Morgunblaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER1985
53
Timman vann sér sæti í
áskorendaeinvígjunum
Skák
Margeir Pétursson
Hollenski stórmeistarinn Jan
Timman hreppti fjórða og síðasta
sætið í áskorendaeinvígjunum, sem
hefjast snemma á næsta ári. Hann
varð jafn Sovétmanninum Mikhail
Tal, fyrrverandi heimsmeistara, á
áskorendamótinu um daginn og urðu
þeir að tefla sex skáka einvígi um
ijórða sætið. Því lauk 3—3, en vegna
hagstæðari stiga úr áskorendamót-
inu komst Timman áfram. Timman
þykir almennt frambærilegasti full-
trúi Vesturlanda í heimsmeistara-
keppninni í skák, síðan Fischer var
upp á sitt bezta, á árunum 1970—72.
Fyrir einvígið við Tal þótti
Timman mun sigurstranglegri,
hann er 33ja ára, en heimsmeistar-
inn fyrrverandi orðinn 49, auk
þess sem sóknarstíll Tals hefur
yfirleitt notið sín illa í einvígjum.
Eftir að Timman vann aðra skák-
ina, þótti síðan flestum sem úrslit-
in væru ráðin, en Tal komst frá
einvíginu með miklum sóma, með
því að jafna metin í næstsíðustu
skákinni. Við það fór mikill hrollur
um hollenska skákáhugamenn, en
Timman tókst að halda jafntefli
með hvítu í sjöttu og síðustu skák-
inni og komst því áfram á jöfnu.
Einvígið fór fram í Montpellier í
Frakklandi, eins og áskorendamót-
iðsjálft.
Vinningsskák Timmans gekk
þannig fyrir sig;
HvítL' Jan Timman
Svart: Mikhail Tal
Móttekið drottingarbragð
1. d4 — d5,2. c4 — dxc4,3. e4
í ár hefur verið vinsælast að
svara peðsráninu á þennan máta.
Hvítur leggur ekki áherzlu á að
ná peðinu til baka, en fær oft opnar
línur og sóknarfæri.
— e5, 4. Rf3 — exd4, 5. Bxc4 —
Bb4+, 6. Rbd2 — Rc6,7. (H) — Df6!?
Sovézki stórmeistarinn Roman-
ishin er upphafsmaðurinn að þess-
um frumlega leik. 7. — Bxd2 eða
7 — De7 eru e.t.v. öruggari leikir.
8. e5 — Dg6, 9. Rh4 — Dg4, 10.
Rdf3 — Be6,11. h3
Timman velur vænlegra fram-
hald en Jusupov i skák sinni við
Mikhailchisin á sovézka meistara-
mótinu 1981; 11. Bxe6 — fxe6, 12.
Db3 - Rge7, 13. h3 - De4, 14.
Dxe6 — h6! og staðan var mjög
tvísýn.
- De4,12. Bd3 — Dd5,13. Rg5!
stöðumynd I
Be7
Svartur hafði vart efni á því að
eyða leik í annað en að ljúka liðs-
skipan sinni, þó það verði að játast
að eftir 13. - 0-0-0 14. f4 hafi
hvítur afar fallega stöðu.
14. Be4 — Dd7, 15. Rxe6 — Dxe6,
16. Bxc6+ — bxc6
16. — Dxc6 mátti svara með 17.
Rf5.
17. Dxd4 - Hd8,18. Da4 - Bc5?
Eftir 18. - Bxh4, 19. Dxh4 -
Gary Kasparov
Re7 hefði svartur a.m.k. náð að
hróka og koma öllu liði sínu í
gagnið, hvað svo sem segja má um
stöðuna.
19. Dc2 — Hd5,20. b4! — Bd4
Nú eykur hvítur frumkvæði sitt
með hverjum leik. Eftir 20. —
Bxb4 21. Hbl og næst 22. a3 hefði
hann náð yfirráðum yfir mikil-
vægri hrókslínu.
21. Rf5! — Bxe5, 22. Hel — Kf8,
23. Bb2
Dxf5!?
Þegar allt er komið í kaldakol
ei oft gripið til slíkra allsherjar-
lausna. Með drottningarnar á
borðinu hefði einnig orðið brátt
um svart. T.d. 23. — Df6, 24. De4!
og vinnur.
