Morgunblaðið - 17.05.1986, Side 54
54
ooo r u»í r> r_avTr>j. rTfT * rv t_> t rTT/r » jmolorrrvw
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR17. MAl 1986
Helgarskákmót:
Barist til síðasta
manns í Hrísey
Þráinn Vigfússon t.v. og Gylfi Þórhallsson tefla hörkuskák.
Benóný fylgist með.
Skák
Margeir Pétursson
ALÞJÓÐLEGU meistararnir
Jón L. Ámason og Sævar
Bjarnason hlutu flesta vinninga
á helgarskákmótinu í Hrísey
um síðustu helgi. Þeir hlutu
báðir sex vinninga, en andstæð-
ingar Jóns reyndust hafa náð
örlítið betri árangri en þeir sem
Sævar tefldi við. Jón var því
úrskurðaður sigurvegari á stig-
um. Margir sterkir skákmenn
tóku þátt í mótinu, frá Reykja-
vik kom heill rútufarmur þó
dagskráin væri strembin. Safn-
ast var saman kl. hálf átta á
föstudagsmorgni og komið
heim hálf fimm aðfaranótt
mánudagsins.
Þetta var 32. helgarskákmót
tímaritsins Skákar og þátttakend-
ur í mótinu voru einnig 32, frá
Reykjavík, Hrísey og ýmsum stöð-
um á Norðurlandi. Keppnin var
afar spennandi. Guðmundur Sig-
urjónsson, stórmeistari, leiddi
mótið lengst af, en missti af lest-
inni í síðustu umferð er hann
tapaði fyrir Jóni L. Ámasyni í
langri og erfíðri skák. Guðmundur
hlaut því 5 V2 vinning ásamt þeim
Gylfa Þórhallssyni frá Akureyri
og Ásgeiri Þór Árnasyni.
Bestum árangri heimamanna
náði Gunnar Bergmann sem hlaut
3 vinninga og vann Benóný Bene-
diktsson, sem lætur sig aldrei
vanta á helgarmót. Benóný
hreppti „öldungaverðlaunin" (50
ára og eldri) en varð að deila
þeim með þremur öðrum, þeim
Sturlu Péturssyni, Þráni Guð-
mundssyni og Gunnari Gunnars-
syni.
Unglingaverðlaun hlutu þeir
Jóhannes Ágústsson, Sverrir Óm
Bjömsson og Bogi Pálsson.
Hér á eftir fara tvær baráttu-
skákir frá Hríseyjarmótinu þar
sem titilhafar eigast við.
Hvítt: Sævar Bjamason
Svart: Jón L. Ámason
Drottningarindversk vöra
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- b6, 4. a3 - Ba6, 5. Dc2 -
Bb7, 6. Rc3 — c5, 7. e4 — cxd4,
8. Rxd4 — Rc6, 9. Rxc6 — Bxc6,
10. Be2
Jón teflir afbrigði sem enski
stórmeistarinn Tony Miles hefur
dálæti á. Hugmyndin er einna
helst að ná skálínunni b8—h2, svo
hér hefur verið mælt með 10. Bf4.
10. - Db8, 11. 0-0 - De5I, 12.
g3!?
Óvænt peðsfóm, en 12. f3 var
allt of hægfara vegna 12. — Bd6,
13. g3-h5!
12. — Rxe4,13. Rb5 — h6?
Jón er með allan hugann við
mátsteflið Re4 — g5 — h3 mát,
en með því vann hann einmitt
Sævar á Búnaðarbankahraðskák-
mótinu í febrúar. Þar sem svartur
er á eftir í Iiðsskipan leyfír staðan
þó ekki slíkan munað. Raun-
hæfara var 13. — Bxb5 og svartur
getur síðan teflt upp á umfram-
peðið.
14. Bf4 — Rg5, 15. Bg4
Eini leikurinn, svartur hótaði
máti.
15. - Df6,16. Rc7+ - Kd8, 17.
Rd5?!
Nú er komið að Sævari að tefla
óraunhæft. Eftir 17. Rxa8! —
Bxa8,18. Hfdl er svartur í krögg-
um. Leikur Sævars dugir þó til
að þyrla ryki í augu Jóns sem
verður herfílega á í messunni:
17. — Dd4??
Nauðsynlegt var 17. — Dg6 og
staðan er óljós. Jóni yfírsást að
eftir 18. Hfdl — De4 drepur hvít-
ur á g5 með skák og svarta
drottningin fellur óbætt. Hvítur
vinnur því drottningu fyrir hrók
og skákinni er í raun lokið.
18. Hfdl - Dxdl+, 19. Hxdl -
Hc8, 20. Bxg5+ — hxg5, 21. Rb4
- Bxb4, 22. axb4 - f5, 23. Be2
- Ke7, 24. Dd2 - Kf6, 25. Bf3
- Bxf3, 26. Dc3+ - Kg6, 27.
