Morgunblaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Arvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guómundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Agúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr.
eintakiö.
Orð eru dýr
Iþeim umræðum, sem nú eru
um fjárhagslega afkomu
ýmissa fyrirtækja, sannast hið
fornkveðna, að orð séu dýr. Á
viðkvæmum stundum skiptir
miklu, að þeir, sem kveða sér
hljóðs, vandi vel til orða sinna;
láti ekki annað frá sér fara, en
það sem er sannleikanum sam-
kvæmt og þeir geta staðið við. í
eftirminnilegri þingræðu, sem
Morgunblaðið birti í gær, segir
Albert Guðmundsson, iðnaðar-
ráðherra, meðal annars: „Það
hefur sín áhrif á alla að verða
fyrir þeim rógi og rógskrifum
sem ég hef orðið að þola undan-
farna daga. Og ég á engan þann
fjandmann, hvorki hér inni né
annars staðar í veröldinni sem ég
mundi óska þess að lenda i því
sama og ég er að fara í gegnum
nú. Það get ég sannarlega sagt
ykkur. Þetta er óskemmtilegt."
I Morgunblaðinu í gær eru
einnig birt viðbrögð forvigis-
manna nokkurra fyrirtækja, sem
Ólafur R. Grímsson sagði, að
væru í „biðsal dauðans" i þing-
ræðu á þriðjudaginn. Þeir eru
sammála um, að orð þessa vara-
þingmanns Alþýðubandalagsins
geti haft alvarlegar afleiðingar
fyrir traust og rekstur fyrirtækj-
anna. „Gera menn sér enga grein
fyrir þeim afleiðingum sem þetta
getur haft fyrir viðkomandi fyr-
irtæki?" spyr Þórður Ásgeirsson,
forstjóri OLÍS. Jóhann Berg-
þórsson, forstjóri Hagvirkis,
sagði hvimleitt að menn færu
með svona rugl á Alþingi, þegar
rekstur fyrirtækisins væri á við-
kvæmu stigi. Og Árni Þór Árna-
son, varaformaður Byggungs,
sagði að ummæli þingmannsins
væru níð og gætu eins og allt níð
eyðilagt töluvert fyrir fyrirtæk-
inu sem notið hefði trausts fyrir
að byggja ódýrt.
í ræðu Matthíasar Bjarnason-
ar, viðskiptaráðherra, á Alþingi
á þriðjudaginn kom fram, að
meðferð fréttastofu ríkissjón-
varpsins á Arnarflugi hefði skað-
að fyrirtækið mjög alvarlega.
Talaði ráðherrann um „frétta-
hasarstíl" sjónvarpsmanna í
þessu sambandi og „skipulagðan
rógburð í fjölmiðlum". í frásögn-
um fyrrum forsvarsmanna Haf-
skips hf. hefur komið fram, að
þeim hafi verið flestar leiðir
lokaðar, eftir að erfiðleikar fyrir-
tækisins urðu almennt fréttaefni.
Hér er vakin athygli á þessum
staðreyndum úr opinberum um-
ræðum undanfarna daga til að
minna á það eitt, hve mikils virði
er, hvort heldur rætt er um ein-
staklinga eða fyrirtæki þeirra,
að þess sé minnst, að ekki er síður
unnt að vega menn með orðum
en vopnum. Islendingum ætti að
vera það í blóð borið í gegnum
bókmenntaarfinn, að rógburður
getur leitt til voðaverka. „Mann-
orðsmorðingjar" var orð, sem
Albert Guðmundsson notaði í
ræðu sinni.
Um leið og þetta er sagt, ber
að minnast þess, að fyrirtæki
verða ekki gjaldþrota aðeins
vegna ills umtals. Fyrir nokkrum
árum stóð ólafur R. Grímsson
fyrir harðri pólitískri aðför að
Eimskipafélagi Islands hf. og
Flugeiðum hf. Þessi fyrirtæki
stóðu þann storm af sér, enda var
fjárhagsstaða þeirra á þann veg,
að þau þoldu hann. Hitt er vitað,
að vantrú lánardrottna, sem
vaknar vegna ills umtals, getur
riðið baggamuninn um það, hvort
veikbvggt fyrirtæki stenst áraun-
ina. Urslitum ræður, að rekstur
fyrirtækja byggist á skynsamleg-
um forsendum og honum sé hald-
ið í því horfi, að þau standi undir
þeim skuldbindingum, sem þau
hafa axlað. Pólitísk fyrirgreiðsla
getur ekki komið í stað heilbrigðs
rekstrar eða ákvarðana stjórn-
enda um að sníða sér stakk eftir
vexti.
