Morgunblaðið - 23.09.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Eldvarnavika í Reykjavík 21. til 28. september
Eldvamir
Eftir Hrólf
Jónsson
Vegna 200 ára afmælis
Reykjavíkur ákvað slökkvilið
Reykjavíkur að halda eldvamarviku
í borginni. Tilgangurinn er að vekja
athygli borgar — búa á eldvömum
í heimahúsum. í tileftii þessa er
greinin skrifuð.
Því miður er það svo að allt of
margir hugsa sem svo, „það kvikn-
ar bara í hjá náunganum, ekki
mér. Þess vegna meðal annars eru
margir illa undir það búnir að ta-
kast á við eldinn, þegar kviknar í.
Það er hægt að líta á eldsvoða
sem eitt af náttúrulögmálunum.
Það verður aldrei hægt að útrýma
eldsvoðum, einfaldlega vegna þess
að í umhverfi mannsins og daglegu
lífi, er allt sem til þarf, svo að
kvikni í. Til að eldur kvikni þarf
að sjálfsögðu brennanleg efni. Af
slíku er nóg í umhverfi okkar. Þá
þarf eldurinn súrefni til að nærast
á. Þriðji þátturinn sem þarf að vera
fyrir hendi er hiti. Það er því hiti
sem kemur eldsvoða af stað. Nán-
ast alls staðar þar sem hiti myndast
getur því kviknað í. Ef að er gáð
er um ótrúlega marga staði að
ræða.
Það er að sjálfsögðu hlutverk
slökkviliðsins að slökkva eld. En
það er mikilvægt að sem flestir viti
hvemig þeir eiga að bregðast við
ef þeir uppgötva eld. Tíminn, frá
því að slökkviliði berst tilkynning
um eld og þar til það kemur á stað-
inn, þarf að notast rétt af þeim sem
á staðnum em. Eins skulum við
gera okkur grein fyrir því að flestir
eldsvoðar byija smátt og em því
viðráðanlegir í upphafi, þeim sem
vita hvemig bregðast skal við.
Dagana 21,—28. september býð-
ur slökkviliðið almenningi að koma
í heimsókn á Slökkvistöðina á milli
kl. 16.00 og 19.30. Bæði til að fræð-
ast um starfsemi liðsins og eins að
afla sér þekkingar og upplýsinga
um rétt viðbrögð. Það er ekki auð-
velt að gefa almenningi tæmandi
upplýsingar um rétt viðbrögð í
blaðagrein. Þó verða nokkrar leið-
beiningar gefnar hér. Rétt viðbrögð
em í þessari röð: 1. Aðvarið og
bjargið fólki. 2. Hringið á slökkvilið-
ið. 3. Reynið að slökkva eða hindra
frekari útbreiðslu eldsins.
í að aðvara og bjarga fólki felst:
Að vekja sofandi fólk, hjálpa böm-
um út og þeim sem ekki komast
það af sjálfsdáðum. Eins að aðvara
þá sem hætta getur stafað af eldin-
um og aðra íbúa hússins. I sumum
tilvikum getur verið nauðsynlegt
að beijast strax við eldinn. Það felst
í einföldum, skjótum aðgerðum eins
og að loka hurðum og hindra út-
breiðslu eldsins. Böm verða oft svo
hrædd í eldsvoða að þau fela sig í
stað þess að forða sér.
Þegar hringt er í slökkviliðið er
nauðsjmlegt að gefa eftirfarandi
upplýsingar: Að það sé eldur og
síðan nákvæmt heimilisfang. Munið
að taka fram sveitarfélag. Gefið
síðan upp nákvæmari upplýsingar
um hvort einhver sé inni og hvað
margir, eins og hvað sé að brenna.
