Morgunblaðið - 23.09.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Skákþing íslands:
Margeir efstur
eftir 7 umferðir
MARGEIR Pétursson vann Hann-
es Hlífar Stefánsson í 7. umferð,
sem tefld var á Skákþingi íslands
í gærkvöldi og er í efsta sæti
með 5 og hálfan vinning. Fjórar
umferðir eru eftir á mótinu.
Aðrar skákir í 7._ umferð fóru
þannig að Þröstur Amason vann
Karl Þorsteins. Jafntefli gerðu Dan
Hanson og Davíð Ólafsson og Jon
L. Ámason og Johann Hjartarson.
Tvær skákir fóm í bið, skák Sæv-
ars Bjamasonar og Guðmundar
Siguijónssonar og skák Þrastar
Þórhallssonar og Björgvins Jons-
sonar. Þeir Guðmundur og Björgvin
em taldir hafa betri stöðu.
Fimm efstu menn á Skákþingi
íslands em nú Margeir Pétursson
með 5 og hálfan vinning, Guðmund-
ur Siguijónsson með 4 vinninga og
biðskák og i 3. til 5. sæti em Karl
Þorsteins, Þröstur Þórhallsson og
Dan Hansen með 4 vinninga.
Síldarverksmiðjur ríkisins:
Lækka loðnuverð
um 50 kr. á tonn
SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkisins
hafa lækkað loðnuverð um 50
krónur á tonn og var loðnunefnd
tilkynnt um þessa ákvörðun i
Léstí
bflslysi
PILTURINN sem lést eftir um-
ferðarslys aðfararnótt laugar-
dags hét Þráinn Amgrímsson.
Þráinn heitinn var átján ára gam-
all, fæddur 22. mars 1968. Hann
var til heimilis að Prestbakka 1 í
Reykjavík.
gærdag. SR greiðir því 1.700
krónur fyrir tonnið í verksmiðj-
unum á Siglufirði, Raufarhöfn
og Seyðisfirði en 1.800 krónur í
verksmiðjunni á Reyðarfirði.
Ekki var vitað um verðbreyting-
ar hjá öðrum verksmiðjum er
Morgunblaðið leitaði upplýsinga
þar að iútandi í gærdag. Tólf
loðnuskip tilkynntu um afla á
laugardag og sunnudag með
samtals 10.790 tonn.
Á laugardag tilkynntu þijú skip
um afla, samtals 2.750 tonn. Það
vom Hrafn GK með 660 tonn, Beit-
ir NK með 1380 tonn og Kap 2
VE með 710 tonn.
Níu loðnuskip tilkynntu um afla
á sunnudag, samtals 8.040 tonn.
Það vom Fífill HF með 650 tonn,
Eldborg GK 1.470 tonn, Rauðsey
AK 620 tonn, Júpiter RE 1.320
tonn, Bergur VE 530 tonn, Pétur
Jónasson RE 860 tonn, Svanur RE
740 tonn, ísleifur VE 730 tonn og
Jón Kjartansson SU 1.120 tonn.
Finnur á tali
NEFND fulltrúa stjómar-
flokkanna, sem falið var að
komast að samkomulagi um
stéfnumótun í málefnum
Lánasjóðs íslenskra náms-
manna, kom saman til fundar
í gær í Skjaldbreið. Fundurinn
var sérstakur að því leyti, að
einn nefndarmanna, Finnur
Ingólfsson, var staddur í
Bandaríkjunum. Hann tók
hins vegar þátt í umræðum á
fundinum í gegnum síma.
Fundarmenn bjuggust við þvi,
að eitthvað myndi ganga sam-
an með nefndamönnum á
fundinum, en endanleg niður-
staða væri þó ekki væntanleg
fyrr en síðar í vikunni og yrði
hún send menntamálaráð-
herra.
4,8% hækkun á
fjallalambinu
Hefur hækkað um 6,9% á einu ári
Þráinn Arngrímsson
Á slysadeild
eftir árekstur
HARÐUR árekstur varð á mótum
Reykjanesbrautar og Stekkjar-
bakka um kvöldmatarleytið í
gær. Þar lentu saman tvær fólks-
bifreiðar með þeim afleiðingum
að ökumaður annarrar þeirra
var fluttur á slysadeild. Ekki var
talið að meiðsli hans væru alvar-
leg en báðir bílarnir skemmdust
mikið og voru fluttir burtu með
kranabíl.
NÝTT kjötverð tók gildi í gær.
Kindakjöt hækkar um 4,8% en
nautgripakjöt um 3,5%.
Kíló af nautgripakjöti í 1. verð-
flokki, í heilum og hálfum skrokk-
um, hækkaði úr 276,20 í 285,70
krónur, eða um 3,43%. 2. verðflokk-
urinn kostar 254 krónur. Kíló af
1. flokks dilkakjöti í heilum skrokk-
um, skipt að ósk kaupenda,
hækkaði úr 224,20 í 235 krónur,
eða um 4,83%. Úrvalsflokkurinn
kostar 242,80 kr., svo annað dæmi
sé tekið. I tilefni sláturtíðarinnar
er sjálfsagt að gefa upp verð á
slátri. Heilslátur með sviðnum haus
og 1 kg. af mör kostar 183,20 krón-
ur. Sé slátur sett í vandaðar
umbúðir, til dæmis 3-5 slátur í
kassa, má hækka verðið um 12
krónur á hvert slátur. Ef hausinn
er sagaður má bæta 1,60 krónum
við söluverð hvers hauss.