Pólitísk upphlauþasaga undan-
farinna ára sýnir, að Olafur R.
Grímsson hefur oftar en einu
sinni gerst offari í málflutningi.
Honum er lagið að hefja pólitísk-
an slag en hann hefur litla hæfi-
leika til að halda þannig á mál-
um, að orð hans veki tiltrú og
traust, þegar bardaginn stendur
sem hæst. Þannig hefur verið
haldið á Hafskipsmálinu af hans
hálfu. Svo miklu pólitísku mold-
viðri hefur verið þyrlað upp, að
staðreyndir gleymast; menn eru
meira með hugann við persónu-
legar ávirðingar en efni málsins
sjálfs. Þetta er óheppilegt, svo
að ekki sé meira sagt. Mestu
skiptir auðvitað að tekin sé af-
staða til málavaxta og rætt um
það á efnislegum forsendum,
hvernig stjórnmálamenn geti
best brugðist við í málum eins
og þessum.
Til marks um það hvernig ólafi
R. Grímssyni hefur fatast í póli-
tisku tali um þetta mál, er, að
það liggur nú fyrir, að meðal
annars fyrir orð hans sjálfs tók
Albert Guðmundsson að sér for-
mennsku í bankaráði Útvegs-
bankans, samtímis því sem hann
var stjórnarformaður Hafskips.
Áhrif þess utan lands, að is-
lenskir stjórrimálamenn slái um
sig með ummælum um fyrirtæki
í „biðsal dauðans", vandræði Út-
vegsbankans og pólitíska spill-
ingu eru ómæld. Áhrifin skipta í
raun litlu fyrir þau fyrirtæki,
sem hætt eru starfsemi, en geta
ráðið örlögum þeirra, sem berjast
áfram. íslendingar eiga auðvelt
með að meta það, hvað orð stjórn-
málamanna eru dýr, eftir þvi
hverjir stjórnmálamennirnir eru.
Forstjóri Hagvirkis veltir því
meðal annars fyrir sér I gær,
hvort nokkur taki mark á Olafi
R. Grímssyni. Þessi orð eru i fullu
gildi innan lands en þau duga lítið
fyrir þá, sem aðeins lesa misjafn-
lega vönduð fréttaskeyti héðan í
erlendum blöðum.
Silfur hafsins tilbúiö til útflutnings
Um 46.000 lestir sfldar veiddar:
Útflutningsverðmæti
tæplega 1,3 milljarðar
— verð sfldarinnar upp úr sjó um 236 milljónir
VERÐMÆTI veiddrar sfldar á vertiðinni, sem nú er að ljúka, er um 236
milljónir króna miðað við verð Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Verð til skipta
er litlu hærra og mun hærra til útgerðar vegna greiðslna úr sjóðum sjávarút-
vegsins og kostnaðarhlutdeildar, sem fiskvinnslunni er gert að greiða. Áætl-
að útflutningsverðmæti er hinsvegar nálægt 1.270 milljónum króna, þar af
einn milljarður fyrir saltsfld.
Síldaraflinn nú er alls 45.848
lestir nettó og meðalverð á kíló er
5,15 krónur. Meðalverð á síld til
söltunar er 5,47 krónur, en 4,44 til
frystingar. Tveir bátar eru enn á
Eins og fram kom í frétt Morg-
unblaðsins sl. laugardag hefur TR
stöðvað greiðslur til hóps sérfræð-
inga, þar sem í ljós hefur komið
að laun þeirra fyrir sérfræðistörf
virðast óeðlilega há í samanburði
við laun sérfræðinga í öðrum
greinum. Þeir læknar sem í hlut
eiga eru sérfræðingar í háls-, nef-
og eyrnalækningum, svæfinga-
læknar, augnlæknar og nokkrir
húðsjúkdómalæknar. Viðkomandi
sérfræðingar munu hafa sent TR
reikninga fyrir yfir 200 þúsund
krónur á mánuði fyrir sérfræði-
störf 8Ín á stofu, sem eru fyrir
utan föst laun þeirra.
Að sögn Helga V. Jónssonar
hrl., formanns samninganefndar
TR, er með þessum aðgerðum alls
ekki verið að gefa í skyn að nokk-
urt misferli hafi átt sér stað: „Það
virðast vera einhverjir vankantar
á þeirri gjaldskrá sem gekk i gildi
í kjölfar samninga við lækna þann
1. júní sl., sem skapa þennan óeðli-
lega mun á launum sérfræðinga.