Gefið að lokum upp símanúmer sem
hringt er úr. Leggið ekki á fyrr en
Hrólfur Jónsson
„Því miður er það svo
að allt of margir hugsa
sem svo, „það kviknar
bara í hjá náunganum,
ekki mér. Þess vegna
meðal annars eru
margir illa undir það
búnir að takast á við
eldinn, þegar kviknar
í “
spumingum slökkviliðsins hefur
verið svarað.
Við að slökkva eldinn má beita
margs konar aðferðum. Mikilvæg-
ast er að halda stillingu sinni og
heilbrigðri skynsemi. Vatn er eitt
besta slökkviefni sem til er og nán-
ast alltaf nærtækt. Þá er mikilvæg-
ast að koma því á sjálft efnið sem
er að brenna, ekki á loga eða reyk.
Hafíð hugfast að vatn má ekki nota
á brennandi vökva t.d. feiti o.fl. Þar
verður að kæfa eldinn, t.d. með
pottloki, teppi eða einhveiju nær-
tæku. Oft má hindra útbreiðslu og
jafnvel slökkva eldinn með snögg-
um viðbrögðum í upphafi með því
að færa til ótendmð efni, kippa
niður gardínum og fleiru. Ef eldur
hefur komist í föt einhvers þá skal
nota vatn ef það er við hendina.
Slökkvið eldinn, fjarlægið föt og
kælið áfram. Ef ekki er vatn við
hendina fellið þá viðkomandi og
kæfið eldinn með teppi eða ykkur
sjálfum. Kælið eins fljótt og auðið
er.
Að lokum skora ég á borgarbúa
að nota næstu daga til að huga að
eldvömum heima, bömum ykkar til
heilla og öðrum ástvinum. Vemm
minnug þess að eldurinn skilar aldr-
ei neinu til baka sem hann hefur
einu sinni náð að hrifsa til sín.
Höfundur er varaslökkviliðsstjóri
í Reykjavík.
Þjónustan er
persónuleg
Eftir Tryggva.
Olafsson
Borgin okkar á 200 ára afmæli
á þessu ári eins og flestum er kunn-
ugt. Hún veitir borgumm sínum
margskonar þjónustu eins og aðrar
borgir vítt um heim, svo sem raf-
magn, vatn, strætisvagna, sorp-
hreinsun, hitaveitu, sundlaugar o.fl.
o.fl. Þessa þjónustu notfæmm við
okkur hvem dag án þess að leiða
hugann að því. Hún þykir svo sjálf-
sögð að hún verður ópersónuleg í
hugum okkar líkt og loftið sem við
öndum að okkur eða grasið sem við
göngum á.
„Sú þjónusta borgarinnar sem
fæstir vilja þurfa að nýta sér, en
allir vilja þó geta gengið að þegar
á þarf að halda er slökkviliðið.
Slökkviliðið mun vera sú þjónusta
sem borgin okkar hefur lengst boð-
ið upp á eða alit frá árinu 1791
þegar fyrsti bmnavörðurinn var
ráðinn.
í augum flestra er slökkviliðið
jafn ópersónulegt og rafmagnið,
vatnið eða sundlaugamar. í hugum
fólks er það hvítir sjúkrabílar eða
rauðir slökkvibflar sem þjóta hjá
með blikkandi ljós og hvimleiðu
væli á leið eitthvað annað en heim
til ^þín eða þinna".
I raun er slökkviliðið afar per-
sónulegt. Slökkviliðið er menn —
við emm af holdi og blóði, gæddir
tilfinningum gleði og sorgar, ástar
og reiði á sama hátt og þú lesandi
góður. Hefur þú gert þér grein fyr-
ir því hve störf okkar em í raun
snar þáttur í borgarlífínu? Einhver,
úr meir en flórðu hverri fjölskyldu
á Stór-Reykjavíkursvæðinu þarf á
þjónustu okkar að halda ár hvert
og öll líkindi benda til þess að þú
sjálfur þurfir oftar en einu sinni á
ævi þinni, á okkur að halda. Fýrr
en varir getur þú átt eigur þínar
eða líf þitt og þinna undir okkur.
