Morgunblaðið - 23.09.1986, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Bjónnn og fulltrú-
ar gamla tímans
eftír Árna Einarsson
20. ágúst sl. birti Morgunblaðið
viðtal við Helga Gunnlaugsson
nokkum. Þó e.t.v. sé ekki hægt að
halda því fram að þar séu mikil
sannindi á ferð er viðtalið á sína
vísu merkilegt. Einfaldanir Helga
(eða blaðamannsins) eru slíkar að
varla verður betur að gert þó að
slík málsmeðferð sé reyndar algeng
þegar áfengismál íslendinga ber á
góma.
Bjór og réttlæti
Helgi heldur því fram að það sé
„almenn skoðun að bjórbannið
sé ekki rökrétt vegna þess að við
leyfum sterkara áfengi“.
Aðferðafræðileg nægjusemi
„þjóðfélagsfræðingsins" er mikil. A
hverju byggir hann þessa fullyrð-
ingu? Mér vitanlega heffur engin
könnun verið gerð hér á landi þar
sem þetta kemur fram. Hugsanlega
leggur þjóðfélagsfræðingurinn
„skrifelsi" fólks í blöðum og timarit-
um til grundvallar þessari fullyrð-
ingu. Sá mælikvarði er þó hæpinn
og gefur ekki tilefni til alhæfínga.
En lítum aðeins á þessi rök sem
fylgjendur bjórs, utan þings og inn-
an, réttlæta gjaman afstöðu sína
með: Að rökleysa sé að leyfa ekki
bjór en selja sterkara áfengi. í raun
kemur þetta atriði málinu ekkert
við hvort sem litið er á það sem
réttlætismál eða heilbrigðismál. Nú
er áfengi selt hér í formi léttvína
og brenndra vína og fyrir liggur
að neysla þess veldur verulegu tjóni.
Mestu skiptir að draga úr því tjóni.
Helsta leiðin til þess virðist vera
að draga úr neyslunni eða a.m.k.
láta hana ekki aukast. Enginn hef-
ur getað sýnt fram á að áfengis-
neysla hérlendis muni minnka við
það að hér sé seldur bjór. Þvert á
móti bendir reynsla annarra þjóða
til að hún muni aukast og um leið
tjónið af hennar völdum. Það er
verið að leitast við að draga úr
vandamálum vegna áfengisneyslu
en ekki auka þau. Ef menn vildu
skipta á bjór og t.d. brenndum
vínum væm komin skynsamlegri
rök en nú er beitt af hálfu bjórvina
þar sem ný gerð áfengis hefur ætíð
orðið til þess að auka áfengisneyslu
Stjórnmálamenn
margra þjóða eru á
milli tveggja elda. Allar
nefndir og sérfræðing-
ar, sem vinna að fíkni-
efnavarnarmálum,
leggja til að dregið
verði eftir föngum úr
neyslu áfengis. Enginn
slíkur aðili hefur gert
þvi skóna að leyf i til
bjórsölu leiddi til slíks.“
(s.s. milliölið í Svíþjóð 1965—1977
og lögleyfíng bjórsölu í Finnlandi
1969 og sterkt áfengi á íslandi
1935).
Gamli tíminn
Helgi kemst að þeirri niðurstöðu
að það séu „fulltrúar gamla
tímans sem komi í veg fyrir að
bjórbanninu sé aflétt“.
Hinir eru þá væntanlega fulltrúar
nýja tímans eða framtíðarinnar.
Það er vitanlega smekksatriði að
flokka fyrirbæri f gömul og ný en
þegar hugmyndir og mannleg
breytni er annars vegar er þó stað-
ið á sérlega hálum ís. Því er jafnvel
stundum haldið fram að í þeim efn-
um sé ekkert nýtt, aðeins tilbrigði
við foma speki.
Undanfarin ár hefur gætt mikill-
ar undanlátssemi gagnvart áfengis-
framleiðendum og áfengissölum hér
á landi eins og víða annars staðar.
Ýmsar tilslakanir hafa verið gerð-
ar, s.s. §ölgun útsölustaða ÁTVR,
Qölgun annarra dreifíngarstaða
áfengis og heimild til einkafram-
leiðslu áfengis. Samhliða þessu
hefur heildameysla áfengis farið
stöðugt vaxandi. Um það telur
nefndur Helgi þó „rétt að efast".