Þetta kom í ljós við skoðun á reikn-
ingum nú í haust og við höfum
verið að rannsaka þetta mál í
samvinnu við lækna undanfarnar
fimm vikur. Ástæðan til þess að
við sendum bréfin og stöðvuðum
greiðslurnar var sú ein að flýta
fyrir afgreiðslu málsins," sagði
Helgi. Hann sagði að óskað hefði
veiðum og eiga eftir um 540 lestir.
Mestu hefur verið landað í Grinda-
vík, tæpum 7.000 lestum og mest
hefur verið fryst í Vestmannaeyj-
um, tæplega 4.400 lestir. Hæst
verið eftir því að viðkomandi lækn-
ar svöruðu bréfunum fyrir miðja
þessa viku: „Ef í ljós kemur að
eðlileg skýring er á þessum reikn-
ingum, til dæmis aukin vinna, nær
málið ekki lengra. Ef hins vegar
finnast gallar á gjaldskránni í þá
veru að einstök læknisverk séu
ofmetin, þá verður það tekið fyrir
af samninganefnd," sagði Helgi.
Helgi sagði að gamla gjaldskrá-
in hefði verið orðin úrelt vegna
breyttrar tækni og því hefði verið
nauðsynlegt að gera nýja og skil-
greina einstök læknisverk og gjöld
fyrir þau. „Þessi verðlagning hefur
tekist vel í sumum tilfellum, en
verr í öðrum, eins og við var að
búast. Einstök læknisverk hafa að
öllum likindum verið ofmetin í
sumum tilfellum," sagði Helgi.
Han nefndi sem dæmi smásjár-
skoðanir háls-, nef- og eyrna-
lækna. „Það var ekki reiknað með
sérstakri greiðslu fyrir smásjár-
skoðanir í gömlu gjaldskránni, en
nú er greitt fyrir þær sérstaklega.
Það kemur svo í ljós að mjög stór
hluti sjúklinga fær þessa skoðun,
sem þátt í almennri rannsókn. Það
var aldrei ætlunin með nýju gjald-
skránni að greiða sérstaklega fyrir
„rútínurannsóknir", svo þetta
verður vafalaust eitt af þvi sem
verður endurskoðað," sagði Helgi.
heildarverð í einstökum höfnum
er í Keflavík, 6,25 krónur á hvert
kíló, en þar er um að ræða mjög
stóra síld, sem veiddist um tíma í
ísafjarðardjúpi, en i Keflavik var
aðeins landað 805 lestum. Meðal-
verð í Grindavík er 5,02 krónur og
í Vestmannaeyjum 4,68.
Hæst meðalverð á kíló fengu
eftirtaldir bátar: Þuriður Hall-
dórsdóttir 5,89, Arney 5,83, Boði
5,83, Skírnir 5,82, Stafnes 5,78,
Guðmundur Kristinn 5,74, Axel
Eyjólfsson 5,69 og Geiri Péturs
5,67 krónur. Heildarafli og heildar-
verðmæti miðast fyrst og fremst
við það hvort skipin hafa veitt einn
eða tvo aflaskammta og því varla
samanburðarhæft.
Stefán Svavarsson, formaður ársskýrsl
hendir Þórði Ásgeirssyni, forstjóri OLÍ
fyrir árið 1984.
Olís m«
skýrslu
Rafmagnsveita Reykjavík
kenningu fyrir greinargóð
OLÍUVERZLUN íslands hf. var í gær
veitt verðlaun Stjórnunarfélags Íslands
fyrir bestu ársskýrslu ársins 1984.
Rafmagnsveitur Reykjavikur fengu
auk þess verðlaun fyrir vandaða og
góða skýrslu. Þetta er í fimmta sinn
sem þessi verðlaun eru veitt, en 16
fyrirtæki sendu inn skýrslur til dóms.
í umsögn árskýrslunefndar Stjórn-
unarfélagsins um ársskýrslu OLÍS
segir: „Eins og á síðasta ári þykir
ársskýrslan 1 heild vera einstaklega
vel gerð. Frásögn af starfsemi fyrir-
tækisins er mjög góð og myndræn
yfirlit eru til fyrirmyndar."
Tryggmgastofnunin og
sérfræðingar f læknastétt:
Óskað skýringa
á reikningum um
30 sérfræðinga
TRYGGINGASTOFNUN ríkisins hefur sent um 30 sérfræðingum í lækna-
stétt bréf þar sem óskað er upplýsinga um það hvernig þeir verðleggi þjón-
ustu sína samkvæmt gjaldskrá frá 1. júní sl. Voru þeir beðnir að skila
viðkomandi upplýsingum fyrir miðja þessa viku og hefur hluti þeirra orðið
við þeirri ósk.