Morgunblaðið - 23.09.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
17
ELDHÚSKRÓKURINN
Jarðarber
Hér í eina tíð voru jarðarber aðeins ein þeirra berjategunda
sem tindar voru úti í náttúrunni i skjóli skóganna. En frá því á
18. öld hafa berin verið ræktuð, og í dag eru til rúmlega 1.000
afbrigði, sem öll eru lostæti. Hér á landi hafa margir ræktað
jarðarber í görðum sinum með góðum árangri, en aðallega eru
á markaðnum innflutt ber, viða að.
Þótt nú sé jarðarbeijauppskeran erlendis víðast hvar á enda,
ættu innlendu berin að vera þroskuð, og langar mig því að
koma með uppskriftir með jarðarbeijum. Flestir þekkja
.jarðarber með ijóma“ og jarðarbeijasultu, en berin eru einnig
mjög ljúffeng ef þau eru notuð í kökur, ábætisrétti, eða í
kjúklingasalat eins og þetta:
Jarðarberja-
kjúklingasalat
Fyrir 4
2—3 kjúklingabringur, 'h haus
ísbergs-salat, 250 gr jarðarber,
125 gr nýir sveppir, 'U rauð papr-
ika, 1 skalotte-laukur, pipar +
kryddsalt, 3 matsk. vínedik, 2
matsk. ólífuolía.
Steikið bringumar í smjöri og
kryddið með smjöri og kryddsalti.
Skolið og þurrkið salatið og sker-
ið í strimla. Skolið sveppina og
jarðarberin og skerið í skífur.
Skerið paprikuna og laukinn í litla
ferninga.
Salatinu deilt á 4 diska, og öllu
hinu ofan á. Að síðustu sæmilega
heitum kjúklingabitum raðað efst
og safanum af pönnunni hellt yfir.
Kryddlögur búinn til úr vínediki
og olíu og dreift yfir í lokin. Borð-
að með ristuðu brauði og smjöri.
Gómsæt j arðar-
beijarúlla
4 eggjarauður, 100 gr sykur, 1
tsk. vanillusykur, 4 matsk. sjóð-
andi vatn, allt hrært saman þar
til ljóst og létt. Þá er bætt út í
varlega stífþeyttum hvítunum,
100 gr hveiti, 25 gr maisenamjöli
og 'h tsk. lyftidufti.
Deigið bakað á bökunarplötu,
sem er klanld með smjörpappír
smurt með smjöri eða bökunarolíu
(Spray Pam eða Cooky).
Bakað í 220° heitum ofni í um
8—10 mínútur. Kökunni hvolft
strax á sykristráðan bökunar-
pappír, smjörpappírinn tekinn af
botninum, og kökunni rúllað upp.
Ágætt að bregða stykki utan um
hana meðan hún kólnar.
Fylling: 2 pk. þeytiijómi þeyt-
ist þar til vel stíft, blandið þá
saman við 'h dós af jarðarberja-
jógúrt, aðeins sykri, og um 10
stórum jarðarbeijum, skorin í litla
bita. ■'U af fyllingunni smurt á
kökuna og jarðarbeijabitunum
raðað yfir, kakan vafín saman og
afganginum af fyllingunni smurt
ofan á.
Skreyting: Búið til rósir og
slaufu úr 50 gr marsipan (Rá
marsipan) sem hnoðast með 25
gr af flórsykri og rauðum matar-
lit. Loks er hálfum jarðarbeijum
raðað á kökuna (sjá mynd).
Jarðarbeijakökur
— „múffins“ — í
pappírsf ormum
150 gr smjör eða smjörlíki, 2
dl sykur, 250 gr hveiti, U/2 dl
mjólk (má vera súij, 2 tsk. lyfti-
duft. Smjörið hrært með sykrinum
þar til ljóst og létt. Eggjum bætt
út í. Hveiti blandað með lyftidufti
hrært út í til skiptis með mjólk-
inni. Deigið látið í pappírsform
og bakað við meðalhita.
Skreyting: Glasúr, jarðarber
og marsipan.
Hrærið glasúr úr flórsykri og
vatni. Látið kakó í helminginn og
vanilludropa í hinn helminginn.
Penslið glasúr á kökurnar meðan
þær eru enn volgar.
Hnoðið 25 gr af marsipan-
massa með 2 sléttfullum matsk.
af flórsykri og grænum matarlit.
Fletjið út í þunna plötu og skerið
út laufblöð og stilka.
Látið 'h jarðarber á hveija
köku og skreytið með marsipan
(sjá mynd). Þessar kökur eru upp-
lagðar í saumaklúbbinn, og
auðvelt að baka þær. Gangi ykkur
vel.
P.S.
Þakka kærlega öll bréfin varð-
andi „Fíl í pilsi“. Sniðin hafa verið
póstlögð, og annað leikfang kem-
ur í október.
Með kveðju,
Jórunn
Viltu fá
mikio
fyrir lítið?
Gallabnxur stærðir 6—16 verð kr. 825v-
Úlpur m/hettu stærðir
6-8-10-12-14 mjög gott verð
Jogging-gallar margir litir verð kr. 890—950
Haskólabolir stærðir 2—14 verð 550,-
Glansbolir m/mynd verð 740,-
Stuttermabolir m/mynd verð 340,-
Barnapeysur frá kr. 290,-
Gammósíur stærðir O—16 verð frá 190,-
Gallabuxur verð kr. 995,- — 2300,-
Kvenbuxur stærðir 25—32 kr.
1.050,-
íþróttasokkar kr. 69,-
Þunnir kvenjakkar kr. 595,-
V innuskyrtur stærðir 38—44 kr.
535,-
Peysur í miklu úrvali s-m-1 verð
frá 740,-
Þykkir herra-mittisjakkar kr.
2.400,-og 2.990,-
Handklæði kr. 145,- til 238,-
Sængurverasett með myndum kr.
840,-
Lakaléreft 240 cm á breidd kr.
222,- pr. m
Lakaléreft 140 cm á breidd kr.
140,-pr. m
Sængurveraléreft 140 cm á breidd
kr. 155,-
Viskastykki kr. 67,-
Pólóskyrtur verð kr. 690,-
Ódýra
hornið
Mikið úrval af fatnaði í
ódýra horninu. Alltá
100 kr.
Greiðslukortaþjónusta
Opið frá 10.00—18.00
Föstudaga 10.00—19.00
Laugardaga 10.00—16.00
Vöruloftið
V/SA
SIGTUNI 3, SÍMI 83075.
/