Morgunblaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
í tilefni af bók um
mikinn mannvin
eftir Pétur
Sigurgeirsson
Það var hásumarsdagur við
Solferinó á Norður-Ítalíu árið
1859. Skaparinn hellti sólargeisl-
am sínum yfir lög og láð til þess
að gefa heiminum líf að morgni
þessa Jónsmessudags. En þarna
rauf morgunkyrrðina nístandi lúð-
urhljómur dauðans. Að kvöldi
dagsins lágu yfir 40 þúsund her-
menn fallnir í valinn auk hinna
særðu og deyjandi. Þetta gerðist
nánast í einu hendingskasti og var
þó eitt aegilegasta blóðbað 19.
aldar í styrjöldinni milli Frakka
og Austurríkismanna.
Fremur smávaxinn maður í
hvítum léreftsfötum með einskon-
ar hitabeltishjálm á höfði er á
kreiki á miðjum orustuvellinum.
Þetta er svissneskur bankamaður
fijá Genf. Hann horfir á hinar ólýs-
ahlegu skelfingar orustuvallarins.
Hann brýtur ekki heilann um
vonleysið og dauðann, sem við
honum blasir, en hlýðir hljóðri
rödd hjarta síns og hefst handa
við að bjarga hinum deyjandi og
lina þjáningar hinna særðu. í lok
fyrsta dags eftir þennan ægilega
hildarleik eru komnir yfir 300
sjálfboðaliðar til að vitja hinna
særðu undir forustu þessa manns.
Maðurinn er einn af velgjörðar-
mönnum mannkynsins, stofnandi
Rauða krossins, Henri Dunant.
Þannig er þetta í stuttu máli
lýsing á aðdraganda að stofnun
þessara alþjóðasamtaka til líknar
og hjálpar á vígvöllum og hvar í
heimi sem vera skal, eins og lesa
má í nýútkominni ævisögu um
Dunant eftir séra Árelíus Níels-
son.
I formála bókarinnar segir for-
maður Reykjavíkurdeildar Rauða
kross íslands, Arinbjörn Kolbeins-
son yfirlæknir: „Efni bókarinnar
er fjölþætt. Þar er lýst mörgum
hörmungum og erfiðleikum, en
meginþráðurinn er mannúð, friður
og sigur hins góða, en slíkt efni
tengist boðskap allra jóla.“
Það eru orð að sönnu. Þegar við
skyggnumst betur inn í líf og störf
Dunants komumst við að raun um
að frumkvæði líknar- og friðar-
starfsins er að finna í fagnaðar-
boðskap Jesú. Við kynnumst þessu
J. Henri Dunant
„Ekki hefur Skaparinn
hætt að gefa jörð sinni
líf en hann hefur lagt
það í hendur mannsins,
hvort hann vill þetta líf
eða ekki.“
í ævisögunni, þar sem leitast er
við „að kynna þennan gáfaða,
glæsilega og ógleymanlega píla-
grím á vegum kærleikans, sem
gekk líkt og leiddur af ósýnilegum
krafti í fótspor Meistarans mikla
fráNasaret."
Á æviferli sínum gekk Dunant
í gegnum margar þrengingar og
það minnir mig á ljóðlínuna í
kvæði Davíðs frá Fagraskógi: „Fá-
ir njóta eldanna, sem fyrstir
kveikja þá.“ Segja má þó að Dun-
ant reyndi hvort tveggja lof og
last, eins og stundum vill verða er
menn ganga fram fyrir skjöldu líkt
og hann. En í gegnum þrautir og
baráttu sína gegn vitfirringu
styrjalda reyndist Dunant trúr
lærisveinn Meistara síns. Hann fór
ekki dult með vilja sinn til þess
að lifa kærleika Krists. Svana-
söngur Dunants voru þessi orð:
„Eg er lærisveinn Jesú og ekkert
annað.“
Heimurinn virðist hafa lítið lært
af blóðugum ferli sínum síðan við
Solferinó. Eftir tvær grimmileg-
ustu heimsstyrjaldir á þessari öld
búast heimsdrottnar þessa myrk-
urs til enn ægilegri styrjaldar-
átaka en nokkru sinni fyrr. Ekki
hefur Skaparinn hætt að gefa jörð
sinni líf, en hann hefur lagt það í
hendur mannsins, hvort hann vill
þetta líf eða ekki.
Innbyrðis togstreita um auð og
völd eru enn að brytja niður fólkið.
Þar eru hjáguðir, sem heimurinn
kýs sér að tigna og tilbiðja. En það
eru harðir húsbændur sem þyrma
engu. Hvað er til ráða? Leiðin
hefur ætíð verið hin sama en henni
hefur verið hafnað: „Takið illsku-
breytni yðar í burtu frá augum
mínurn," segir Drottinn. „Látið af
að gjöra illa, lærið gott að gjöra.
Leitið þess sem rétt er. Hjálpið
þeim sem fyrir ofríki verða."
(Jesaja 1.17).
