Morgunblaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
39
Frank Sinatra og Barbara kona hans. Myndin var tekin í fyrra. Sinatra
varð sjötugur í gær.
Sænska stjórnin í klípu
vegna ungra flóttamanna
Sinatra sjötugur
Los Angeles, 12. desember. AP.
FRANK Sinatra er sjötugur í dag og hyggst hann ekki gera sér daga-
mun á þessum tímamótum. Sinatra er vió góóa heilsu og heldur sér við
með íþróttaiðkan.
Sinatra hlaut frægð upp úr
1940 og hefur gefið út tugi hljóm-
platna og leikið í fjölda kvik-
mynda. Um langan aldur var
vindlingur í munnviki eins konar
vörumerki Sinatra, en svo er ekki
lengur, því hann er löngu hættur
að reykja. „Það er heimska að
reykja og hættulegt. Ég reykti í
40 ár en hætti svo einn góðan
veðurdag og það var ekkert
vandamál," sagði hann nýlega.
Frank Sinatra var á sínum
tíma orðaður við mafíuna, en
hann vísar öllu tali þar að lútandi
á bugog segir bandarísku alríkis-
lögregluna, FBI, hafa hreinsað
sig af þeim grun.
Sinatra gekk fjórum sinnum í
hjónaband. Kona hans er Bar-
bara Marx, en fyrri konur eru
Nancy Barbato, Ava Gardner og
Mia Farrow. Sinatra dró sig
formlega í hlé sem skemmti-
kraftur fyrir 15 árum, á 55 ára
afmælinu, en hann er samt ekki
af baki dottinn og heldur tón-
leika í Oklahoma-borg og New
Orleans í janúar, Las Vegas í
febrúar og Atlantic-borg í marz.
Lífslíkur barna í
þróunarlöndum
aukast stórlega
— með tilkomu nýrrar efnablöndu
Washington, 11. desember. AP.
MEÐ ÞVÍ að blanda saman ögn af
salti, sykurlúku og u.þ.b. lítra af
vatni er unnt að bjarga milljónum
barna í þróunarlöndunum. I gær
fögnuðu heilbrigðissérfræðingar til-
komu þessarar blöndu og kváðu
hana marka söguleg tímamót innan
læknisfræðinnar.
Blandan, sem kölluð er „ORS“
(Oral Rehydration Salts), fékk
bestu meðmæli forystumanna
WHO, Barnahjálparsjóðs Samein-
uðu þjóðanna (UNICEF), Banda-
rísku þróunarstofnunarinnar og
fleiri aðila á alþjóðlegri ráðstefnu,
sem haldin var í New York og fjall-
General
Electric
kaupir RCA
New York, 12. desember. AP.
GENERAL Electric-samsteypan
keypti í dag RCA-samsteypuna fyrir
6,28 milljarða dollara og er um að
ræða stærsta kaupsamning sem um
getur ef olíuiðnaðurinn er undan-
skilinn.
General Electric innti greiðsl-
una af hendi í beinhörðum pening-
um. Stjórnir beggja fyrirtækja
gengu frá kaupunum í bróðerni og
skýrðu frá þeim sameiginlega á
blaðamannafundi í New York. Við
það tækifæri sögðu þeir að eftir
sameininguna væri samkeppnisað-
staða fyrirtækjanna sterkari.
Þegar orðrómur um kaupin
komst á kreik snarhækkuðu hluta-
bréf í RCA. Yfirvöld eiga eftir að
samþykkja kaupin, en þau þurfa
að leggja blessun sína yfir kaupin
þar sem RCA rekur fimm sjón-
varpsstöðvar og General Electric
eina.
aði eingöngu um þetta efni. Var
blandan talin bæði sérlega ódýr og
árangursrík til nota gegn niður-
gangi, sem embættismenn sögðu, að
yrði 4—5 milljónum barna að ald-
urtila á ári hverju.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
sagði í órðsendingu til ráðstefnunn-
ar, að blandan markaði „eitt mesta
framfaraspor, sem stigið hefur verið
innan læknisfræðinnar á þessari
öld“ og „getur skilið á milli lffs og
dauða".
„Aldrei fyrr hefur það gerst í
sögu læknisfræðinnar, að svo mikið
hafi verið gert fyrir svo marga á
jafn-einfaldan og ódýran hátt,“
sagði yfirlæknir barnadeildar há-
skólasjúkrahússins í Kairó í Egypta-
landi, dr. Mamdough Garbr.
„Eg hef aidrei orðið vitni að meiri
framförum innan læknisfræðinnar á
35 ára ferli mínum sem barnalækn-
ir í þróunarlandi," sagði Garbr á
ráðstefnunni í New York.
Garbr áætlaði, að á tveimur og
hálfu ári hefði blandan bjargað
a.m.k. 600.000 börnum í þróunar-
löndunum, þar af 200.000 í Egypta-
landi.
Danski læknirinn Halfden Mahl-
er, aðalframkvæmdastjóri WHO,
sagði, að niðurgangseinkennin hyrfu
á örfáum klukkustundum eftir inn-
töku blöndunnar.
Það eru bandarískir sérfræðingar
í þróunarhjálp, ásamt rannsókna-
mönnum í Bangladesh, sem heiður-
inn eiga af ORS-blöndunni.
