Morgunblaðið - 23.09.1986, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
13
Þroskahjálp frá
ýmsum hliðum
Rætt við Ásgeir Sigurgestsson framkvæmdastjóra
Landssamtökin Þroskahjálp hafa starfað í tíu ár þann
16. október nk. A þessum tíma hafa eðlilega orðið miklar
breytingar bæði á viðhorfum og aðstöðu í þessum málum.
Formaður samtakanna er í dag
Eggert Jóhannesson en fram-
kvæmdastjóri er Ásgeir Sigur-
gestsson. f samtali við
blaðamann Morgunblaðsins sagði
Asgeir að Landssamtökin
Þroskahjálp væru samsett úr 26
aðildarfélögum sem fyrst og
fremst eru foreldra- og styrktar-
félög vangefínna og annarra
þeirra sem búa við fötlun. Auk
þess eru í samtökunum nokkur
fagfélög fólks sem vinnur að
þessum málum, svo sem Félag
íslenskra sérkennara og Félag
þroskaþjálfa.
Tilgangur samtakanna er að
sameina í eina heild þau félög
sem vinna að málefnum fatlaðra,
einkum fatlaðra bama og van-
gefínna, með það að markmiði
að tryggja þeim fulla jafnréttis-
stöðu á við aðra þjóðfélagsþegna.
Samtökin eru fijáls félagasamtök
óháð stjómmálaflokkum og ríkis-
valdinu.
Að sögn Ásgeirs vom samtök-
in stofnuð í þeim megintilgangi
að koma á bættri löggjöf, en
1976 vom í gildi lög um fávita-
stofnanir sem vom afskaplega
takmörkuð. Vom þau að mestu
leyti um starfsemi stofnana sem
þá hétu fávitastofnanir, en það
vantaði lög um aðstoð og þjón-
ustu við andlega og líkamlega
fatlað fólk sem dvaldi í heimahús-
um. Þessi barátta um nýja
lagasetningu var hafín ekki síst
til að tryggja hagsmuni bama
og ungmenna.
Sú barátta bar þann ávöxt að
1979 vom sett á Alþingi lög um
aðstoð við þroskahefta.
Ásgeir gat þess að hugmynda-
fræðin að baki þessarar lagasetn-
ingar hafí verið að fá sem flesta
fatlaða út í samfélagið. Þessi
hugmyndafræði hefur að leiðar-
ljósi að allir eigi sama rétt til
lífsins og þess að njóta sem best
samfélags við annað fólk, að hin-
um fötluðu sé gefíð tækifæri til
að umgangast sem mest, bæði
við nám og störf, þá sem ófatlað-
ir em. Þessum lögum var líka,
að sögn Ásgeirs ætlað að tryggja
fjármagn fyrir þessa þjónustu
sem var raunar lítil allt fram
undir 1980. Sem dæmi um mikla
framför á þessu sviði má nefna
að frá 1980 hefur verið komið á
fót nærri tuttugu sambýlum þar
sem fatlað fólk býr nú saman í
smáum hópum í venjulegum
íbúðum, hér og þar um landið.
Margt af því stundar vinnu á
vemduðum vinnustöðum og
nokkrir vinna út á hinum al-
mennu vinnustöðum.
Árið 1983 voru þessi umræddu
lög felld niður og önnur voru
sett sem tóku til allra fatlaðra.
Þau lög byggja á sömu hug-
myndafræði og lögin frá 1979.
Ásgeir sagði þessi lög hafa ótví-
rætt komið að miklu gagni en
þess bæri að geta að þau hefðu
ekki skilað til fatlaðra því fjár-
magni sem skýrt sé kveðið á um
að þau eigi að gera. Það hefur
valdið fötluðum og öllum þeim
sem vinna að máleftium þeirra
miklum vonbrigðum.
Ásgeir kvað starfsemi Þroska-
hjálpar í stuttu máli á þann veg
háttað að reynt sé að að fylgjast
með hagsmunamálum fatlaðra
og þoka þeim áfram eins og kost-
ur sé. „Við höfum samvinnu við
stjómvöid í þessu starfi," sagði
Ásgeir „T.d. þegar verið er að
setja reglugerðir í þessum mála-
flokki, við reynum að fylgjast
með því sem er að gerast á þessu
sviði erlendis og flytja inn góðar
hugmyndir. Við erum í þessu
sambandi aðilar í NFPU, sem eru
norræn foreldrasamtök vangef-
inna og gefum út tímaritið
Gistiheimili Þroskaþjálpar að Melgerði 7 I Kópavogi.
Mynd af nokkrum smáritom sem ÞroskaJþjálp gefur út.
Þroskahjálp, sem kemur út fjór-
um sinnum á ári. Við reynum
einnig að miðla upplýsingum til
aðstandenda fatlaðra með smá-
ritum, t.d. gáfum við út nýlega
bæklinginn „í hnotskum" sem
fjallar um réttindi og þjónustu
við fatlaða. Slík upplýsingarit eru
fáanleg á skrifstofu Þroskahjálp-
ar í Nóatúni 17.
Ásgeir gat þess einnig að Sam-
tökin Þroskahjálp rækju gisti-
heimili í Melgerði 7 í Kópavogi
þar sem fólk utan af landi gæti
fengið inni t.d. meðan það væri
hér á höfuðborgarsvæðinu með
böm sín til rannsóknar eða með-
ferðar. Ásgeir sagði einnig að sl.
tvö ár hefðu 50 til 60 manns
unnið að því að semja stefnuskrá
fyrir samtökin. Hefði það verið
mikið verk sem lauk með því að
stefnuskráin kom út í vor. Nú
lægi því í fyrsta skipti fyrir heild-
arstefnuskrá í málefnum fatlaðra
og yrði það vafalaust ómetanleg
aðstoð við starfíð.
Að lokum sagði Ásgein „Pen-
inga fáum við fyrst og fremst
með þvi að gefa út listaverka-
almanak, í góðri samvinnu við
félagið „íslensk grafik". Auk
þess fáum við aðildargjöld og
ofurlítinn styrk frá ríkinu."
GSG
691140
691141
Með emu simtali er hægt að breyta
mnheimtuaðferdinni. Eftir þad verda
askriftargjoldin skuldfærd a viðkom-
andi greidslukortareikning manadar-
lega.
VERIÐ VELKOMIN
í GREIÐSLUKORTA-
VIÐSKIPTI.
QkutHcm frá LANCIA
----/------------/--------------/—/
TISKUBILLINNIAR!
Það er bjart framundan hjá kaupendum smábíla, því nú er kominn á markaðinn stórskemmtilegur lítill bíll, sem
á ekkert sameiginlegt með öðrum smábílum nema stærðina.
SKUTLAN er framleidd af hinum þekktu LANCIA verksmiðjum, sem hingað til hafa einbeitt sér að framleiðslu
stórra og vandaðra luxusbíla og sportbíla.
Hún er 5 manna „lítil að utan — en stór að innan“ og býður upp á áður óþekkt þægindi og íburð í bílum af
þessari stærð. SKUTLAN er flutt inn af Bílaborg h/f. Það tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.
SKUTLAN kostar frá aðeins
288.000 krónum. gengisskr. 2.9.86
BÍLABORG HF.
Smiðshöföa 23sími 6812 99
.itoriafiíiLuTJ .j\ TSfli
Alm. auglst./SÍA