Morgunblaðið - 17.05.1986, Page 37

Morgunblaðið - 17.05.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986 37 Eitt verka Mariu Jónsdóttur. Selfoss: Sýnir myndir unnar úr íslenzku grjóti Hvolsvelii. MARÍA Jónsdóttir frá Kirkjulæk í Fljótshlíð heldur sýningu á verkum sinum í Safnahúsinu á Selfossi dagana 17.—25. maí nk. María sýnir aðallega myndir unnar úr íslensku grjóti og er lita- dýrð grjótsins látin halda sér eins og hún kemur fyrir úti í náttúrunni, en María raðar steinunum saman á einkar skemmtilegan hátt. Þetta er 8. sýning Maríu og eru myndimar flestar til sölu. Sýningin verðuropnuð 17. maíkl. 14.00. Gils Maria Jónsdóttir Laugarásbíó frum- sýnir unglingamynd Kvíkmyndir Sæbjörn Valdimarsson LAUGARÁSBÍÓ hefur frumsýnt kvikinyndina „Það ver þá, þetta er núna“. Myndin fjallar um líf unglinga í glæpahverfi Minnea- polis. Söguhetjumar em tveir vinir, Fyrirlestur um hvali BANDARÍSKUR dýrafræðingur, dr. Roger Payne, heldur erindi nm hvali í Norræna húsinu þriðjudaginn 20. mai klukkan 20,30. I fyrirlestrinum mun dr. Payne fjalla almennt um rannsóknir sínar á hvölum og sýna nýja kvikmynd máli sínu til stuðnings. í fréttatil- kynningu frá Líffræðifélagi íslands segir, að dr. Payne hafí lengi verið I hópi virtustu vísindamanna á þessu sviði og hafi rannsóknir hans á atferli og vistfræði hvala hvar- vetna vakið athygli. Mark og Bryon sem hafa sameigin- lega tileinkað sér harða lífsbaráttu hverfísins, en þegar Byron kynnist stúlku fjarlægjast vinimir hvor annan. Fyrrverandi kærasta Byrons, sem er afbrýðisöm í meira lagi, verður þess valdandi að slagsmála- gengi hverfísins leggur vinina í einelti. Vinskapur þeirra minnkar enn eftir að kunningi þeirra er skotinn til bana er hann reynir að koma þeim til hjálpar. Endanlega slitnar síðan uppúr vinskapnum þegar Bryon uppgötv- ar að Mark stendur á bak við eitur- lyfjasölu sem hefur valdið því að kunningi þeirra liggur í dásvefni. „Það var þá, þetta er núna,“ er gerð eftir sögu S.E. Hinton, er samdi líka sögumar Outsiders, Rumble Fish og Tex. S.E. Hinton hefur hlotið viðurkenningar í Bandaríkjunum fyrir að gefa raun- sanna mynd af lífi unglinga í bókum sínum. Aðalhlutverk leika: Emilio Estevez, Barbara Babcock og Craig Sheffer. Leikstjóri er Chris Cain. I r Imrgarstjórn Reykjavíkurborg: Samið við Heimilislækna- stöðina hf. um heilsuvernd — Tímamótasamningur segir Katrín Fjeldsted BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sinum sl. fimmtudag samning Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur við Heimilislækna- stöðina hf. Samkvæmt samn- ingnum mun Heimilislækna- stöðin hf. taka að sér í tilrauna- skyni heilsuvemd og heima- hjúkrun í Háaleitis- og Laugar- neshverfi. Katrin Fjeldsted (S) sagði, að samningurinn væri fyrst og fremst gerður í þeim tilgangi að flýta fyrir þeirri þróun heilsu- gæslumála, sem stefnt hefði verið að í Reykjavík um langt árabil. Meginkjami þeirrar stefnu væri að koma á fót í hverfum borgar- innar stofnunum, sem sameini ýmsar greinar heilsugæslu, sem hingað til hafí verið dreifðar um borgina. í máli Katrínar kom einnig fram, að hér væri um tíma- mótasamning að ræða, sem gæfí íbúum hverfísins kost á heilsu- gæsluþjónustu strax í stað þess að þurfa að bíða í fleiri ár eftir heilsugæslustöð í hverfíð. Samkvæmt samningnum mun Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur leggja Heimilislæknastöðinni tit starfskrafta eins hjúkmnarfræð- ings og eins sjúkraliða í hálfu starfí til þess að sinna framan- greindum verkefnum. Auk þess mun Heilsuvemdarstöðin greiða Heimilislæknastöðinni 65 þúsund krónur á mánuði fyrirfram í byij- un hvers mánaðar og er það greiðsla á viðbótarrekstrarkostn- aði Heimilislæknastöðvarinnar vegna þessara verkefna. Einnig segir í samningum, að Heimilis- iæknastöðin skuldbindi sig til þess að gera mánaðarlegar skýrslur um ungbama-, mæðraeftirlit og heimahjúkrun í samræmi við árs- skýrslur viðkomandi deilda Heilsuvemdarstöðvarinnar. Minnihlutinn í borgarstjóm gagmýndi samninginn harðlega. Guðrún Ágústsdóttir (Abl.) sagðist sjaldan hafa séð eins illa unna tillögu. Alþýðubandalagið hefði margsinnis gagnrýnt þann drátt, sem orðið hefði á upp- byggingu heilsugæslustöðva og því vekti