Morgunblaðið - 23.09.1986, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
213. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Prentsmíðja Morgnnblaðsins
Hústökumenn
yfirgefa vígin
Kaupmannahöfn, AP.
HÚ STÖKUMENNIRNIR, sem
fyrir rúmri viku reistu götuvígi
umhverfis byggingu í Ryesgade
á Austurbrú í Kaupmannahöfn,
gáfust upp í gærkvöldi og yfir-
gáfu vigi sitt, að sögn lögreglu.
Hústökumennimir ákváðu
greinilega að leggja upp laupana
eftir að ágreiningur kom upp meðal
þeirra um hvort taka ætti boði borg-
aryfírvalda, að því er fram kom í
danska útvarpinu. Lagt var til að
borgin yfirtæki húsið, sem hústöku-
mennimir lögðu undir sig.
Lögreglan hóf eftirlit með húsinu
þegar eftir uppgjöfína til að koma
í veg fyrir að reynt yrði að setjast
að þar á nýjan leik. Götuvígin átti
að rífa niður í dagrenningu.
Hvalveiðar í þágu
vísinda yfirskin
— segir í leiöara The New York Times
New York, frá fréttaritara Morgunblaðs ins,
„ÞEIR, sem stunda hvalveiðar,
gera það augljóslega í viðskipta-
skyni,“ segir í leiðara bandaríska
stórblaðsins The New York Tim-
es í gær. „Islendingar státa sig
af þjónustu við visindin, en reyna
jafnframt að selja Japönum og
Norðmönnum hvalkjöt í trássi við
nýlega alþjóðasamþykkt, þar
sem gert er ráð fyrir að afurðirn-
ar fari „aðallega" til neyslu
innanlands.“
í leiðaranum er hvatt til þess að
Alþjóðahvalveiðiráðið herði reglur
um vísindaveiðar, bæði til að vemda
hvalastofna og einnig orðspor
vísindanna.
„Upplýsingar, sem svokallaðar
vísindaveiðar veita, em ekki gagns-
lausar, en þær em samt sem áður
óþarfar. Undanfama hálfa öld hefur
rúmlega hálf milljón hvalaskrokka
staðið vísindamönnum til boða til
Jóni Ásgneiri Sigurðssyni.
rannsókna," segir í leiðaranum.
Þýðing á leiðara The New
York Times birtist I heild á bls.
28-29.
Stokkhólmsráð-
stefnu lokið:
Bjartsýni
einkennir
viðbrögð
Stokkhólmi, AP.
RÁÐSTEFNU 35 ríkja um ör-
yggis- og afvopnunarmál lauk
í Stokkhólmi í gær með fyrsta
samkomulagi, sem gert hefur
verið milli austurs og vesturs
síðan SALT II samkomulagið
um takmörkum langdrægra
kjarnorkuflauga var gert 1979.
Fréttaskýrendur og stjórnvöld
víða um heim lýstu yfir ánægju
með samkomulagið og kváðu
það vera skref í átt til aukins
samlyndis í sambúð stórveld-
anna.
í samkomulaginu, sem sendi-
fulltrúar á ráðstefnunni skáluðu
fyrir í kampavíni að loknu 32
mánaða samningaþófi, er í megin-
dráttum kveðið á um að greint
verði frá heræfingum með góðum
fyrirvara og leyft verði gagn-
kvæmt eftirlit.
Robert L. Barry, aðalsamn-
ingamaður Bandaríkjamanna,
sagði að með samkomulaginu
hefði náðst mikilsverður áfangi í
átt að því markmiði að koma í
veg fyrir hemaðarátök.
Sjá einnig frétt á bls. 28.
Lögreglu
storkað
París og Beírút, AP.
HÆGRI öfgaflokkurinn Front
National efndi tO mótmæla í mið-
borg Parísar í gær vegna
sprenginga hryðjuverkamanna
undanfarið þrátt fyrir að lög-
reglan hefði lagt bann við
samkomunni. Tæplega þúsund
menn sóttu fundinn.
Einkennisklæddir lögreglumenn
voru viðstaddir, en höfðust ekki að.