Þáttur okkar í lífi þínu er einmitt
sá að verða þér til aðstoðar eða
bjargar, ef og þegar þú þarft á því
að halda. Til þess emm við skólað-
ir, þjálfaðir og mótaðir. Ef svo ber
undir leggjum við líf okkar að veði
til að forða þér og þínum frá fjör-
tjóni. Við emm snar þáttur í lífi
þínu lesandi góður hvort sem þú
ert þess meðvitandi eða ekki.
Þjáning þín eða sorg vegna slyss
eða eldsvoða kann aðeins að vera
frétt í íjölmiðlum fyrir flestum, en
svo er ekki fyrir okkur sem komum
á staðinn. Við emm þátttakendur
sem finnum fyrir jafn sámm sting
í hjarta þegar við stöndum frammi
fyrir vanmætti okkar, sem innilegri
gleði þegar þjálfun okkar, kunnátta
og vilji hefur orðið þér og þínum
til bjargar. Lesandi góður, við emm
sannarlega ekki ópersónulegir.
Tryggvi Ólafsson
„Sú þjónusta borgar-
innar sem fæstir vilja
þurfa að nýta sér, en
allir vilja þó geta geng-
ið að þegar á þarf að
halda er slökkviliðið.
Slökkviliðið mun vera
sú þjónusta sem borgin
okkar hefur lengst boð-
ið upp á eða allt frá
árinu 1791 þegar fyrsti
brunavörðurinn var
ráðinn.
Störf okkar em þó ekki einskorð-
uð við eldsvoða, slys eða sjúkra-
flutninga. Við búum yfir reynslu í
að bjarga samborgurum okkar úr
sundurtættum bílflökum, hangandi
í rennum eða gluggakistum á efstu
hæð húsa, jafnvel að bijóta fólki
leið sem setið hefur fast í skor-
steini eftir að hafa fallið niður um
þijár hæðir. Otalin em þau fjöl-
mörgu böm sem við höfum hjálpað
í þennan heim í heimahúsum eða í
sjúkrabfl á leið á fæðingardeild og
skilað heilu og höldnu í hendur ljós-
mæðra. Kannski ert þú eitt af þeim.
Ef flæðir í íbúð þinni eða kjallara
eða ef báturinn þinn er að sökkva
í höfninni emm við reiðubúnir til
aðstoðar. Jafnvel ef kötturinn þinn
kemst ekki hjálparlaust niður af
húsþaki emm við til staðar.
Nei, Iesandi góður, slökkviliðið
er ekki ópersónulegt. Við emm
þvert á móti persónuleiki hjálpar
og velvilja í hverskonar neyð er þú
kannt að lenda í.
I Ijósi þess að við gemm allt sem
í okkar valdi stendur í starfi okkar,
en emm þó aðeins mannlegir eins
og þú, lesandi góður, vonum við að
þú berir hlýhug til okkar og sért
þér þess meðvitandi hve ríkan og
mikilvægan þátt við eigum í lífi
þínu — í lífi allra borgarbúa.
Höfundur er skrifstofustjóri lyá
SlökkvistöðinniíReykjavík, en
var áður bruna vörður og aðal-
varðstjóri.
Flugmódel af öllum stærðum og gerðum fyrir fjarsíýringar. Fjarstýrð bátamódel af öllum gerðum.
Fjarstýrðír bílar bæði fyrir rafmótora og bullumótora. Fjarstýringar ásamt fylgihlutum: 2, 4, 5, 6, 7
og 8 rása. Bullumótorar og rafmótorar af öllum gerðum. Ennfremur allt éfni og áhöld til módelsmíða
Póstsendum um land allt — Góð aðkeyrsla, næg bílastæði.
ÍPll
' !
Laugavegi 164- Reykjavík-S: 21901
Alm. auglstÆÍA