Dxf3 - Hxc4, 28. Hxd7 - g4,
29. Db7 - Hh7, 30. He7 - Kf6,
31. Dd7 - He4, 32. De8 - Hh6,
33. Df8+ - Kg5, 34. Hxg7+ -
Hg6 og svartur gafst upp um leið.
Úrslitaskák þeirra Jóns og
Guðmundar í síðustu umferð gekk
þannigfyrirsig:
Hvitt: Jón L. Amason
Svart: Guðmundur Sigurjónsson
Frönsk vöra
1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3
- Bb4, 4. e5 — c5, 5. a3 —
Bxc3+, 6. bxc3 - Re7, 7. Rf3 -
Bd7,8. Bd3
Þessi leikur er ekki hátt skrif-
aður í teóríubókunum, enda var
Fischer ávallt fljótur að leika
a3—a4 til að hindra næsta leik
Guðmundar.
8. - Ba4, 9. Rg5! - h6, 10. Dh5
-g6
Ekki gekk 10. - 0-0?, 11. Rh7
svo svartur verður að veikja peða-
stöðu sína.
11. Dh4 - Rd7, 12. dxc5 -
Rxc5, 13. 0-0 - Dd7, 14. Rf3
_ 0-0-0,15. Db4! - Rxd3
Það er hart að þurfa að lagfæra
hvítu peðastöðuna og eftir þetta
em sóknarfæri hvits mun betri.
Það er ljóst að svartur hefur flýtt
sér um of við að langhróka.
16. cxd3 - Bb5?!, 17. Hdl -
Ba4, 18. Hd2 - Kb8, 19. Rd4 -
Rf5,20. Hb2 - Rxd4,21. Dxd4
Mislitir biskupar leysa ekki
vanda svarts í miðtafíinu, því
hann á erfitt með að valda svörtu
reitina.
21. - Ka8, 22. Be3 - b5, 23.
Habl — Hb8?
24. Bxh6!
Vinnur peð fyrir ekki neitt,
því 24. — Hxh6 er auðvitað svarað
með 25. Dxa4. Hvítur á nú unna
stöðu, en úrvinnslan tók langan
tíma:
24. - De7, 25. Be3 - Hb7, 26.
Db4 - Dxb4, 27. axb4 - Hh5,
28. Bd4 - Hb8, 29. h3 - Hbh8,
30. Kfl - kb7, 31. Ke2 - a6,
32. Hel - H8h7, 33. Kfl -
Kc6, 34. He3 - Kd7, 35. Kgl -
Kc6, 36. Kh2 - Kb7, 37. g4 -
Hh4, 38. Kg2 - Hh8, 39. Hf3 -
H4h7, 40. Hbl - Bc2, 41. Hcl
- Bb3, 42. Hhl - Bc2, 43. Kg3
- Kc6, 44. Kf4 - Kd7, 45. Kg5
- Hg8, 46. h4 - Ke7, 47. Hfh3
- Ke8, 48. Kf4 - Hxh4, 49.
Hxh4 — g5+, 50. Ke3 — gxh4,
51. Hxh4 - Kf8, 52. Bc5+ -
Ke8, 53. f3 - Bdl, 54. Hhl -
Bc2, 55. Kd2 - Ba4, 56. Hh7 -
Bb3, 57. Bf2 - Ba4, 58. Bh4 -
Bb3, 59. Ke3 - Bdl, 60. Bf6 -
d4+, 61. Kxd4 - Bf3, 62. g5 -
Bg4, 63. Kc5 - Bf5, 64. Hh4 -
Kd7, 65. Kb6 - Hb8+, 66. Ka5
- Ha8, 67. Hd4+ - Kc7,68. Hd6
- Bg6, 69. c4 - Bf5, 70. Hxa6
- Hb8, 71. Ha7+ - Kc6, 72.
Ha6+ - Kc7, 73. Be7 - Kd7,
74. Bd6 - Hc8, 75. Ha7+ -
Ke8, 76. cxb5 — Bxd3, 77. b6 —
Be4,78. b7 og svartur gafst upp.
Forsljórinn og framkvæmdavaldið — Katharine Hepburn og
Nick Nolte i Grace Quigley.
Himnareisur hf.
Nemandinn og skólameistarinn, Steve Guttenberg og Alan Arkin, í
læknaskólanum.
Læknar eftir
lögguuppskrift
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabió: Grace Quigley
★ if'/í
Leikstjóri: Anthony Harvey.
Framleiðendur: Golan, Globus.
Handrit: A. Maretin Zweiback.
Kvikmyndataka: Larry Pizer.
Tónlist: John Addison. Aðalleik-
endur: Katharine Hepburn, Nick
Nolte, Elizabeth Wilson, Chip
Zien, Kit Le Fever. Bandarísk.