Jean-Marie le Pen, leiðtogi Front
National, hélt ræðu á fundinum og
mótmælti „aðgerðarleysi stjóm-
valda í baráttunni við hryðjuverka-
Framtíðarljós í Viðey
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
menn
Rétt fyrir klukkan níu á sunnudagskvöldið
kveikti Davíð Oddsson, borgarstjóri, á flóðljósum
við Viðeyjarstofu. Þessi mynd var tekin af
ströndinni vestan við Sundahöfn, þegar flutn-
ingaskipið Sandey sigldi milli lands og Viðeyjar.
Sjá nánar á bls. 63
V onast til að í sinn
verði brotinn í Genf
— sagði Reagan um afvopnunarmál
Sameinuðu þjóðunum og Moskvu, AP.
RONALD REAGAN Bandaríkja-
forseti ávarpaði allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna í gær og
kvað líklegt að „ísinn [yrðij brot-
inn“ í samningaþrátefli stórveld-
anna í afvopnunarviðræðunum i
Genf. Hann vísaði í ræðunni til
árangursins af afvopnunarráð-
stefnunni í Stokkhólmi.
Reagan sagði að Daniloff-málið
hefði varpað skugga á samskipti
Sovétmanna og Bandaríkjamanna,
en hann gaf þó ekki í skyn að mál
bandaríska blaðamannsins hefði
áhrif á samninga um að fækka
bæði lang- og meðaldrægum kjam-
orkueldflaugum.
Reagan sakaði Sovétmenn um
tvískinnung og sagði: „Það er mik-
ill bjamargreiði Sameinuðu þjóðun-
um að nota samtökin sem
skálkaskjól fyrir njósnara. Heims-
byggðin á betra skilið."
Reagan var harðorður í garð
Sovétmanna í ræðu sinni. Hann
gagnrýndi þá ekki eingöngu fyrir
meðferðina á Daniloff, heldur einn-
ig fyrir það hvemig farið væri með
almenna borgara í Afganistan og
þrálátan stuðning þeirra við marx-
lenínískar byltingarhreyfingar um
heim allan.
Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, hlýddi
svipbrigðalaus á ræðuna og tók
ekki undir þegar aðrir áheyrendur
fögnuðu ræðunni.
Reagan sagði að handtaka Danil-
offs væri „alvarlegt dæmi um
síendurtekin brot Sovétmanna gegn
mannréttindum. Sovétmenn bera
ábyrgð á afleiðingum gerða sinna."
Forsetinn sagði aftur á móti við
blaðamenn áður en hann gekk á
fund með utanríkisráðherrum aðild-
arríkja Atlantshafsbandalagsins að
nú væri ekki rétti tíminn til að
greina frá því hverjar þessar afleið-
- ingar kynnu að verða: „Til þess eru
málin á of viðkvæmu stigi “
En Reagan virtist óvenju sáttfús
þegar hann ræddi afvopnunarmál.
Hann sagði að Sovétmenn hefðu
nú tekið vel hugmyndum Banda-
ríkjamanna um að draga verulega
úr vopnakerfum þótt þeir hefðu
hafnað tillögum um að fækka lang-
drægum kjarnrokuvopnum bæði á
landi og um borð í flugvélum og
kafbátum um helming.
Vladimir Petrovksy, aðstoðar-
maður Shevardnadze, sagði að
ræða Reagans hefði valdið von-
brigðum og Shevardnadze ætlaði
að svara honum í ræðu sinni í dag.
í fréttaskeyti frá sovésku frétta-
stofunni TASS sagði að hugmyndir
Bandaríkjaforseta væru úreltar og
hann sýndi ekki næga sáttfysi :
afvopnunarmálum.
Reagan sagði einnig í ræðu sinn
að hann væri reiðubúinn til að semj£
við Sovétmenn um reglur um að-
ferðir við að koma á geimvömun
og samvinnu í rannsóknum á þv
sviði. Reagan gat þess að hanr
væri fús til að raeða um geim-
vamaáætlunina í bréfí, sem hanr
sendi Gorbachev í sumar. í tillögurr
hans er kveðið á um að báðir aðilai
stundi einungis rannsóknir og til-
raunir á sviði geimvama til ársins
1991.
Jóhann Karl Spánarkonungui
fjallaði aðallega um hryðjuverk
raeðu sinni á allsherjarþinginu
gær. Matthías Á. Mathiesen ut-
anríkisráðherra flutti einnig ræði
á þinginu í gærkvöldi en fregnit
höfðu ekki borist af henni þegai
Morgunblaðið fór í prentun.