Nú er því svo farið, að heimurinn
er kominn út á ystu nöf þess að
hafa möguleika til þess að velja
milli lífs og dauða. Og þó getum
við hér uppi á Islandi verið að
bítast á um það, hvort við eigum
að biðja um stöðvun á undirbún-
ingi sameiginlegrar tortímingar
eða ekki. Sérhver sáttasemjari
hlýtur að óska eftir stöðvun að-
gerða hinna stríðandi aðila sem
fyrsta spor í átt til samkomulags,
hvort sem um einstaklinga eða
þjóðir er að ræða. Stöðvun víg-
búnaðarkapphlaupsins er fyrsta
sporið í áttina til friðar, því að þá
fyrst geta menn farið að ræðast
við.
Eitt hefur betur gerst við Solfer-
ino, er menn biðu gráir fyrir járn-
um eftir lúðurhljómnum með
morgunsólinni: Að hlustað hefði
verið eftir hinni hljóðu rödd hjart-
ans: Standið kyrrir, skjótið ekki!
Við skulum senda menn fram til
þess að ræða saman og leysa mál
okkar án blóðsúthellinga. Þetta
gerðu hinar stríðandi fylkingar
Jónsmessudaginn eftirminnilega á
Þingvöllum árið 1000 þegar
kristnitakan fór fram. Megi fsland
áfram leggja þannig lóð sitt á
vogarskálina innan lands sem
utan. „Helst mun það blessun
valda meðan þin (þ.e. Jesú) náð
lætur vort láð, lýði og byggðum
halda.“
Höfundur er biskup íslands.
Hvíslað úr
barka óarga-
dýrsins
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Diana Ross
Eaten Alive
Capitol/Fálkinn
Etin lifandi er grimmur titill,
allt að því kaldhæðnislegur, á
plotu sem er með eindæmum róleg
út í gegn með einni undantekningu
þó. Yfirbragðið er svo afslappað
að það þurfti ekki nema 3 lög til
þess að svæfa undirritaðan.
Það er strax í lok fyrsta lagsins,
sjálfs titillagsins, sem reyndar
lumar á „Thriller“-áhrifum Jack-
sons, að heyra má skolta óargadýrs
smella saman utan um bráð sína.
Engu líkara er en Diana Ross sé
sjálf bráðin því svo lítið tekur
maður eftir henni það sem eftir
er plötunnar. Það er aðeins í laginu
Crime of Passion að hið slétta
yfirborð plötunnar er eilítið gárað.
Hvað það er svo sem rekur jafn
ágæta söngkonu og Diönu Ross í
smiðju þeirra Gibb-bræðra er mér
gfrsamlega fyrirmunað að skilja.
Oll lög plötunnar eru samin af
þeim, nokkur reyndar í félaga við
einhverja utan fjölskyldunnar,
m.a. Michael Jackson í einu tilviki
en öll sverja þau sig í ætt við rólegu
Bee Gees-lögin hér á árum áður.
Þar sem breytt er út af venjunni
í lagasmíðum koma falsettu-bak-
raddir upp um Gibb-eðlið. Lögin á
Eaten Alive eru óskaplega átaka-
lítil og ég undrast hvers vegna
Ross leitaði ekki til annarra, í það
minnsta fleiri lagasmiða.
Eflaust spilar það inn í tak-
nlarkaða ánægju mína með þessa
plötu að Gibb-gengið fékk hárin á
mér aldrei til að þess að rísa, nema
ef vera skyldi af óhug einum.
Diana Ross er aftur á móti söng-
kona í fyrsta gæðaflokki þótt ekki
reyni tiltakanlega á hæfileika
hennar hér. Fyrir þá sem vilja
afar afslappaða en um leið lit-
þrigðasnauða plötu er Eaten Alive
fín, annarsekki.
+ <6lflrto
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra
flutti ræðu kvöldsins.
Frá helgileik barnanna.
Vel sótt aðventusamkoma á Selfossi
Selfoasi, 9. desember.
Þorsteinn Pálsson fjármála-
ráðherra flutti ræðu kvöldsins
og nokkur börn sýndu helgileik,
og samkomugestir tóku þátt í
honum með söng. Undir lok
samkomunnar flutti sr. Sigurður
Sigurðarson bæn og samkomu-
gestir sungu Heims um ból.
Að lokinni samkomunni í
kirkjunni var gestum boðið til
kaffidrykkju í safnaðarheimili
kirkjunnar og önnuðust konur úr
kvenfélagi kirkjunnar þann þátt.
Þær buðu einnig upp á ýmsa
forvitnilega og skrautlega basar-
muni.
Samkoman var látlaus og í alla
staði vel heppnuð.
Sig. Jóns.
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands söng undir stjórn Jóns Inga Sigurmundssonar.
í GÆR, sunnudaginn 8. des-
ember, var haldin aðventusam-
koma í Seifosskirkju. Samkom-
an var vel sótt að vanda enda
orðin fastur liður í jólaundir-
búningi margra bæjarbúa.
Samkoman hófst með því að
sr. Sigurður Sigurðarson bauð
gesti velkomna og sérstaklega
Þorstein Pálsson, fjármálaráð-
herra og konu hans, Ingibjörgu
Rafnar.
Kór Fjölbrautaskóla Suður-
lands söng nokkur hátíðalög
undir stjórn Jóns Inga Sigur-
mundssonar. Glúmur Gylfason
lék á orgel kirkjunnar við upphaf
og lok samkomunnar og leyfði
auk þess kirkjugestum að heyra
hljóminn í nýjum konsertflygli
kirkjunnar.