Morgunblaðið - 23.09.1986, Blaðsíða 12
12
jsswjjy^ ■
.» '-v. •*•- *. —•*• * ■• >,v' - fr \ >■ 'r-f T*
MORGUM0LAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
DÆLUR
úr ryðfríu stáli
• 1 og 3ja fasa.
• Til stýringar á
vatnsrennsli.
• Einstök gæði,
góð ending og
fágað útlit.
= HÉÐINN =
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Nú er það orðinn árviss við-
burður að Sinfóníuhljómsveit
æskunnar heldur tónleika í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
og að þessu sinni var stjómandinn
Mark Reedman. Einleikari var
Gerður Gunnarsdóttir en við-
fangsefnin voru eftir Wagner,
Haydn og Shostakovich. Fyrsta
verkið var Rínar-ferð Siegfrieds
úr Ragnarökum eftir Wagner. Þar
sem nomimar spilla gæfuvef
heimsins og er vefur þeirra slitn-
ar, vita þær að Ragnarök eru stutt
undan. Er Brynhildur og Sigurður
kveðjast fær hún hringinn sem
tryggðarpant en Sigurður hestinn
Grana að láni. Þar hefst Rínar-
ferð hans. Þessi hljómsveitarþátt-
ur er marg samansettur. Fyrst
má heyra „ástaijátninguna" í
strengjum og klarinetti, þá þema
Sigurðar í horaunum. Síðan koma
fleiri þemu, eins og þau sem tákna
vafurlogann, er heyrist í strengja-
sveitinni Rínar-Rían-þemað í
lúðmnum og þema hringsins. Allt
er þetta útfært með glæsibrag og
var leikur hljómsveitarinnar á
köflum mjög góður.
Annað verkefnið á tónleikunum
var fiðlukonsert eftir J. Haydn.
Nokkur vafí leikur á því að mörg
þeirra verka sem gefin eru út
undir katalógmerkingum von Ho-
boken, séu rétt „feðruð“ og eru
t.d. margir af svonefndum fíðlu-
konsertum Haydns til í útgáfum
þar sem tilteknir em höfundar
eins og Stamitz, Michael Haydn
og Cannabich. Það var t.d. mun
meira af Stamitz í þessu verki en
vant er að fínnast hjá Haydn.
Hvað sem því líður, þá var flutn-
ingur verksins ágætur og tókst
Gerði Gunnarsdóttur mjög vel upp
í fyrsta og öðmm þætti, þrátt
fyrir að túlkun hennar væri ef til
vill einum of þmngin fyrir tónlist,
sem allt að því er í barokk-stíl.
Síðasta verkið var sú fimmta eft-
ir Shostakovich en það verk er
eitt af vinsælustu sinfóníum rúss-
neska meistarans.
Hljóðfæraleikaramir ungu
fluttu verkið mjög glæsilega og
er ljóst af leik þeirra, að stjóm-
andinn, Mark Reedman, hefur
sérlegt lag á því að laða fram
sterka leikræna túlkun, sem ekki
er lítilvægt mál, þegar um unga
og ekki mjög reynda hljóðfæra-
leikara að ræða. Þessir ánægju-
legu tónleikar vitna um að mikil
gróska er í íslensku tónlistarlífi
og að framtíð tónlistar hér á landi
verður í góðum höndum, þar sem
þetta unga fólk er. Béla Bartók
sagði eitt sinn, að er hann tók til
við að semja, hafi honum orðið
Ijóst að sköpun tónlistar yrði að
vera helgaður manbætandi mark-
miðum, annars er hætta á að hið
uppvakta afl fjöldans geti eitrast
og umsnúist í afskræmingu. Tón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar er lýsandi dæmi um það
hversu stórbrotin sú mannfylking
getur orðið, þegar vel tekst til í
vefnaði örlaganornanna. Þarna
gat að heyra hetjuóð eftir Wagn-
er, byggðan á stórbrotinni örlaga-
sögu Niflunga, tónfagran leik í
fíðlukonsert eftir Haydn og stór-
brotið og persónulegt tónaljóð
eftir Schostakovich, flutt af
íslenskum ungmennum undir
stjóm bandaríska fíðluleikarans
og stjómandans, Mark E. Reed-
man. Þetta var því mikil og
stórkostleg veisla.
VÉLAVERSUUN, SfMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Danmörk:
FÆRIBANDA-
MÓTORAR
• Lokaðir,olíu-
kældir
og sjálfsmyrj-
andi
• Vatnsþétting-
IP 66
• Fyllsta gang-
öryggi,
lítið viðhald
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
iHróöleikur og
X. skemmtun
fyrirháa semlága!
Ráðstefna nor-
rænu húsmæðra-
samtakanna í Köge
Jónshúsi.
DAGANA 13. og 14. september
var ráðstefna Norrænu hús-
mæðrasamtakanna haldin í Köge
skammt fyrir sunnan Kaup-
mannahöfn. Ráðstefna sem þessi
er haldin á Norðurlöndunum til
skiptis fjórða hvert ár, en árlega
er samnorrænt húsmæðraorlof
haldið.
Ingiríður drottning, sem er vemd-
ari danska kvenfélagasambandsins,
var viðstödd setningu þingsins, en
þar bauð danski formaðurinn, Anita
Juncker-Jörgensen, gesti velkomna
og formenn hinna norrænu sam-
bandanna fluttu ávörp, þ.á.m.
fráfarandi formaður Norrænu hús-
mæðrasamtakanna, Birgitta Bröckl
frá Finnlandi. Einnig ávörpuðu
gestir frá kvenfélögum í Færeyjum,
Grænlandi, frá Suður-Slésvík,
formaður þýska kvenfélagasam-
bandsin og fulltrúi ACWW, Alþjóða-
sambands sveitakvenna, Hilde
Stewart frá írlandi, sem er forseti
Evrópudeildar ACWW ráðstefnuna.
