Morgunblaðið - 13.12.1985, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
75
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
fl( KríTtti
UM ISLENSKA TUNGU
Góði Velvakandi.
Mér var mikið ánægjuefni að
sitja ráðstefnuna í Þjóðleikhúsinu
um islenska tungu sunnudaginn
1. desember. Ekki síst að heyra
snjallan málflutning æskumanna
frá ýmsum landshlutum. Mennta-
málaráðherra og fleiri lögðu
áherslu á, að tengsl tungunnar við
bókmenntir fornar og nýjar,
mættu ekki rofna.
Einn flytjandi þáttarins um
daglegt mál í útvarpinu, hvað það
eðlilega þróun að orð skiptu um
merkingu. Hvað má kallast eðli-
legt, veit ég ekki, en að slíkt sé
þróun tungunnar, skil ég ekki. Ef
haldið er áfram á þeirri braut,
gæti svo farið, að næstu kynslóðir
skildu ekki verk Halldórs Laxness,
hvað þá fornritin.
íslensk tunga var frá því í fyrnd
þróuð af mönnum með skýra hugs-
un, sem þeir settu fram í gagnorð-
um setningum á fjölbreyttan hátt.
Hún er háþróað tæki til frjórrar
hugsunar sem við höfum fengið
að erfðum og okkur ber að varð-
veita. Orðaforðann þarf sífellt að
auka og er ánægjulegt, hve mikill
áhugi virðist nú vera á því sviði.
Blaðamennska er því miður á
annarri grein, þótt margir blaða-
menn séu til fyrirmyndar um mál-
far. Aðrir rita svo illa og klaufa-
lega að manni blöskrar. Oft eru
fréttir afbakaðar vegna tíma-
skorts en eins og ágætur ræðumað-
ur á ráðstefnunni tók fram, þá rita
menn ekki málleysur, ef þeim er
annað tamt, þótt þeir séu að flýta
sér. Sumir, sem í blöð rita, virðast
gera sér far um að nota alls konar
slettur, líklega til að sýna, að þeir
hafa erlend mál tiltæk. Margir eru
læsir á nokkrar tungur og væri
skrýtið að heyra eða sjá þeim
hrært saman í einn graut. Ég vil
ráða þessum blaðamönnum að lesa
drjúgan kafla úr vönduðum ís-
lenskum bókum á hverjum degi.
Þannig síaðist málfarið inn í heila
þeirra og rynni úr pennanum.
Ég ætla ekki hér að tíunda mál-
leysur sem ég sé daglega í blöðum.
Eina vil ég þó nefna. Það er orðið
„mannabreytingar", sem hefur
vaðið uppi um hríð. Þegar ég sá
þetta fyrst fór ég að hugleiða slík-
ar breytingar, sem ég hafði lesið
um. Sagnir margra þjóða segja
frá mönnum sem breytt var í alls
konar kvikindi. Á síðari tímum er
einna frægust saga Frans Kafka
„Metamorphosis", þar sem maður
breyttist í pöddu á einni nóttu.
Mætti ætla af umsögn blaða, að
starfsmenn fyrirtækja yrðu öðru
hvoru fyrir slíkri reynslu. Hingað
til hafa það þó heitið mannaskipti,
þegar maður kemur í manns stað.
Eg heyrði nýlega lesna í útvarp-
ið skrá yfir starfsreglur handa
fóstrum til að samræma störf
þeirra. Um þetta er ekki nema
gott eitt að segja. Þó sló það mig,
að hvergi var orðuð sú málkennsla
sem þeim hlýtur að vera falin. Má
vera að semjendur þessara reglna
hafi talið hana innifalda í efninu.
Eins og nú er háttað uppeldi barna,
gegna fóstrur þar mikilvægu hlut-
verki. Málnám barna fer eins
mikið fram á þeirra vegum og
foreldranna eða jafnvel fremur.
Þarna sýnist mér vera megin-
kjarni í starfi þeirra, sem þarf að
skipuleggja með leiðbeiningum og
aðhaldi, svo börnin öðlist góðar
málvenjur um leið og þau læra að
tala. Fóstrur ættu að tala vandað
mál við þau, slettulaust og skýrt
og æfa þau og leiðrétta'á skemmti-
legan hátt í leikjum og viðtölum.
Ég tek fram, að þetta er ekki
skrifað vegna vantrausts á fóstr-
um, heldur til að minna á mikil-
vægi starfs þeirra, hvað viðvíkur
málkennslu.
Kennarar taka við af fóstrum.
Ég ætla ekki að ræða þeirra hlut-
verk hér. Ömurlegt var að heyra
ummæli þeirra ungu nemenda sem
ég minntist á í upphafi þessarar
greinar. Þeir sögðu að stundum
skildu þeir ekki kennara sína,
vegna útlendra slettna, sem þeir
notuðu. Mættu þeir taka orð mín
til athugunar.
Þórunn Guðmundsdóttir.
Frá ráðstefnunni um íslenska tungu sem haldin var í Þjóðleikhúsinu 1. desember síðastliðinn.
Takið eftir
Barrokksófasett + 2
aukastólar og sófaborð.
Verð aðeins 65.000
Örfdum sófasettum
óráðstafað fyrir jól
VALHÚSGÖGN
Ármúla 4, símar 685375 og 82275.
DREIFTNG
A iSLANDh
BUSTOÐ
Sími: 923377
230 Keflavík
Tilvalin jólagjöf
Gefdu gjöf sem gefur betri líðan
fs
Hringdu strax í dag
og pantaðu
Viltu losna við bakverkinn
og eymslin í hálsinum?
Þá skaltu reyna heilsudýnu og -kodda frá
Bay Jacobsen, viðurkennda framleiðslu sem skilar
ótrúlegum árangri.
Dýnan sér um að dreifa
þunga líkamans í svefninum,
þannig að blóðstreymi haldist
jafnt um allan skrokkinn, hún
heldur góðum hita á bakinu og
hefur notaleg nuddáhríf á
vöðvana.
Ummál: 70/80/90x190 cm.
Pykkt: Aðeins 3 cm og því
leggst hún ofan á dýnu sem
fyrir er.
Pyngd: 1,9 kg.
Verð:4.290.-kr.
Koddinn tryggir höfðinu
og hálsinum rétta hvíldarstöðu
og réttur þéttleiki ásamt
góðum hita gerir það að
verkum að þú vaknar með
slaka háls- og axlarvöðva eftir
góðan nætursvefn.
Ummál: 45x55 cm.
Pykkt: 9-11 cm.
Verð:\.im.-kr.
t