þessi tilraunasamningur furðu. Sagði hún, að öll málsmeð- ferð hefði verið afar sérkennileg og svo virtist sem sjálfstæðismenn væm fyrst og fremst að uppfylla eitthvert kosningaloforð nú rétt fyrir kosningar. Kristín Einarsdóttir (Kfb.) sagði, að hér væri verið að gera tilraun með nýtt fyrirkomulag og að hún teldi slíkt ekki tímabært, þegar ókannað væri hvort hér væri um hagkvæmt fyrirkomulag að ræða. Sigrún Magnúsdóttir (F) sagði, að borgin væri með þessum samningi að afsala sér forystu- hlutverki í heilsugæslumálum opg að með þessum samningi missti borgin yfímmsjón á heilsuvemd- armálum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (S) sagðist vel skilja andstöðu Alþýðubandalagsins við samning- inn vegna þess, að flokkurinn væri ætíð á móti því að borgin gerði samninga við einkaaðila. Sagði hann, að það væri einkenni- legt að minnihlutinn í borgar- stjóm skyldi vera á móti sam- komulagi við viðurkennda heimil- islækna og það væri ábyrgðarleysi að reyna að koma í veg fyrir heilsugæsluþjónustu í umræddu hverfi með því að greiða atkvæði gegn samningnum. Tillögu um kjamorkuvopna- laust svæði vísað frá — Málið heyrir ekki undir borgarstjórn, sagði Davíð Oddsson borgarstjóri TILLÖGU Kvennaframboðsins um að Reykjavík yrði lýst kjarnorkulaust svæði var vísað frá á fundi borgarstjómar sl. fimmtudag. Guðrún Jónsdóttir (Kfb.) fylgdi tillögunni úr hlaði og í máli hennar kom fram, að markmiðið með tillögunni væri, að fyrir lægi ótvíræð yfirlýsing borgarstjómar um, að aldrei yrði ljáð máls á því, að í Reykjavík ætti sér stað hemaðaruppbygging eða hem- aðarumsvif tengd kjamorkuvopn- um. „Við verðum með öllum til- tækum friðsamlegum leiðum að reyna að koma í veg fyrir víg- búnaðarkapphlaupið," sagði Guð- rún. Davíð Oddsson borgarstjóri lagði til að málinu yrði vísað frá vegna þess að það heyrði ekki undir verkahring sveitarstjóma að flalla um utanríkismál heldur undir utanríkisráðuneytið. Vald- mörk sveitarstjóma væm sett í lögum og ályktanir borgarstjómar um utanríkismál hefðu því enga þýðingu. Guðrún Ágústsdóttir (Abl.) sagðist fagna tillögunni og að Alþýðubandalagið styddi hana. Sigurður E. Guðmundsson (A) sagðist ekki geta stutt tillög- una. I máli hans kom fram, að utanríkisráðherrar landsins hefðu hver á eftir öðmm lýst því yfír að hér væm ekki kjamorkuvopn og að hér á landi yiðu slík vopn aldrei geymd. Tillaga Kvenna- framboðsins segði ekkert nýtt og því væri erfitt að koma auga á hver tilgangurinn væri með því að taka hana upp í einu sveitarfé- lagi umfram önnur. Að umræðum loknum var frá- vísunartillaga borgarstjóra sam- þykkt með 12 atkvæðum gegn 6. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Alþýðuflokks sátu hjá. íslensk fyrirtæki beri íslensk nöfn — tillögu þess efnis vísað til borgarráðs TILLÖGU Sigurðar E. Guð- mundssonar (A) nm að borgar- stjórn skori á lögreglusljóra að framfylgja til hlítar ákvæðum laga er kveða á um að íslensk fyrirtæki skuli bera íslensk nöfn var visað til borgarráðs á fundi borgarstjómar sl. fimmtudag. í greinargerð tillögunnar segir, að á síðustu ámm hafí það færst í vöxt að fyrirtæki og atvinnu- starfsemi beri erlend nöfn eins og sjá megi af nöfnum þeim, sem skemmti- og veitingastaðimir American Style, Broadway, Hollywood, Kreml og Southem Fried Chicken beri. Slíkar nafn- giftir séu framandi, falli borgar- búum tæpast í geð og virðist augljóslega bijóta í bága við lög nr. 57/1982 um breytingu á lög- um nr. 42/1903 og lögum nr. 53/ 1963. í greinargerðinni segir einnig, að tillagan sé tilraun til þess að stemma stigu við þessum ófögnuði. Eins og áður sagði var tillög- unni vísað til borgarráðs til um- ijöllunar. Á sama fundi var hins vegar samþykkt tillaga frá Kristj- áni Benediktssyni (F) þess efnis að á næstu ámm verði unnið að þvf að mæla upp borgarhverfin innan Hringbrautar, þar sem slík- ar mælingar séu ekki fyrir hendi eða mjög ófullkomnar. Kristján Benediktsson sagði í umræðum um tillöguna, að mjög langt væri á milli mælipunkta í gamla hverf- inu innan Hringbrautar en það væri mjög bagalegt þegar verið væri að mæla fyrir nýjum lóðum eða götum og því væri nauðsyn- legt að láta mæla hverfið upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.