síma 62-23-23
Sendum í póstkröfu
Heilsumarkaðurinn
Hafnarstræti 11
Einkaumboö á íslandi: Heilsumarkaöurinn Hafnarstræti 11.
EgilastöAum, 11. desember.
MENNTASKÓLINN á Egilsstöð-
um mun væntanlega úskrifa 12
stúdenta laugardaginn 21. þ.m.
við hátíðlega athöfn í Egilsstaða-
kirkju. Stúdentar frá skólanum
verða þá orðnir 180 talsins og er
nær 80% þess hóps af Austur-
landi.
Að sögn Vilhjálms Einars-
sonar, skólameistara, hafa um
260 nemendur stundað nám í
ME á þessari önn — þar af 39
í öldungadeild. Vilhjálmur
kvaðst vongóður um að bygging
kennsluhúsnæðis við skólann
hæfist nú þegar á næsta ári —
en skólinn hefur til þessa þurft
að nýta rými í heimavist og
mötuneyti fyrir kennslu.
Menntaskólinn á Egilsstöðum
tók til starfa haustið 1979.
— Ólafur.
20 ár frá
vígslu Há-
teigskirkju
Á SUNNUDAGINN verður þess
minnst í Háteigskirkju að tuttugu ár
eru liðin frá vígslu hennar.
Kl. 21 verða „aðventusöngvar við
kertaljós". Dr. teol Sigurbjörn
Einarsson, biskup, flytur ræðu, en
dr. Sigurbjörn er vígslufaðir kirkj-
unnar. Mikið verður um söng,
skólakór Álftamýrarskóla syngur
undir stjórn kennara síns Hannes-
ar Baldurssonar. Kór Háteigs-
kirkju flytur ýmis aðventulög, en
við orgel verður dr. Orthulf Prunn-
er. Þá verður almennur söngur.
Messur verða á sama tíma og
venjulega kl. 10 og kl. 14. Barna-
guðsþjónusta er kl. 11 og munu
börn úr Æfingadeild K.H.I. syngja
og leika á hljóðfæri undir stjórn
Jóns G. Þórarinssonar. Það er
mikil ástæða til að fara í kirkju á
sunnudaginn og þakka fyrir kirkj-
una sína og njóta þeirrar end-
urnýjunar og endurnæringar, sem
það felur f sér, sérstaklega á að-
ventu.
Jólagjöf fjölskyldunnar
Örbylgjuofninn er jólagjöfin sem gefur þér arö. — Þú sparar 60-70%
af rafmagnsnotkun viö matreiösluna, þú notar miklu minna hráefni,
maturinn rýrnar minna. — Þú sparar geysilegan tíma viö matreiösluna
og TOSHIBA örbylgjuofninn tryggir þér jafnan og góöan árangur. —
Þaö er þetta sem setur TOSHIBA skör hærra.
10geröiraf
örbylgjuofnum.
Verö viö allra hæfi.
Frá kr. 13.990 stgr.
Úrvalið af ofnum er hvergi meira og verðið gerist ekki betra
Kjör, sem þú sleppir ekki:
5.000 kr. útborgun á ódýrustu ofnunum
og eftirstöövar á 6 mán.
Láttu ekki þessi kjör fara fram hjá þér.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I6995
Þjónusta sem þér býöst ekki annars-
staöar:
* íslenskar leiðbeiningar fylgja ásamt upp-
skriftum.
* Stór matreiöslubók fylgir.
* Matreiöslukvöldnámskeiö fyrir bæöi hjón-
in fylgir án endurgjalds.
* TOSHIBAuppskriftaklúbburinn stendur
þér opinn meö spennandi uppskriftum.
* Símaþjónusta hússtjórnarkennara stend-
ur þér til reiðu.
Settu traust þitt á TOSHIBA.
Sóknarprestar