24. Dxf5 — Bh2+, 25. Kxh2 — Hxf5,
26. Hadl — Hd5, 27. Hxd5 — cxd5,
28. Hcl! og svartur gafst upp.
Honum tókst að vísu að sleppa út
í endatafl með peði meira, en einn-
ig þar réð yfirburðaliðsskipan
hvíts úrslitum. Eftir 28. — Re7,
29. Hxc7 nær hvítur tveimur
samstæðum frípeðum á drottning-
arvæng.
Timman og Kasparov
tefla einvígi
Beztu skákmenn heims koma
ekki til með að sitja aðgerðalausir
Anatoli Karpov
næstu mánuðina, því þá munu fara
fram nokkur meiriháttar uppgjör
í einvígjum á milli þeirra. Þá kann
að ráðast hvaða nýir menn verða
leiðandi fram að næstu aldamót-
um.
Á sunnudaginn kemur, þ. 15.
desember, hefst í Hollandi æfinga-
einvígi þeirra Timmans og Gary
Kasparovs, nýbakaðs heimsmeist-
ara. Tefldar verða sex skákir og
vaV þetta einvígi ákveðið með löng-
um fyrirvara. Margir hafa undrazt
að Kasparov vilji tefla opinbert
einvígi svo stuttu eftir að hann
hreppti heimsmeistaratitilinn, því
það er úr háum söðli fyrir hann
að detta, en Timman hefur hins
vegar allt að vinna.
Hinn 10. janúar næstkomandi
hefst síðan fyrsta umferð áskor-
endaeinvígjanna, sem eru með út-
sláttarfyrirkomulagi. Aðeins fjór-
ir skákmenn tefla í einvígjunum
og er nú orðið ljóst að annars vegar
mætast Sovétmaðurinn Artur Ju-
supov og Hollendingurinn Jan
Timman og hins vegar Sovét-
mennirnir Andrei Sokolov og Rafa-
el Vaganjan. Bæði einvígin verða
tólf skákir og er gert ráð fyrir að
þeim ljúki eigi síðar en 3. febrúar.
Sigurvegararnir úr þessum ein-
vígjum tefla innbyrðis í vor og sá
sem þá verður eftir teflir við þann
sem tapar fyrirhuguðu heims-
meistaraeinvígi um áskorunar-
réttinn á þann sem þá verður
heimsmeistari. Nokkuð flókið,
enda reglurnar samdar af sjálfum
FIDE-forsetanum, Campomanes,
sem ýmist er uppnefndur „Karpov-
manes" eða „Campo-madness".
Þá erum við komin að stærsta
viðburðinum, það er nýtt heims-
meistaraeinvígi þeirra Gary Kasp-
arovs, heimsmeistara, og Anatoly
Karpovs, fyrrverandi heimsmeist-
ara, sem hefst um það bil þann
10. febrúar næstkomandi. Karpov
notfærði sér sem sé rétt sinn á
hefndareinvígi, þrátt fyrir viðvar-
anir lækna, sem töldu að of stutt
yrði um liðið frá síðasta einvígi
þeirra. Vafalaust verður barizt
upp á líf og dauða og Kasparov
kann að lenda á spjöldum skáksög-
unnar sem sá heimsmeistari sem
stytzt hefur borið titilinn, því hann
gæti tapað honum aftur í apríl.
Skýringin á þessum stutta fresti
á milli heimsmeistaraeinvígja er
sú að keppnin um áskorunarrétt-
inn næsta haust er að komast á
lokastig. Allt bendir því til þess
að þeir Karpov og Kasparov tefli
tvö einvígi um heimsmeistaratitil-
inn á næsta ári, og þykir þó mörg-
um nú þegar að nóg sé komið af
vopnaviðskiptum þeirra, a.m.k. í
bili.
Enn hefur ekkert verið ákveðið
um hvar þetta einvígi verði teflt,
en líklegt þykir að Lundúnaborg
muni gera Sovétmönnum freist-
andi tilboð í einvígið. Þetta myndi
þýða vænan gjaldeyrissjóð í
pyngju sovézka skáksambandsins,
en Rússarnir gætu þá ekki neitað
aðstoðarmönnum Kasparovs um
vegabréfsáritun til London, eins
og gerðist í haust, er Ungverjinn
Adorjan varð að sitja heima. Fróð-
legt verður að sjá hvort þeir meta
meira, peningana eða valdið.
