Morgunblaðið - 23.09.1986, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
15
af tannlæknum að halda því fram
að samninganefnd TR hafi ekki
gefið skýringar á ákvörðun sinni.
Er þar meðal annars tekið fram,
að nýjar upplýsingar um uppbygg-
ingu tannlæknagjaldskrár Svía
bendi til þess að virkur starfstími
tannlækna sé mun lengri en tann-
læknar hafa haldið fram á samn-
ingafundum.
Þó að undirritaður hefði kosið
að draga að gera opinberlega sam-
anburð á upplýsingum tannlækna
og nýgerðrar skýrslu sem borist
hefur frá Svíþjóð, þar til endanleg
athugun á henni hefur farið fram,
tel ég ekki hjá því komist að nefna
dæmi til að skýra af hveiju samn-
inganefnd TR óskar eftir nánari
skoðun á málinu.
Samkvæmt einhliða gjaldskrá
tannlækna er gert ráð fyrir að tíma-
vinnugjald tannlæknis sé kr. 2.880,
en sérfræðings kr. 4.032. Sé miðað
við sömu virkar vinnustundir og
Svíar virðast gera ráð fyrir, þ.e.
1.725 klst. á ári, yrðu brúttótekjur
almenns tannlæknis kr. 4.918 þús.,
en sérfræðings kr. 6.955 þús., en
sé miðað við 1236 klukkustundir
eins og gert var ráð fyrir í samn-
ingaumræðum að fengnum upplýs-
ingum tannlækna, væru brúttótekj-
ur almenns tannlæknis kr. 3.560
þús., en sérfræðings kr. 4.984 þús.
Tekið skal fram að tannlæknar
munu telja rekstrarkostnað tann-
læknastofu á núgildandi verðlagi
nema um kr. 3 millj. á ári. Það
skiptir því miklu máli hvað reynist
rétt varðandi virkar vinnustundir
tannlækna.
Það skal viðurkennt að í raun
er óveijandi að ekki skuli hafa ver-
ið betur könnuð slík grundvallarat-
riði, sem að ofan greinir, en
samninganefnd TR telur sér það til
afsökunar að slíkar athuganir hafa
heldur ekki farið fram hjá nágrönn-
um okkar Dönum. Vill samninga-
nefndin að úr þessu verði bætt og
því lagði hún það til á samninga-
fundi 20. ágúst sl. að samkomulag
yrði gert um að greiðslur færu fram
í samræmi við gjaldskrá heilbrigðis-
ráðherra og samkvæmt eyðublöðum
Tryggingastofnunarinnar fram til
loka nóvember og að fulltrúar
samninganefndanna kynntu sér
grundvöll gjaldskráa á öðrum Norð-
urlöndum og annars staðar, þar sem
grundvöllur væri fáanlegur. Þessu
var alfarið hafnað af samninga-
nefnd TFÍ.
Um hvað er deilt?
Tannlæknar vilja að greitt sé
samkvæmt þeirra eigin gjaldskrá,
sem ég áætla að eigi að færa þeim
brúttó árstekjur að Qárhæð kr.
3.560 þús. til kr. 6.955 þús. eftir
því hversu margar vinnustundir
þeirra eru virkar og hvort þeir eru
sérfræðingar eða ekki. Gjaldskrá
heilbriðisráðherra, sem lög fyrir-
skipa að farið sé eftir, gerir hins-
vegar ráð fyrir að tímagjald sé kr.
2.700, en sérfræðings kr. 3.780.
Yrðu brúttó árstekjur tannlækna
samkvæmt sömu forsendum á bil-
inu kr. 3.337 þús. til kr. 6.520 þús.
Mismunur á gjaldskrám þessum
nemur samkvæmt þessu frá kr. 223
þús. til kr. 435 þús. á ári.
Það liggur hins vegar fyrir að
tannlæknar krefja sjúklinga utan
sjúkratryggingakerfisins um fulla
greiðslu og sé sú fullyrðing tann-
lækna rétt, að aðeins 15% tann-
læknaverka sé unnin fyrir
sjúklinga, sem njóta endur-
greiðslna, nemur tap þeirra aðeins
frá kr. 33 þús. til kr. 65 þús. eða
0,92% af árstekjum þeirra.
Tannlæknar, er ekki ástæða til
að staldra við?
Höfundur er hæstnréttarlögmað-
ur, löggiltur endurskoðandi og
formaður samninganefndar
Tryggingastotnunar ríkisins.
