Morgunblaðið - 13.12.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
51
Málverk í röngum miðli
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Sumar bíómyndir glata stórum hluta
af áhrifamætti sínum við að flytjast á
hinn kassalaga myndflöt sjónvarpstæk-
isins. Stundum fær að vísu hið ílanga
form kvikmyndarinnar aö halda sér og
eru þá svartar rendur fyrir ofan og
neðan. I>etta gerist á kostnað stærðar-
innar; myndin verður einatt óþægilega
lítil á fletinum. En þessi aðferð við
yfirfærslu á myndbönd er engu að síður
skömminni skárri en sú algengasta.
Hún felst í því að aðlaga breiðtjalds-
myndina kassaforminu með aðdrætti,
— taka út miöjuna á filmunni og láta
hana fylla út í skerminn. Þetta þýðir
að stórir hlutar hennar til beggja kanta
verða útundan og vafalaust hafa flestir
sjónvarpsáhorfendur og myndband-
snotendur tekið eftir því hvernig leikar-
arnir eru eins og afskornir; í nærmynd-
um sjást stur.dum bara nef og hökur
og í víömyndum vantar stóran hluta
af „aksjóninni" til vinstri og hægri.
Richard Gere í Days of Heaven.
BANDALAG HÁSKÓLAMANNA
HÁSKÓLAKENNSLA
UTAN REYKJA VÍKUR
Bandalag háskólamanna heldur opinn fund um háskólakennslu utan Reykjavík-
ur laugardaginn 14. desember kl. 13.30 í stofu 101 í Odda, húsi félagsvísinda-
deildar Háskóla íslands.
Dagskrá:
Ávarp: Gunnar G. Schram, formaöur BHM.
Framsögueríndi: Sigmundur Guöbjarnason, háskólarektor, Tryggvi Gíslason, skólameistari, Valdi-
mar K. Jónsson, prófessor.
Frjálsar umræður.
Fundarstjóri veröur Guölaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari.
Áhugamenn um háskólamálefni eru hvattir til aö koma á fundinn.
Bandalag háskólamanna
I sjálfu sér er svona yfirfærsla
tilræði við þær bíómyndir sem vanda
til myndbyggingar, því öllum hlut-
föllum er raskað. Sláandi dæmi um
þetta er eitthvert magnaðasta mál-
verk í kvikmyndaformi sem gert
hefur verið, bandaríska bíómyndin
Days of Heaven. Hún er verk eins
sérstæðasta kvikmyndagerðarmanns
Bandaríkjanna, Terrence Malick.
Malick hefur mér vitanlega aðeins
gert tvær myndir. Sú fyrri var Bad-
lands árið 1974 og var gerð fyrir
lítinn pening en vakti mikla athygli
fyrir þann persónulega stíl sem krist-
allaðist enn frekar í Days of Heaven
fjórum árum síðar. Báðar þessar
myndir fjalla um ungt fólk sem í
rótleysi sínu lendir í hringiðu of-
beldis. í Days of Heaven leika Ric-
hard Gere og Brooke Adams par sem
starfar við landbúnað í Texas árið
1916 og er Sam Shepard atvinnuveit-
andi þeirra. Þau þykjast vera systk-
ini en eru elskendur og þegar Shep-
ard verður ástfanginn af Adams
missa þau tökin á atburðarásinni.
En þessi ástarsaga er aukaatriði 1
myndinni, og hún er býsna gloppótt,
bæði hvað varðar persónusköpun og
dramatíska framvindu. Days og
Heaven er efnislega í molum; atriðin
eru svo snubbótt og knöpp að þau
fjúka út í veður og vind og Malick
klippir látlaust á landslag og nátt-
úru, dýr og jurtir. Samhengið gliðnar
og samtöl og umhverfishljóð renna
saman í kliðmjúkan nið. En þetta er
sá stíll sem Malick velur og efnið
verður hreinlega undir honum. Það
sem gerir Days of Heaven hins vegar
að merkilegri kvikmynd er einstök
tökuvinnsla tveggja frægustu kvik-
myndara sem uppi eru, Nestor Alm-
endros og Haskell Wexler. Þeir taka
myndina á 70 mm filmu sem er afar
sjaldgæft og laða fram furðulegustu
litbrigði í rauðglóandi tónum. Þetta
skilar einhverjum eftirminnilegustu
myndskeiðum sem ég hef séð, einkum
af vinnu fólksins á ökrunum. í sam-
spili við tónlist Ennio Morrecone og
Leo Kottke eru þessi ljóðrænu mynd-
skeið hvert fyrir sig sjálfstæð lista-
verk.
Það gefur augaleið að 70 mm mál-
verk verða svipur hjá sjón í kassafor-
mati sjónvarpsins. En þegar ekki
gefst kostur á að sjá þau í réttum
miðli er myndbandið skárra en ekk-
ert.
Stjörnugjöf: Days of Heaven ★★★
PLAYBOY
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SIMI 91-84670
Aörir útsölustaöir:
Pípulagningarþjónustan Versl. Bókaversl. Kaupf. Fram Jón Halldórsson
Ægisbraut 27 Einars Guðfinnssonar h/f Þórarins Stefánssonar 740 Neskaupstaö Drafnarbraut 8
300Akranes 415Bolungarvík 640 Húsavík Skiöaþjónustan 620 Dalvík
Vélsmiöjan Þór Versl. Húsiö GesturFanndal Fjölnisgötu 4 Versl. Skógar
400 ísafjöröur 340 Stykkishólmur 580 Sigluf jöróur 600Akureyri 700 Egilsstaöir
TOPP
merkin
í íkíða-
vörum
Setjum bindingar á
meðan beðið er.
öfUð d
Vertu kl'
DACHSTEIN
TYROLIA
adidas ^
Klemm
Við bjóðum aðeins viður-
kenndar vörur. Og við
leggjum okkur fram við
að veita þér góða og
skjóta þjónustu.
AA FISCHER
Kanaríeyjar -Tenerife—Gran Kanari
Orugg sólskinsparadts í skammdeginu.
Enska ströndin - Ameríska ströndin - oagtiugbáöarleiðir.
Las Palmas- Puerto de la Cruz Fullkomin þjónusta
Beint leiguflug, verð frá kr. 29.840,- iStens>urterarsiióri.
Jólaferð 18. des., 22 dagar. 8. janúar 4 vikur á 3 vikna verði.
4. febr. og 26. febr., 22 dagar. Páskaferð 19. mars, 14 dagar.
Þiö veljið um dvöl í ibúðum, án matar, eða á fjögurra og fimm
stjömu hótelum með morgunmat og kvöldmat,
á eftirsóttustu stöðum Kanaríeyja.
Fjölbreyttar skemmti- og skoóunarferðir.
Sjórinn, sólskiniö og skemmtanalifið eins og fólk vill hafa það.
Aðrarferðir okkar:
Jólaferð: Landið helga, Egyptaland,
London, 18. des. -19 dagar.
Kanaríeyjar, brottföralla þriðjudaga, 2, 3
eða 4 vikur.
Malta, vetrardvöl.
Viku- og helgarferðir til Evrópuborga
FUJCFERÐIR
SOLRRFLUC
Vesturgötu 17. símar 10061,15331 og 22100