Cannon Films 1985. Ca. 90 mín.
Ekki virðast ellilífeyrisþegar í
New York eiga frekar uppá pall-
borðið þar en annars staðar í henni
veröld. Enda fær Katharine gamla
Hepbume þá snjöllu en umdeilan-
legu hugmynd eftir að sjá atvinnu-
morðingjann Nick Nolte að störfum
— að fá hann til að kála sér. Reynd-
ar fyrir vægt verð og á sem kvala-
minnstan hátt. Eftir miklar fortölur
fellst Nolte á aðgerðina, en áður
en til kemur er hugmyndin orðin
að stórfyrirtæki; aldraðir vinir kerlu
sem komist hafa að ráðabrugginu
vilja sem sé fyrir alla muni láta
drepa sig á huggulegan hátt — útúr
volæðinu hér á jörð. Og sú gamla
hefur ekki undan að selja þessi
„eilífðartripp" Noltes, enda býður
hún jafnvel hópfargjöld á niðusettu
verði — einsog athafnasömum
ferðamálafrömuði ber?
Grátt gaman en grárri er oft
tilvera þeirra öldruðu. Það er ófagur
sannleikur sem kemur fram f svari
eins „viðskiptavinarins" þegar
Nolte spyr hann hví hann kjósi sér
þessa leið: .. .„ég hélt mig vera í
metum í fjölskyldunni en í raun kom
að það átti að setja mig niður fyrir
framan sjónvarpið í herbergisholu
á stofnun. Það er hægfara dauðdagi
fyrir mig.“
En einhvemvegin er það nú svo
að kaldhæðni myndarinnar skilar
sér ekki nógu vel þrátt fyrir spretti
af og til. Grace Quigley rís lang-
hæst í hæðniblandaðri gamansemi
fáránleikans en fellur þess á milli
niður í léttvægt og vanhugsað
melódrama. Undir lokin fjarar svo
mestöll glóra úr myndinni.
Annað er það sem dregur úr
ágætum þessarar oft frumlegu
myndar: Hepbume og Nolte reynast
með afbrigðum ósennilegir og óþjál-
ir mótleikarar. Leiktúlkun þeirra
og persónur eru svo geysilega ólíkar
að þau ná ekki saman og hrífa
því áhorfendur ekki með sér sem
skyldi. Hvort í sínu lagi eru þau
slarkfær, einkum Hepbume sem
enn býr yfír miklum persónutöfrum.
Kit Le Fever er hressileg í hlutverki
gjálífískonunnar og öldungamir eru
allir ágætlega leiknir.
Grace Quigley er örugglega
heilsteyptara og betra verk í sinni
upprunalegu mynd — á leiksviðinu.
Kaldhæðinn boðskapur þess hittir
hér ekki nógu nærri hjartanu, því
miður, því yfír allri umræðu um
vandamál aldraðra ríkir háskalegur
doði. Nema fyrir kosningar.
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóhöllin: Læknaskólinn — Bad
Medicine k'h
Leikstjórn og handrit: Harvey
Miller. Framleiðandi: Alex Win-
itsky, Arlene Sellers. Tónlist:
Lalo Schifrin. Aðalleikari: Steve
Guttenberg, Alan Arkin, Julie
Hagerty, Bill Macy. Bandarísk.
20th Century Fox 1985.90 min.
Dæmigerð formúlumynd, fylgt
er dyggilega uppskriftinni að Lög-
regluskólanum. Söguþræðinum
aðeins hnikað til; hér er verið að
skóla treggáfaða læknanema, ekki
löggur.
Sögusviðið er „einhverstaðar í
Mið-Ameríku“, læknaskóli sem er
þrautaiending bandarískra milla-
bama. Hér má semsé kaupa lækna-
próf dýrum dómum, s\o framai’lego.
sem nemendur haldi „nárriið" út.
Kosturinn er þröngur og æðsta
yfírvaldið, Dr. Madera, (Arkin),
hálfgeggjaður.
Það kemur ekki á óvart að Arkin
fer með hlutverk hins léttruglaða
skólameistara. Það lítur út fyrir að
búið sé að þrælnegla manngreyið í
rullu fáráða og hann geri sig án-
ægðan með ævistarfið. Sorglegt
þegar manni verður hugsað til
mynda eins og The Heart is a
Lonely Hunter, Wait Until
Dark og Popi. Guttenberg, geðug-
ur leikari, má gæta sín að falla
ekki í sömu gryfjuna, en hann er
einmitt kunnastur fyrir Lögreglu-
skóla-myndimar.
Læknaskólinn er sauðmeinlaus
afþreying, sem — eins og til var
stofnað — skilur ekkert eftir sig
utan nokkrar, hressar uppákomur.