Hlaut styrk frá Kanadísku
raunvísindastofnuninni
ÞURÍÐI Jónsdóttur sálfræðingj
var fyrir skömmu veittur styrkur
frá Kanadísku raunvísindastofn-
uninni (NSERG) til þess að vinna
að doktorsritgerð. Hún hefur
þegar lokið tveggja ára kandid-
atsnáni i sálarfræði við Acadia
University í Wolfville i Nova
Scotia og fjallar hún um þann
hóp alkóhólista, sem eiga auk
alkóhólisma við ákveðinn geð-
sjúkdóm að stríða. Var ritgerðin
valin til flutnings á ársþingi
kanadiskra sálfræðinga í Tor-
onto, þar sem Þuriður flutti hana
i júní.
Þuríði Jónsdóttur hefur verið
boðin innganga í doktorsnám í
taugasálfræði og taugalífeðlisfræði
við Dalhousie University í Halifax
í Nova Scotia. Hún er gift Gylfa
Baldurssyni heymarfræðingi og
eiga þau fímm böm.
Þuríður Jónsdóttir
r
ASEA
rafmótorar
^önnng^.
Nú eru ASEA rafmótorar í næsta nágrenni viðskiptavina sinna: —
AUSTURLAND: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
VESTMANNAEYJAR: Geisli, Vestmannaeyjum.
SUÐURNES: Rafiðn, Keflavík
VESTFIRÐIR: Póllinn, ísafirði
NORÐURLAND: Raftækni, Akureyri.
Sölumenn okkar veita frekari upplýsingar ef óskað er.
.JÍ'RÖNNING
Sundaborg,
Simi 84000
FRAM
Leiðbeinendur: — — ' ' ZZ
TOLVUS KOLI
Eiríkur Porbjörnsson,
tæknifræöingur
Krístján Gunnarsson,
verkfræöingur
Björn Viggósson,
tæknifræöingur
Tölvuvæðing fyrirtækja
Hefur þú hugleitt hvað það kostar fyrirtæki þitt að tölvuvæðast?
Hve mikið greiðir þú fyrir færslu bókhalds?
Hvað eru niðurstöðurnar gamlar þegar þú færð þær í hendurnar?
Veistu að það er ódýrara að hafa hlutina í lagi?
Námskeiðið Tölvuvæðing fyrirtækja er ætlað öllum þeim sem hugleiða tölvu-
kaup. Kynntur verður vél- og hugbúnaður fyrir einkatölvur en á því sviði hafa
átt sér stað byltingakenndar framfarir.
Farið er vandlega yfir þau fjölmörgu atriði sem þarf að taka með í reikninginn
við tölvuvæðingu.
Efni: Hvaða hugbúnað þarf?
Kynntur verður samhæfði hugbúnaðurinn STÓLPI sem hentar flestum
gerðum fyrirtækja s.s. iðnaðarfyrirtækjum, verktökum, þjónustufyrirtækj-
um, prentsmiðjum, bókaútgáfum, heildverslunum, verslunar-, fjölmiðla-
og ráðgjafafyrirtækjum. Helstu þættir hans eru:
* Fjárhagsbókhald * Skuldunautabókhald
* Lánadrottnabókhald * Launakerfi
* Birgðakerfi * Verkbókhald
* Sölunótukerfi * Tilboöskerfi
Kynntur verður annar hliðstæður búnaður, algeng ritvinnslukerfi, gagna-
safnskerfi og töflureiknar.
Hvaða vélbúnað þarf?
Hér er gefið yfirlit yfir allar þær fjölmörgu tölvur sem eru á boðstólnum
og eru farið í þau atriði sem máli skipta við val á vélbúnaði.
Hvað kostar tölvuvæðingin?
Farið er í alla helstu þætti stofnkostnaðar, rekstrarkostnaðar og byrjunar-
kostnaðar en mjög algengt er að slíkir hlutir gleymast þegar fyrirtæki
tölvuvæðast.
Með góðum undirbúningi og róttu vali á tækjum og búnaði geta fyrirtæki sparað bæði
fé og fyrírhöfn. Þetta námskeið er þvf peningana virði auk þess sem þátttakendur
öðlast rétt á ókeypis kaupendaráðgjöf Tölvuskólans FRAMSÝN.
Staður: Tölvuskólinn FRAMSÝN, Síðumúla 26,
símar 91-39566 og 919-687434
Tími: 1. námskeið 25.september kl. 18:00—22:00
2. námskeiö 27.september kl. 13:00—17:00
3. námskeiö 2. október kl. 8:30—12:30
"vartu &
föstu
Thorsmans vörur til festingar fást í sérverslunum ásamt leiðbeiningarbæklingi.