Til þess hefur hann vitanlega fullan
rétt en ég bendi honum þó á að
kynna sér sölutölur frá ÁTVR. Fyr-
ir hefur komið að áfengisneysla
hefur minnkað á milli ára, nú síðast
milli áranna 1984 og 1985. En sé
litið á lengra tímabil hefur stöðug
aukning átt sér stað frá 1920 en
hefur hægt á sér síðustu 10 árin
eða þar um bil. Rétt er að ýmislegt
fleira hefur áhrif á heildameyslu
áfengis en aðgengi eins og getið
er um í viðtalinu, þar á meðal kaup-
máttur ráðstöfunartekna.
Saman hefur farið aukin heildar-
neysla áfengis, ijölgun fullorðinna
neytenda, aukin og almennari
áfengisneysla meðal bama og ungi-
inga og aukin neysla annarra
vfmuefna. En neysia þeirra efna er
nátengd áfengisneyslunni og bar-
átta gegn þeim er hjóm eitt ef
áfengi er undanskilið.
Framtíðin og
vilji almennings
Mörgum ofbýður þessi öfugþróun
og hyggja þeir því eðliiega að fram-
tíðarmarkmiðum í vímuefnamálum.
Framsýnu fólki, sem leyfír sér í
samkeppnis- og auðhyggjusamfé-
lagi aið vinna að velferðar- og
manngildismálum í stað þess að
skara eld að eigin köku, þykir tíma-
bært að spyma við fótum, að hyggja
að framtíðinni. Sumt af þessu fólki
situr á Alþingi. Framtíðarspá hlýtur
að miðast við þróun og reynslu í
fortíðinni. Eða aðhyllist sumt fólk
enn véfréttar- og krystalskúlufyrir-
komulagið?
Stjómmálamenn margra þjóða
eru á milli tveggja elda. Allar nefnd-
ir og sérfræðingar, sem vinna að
fíkniefnavamarmálum, leggja til að
dregið verði eftir föngum úr neyslu
áfengis. Enginn slíkur aðili hefur
gert því skóna að leyfi til bjórsölu
leiddi til slíks. Á hinn bóginn virð-
ast margir ofurseldir því sem
„virðist vera vi(ji almennings“ en
gegn honum fínnst Helga að stjóm-
máiamenn eigi aldrei að breyta.
Þingmenn hafa því komist í nokk-
um vanda vegna bjórsins og kjósa
sumir að fara undan í flæmingi.
Að hafa vit fyrir fólki
Helgi er sannfærður um að þing-
menn taki sönsum og fari að lokum
að vilja almennings. Samkvæmt þvi
sitja þar einungis auðmjúkir þjónar
okkar, ætíð tilbúnir að festa í lög
þrár okkar og óskir, aldeilis frábitn-
ir því að hafa vit fyrir fólki. En
Tilraunir til að draga úr vandamáium vegna neyslu áfengis hljóta
m.a. að felast í þvi að draga úr drykkju.
hver er nú reyndin? Var það sam-
kvæmt vilja almennings í landinu
að þingmenn stóðu að lækkun ráð-
stöfunartekna í landinu? Var afnám
verkfallsréttar á óskalista verka-
lýðsins í landinu? Vilja allir fiski-
menn og bændur búa við þau „boð
og bönn“ sem „kvótaskiptingin" er?
Og fleira mætti upp telja.
Þingmenn em vissulega kjömir
til að hafa „vit fyrir okkur“. Hvort
það „vit“ fellur okkur í geð eða er
okkur happadiýgst er reynslunnar
að skera úr um. Þingmaður, sem
aldrei hættir á það en kýs að sveifl-
ast í blindri hlýðni eftir því „sem
virðist vera viíji almennings", er
einskis virði.
Ef þingmenn em einungis til
þjónkunar hagsmunum sundur-
leitra kjósenda er eðlilegt að spyija
hvort einkahagnaðarvon þeirra sem
ætla sér að auðgast á bjórfram-
leiðslu og sölu eigi sér umboðsmenn
á þingi? Þann möguleika ræðir
Helgi ekki í viðtalinu.
