Morgunblaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
'~f?eQluv-n&r e-ídfcert urr , að
jm-ér sé. ÓK’eim'lt aé ^érr "
Ast er...
u'
|Ui^O
... aö vera hugg-
an
TM Reg U.S Pat. Ott - all rights reserved
®1985 Los Angeíes Trmes Syndicate
Mig dreymdi að bátur kæmi hér
og pláss var fyrir annan okkar ...
HÖGNI HREKKVÍSI
Góð þjónusta
í Garðshorni
Kæri Velvakandi.
Mig langar til að koma á fram-
færi þakklæti mínu til starfsfólks
verslunarinnar Garðshorns í Foss-
vogi.
Þannig var að móðir mín færði
mér að gjöf stóll (rennibraut) með
útsaumuðum stramma sem hún
hafði verið mörg ár að vinna.
Einhvern veginn felldi ég mig ekki
við stólinn sem hún hafði valið til
að setja strammann á, svo ég brá
mér bæjarleið og kom við í Garðs-
horni, þar sem stólinn hafði verið
keyptur, í von og óvon. Ég spurði
kaupmanninn hvort hægt væri að
fá strammann fluttan á aðra stól-
grind og hvort hægt væri að fá
hann aftur fyrir helgi (þetta gerð-
ist á fimmtudegi) því maðurinn
minn átti afmæli á á laugardegin-
um. Hann sagðist ætla að reyna
hvað hann gæti og sagði mér að
koma á laugardagsmorgninum
sem ég og gerði. Viti menn, stóllinn
var tilbúinn þegar ég kom og það
sem meira var. Verðlagi var mjög
stillt í hóf miðað við að í þessu
liggur talsverð vinna.
Þetta finnst mér vera einhver
sú liprasta og elskulegasta þjón-
usta sem ég hef fengið hér á landi
og þótt víðar væri leitað.
Eg hef síðan komið þarna nokkr-
um sinnum með manni mínum
bara til að skoða, því það eru
sannkallaðir undraheimar þarna í
Garðshorni og allir neðanjarðar.
Sem sagt, heilt flæmi leynist neð-
anjarðar fullt af húsgögnum og
öðrum munum sem gaman er að
skoða, einkum með hliðsjón af því
að manni líður ekki eins og óvel-
komnum heldur þvert á móti;
hjartanlega velkomnum.
Inga.
Kæri Velvakandi.
Mig langar að senda öllum lög-
reglumönnum hugheilar jóla- og
nýársóskir með hjartans þakklæti
fyrir alla þá hjalp sem þeir hafa
auðsýnt mér í gegnum árin. Þeir
hafa gert það af alúð og gleði. Ég
bið þeim guðs blessunar. Einnig
óska ég hinum nýkjörna lögreglu-
stjóra gæfu og gengis í sínu ný-
skipaða embætti. Minn innri leið-
arvísir tjáir mér að Böðvar Braga-
son muni hafa réttlætið og mann-
kærleikann að leiðarljósi.
Einnig langar mig að senda öll-
um landsmönnum hugheilar óskir
um gleðilega jólahátíð. Megi hið
nýja ár, 1986, færa öllum frið og
kraft til að rækta sinn innri mann
og að bera virðingu fyrir hinu
ófædda lífi og öllu því sem lifir. Ég
vil minna á málleysingjana. Dýrin
hafa sál og heitar tilfinningur,
hvoru tveggja til sársauka og vel-
líðunar. Gleymið ekki að sýna þeim
miskunn og góða umhirðu.
Ég bið alla þá sem hafa veiðar
að áhugamáli að hætta að deyða
dýr og fugla. Með háttum sínum
valda þeir óbærilegum þjáningum.
Hættið þessum ljóta leik. Þeir sem
stunda þessa iðju ættu að íhuga
þá óhamingju sem þeir kalla yfir
sig og sína. Lögmál guðs lætur
ekki að sér hæða. Við fáum allt
til baka og það kemur að uppgjöri
á öllum sviðum mannlífsins. Það
skulum við muna.
í Guðs friði.
Þorbjörg Sigurðardóttir,
Austurbrún 6.
Víkverji skrifar
Alheimsdrottningin okkar,
Hólmfríður Karlsdóttir, er
væntanleg til íslands í dag. Er það
í fyrsta sinn sem hún stígur fæti
á landið eftir hinn frækilega sigur
í London á dögunum. Hennar bíður
glæsileg móttökuathöfn að því er
segir í fréttum og er það að vonum.