Niðurganginum, sem ORS verkar
á, valda bakteríur, veirur eða sníkl-
ar, sem koma af stað hraðfara og
lífshættulegu vökva- og þungatapi.
Það var UNICEF sem ráöstefn-
una hélt og sóttu hana um 1000
manns frá 90 löndum. Var mark-
miðið með ráðstefnuhaldinu að örva
notkun ORS-blöndunnar og yfir-
vinna andstöðu lækna og lyfjafræð-
inga við hana.
Stokkholmi. 12. desember. Frá Erík Linden,
fréttaritara Morxunbladsins.
Sænska stjórnin og innflytjenda-
eftirlitið hafa fengið erfiða þraut að
glíma við. Er hún um það hvað gera
skuli við tvo pólska drengi, sem flýðu
fyrir skömmu til Svíþjóðar og hafa
beðið um pólitískt hæli þar.
Drengirnir, sem eru bræður,
Adam, 16 ára, og Krzystow Ziel-
inski, 13 ára, báru sig þannig að
við flóttann, að þeir földu sig í
stórri flutningabifreið og komust
með henni til Svíþjóðar. Hefðu
þeir strax verið sendir til baka
með ferjunni, væri málið nú úr
sögunni, en á máli þeirra var tekið
sem annarra flóttamanna og þeim
leyft að dveljast í Svíþjóð fyrst um
sinn.
Pólsk stjórnvöld brugðust
ókvæða við þegar uppvíst varð um
flóttann. Sökuðu þau Svía um sví-
virðilega framkomu við drengina
og kröfðust þess, að þeim yrði
skilað á stundinni. Sænska inn-
flytjendaeftirlitið var í klípu.
Aldrei fyrr höfðu jafn ungir flótta-
menn komið einir síns liðs til
Svíþjóðar og menn voru ekki á eitt
sáttir um, að þeir gætu aldursins
vegna beðið um pólitískt hæli.
Mörgum þótti heldur ekki rétt að
taka drengina frá foreldrum
þeirra og systkinum. Niðurstaðan
var sú, að innflytjendaeftirlitið
vísaði málinu til ríkisstjórnarinn-
ar en lagði þó til, að drengirnir
yrðu sendir til baka.
Nú síðustu dagana hefur ýmis-
legt gerst í þessu máli, sem gerir
það enn erfiðara viðfangs. Sænska
útvarpið og dagblaðið „Expres"
sendu sína eigin menn til Póllands
og þar ræddu þeir við foreldrana,
sem hvöttu syni sína til að vera
um kyrrt í Svíþjóð.
Það hefur einnig komið fram,
að pólskur dómstóll hefur svipt
foreldrana umráðarétti yfir
drengjunum og ef þeir snúa heim
aftur verða þeir settir á uppeldis-
stofnun og e.t.v. síðar í fangelsi. f
skólanum, sem drengirnir sóttu,
hefur verið hafin mikil áróðurs-
herferð gegn þeim og yfirvöldin
hafa reynt að fá foreldrana til að
skrifa undir skjal þar sem þess er
krafist, að Svíar skili drengjunum.
Því neita foreldrarnir staðfast-
lega.
Sænsku stjórninni eru ekki
margir vegir færir úr þessu enda
er nú skorað á hana í blöðum um
alla Svíþjóð að leyfa drengjunum
að setjast að í landinu.
Yfírmaður FBI:
Sendimenn kommún-
istaríkja of margir
Wa.shington, 12. desember. AP.
YFIRMAÐUR bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sagði í gær, að í Banda-
ríkjunum væru nú meira en 4.000 sendimenn og verslunarfulltrúar frá
kommúnistaríkjunum og að „þriðjungur þeirra stundaði njósnir.**
William Webster, yfirmaður
FBI, sagði, að kalla mætti þetta ár
„njósnaárið" og kæmi tvennt til,
annars vegar óvenjulega mörg
njósnamál og hins vegar frábær
frammistaða stofnunarinnar við
að fletta ofan af njósnurum. Þakk-
aði hann það meiri mannafla og
betri tækjabúnaði.
Webster sagði, að þrátt fyrir
allt væri útilokað að fylgjast með
öllum sendimönnum kommúnista-
ríkjanna í Bandaríkjunum og því
væri ekki nema eitt til ráða, að
fækka þeim verulega. Webster
leggur einnig til, að þeim Banda-
ríkjamönnum, sem aðgang hafa
að leyniskjölum, verði fækkað
mjög en hann telur, að þeir séu
nú um tvær milljónir talsins.
Bandaríska alríkislögreglan
ræður nú yfir mjög fullkomnum
rafeindabúnaði, sem notaður er til
eftirlits- og njósnastarfa, en
Webster vildi að sjálfsögðu ekki
segja frá honum að öðru leyti,
sagði, að hann væri leyndarmál.
*ki <
NYRTWORUR
í HAGKAUP
Nu þarftu ekki aö leita lanqt eftir
vönduðum snyrtivörum á góðu verði
í nýrri snyrtivörubúð í Hagkaup
færðu góðar iólagjafir.
U-SNC
AGKAUP
SKEIFUNNl 15
1
STENDHAL ■ SOTHYS NO 7 BOURJOIS • REVLON • PIERRE CARDIN • VIDAL SASSOON
V