Verkamenn og
brennivín
Að draga fram röksemdir í þá
vem að aðgengi að veiku áfengi sér
sérlega hættulegt fyrir verkamenn
er harla broslegt. Sjálfstæðisbar-
átta og áfengisdrykkja þykir fara
illa saman og því varð bindindi hluti
af verkalýðsbaráttu fyrri tíma og
þjóðemisbiýningu ungmennafélag-
anna. Þeim sem sætta sig við að
vera leiksoppar alþjóða markaðs-
afla kunna að þykja þær hugmyndir
tormeitar og jafnvel hugtakið
„sjálfstæði" gamaldags.
Áróður og
áfengisneysla
Trú Helga á það að stöðugur
áróður gegn áfengi hafí í för með
sér að íslendingar drekki þjóða
minnst í Evrópu og Ameríku er í
stíl við önnur sjónarhom hans í við-
taiinu. Ég efast um að hann geti
lagt fram einhvem samanburð á
áróðri gegn áfengisneyslu á milli
ianda eða sýnt fram á hvert sé hlut-
fallið í milli áróðurs gegn og fyrir
neyslu áfengis. Aróður fyrir neyslu
er hér mikill, ekki síst í þá vem að
gera þá sem vinna gegn neyslu
áfengis tortryggilega. Nærtækasta
skýringin á lítilli áfengisneyslu hér
á landi samanborið við önnur lönd
er að hér er ekki seldur áfengur
bjór. Ef bjómeysla er ekki tekin
með í heildameyslu áfengis em
margar þjóðir með minni neyslu en
íslendingar (sjá grein mína í Mbl.
29. apríl 1986).
Fleira mætti benda á f umræddu
viðtali en hér skal látið staðar num-
ið. Fuliyrðingar Helga í viðtalinu
geta vafalaust gengið sem gaman-
mál í „partýum" þegar ekki skiptir
lengur hvað sagt er. En fræðilegar
em þær ekki og vísindalegar enn
síður.
Höfundur er fuUtrúi hjá Áfengis-
vamaráði.
Torfi Ólafsson:
Af gömlum blöðum
Fjórar vasabrotsbækur frá FOUNT
C.S. LEWIS: Present Concerns
— Ethical Essays
Walter Hooper vinnur baki
brotnu að því að safna saman grein-
um og ritgerðum eftir C.S. Lewis
úr hinum og þessum tímaritum og
blöðum og gefa þær út. Nokkur
slík ritgerðarsöfn hafa þegar birst
í vasabrotsformi á vegum FOUNT-
útgáfunnar og nú nýskeð birtist enn
eitt þessara ritgerðarsafna með 19
ritgerðum eftir hinn ágæta höfund.
Eins og undirtitiliinn segir til um,
fjalla þessar ritgerðir aðallega um
siðræn viðhorf í daglegu lífí manna,
svo sem nauðsyn riddaramennsku,
jafnrétti, þrennskonar fólk, lýðræð-
islegt uppeldi og menntun, kynferð-
ismál í bókmenntum og þar fram
eftir götunum. Engin von er til
þess að allir verði Lewis sammála
í öilu en þessar snjöllu ritgerðir
vekja lesandann óhjákvæmilega til
umhugsunar og afstöðu, ýmist með
eða móti viðhorfum höfundar.
TREVOR HUDDLESTONE: I
Believe — Reflections on the
Apostle’s Creed. Þessi bók fjallar
eins og nafnið bendir til, um postul-
legu trúaijátninguna. Þetta eru 25
stuttar hugleiðingar, hver um sitt
atriði trúaijátningarinnar, sem höf-
undurinn flutti í dagskrá BBC til
útlanda og tók hver hugleiðing að-
eins fímm mínútur. Huddlestone
boðar undansláttarlausan kristin-
dóm og efast t.d. ekki um meyjar-
fæðinguna. Hann þjónaði lengi í
Suður-Afríku og skrifaði eftir það
bókina Naught For Your Comfort
og fordæmdi í henni kynþáttaað-
skilnaðinn og harðneskju þá sem
hinir þeldökku voru og eru beittir.
