Morgunblaðið - 13.12.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
43
Hið íslenzka bókmenntafélag:
Saga íslands á
síðmiðöldum
Á AÐALFUNDI Hins íslenzka bókmenntafélags sem haldinn verður á
morgun, laugardaginn 14. desember kl. 14 í Lögbergi, húsi lagadeildar
Háskólans, verður auk venjulegra að:
þættir úr Sögu íslands á síðmiðöldum.
Nú um alllangt skeið hefur verið
unnið að ritun Sögu íslands á
vegum félagsins. Fjórða bindi rits-
ins sem nær yfir tímabilið um
1320—1520 er nú mjög vel á veg
komið.
Þetta bindi hefst á yfirliti yfir
sögu Evrópu á síðmiðöldum, en
síðan tekur við þáttur sem nefnist
Norska öldin. Hann hefst á at-
vinnusögu, síðan tekur við frásögn
af daglegu lífi manns á þessum
tíma. Þá er vikið að stjórnmálasög-
unni. Á 14. öld voru miklir um-
brotatímar á Norðurlöndum og
háðu Norðurlandaþjóðir innbyrðis
fleiri styrjaldir en þær hafa gert
fyrr og síðar. Hafði þetta gagnger
áhrif á sögu Islendinga og alla
stjórnarhætti hér á landi.
Píanótónleik-
ar í Aratungu
LAUGARDAGINN 14. desember.
nk. mun Halldór Haraldsson,
píanóleikari, halda tónleika í Ara-
tungu, Biskupstungum, og hefjast
þeir kl. 14.00. Á efnisskránni er
Appassionata eftir Beethoven, 2
Scherzo eftir Chopin, 4 píanóverk
eftir Liszt og Sónata eftir Béla
Bartok.
teknir til umræðu ymsir
Þessu næst tekur við þáttur sem
nefnist Enska öldin. Plágan mikla
1402—’04 raskaði gífurlega hag
landsmanna, mjög tekur þó að
slakna á tengslum íslendinga við
Norðurlönd, Englendingar taka að
seilast hér til áhrifa í verzlun og
stjórnmálum og fsland dregst inní
átök Evrópuþjóða. Eftir miðja 15.
öld vex konungsvaldinu fiskur um
hrygg og Danmörk verður forystu-
ríki á Norðurlöndum. Seint á 15.
öld taka Þjóðverjar að auka umsvif
sín í verzlun og hörð samkeppni
og átök verða milli Englendinga
og Þjóðverja, unz hinu dansk-
norska konungsvaldi tekst að bola
þeim burt og ná nánast einokun á
verzlun um miðja 16. öld.
Loks er svo rakin saga kirkjunn-
ar, bæði stjórnmála- og menning-
arsaga, ennfremur er greint frá
trúarlífi þjóðarinnar.
Síðan fylgja sérstakir þættir um
bókmenntir, húsagerð og myndlist
auk þess sem þess verður freistað
að gera stuttlega grein fyrir ætt-
um miðalda.
Eins og iðulega hefur verið bent
á fer áhugi manna á miðöldum
vaxandi. Eitt og annað sem fram
kemur á þessum fundi ætti að geta
vakið forvitni.
(Fréttatilkynning frá Hinu íslenzka bók-
menntafélagi.)
Verslunin A5, Laugavegi 33b.
Ný sérverslun með gjafavörur
A5 nefnist ný sérverslun með rit- Allar vörur í versluninni eru
föng, gjafavörur og gjafapakkning- fluttar inn sérstaklega fyrir
ar sem opnuð hefur verið á Lauga- verslunina frá Frakklandi,
vegi 33b við Vatnsstíg. Eigandi er Þýskalandi, Spáni og Ítalíu.
Erla S. Óskarsdóttir. (Frétutilkynning)
Jólakaffi Hringsins byrj-
aði í Sjálfstæðishúsinu
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Sigríði G. Johnson,
formanni Hringsins:
„Laugardaginn 30. nóvember. sl.
birtist í Morgunblaðinu viðtal um
Barnaspítala Hringsins og fjáröfl-
un Kvenfélags Hringsins fyrr og
nú. Þá urðu mér á leiðinleg mistök
í hita og þunga augnabliksins.
Jólakaffi Hringsins byrjaði í
Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll
og var þar í nokkur ár áður en við
fluttum yfir á Hótel Borg. Mér
þykir miður að þessar eftirminni-
legu stundir, sem ég fékk tækifæri
að taka þátt í, skyldu gleymast í
áðurnefndu viðtali. Það var margt
gott og velviljað fólk sem hjálpaði
til að jólakaffi Hringsins í Sjálf-
stæðishúsinu setti svip sinn á
bæinn. Það var og er enn stór liður
í fjáröflun félagsins.
Á fyrsta sunnudag í aðventu, þá
er sjálfsagt að fara á Hringkaffið
þó að við höfum flust á milli
staða."
-------7-----
VOLKSWAGEN
GOLF
ÁRGERÐ 1986
PÝskur kostagrip>ur,
sem hceíir öllum
MED NÝRRI
OG KRAFTMEIRI VÉL
GOLFINN
ei íœr í ílestan sjó
# Kjörínn fjölskyldubíll
# Duglegui atvinnubíll
# Vinsœll bílaleigubíll
# Skemmtilegui sporíbíll
Verð frá kr. 472.000,