Þá lék unglingalúðrasveit frá Köge
þjóðsöngva Norðurlandanna.
Alls voru ráðstefnugestir 170
talsins, þar af átta fulltrúar frá
Islandi og bjuggu þeir allir á Hotel
Hvide Hus í Köge. Umræðuefni
fundarins var: „Húsmóðir á síðasta
áratug aldarinnar, hver verður það
og hvernig“. Fjögur erindi voru flutt
er tengjast efninu. Það fyrsta
nefndist „Lífsstíll árið 2.000", sem
Rolf Jensen, forstjóri skrifstofu fyr-
ir framtíðarrannsóknir flutti. Næst
talaði hinn þekkti Sten Hegeler
cand. psyk. um sambúðarvandamál
og vakti mál hans miklar umræður
lengi kvölds. Næsta dag ræddi
Kamma Langberg cand. polit ljár-
hagslega hlið heimilisstarfanna,
sem næsti ræðumaður, Inger Koc-
h-Nielsen cand. jur., vildi kalla
íjölskylduvinnuna. Erindi hennar
bar heitið Kvenhlutverk. Var síðan
unnið í hópum og niðurstöður flutt-
ar í fundarlok.
Borgarstjórinn í Köge, Jörgen
Jörgensen, tók á móti norrænu full-
trúunum í ráðhúsinu í Köge og
sagði sögu staðar og menningar.
Síðara kvöldið var mikil veisla með
skemmtiatriðum og kveðjuávörpum
formanna og annarra gesta. Þá
fóm fram formannaskipti í NHF
Kynningarnámskeið
í PSYKOPRAMA
(Leikræn þerapía)
Girit Hagman geðlæknir og „psykoprama" þera-
pisti ásamt Helga Felixsyni, leiðbeinandi í leik-
rænni tjáningu og „Psykoprama" þerapisti,
verða með helgarnámskeið 27.-28. sept. í Mið-
bæjarskólanum.
Námskeiðið er ætlað t.d. kennurum, starfsfólki á
sjúkrahúsum ásamt þeim sem hafa dagleg sam-
skipti við fólk og vilja kynna sér „psykoprama"
sem vinnuaðferð.
Einnig höfðum við til þeirra sem vilja kynnast
nýjum leiðum til persónuleikaþroska og andlegrar
veílíðunar.
Upplýsingar og innritun f síma 91-18325 fyrir
kl. 12.00 og eftir kl. 18.00.
Ath.: Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Gódan daginn! i
Morgunblaðið/Guðrún L. Ásgeirsdóttir
Frá vinstri: Hilde Stewart, Evrópuforseti ACWW, Svandís Péturs-
dóttir, Akranesi, og María Pétursd+ottir, formaður Kvenfélagasam-
bands Islands.
og tók nú formaður sænsk-finnska landa sínum frá finnska samband-
sambandsins, Birgitta Vikström, inu, Marttaliitto.
erkibiskupsfrú, við embættinu af G.L.Ásg.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum:
Utankj ör staða-
atkvæðagreiðsla
hefstí dag
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
vegna prófkjörs Sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi
hefst í dag kl. 17 og verður ko-
sið á þrettán stöðum í kjördæm-
inu. Auk þess er hægt að kjósa
á skrifstofum Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík og á Akureyri.
Sjálft prófkjörið vegna alþingis-
kosninganna fer fram 11. og 12.
október n.k. Rétt til þátttöku hafa
allir flokksbundnir sjálfstæðismenn
sem búsettir eru í kjördæminu, svo
og þeir sem undirritað hafa stuðn-
ingsyfírlýsingu við flokkinn,
samhliða prófkjörinu og náð hafa
18 ára aldri prófkjörsdagana.
Níu manns hafa gefíð kost á sér
í prófkjörinu. Það em Hildigunnur
Lóa Högnadóttir, verslunarstjóri,
Matthías Bjamason, ráðherra, Olaf-
ur Kristjánsson, skólastjóri, Oli M.
Lúðvíksson, skrifstofustjóri, Þor-
valdur Garðar Kristjánsson, alþing-
ismaður, Einar K. Guðfínsson,
útgerðarstjóri, Guðjón A. Kristjáns-
son, skipstjóri, Guðmundur H.
Ingólfsson, skrifstofustjóri, og
Hallgrímur Sveinsson, bóndi.
Að sögn Engilberts Ingvarsson-
ar, formanns kjömefndar, liggja
kjörskrár frammi hjá formönnum
lq’örstjóma, sem jafnframt veita
allar nánari upplýsingar um próf-
kjörið. Kjörstjómir og formenn
þeirra eru á eftirtöldum stöðum:
Isafjörður: Jens Kristmannsson;
Bolungarvík: Sólberg Jónsson;
Súðavík: Sigurður B. Þórðarson;
Isafjarðardjúp: Benedikt Eggerts-
son; Ámeshreppur Arinbjöm
Bernharðsson; Hólmavík: Ríkharð-
ur Másson; Austur-Barðastranda-
sýsla: Ingi Garðar Sigurðsson;
Patrekshreppur: Hafliði Ottóson;
Tálknafjörðun Jón Bjamason;
Bíldudalur: Hannes Friðriksson;
Þingeyri: Þórir Öm Guðmundsson;
Flateyri: Eiríkur G. Guðmundsson
og Suðureyri: Guðjón Jónsson.