Morgunblaðið - 17.05.1986, Síða 17

Morgunblaðið - 17.05.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ1986 ii Daihatsuumboðið Ármúla 23, S. 685870-681733 Fullfermi af loðnu landað úr Gígjunni, en hún ásamt Sighvati Bjarna- syni veiddi alla loðnu sem fór til frystingar í Eyjum á vetrarvertíðinni. komulagi minnkar hann vonandi eðlilega niður í hæfilega stærð. Margir möguleikar á skemmtilegum verkefnum Verkefni hvers útgerðarmanns, sjómanns og fiskvinnslustöðvar hlýtur að vera það að gera sem mest verðmæti úr því hráefni sem gefst og menn hafa alla möguleika til þess í þessum efnum að takast á við skemmtileg verkefni. Það koma alltaf til einhveijar breytingar sem valda titringi, eins og til dæmis gámafiskurinn, en ég held að þessi ferskfiskútflutningur leiti ákveðins jafnvægis sem muni leiða til heilla fyrir alla. Það er gott að hafa þessa markaði, bæði fyrir ákveðnar teg- undir og einnig til þess að hlaupa upp á. Þetta er liður sem hefur verið um árabil og það er ekkert nýtt í því. Þessi leið hefur að vísu komið upp með misjöfnu móti, en hún hefur alltaf fundið sér farveg sem hefur komið til góða í heildina." „Er eitthvað sérstakt spennandi í rekstri sjávarútvegs um þessar mundir?" „Það er ekkert sérstakt spenn- andi við þetta, starfið er það alhliða að menn verða að horfa yfír sviðið í heild. Ef okkur tekst að nýta skynsamlega fískistofnana, þá er ég bjartsýnn. Þjóðimar í kring um okkur nýta sína fiskistofna mjög óskynsamlega, en ef við nýtum stofnana skynsamlega þá erum við á réttri leið. Við eigum mikla möguleika, því fiskneysla í heimin- um er vaxandi og við þurfum að láta náttúmna vinna með okkur. Menn verða að vera klárir í það í þessum rekstri að þurfa að taka af skarið. Breytingar eru fljótar að koma til, enda byggist þetta allt á veiðimennsku og þar eru hlutimir ekki alltaf borðleggjandi. Ég held að grundvallaratriðið sé það hvemig hægt sé að fá sem mesta uppskeru úr sjónum. Það er ljóst að einstaka aðilar og landsvæði hafa mismunandi hagsmuna að gæta, en menn verða að hafa bein í nefínu til þess að horfa yfír alla þætti. Það má nefna sem dæmi að það var örugglega rétt ákvörðun á sínum tíma að banna þorsknótina. í öllu þessu sambandi er nauðsyn- legt að aðilar sem starfa í greininni skilji það starf sem liggur á bak við nýtingu auðlindarinnar. Óhæfí- legt seiða- eða smáfískadráp eða syn. Ég tel það líka jákvætt hvað fleiri og fleiri sem starfa í frystihús- unum hafa nám að baki og fólkið úr Fiskvinnsluskólanum hefur skil- að góðu starfí eftir að það kom þaðan út. Það þarf að halda áfram á þessari braut, bæði menntun fisk- vinnslufólks og því að virkja há- skólamenntað fólk til starfa hjá sjávarútveginum í æ ríkari mæli á sviði tæknimenntunar og á sviðum markaðsmála og fjármála. Öryggis- mál fískverkunarfólks og sjómanna eru einnig mál sem þarf að sinna vandlega og í sambandi við öryggis- mál sjómanna er það starf sem hefur átt sér stað á þeim vettvangi að undanfömu og til mikilla bóta og því starfi þarf að halda áfram með margs konar fyrirbyggjandi aðgerðum. Ég vil sérstaklega lýsa jrfír ánægju minni með starfsemi Slysavamafélags íslands í þessu sambandi og tel að það starf sem Slysavamafélagið vinnur og önnur slík samtök, sé heilladrýgst til ár- angurs" „Og hvemig líst svo athafna- manninum á að fara að slást I bæjarmálapólitíkinni?" „Ég hef ekkert skipt mér neitt af sveitastjómarmálum og það kom mér á óvart að lenda í efsta sæti. Það er hins vegar ljóst að sveitar- stjómarmál em bæði tímafrek og skemmtileg, en það skiptir miklu máli fyrir íbúa og fyrirtæki á hverj- um stað hvemig stjómað er, bæði á sviði bæjarmála og á sviði lands- mála og það er rétt fyrir menn að taka afstöðu í kosningum. Sveitar- félag er eins og hvert annað fyrir- tæki og þama eiga við að mörgu leyti sömu qónarmið og í stjómun fyrirtækis. Eg held í mínu tilviki að mfn reynsla í rekstri fyrirtækja eigi að gagnast bæjarfélaginu. Það þarf að takast á við mörg mál á sviði atvinnulífsins, félagslífsins og menningarlífsins og það þarf að gera það með sveigjanleika, en þó af einurð og festu." - á.j. Grein: Arni Johnsen Það er bjart yfir stelpunum f Hraðinu þar sem þær eru að pakka loðnunni. slæm meðferð á físki á ekki að eiga sér stað og aðilar í sjávarútvegi þurfa að sameinast um að útrýma slíkum hlutum." undanþágumönnum á fískiskipa- flotanum fer fækkandi. Yfirmenn á skipunum þurfa að hafa menntun til sinna starfa, það er brýn nauð- Að vinna á markvissan hátt „Finnst þér fullnýtingin nóg?“ „Hún mætti vera betri á sjó og landi, menn mættu fara betur með fískinn, en það er einmitt eitt af því góða sem ferskfiskútflutningur- inn getur leitt af sér, það er við- horfsbreytingu í meðferðinni á físk- inum, því það er klárt að sjómenn fara betur með fisk sem á að sigla með og allt stefnir þetta að því að leggja höfuðáherslu á að fullnýta hráefnið eins og unnt er. Ég hef talið í sambandi við þessa fískveiði- stjómun að þetta fyrirkomulag geti leitt til meiri skynsemi í sjósókn og meðferð og vinnslu aflans. Þetta er og hefur verið hörð lífsbarátta, en kvótakerfíð getur gert þá bar- áttu skynsamlegri. Menn þurfa ekki að djöflast eins og þeir hafa gert. Við þurfum að fara að vinna þessi verkefni á markvissari hai,L og ég álít til dæmis að sjávarútvegurinn geti notfært sér menntað fólk á sjó og landi mun meira en gert hefur verið. Sjávarútvegurinn þarf að geta tekið á móti menntuðu fólki til starfa og það skiptir miklu máli fyrir framtíð greinarinnar. Aúka ber menntunarþátt fólks í fiskvinnslu Það er til dæmis jákvætt hvað DAIHATSU sýning Frá kl. 1-5 Allir gæðabílarnir frá Daihatsu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.