Verðlagsgrundvöllur landbúnað-
arafurða hækkaði um 2,86% um
síðustu mánaðarmót, en heildsölu-
og smásöluverð hækkaði meira
vegna meiri hækkunar á vinnslu-
kostnaði. Vinnslukostnaður sauð-
fjárafurða hækkaði um 7% en 6%
í nautgripaafurðum. Að sögn Ge-
orgs Ólafssonar verðlagsstjóra sem
er oddamaður í fímmmannanefnd
komu verðlagshækkanir síðustu 6
mánaða nú inn í verðið, auk hækk-
ana sem koma aðeins einu sinni á
ári. Hann sagði að þrátt fyrir þessa
hækkun nú hefði vinnslukostnaður-
inn ekki hækkað um nema rúm 16%
á sama tíma og verðlag hefði al-
mennt hækkað um 18%.
Smásöluverð á kindakjöti í heil-
um og hálfum skrokkum skipt að
ósk kaupenda hefur hækkað úr
219,80 krónum í 235 krónur hvert
kfló á einu ári, á sama tíma og al-
mennt verðlag hefur hækkað um
18%. Verð kjötsins til bænda, sjóða-
gjöld og slátur- og heildsölukostn-
aður hefur hækkað um rúm 16%.
Niðurgreiðslur hafa aukist um
112%. Smásöluálagning hefur
hækkað um 6,8% og niðursögunar-
kostnaður um 20%.
Samkomulagíð er
gagnlegt skref
- segir Benedikt Gröndal sendi-
herra um Stokkhólmsskjalið
„ÉG TEL að vel hafi tekist til og sá árangur hafi náðst sem
hægt var að ætlast til. En við verðum að líta á þetta sem gagn-
legt skref í ferð sem halda verður áfram,“ sagði Benedikt Gröndal
sendiherra íslands í Stokkhólmi og formaður sendinefndar Is-
lanHs á Stokkhólmsráðstefnunni þegar leitað var álits hans á
niðurstöðum ráðstefnunnar.
Benedikt sagði einnig: „Með
þessu Stokkhólmsskjali er ísland
orðið aðili að samtökum 35 þjóða
um gagnkvæm upplýsingaskipti
um heræfíngar og aðrar hemað-
araðgerðir í þeim tilgangi að
þjóðimar viti meira hveijar um
aðra og draga úr tortryggni og
þar með ófriðarhættu. Það er
meginatriðið fyrir okkur að vera
aðilar að þessari heild sem nær
yfír svæðið frá Úralfjöllum og út
á Atlantshaf. Þama eru nákvæm
ákvæði um tilkynningaskyldu her-
æfínga og ríkin skuldbinda sig til
að bjóða öllum hinum þjóðunum
að fylgjast með. Þá mega allar
þjóðimar gera rannsóknir á landi
annarra ef grunur leikur á brotum
á ákvæðum samningsins.
Þetta samkomulag er talið
draga úr ófriðarhættu í Evrópu
og snertir okkur auðvitað þannig.
Þar sem við höfum ekki her og
litlar heræfíngar eru á okkar landi
er ólíktlegt að til okkar kasta
komi varðandi tilkynningaskyldu
heræfínga, en við þurfum þó að
gefa árlegar skýrslur. Þá höfum
við rétt til að rannsaka hemaðar-
umsvif á landi annarra þjóða, eins
og aðrir hjá okkur."
Sjá frétt um Stokkhólmsráð-
stefnuna á bls. 28.
Sláturkostnaður
794 milljónir kr.
926 krónur á meðallamb
FIMMMANNANEFND hefur ákveðið slátur- og heildsölu-
kostnað fyrir yfirstandandi sauðfjárslátrun. Kostnaðurinn
er 65 krónur á hvert kfló kjöts, en var 56 krónur í slátur-
tíðinni fyrir ári.
Samkvæmt þessu kostar 926
krónur að slátra einu meðallambi,
sem í fyrra var 14,25 kg., og 1.430
krónur að slátra fullorðinni kind.
Bóndinnn fær 2.584 krónur fyrir
kjötið af meðallambinu ef það fer
í 1. verðflokk, og er slátur- og heild-
sölukostnaðurinn sem leggst ofan
á það því 36% af grundvallarverð-
inu.
Á síðasta hausti var slátrað
816.929 Qár og er búist við svipuð-
um fjölda í ár. Verði það og
meðalþyngd fjárins hin sama mun
slátur- og heildsölukostnaður vegna
slátrunarinnar í haust verða 794
milljónir kr. Því hefur verið haldið
fram að mögulegt væri að lækka
þennan kostnað um allt að 30%,
að minnsta kosti í sumum héruðum,
en það eru 238 milljónir kr. miðað
við áður gefnar forsendur.
INNLENT