Morgunblaðið - 13.12.1985, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
49
Söngur Ólafs á Mos-
felli með æskublæ
„Þess á eftir aö verða getið í
annálum að maður á þessum
aldri skuli syngja inn á hljóm-
plötu. Það á eftir að verða sífellt
undrunarefni að rödd hans skuli
hljóma með allt að því æskublae.
Maður hlustar og dettur ekki
aldur í hug,“ segir Þorsteinn
Hannesson söngvari í kynningu
á plötuumslagi sem ber heitið Eg
lít í anda liðna tíð, en á plötunni
syngur Ólafur Magnússon frá
Mosfelli tuttugu og þrjú sönglög
alkunn fyrir fegurð og sígildan
tón. Ólafur er 75 ára gamall og
hann söng öll lögin við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar í sept-
ember síðastliðinn og átti upp-
takan sér stað í Hlégarði í Mos-
fellssveit.
Þessi plata er stórskemmtilegt
innlegg í þann sjóð íslenskrar
tónmenningar sem á eftir að
geymast til framtíðarinnar og
það er hreint út sagt ótrúlegt
hvað Ólafur syngur ýmsar söng-
perlur eins og að drekka vatn,
með styrk, öryggi, skýrleika og
gullfallegri rödd. Má til dæmis
nefna Kom ég upp í Kvíslarskarð,
Vorvindar, Asareiðin og Berg-
ljót, en þarna tekur hann fyrir
að auki lögin Suðurnesjamenn,
Horfinn dag, Nótt í dalnum, Þei
þei og ró ró, Ég lít í anda liðna
tíð, Pláguna, Nirfilinn, Fyrir átta
árum, Vor, Til Unu, Góða veislu
gjöra skal, Helgum frá döggvum
himnabruggs í afburða þýðingu
Halldórs Laxness, Kveðju,
Sunnudag selstúlkunnar, Litla
skáld, Aleinn reika, Rauða safír-
inn og Vögguljóð úr Mosfellsdag.
í liðlega hálfa öld hefur Ólafur
frá Mosfelli sungið gömlu góðu
lögin og hrifið þúsundir lands-
manna. Hann hefur aldrei farið
um með blikkandi sviðsljósum,
en þess í stað hefur stafað frá
söng hans og framkomu þeim
mun meir af mannlegri hlýju.
Með söng sínum á þessari plötu
staðfestir Ólafur frá Mosfeili að
sönggyðjan á sér engin landa-
mæri, því söngurinn er sameign
jarðarbúa, en hitt er sérstæðara
að maður sem er þó orðinn sjötíu
og fimm ára gamall skuli syngja
svo tært sem lindin rennur af
fjalli. Það verður skemmtilegt
að heyra plötuna sem ólafur
kemur með á 100 ára afmælinu
úr því að hann er rétt farinn að
volgna nú.
Skrímsli í Skonrokki
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Regboginn: Óvætturinn — Razor-
back ★★
Áströlsk. Árgerð 1983. Handrit:
Everett DeRoche. Leikstjóri: Russ-
ell Mulcahy. Aðalhlutverk: Gregory
Harrison, Arkie Whiteley, Bill
Kerr, Chris Haywood, David
Argue.
Styrkur þessa ástralska hryll-
ingsþrillers felst umfram allt í
útlitshönnun hans og súrrealísku
myndauga leikstjórans Russels
Mulcahy. Þetta nýtist þó ekki
nema í einstökum sprettum
myndarinnar. Mulcahy þessi
þykir framarlega í hópi þeirra
kvikmyndagerðarmanna sem
gera svokölluð popp-vídeó og hér-
lendis eru sýnd í þættinum Skon-
rokk. Eins og allir vita sem horfa
á þennan þátt eru þetta mynd-
gervingar popplaga í auglýsinga-
skyni sem hin síðari ár hafa orðið
æ tilgerðarlegri f viðleitni sinni
til að vera bæði öðruvísi og
smart. Leikstjórnarhandbragð
Mulcahy bera þessum bakgrunni
hans skýrt vitni; Razorback er
eiginlega röð af popp-vídeóum
þar sem poppinu er sleppt og
gamaldags skrímslahrollvekja er
spiluð í staðinn.
Þetta er sumsé styrkur mynd-
arinnar, en líka veikleiki. Hún
hefur enga heillega hugsun, per-
sónusköpun eða byggingu.
Skrímslið er risavaxinn villigölt-
ur sem herjar á strjálbýlt byggð-
arlag í Ástralíu. Þetta skrímsli
er eiginlega hálfneyðarlegt og af
því stendur of lítil ógn til að
halda uppi verulegri, samfelldri
spennu. Og þegar amerískur eig-
inmaður sjónvarpskonu einnar
sem hverfur á þessum slóðum við
rannsókn á meintri útrýmingu
kengúrunnar kemur á staðinn til
að leita hennar er meira gaman
af viðskiptum hans við tvo bræð-
ur sem búa í auðninni, einhverja
ógeðslegustu villimenn sem
maður hefur komist í kast við í
kvikmynd. En sagan og handritið
eru veikburða með ástæðulaus-
um skyndisjokkum og vanhugs-
uðum útúrdúrum.
Mulcahy leikstjóri hefur á
hinn bóginn með aðstoð töku-
manns og leikmyndargerðar-
manns skapað býsna óhugnan-
legt sögusvið, eins konar mar-
traðarland, sem sumpart minnir
á Mad Max, með miklum þokum
og dauðatáknum, gjarnan bak-
lýstu af tungli eða kastljósi.
Klippingar eru snöggar og tónlist
dulúðug og ofnotuð, en í þessu
samspili skapast snarplegar at-
rennur að spennu sem líða hjá.
Það er mikill hraði í myndinni
en á hinn bóginn lítið hraðaskyn.
Einstök atriði eins og til dæmis
hápunkturinn i lokin gerist í eins
konar kengúrusláturhúsi fyrr-
nefndra bræðra, eru þó nógu
nýstárlega formuð til að vekja
forvitni um áframhald á ferli
Russells Mulcahy. Þeirri forvitni
verður svalað þegar næsta mynd
hans, Highlander, stórmynd gerð
í Bretlandi, verður frumsýnd.
JOLATILBOÐ HAFA
Verð áður 6.028,-
Verð nú 4.995,-
Baöskápurmeöljósi
Utsölustaðir:
Atlabúð Akureyri Kf. Skagfirðinga Sauðárkróki
Málningarþjónustan Akranesi Kf. Þingeyinga Húsavík
Sería isafiröi Kf. V.-Hún. Hvammstanga
Valberg Ólafsfirði Kf. Fram Neskaupstaö
Brimnes Vestmannaeyjum Kf. KASK Hornafirði
Kf. Borgfirðinga Borgarnesi Kf. Rangæinga Hvolsvelli
VALD. POULSENI
Suðurlandsbraut 10. Sími 686499.
Innréttingadeild 2. hæð.