SÚOAVÍK: Höfrungur 25,7 lestir
Bessi tv. 252,0 lestirí 3feröum Pilot 25,4 lestir
Sigrún tv. 10,0 lestir Pótur Þórarinss. 24,9 lestir
Valurtv. 10,0 lestir Dröfn 23,9 lestir
Jörundur Bjarnas. 22,7 lestir
Rœkjuaflinn í ménuðinum: Sæunn 21,2 lestir
BOLUNGARVÍK: Siggi 19,5 lestir
Hugrún 27,8 lestirí 5feröum Þorsteinn 18,6 lestir
Sólrún 27,0 lestir í 2 feröum ÍSAFJÖRÐUR:
ÍSAFJÓRDUR: Tjaldur 58,2 lestir
Hafþór 35,0 lestir Bára 56,7 lestir
Arnarnes 20,0 lestir Sigrún KE 52,1 lestir
Þrymur 10,0 lestir Ása 27,5 lestir
Skalfiskaflinn í minuðinum: HÓLMAVÍK:
BÍLDUDALUR: Marz 16,2 lestir
Elias 26,3 lestir Vonin 13,7 lestlr
Aflinn í hverri verstöö í október
Botnflska(1i: Rjekjuadi: Skel
1985 1984 1985 1984 1985
PatreksfjörÖur 407 lestir ( 587)
Tálknafjörður 259 lestir ( 210)
Bíldudalur 9 lestir ( 64) 208
Þingeyri 663 lestir ( 307)
Flateyri 429 lestir ( 437)
Suðureyri 121 lestir ( 229)
Bolungarvík 715 lestir ( 753) 55 lestir
ísafjörður 1.014 lestir ( 1.348) 65 lestir 212
Súðavik 324 lestir ( 0)
Hólmavík 3lestir ( 578) 6lestir (39) 30
Drangsnes 0 lestir ( 0) 47 lestir (20)
3.944 lestir (4.513) 173 lestir (59) 450
Janúar/sept. 59.585 lestir (58.635)
63.529 lestir (63.148)
Norðurlandaráð:
15 norrænir unglingar
í boðsferð til Lundar
FIMMTÁN unglingar frá íslandi,
Danmörku, Fsreyjum, Grænlandi,
Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og
Álandseyjum hittust í Lundi dagana
8. til 10. desember. Tilgangur fundar-
ins, sem Norðurlandaráð bauð til,
var að unglingarnir kynntust nor-
rsnu samstarfi og hverjir öðrum.
Einnig tóku þátt í fundinum fulltrúar
norrsnna sskulýðssamtaka og
skólafólk búsett í Lundi. Með fundi
unglinganna lauk kynningarherferð
Norðurlandaráðs á norrsnu sam-
starfi, sem staðið hefur í tvö ár.
í tengslum við kynningarher-
ferðina efndi Norðurlandaráð m.a
til ritgerðasamkeppni meðal ungs
fólks um norrænt samstarf. Þeim
unglingum, sem hlutskarpastir
voru i ritgerðarsamkeppninni, var
boðið til fundarins í Lundi. ís-
lensku unglingarnir, sem þangað
fóru, eru Valgerður María Gunn-
arsdóttir, nemandi í Menntaskóla
Akureyrar og Höskuldur Ari
Hauksson, nemandi í Menntaskól-
anum í Reykjavík, en ritgerðir
þeirra höfðu verið valdar úr þeim
ritgerðum, sem bárust frá íslandi,
til birtingar. Þau eru bæði 16 ára.
Ritgerðirnar fimmtán birtast í
fjórða hefti tímarits Norrænu fé-
laganna, „Vi i Norden", sem kemur
út i byrjun desember. íslensku
ritgerðirnar tvær birtast auk þess
í jólablaði Norræna félagsins,
„Norræn jól“.
^\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
FASTIFLESTUM
BOKA- GJAFA- OG
RITFANGAVERSLUNUM
LITBRA HF.
SIMAR 22930 - 22865
Nú í
DÝRTÍÐINNI
biöja allir um
ÓDÝRU
STJORNU
JÓLAKORTIN
Artemis
Skeifunni 9,S. 83330