Víkverji var svo ljónheppinn að
vera beðinn um það fyrir allmörg-
um árum að taka sæti í dómnefnd
Fegurðarkeppni íslands. Hann var
þá kornungur blaðamaður og þetta
varð hin mesta lífsreynsla. í
nefndinni sátu fyrrverandi fegurð-
ardrottning, sem var formaður,
tveir blaðamenn og ritstjórar
tveggja vikublaða sem þá komu út
en hafa nú verið lögð niður. Ekki
var umgerð keppninnar eins glæsi-
leg og nú tíðkast né undirbúningur
mikill. Nefndin hittist fyrst kvöld-
ið sem keppnin fór fram, ræddi
stuttlega við dísirnar og fylgdist
með þeim ganga um sali bíóhúss-
ins, þar sem keppnin fór fram.
Síðan voru atkvæði greidd og fyrir
valinu varð stúlka, sem að mati
Víkverja og margra fleiri er í hópi
fegurstu stúlkna, sem borið hafa
hinn eftirsótta titil. Hins vegar var
nefndin ekki beðin að dæma oftar
þótt svona vel hafi til tekizt, Vík-
verja til sárra vonbrigða.
Allar götur síðan hefur bréfrit-
ari verið harður stuðningsmaður
Fegurðarsamkeppni íslands og
verið afar ánægður með fram-
kvæmd keppninnar undanfarin ár.
Hún hefur verið haldin með reisn
og glæsileika. Sigur Hólmfríðar í
keppninni Miss World fyrir
skömmu var svo hápunkturinn og
varla er til sá íslendingur sem
ekki hefur fyllst gleði og stolti
þann dag. íslendingar sameinast í
því að bjóða Hólmfríði hjartanlega
velkomna heim úr sigurförinni.
XXX
Símaskráin er mikilvægasta
bókin, sem gefin er út á íslandi
á hverju ári. Miklu varðar, að
upplýsingar í bókinni séu réttar.
Það getur sparað mikla fyrirhöfn.
Sérstök ástæða er til að vekja á
því athygli að samkvæmt nýlegri
auglýsingu í blöðunum þurfa sím-
notendur að tilkynna breytingar
fyrir 15. desember vegna síma-
skrár, sem út kemur árið 1986.
XXX
Að því var vikið hér í þessum
dálki á þriðjudaginn, að marg-
ir málsmetandi menn hefðu vanið
sig á þann ósið að kalla hlutina
röngum nöfnum í opinberri um-
ræðu. Tilefnið var viðtal við Hall-
dór Guðbjarnason bankastjóra
Útvegsbankans, sem kallaði um-
ræðu um Hafskipsmálið og mál
Útvegsbankans róg.
f ræðu á Alþingi sama dag var
Matthías Bjarnason bankamála-
ráðherra á sömu buxunum. Hann
sakaði fjölmiðla um ábyrgðarleysi
í umfjöllun sinni um málið og sagði
að samdráttur innlána hjá Útvegs-
bankanum næmi 58% í kjölfar
fjölmiðlaumræðu um vanda Haf-
skips og Útvegsbankans.
Það er nauðsynlegt að árétta það
hér, að undirrót vantrúar spari-
fjáreigenda á Útvegsbankanum er
ekki umræðan um málið heldur
þau mistök sem urðu við stjórn
bankans og leitt hafa til herfilegr-
ar eignarfjárstöðu hans. Það væri
fyrst hægt að tala um ábyrgðar-
leysi fjölmiðla, ef þeir hefðu ekki
fjallað um þetta alvarlega mál.
Hitt er svo annað mál, að sú
skylda hvílir á stjórnendum fjöl-
miðla að fjalla rétt um málið og
af sanngirni og forðast yfirdrifnar
yfirlýsingar, sem geta skaðað
menn og fyrirtæki. I þeim efnum
hafa sumir farið út af sporinu. Það
hefur áður gerst og jafnan eru það
sömu fjölmiðlarnir sem skjóta yfir
markið. Fólk ætti að vera farið að
þekkja þá úr og þá einnig hina, sem
hægt er að treysta að fari með rétt
mál.
xxx
egar Víkverji kom til vinnu
sinnar í gærmorgun var veðrið
dásamlega fagurt, milt og stillt.
Við íslendingar getum ekki nóg-
samlega þakkað máttarvöldunum
fyrir þá hagstæðu tíð sem verið
hefur í haust og það sem af er vetri.
Hinsvegar er mjög hált hér
sunnanlands og urðu t.d. 60
árekstrar á höfuðborgarsvæðinu í
fyrradag. í sumum tilvikum voru
bílarnir fleiri en einn svo nálægt
150 bílar hafa lent í þessum
árekstrum. Þá hafa gangandi veg-
farendur hlotið slæmar byltur.
Nauðsynlegt er að bæði gang-
andi og akandi vegfarendur sýni
fyllstu aðgát við þessar erfiðu
aðstæður. Höldum slysum í um-
ferðinni í lágmarki og stuðlum að
því að sem flestir eigi ánægjuleg
jól-