Hann hefur nú látið af störfum sem
erkibiskup fyrir aldurs sakir en
berst áfram ótrauður fyrir afhámi
kynþáttamisréttis í heiminum.
ADRIAN HASTINGS: In The
Hurricane — Essays on Christían
Living Today. Höfundur þessarar
bókar er prófessor í guðfræði við
háskólann í Leeds. Hann tilheyrir
ensku biskupakirkjunni og starfaði
lengi í Uganda og Zimbabwe, áður
en hann fluttist til Englands. Hann
kemur víða við í þessari bók, ræðir
um kaþólska menn og mótmælend-
ur, Pál postula og einingu kristinna
manna, páfadæmið, lög og reglu,
endurbætur á prestembættinu, von
O g nýjum
og bjartsýni, svo að nokkur af við-
fangsefnum hans séu nefnd.
Honum fínnst eins og kristnir menn
séu staddir mitt í fellibyl sem eng-
inn veit hvað brýtur niður og hvað
kemst út úr honum óskaddað. Göm-
ul form eru ekki lengur örugg, ef
til vill ganga kaþólskir og mótmæ-
lendur senn að sameiginlegri
kvöldmáltíð, ef til vill fá prestar
brátt að kvænast og ef til vill verð-
ur farið að vígja konur til prests-
þjónustu og þótt við vitum ekki
enn, hveiju fellibylurinn byltir,
finnst honum engu að síður ástæða
til bjartsýni.
MOTHER TERESA - Contem-
platíve at the Heart of the World
(In the Heart of the World, stend-
ur nú reyndar á títilblaðinu).
Bróðir Angelo Devananda hefur
tekið saman þessa bók. Fyrri hluti
hennar miðar að því að kynna fyrir
lesandanum líf og andleg viðhorf
Móður Theresu en síðari hluti henn-
ar eru kaflar úr ritum hennar og
ræðum, t.d. úr stofnskrá þeirri sem
hún samdi reglu sinni, útskýringum
á henni, ræðum hennar meðal systr-
anna svo og úr bréfum hennar til
þeirra. Óþarft er að taka það fram
að mælikvarði Móður Teresu er
kærleikurinn, trúmennska manns-
ins við Guð markast af því hversu
vel hann rækir þetta höfuðboðorð
kristninnar sem fylgjendum Meist-
arans hefur svo oft og rækilega
tekist að gleyma.
________Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild
Skagfirðinga
Bridsdeild Skagfírðinga er nú
að he§a vetrarstarfíð. Spilað verð-
ur áfram á þriðjudagskvöldum
með óbreyttu fyrirkomulagi frá
sumarbridsi.
Þriðjudaginn 23. sept. verður
spilað í Sóknarsalnum, Skipholti
50A (sama stað og sumarbrids
Bridssambands Reykjavíkur var
nú seinni part sumarsins).
Er þetta vegna viðgerða á fé-
lagsheimili okkar, Drangey.
Væntanlega mun barometer byija
7. okt. og verður byijað að skrá
í þá keppni á þriðjudaginn.
Sérstaklega mun verða vandað
til verðlauna í vetur f tilefni af
50 ára afmæli Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík.
Bridsfélag
Kópavogs
Sl. fímmtudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur og urðu úr-
slit eftirfarandi:
Ragnar Bjömsson
— Sævin Bjamason 250
Bemódus Kristinsson
— Þórður Bjömsson 246
Gunnar Sigurbjömsson
— Guðm. Gunnlaugsson 243
Ingvaldur Gústafsson
— Þröstur Ingimarsson 239
Sigurður Siguijónsson
— Júlíus Snorrason 226
Meðalskor 210.
Fimmtudaginn 25. sept. hefst
Barómeterkeppni hjá félaginu.
Hægt er að skrá þátttakendur í
síma 41794 (Gróa). Spilað er í
Þinghól, Hamraborg 11 og hefst
spilamennska kl. 19.45. Spila-
stjóri er Hermann Lámsson. Nýir
spilarar ávallt velkomnir.
Bridsdeild Húnvetn-
ingafélagsins
Vetrarstarfíð hefst 1. október
nk. í Skeifunni 17. Spilaður verð-
ur tvímenningur. Skráning fer
fram í síma 75377 (Ólafur).