Morgunblaðið - 23.09.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Veiðiþáttur
Þórarinn Sveinsson læknir með þann stærsta úr Laxá i Aðaldal í
suraar, 27 punda grútleginn hæng. Hausinn á þessu ferlíki var tæp
7 pund og mun Þórarinn ætla að Láta stoppa hann upp. Laxinn
veiddi hann á Foxfly nr. 8 á Óseyri. Á myndinni er aðstoðarmaður
sem heitir Kristín Pétursdóttir og er hún 6 ára.
Jón Foraason I Haga lýsir þeim stóra . —
var eins og að horfa á litla og
stóra, svo miklu stærri var fylgi-
laxinn sem 19-pundarinn.“
Eru ekki klakveiðarnar á
haustin stundum ævintýralegar?
„Jú, stundum, stóru hængamir
eru þá oft orðnir svo skapillir að
við komumst í kast við þá, jafnvel
fiska sem við erum búnir að þrá-
kasta á um sumarið. Nú í haust
gerðist margt skemmtilegt, Þórar-
inn fékk sinn stóra og bæði hann
og Orri misstu mikla bolta, bróðir
minn fékk einn 22 punda og þann-
ig gæti ég sjálfsagt haldið áfram.
Þá riflast upp atvik sem gerðist í
klakveiði fyrir svona 10 árum, þá
var einn að veiða á Óseyrinni, ein-
mitt þar sem þeir stærstu voru nú,
og hann setti þar í 32 punda hæng.
Það var nú talsverður kuldi þegar
þetta var og veiðimaðurinn loppinn
á höndum. Við honum blasti að
fara upp í kjaftinn á stórlaxinum,
losa úr honum spóninn og tjóðra
hann síðan. Þegar fiskurinn var
kominn upp að bakkanum, leist
veiðimanni ekki meira en svo á
tanngarðinn í skepnunni, að hann
afréð að fara ekki með finguma
upp í ginið nema að hafa gert ráð-
stafanir. Frumleikinn sveik hann
ekki, hann átti í fórum sínum
vodkapela sem hann smeygði upp
á laxinn og skorðaði þannig ginið.
Þannig gat hann losað spóninn úr
laxinum og sloppið óhraflaður frá
öllu saman."
Heldur þú að næsta sumar
verði jafn gott eða betra en nú?
„Ég á von á því að veiðin í heild
verði að minnsta kosti jafn góð,
sennilega svipuð. Um stórlaxa-
göngur er ailtaf erfiðara _að spá
um og raunar ógemingur. I sumar
var mikið um þessa bolta, en það
þýðir ekki að næsta sumar verði
slíkt hið sama uppi á teningnum.
Um slíkt verður ekki spáð, maður
bara vonar það besta," sagði Jón
í Haga að lokum.
Öðra hvora velta veiðimenn því
fyrir sér af hveiju laxinn er svona
æstur í að ráðast á maðk og jafn-
vel gleypa hann þó svo að maga-
og magasýrar hafi hann ekki til að
taka við bitanum. Kenningamar era
margar og oft er rifist. Sumir halda
því jafnvel fram að laxinn éti í án-
um, það séu bara bjánar sem haldi
öðra fram, því hvemig ætti svo stór
og kröftug skepna sem laxinn að
geta lifað mánuðum saman án þess
að éta? Spumingin er auðvitað rétt-
lætanleg en þeir sem halda þessu
fram velta á móti ekki fyrir sér
hvemig á því standi að laxinn éti
ekki allt kvikt í ánni. Þessi mikla
skepna sem plægir af ægikrafti inn
í sfldar- og loðnutorfur, kýlir sig
út af góðgætinu í hafinu, hún yrði
að nærast á laxaseiðum á öllum
uppvaxtarstigum, öllum þeim sil-
ungi sem til næðist og líklega
hrykki það ekki til. Hvað um það.
Það sem hér verður sagt er ekki
selt dýrara en það er keypt. Það
er haft eftir ónefndum veiðimanni
sem mikið hafði fengist við raf-
veiðar í ræktunarskyni, að á vissum
árbotni kæmi mikið af ánamaðki
upp er rafmagnsstuðið væri sett á.
Skyldi aldrei vera að maðkurinn
kæmi laxinum kunnuglega fyrir
sjónir og e.t.v. er einhvers staðar í
þessum leyndardómi að finna skýr-
inguna á því að laxinn tekur maðk
þótt ekki geri hann það til þess að
seðja hungur sitt . . .
Hvað hækka Ásarnir?
Nú er sannarlega von að spurt
sé hve mikið verð á veiðileyfum
hækki næsta sumar eftir aflahrot-
una í sumar, sérstaklega þegar það
trúir því ekki nokkur maður eða
því sem næst að þriðja þurrkasuma-
rið ríði yfír land og þjóð og þar af
leiðandi verði til muna betri skilyrði
til að moka upp öilum laxinum sem
mun ganga í ámar næsta sumar.
Besta árin, Laxá í Ásum, var dýr-
ust í krónutölu, dýrastu dagamir
kostuðu 35.000 krónur á stöng og
óstaðfestar fregnir hermdu að stöku
dagur hafi selst fyrirvaralítið í sum-
ar á 40.000 kall. Nú era tungumar
famar að tifa og einn viðmælandi
þessa þáttar taldi sig hafa fyrir því
vissu að verðið myndi hækka um
11%. Annar taldi sig hafa það eftir
góðum heimildum að dýrastu dag-
mir myndu fara á 50.000 krónur.
Svo er enn þrálátur orðrómurinn
um að setja eigi kvótann á næsta
sumar.
Hvað verður um
veiðimanninn?
Hvemig ætli Marteini Geirssyni,
fyrram knattspymukappa, hafi orð-
ið við í sumar þegar hann veiddi
sinn Maríulax á silungasvæðinu í
Vatnsdalsá? Hann vildi auðvitað
bíta veiðiuggann af laxinum og
renna honum niður til þess að
tryggja sér veiðimannssess í fram-
tíðinni, en slíkt hefur löngum þótt
happadijúgt athæfi. En Marteini
brá í brún og það er ekki laust við
að hann hafi verið svikinn: Laxinn
var merktur og til þess að auð-
kenna það hafði hann verið veiði-
uggaklipptur í æsku.
Þeir stóru víða...
20—30 punda laxar hafa verið
margir í sumar og í sumum ám
hreint út sagt allt fullt af slíkum
fískum. Morgunblaðið hefur greint
frá slíkum löxum í alls 24 laxveiði-
ám og það má heita öraggt að
fleiri ár era í hópnum, en víða um
land fer ekki hátt um aflabrögð eða
að það er erfitt að afla fregna. En
þær ár sem era á stórlaxalistanum
í sumar eru þessar: Laxá í Kjós,
Hvítá f Borgarfirði, Norðurá,
Langá, Álftá, Hafíjarðará, Laxá í
Dölum, Laugardalsá, Hrútafjarð-
ará, Miðfjarðará, Víðidalsá, Vatns-
dalsá, Laxá í Ásum, Blanda, Svartá,
Skjálfandafljót, Laxá í Aðaldal,
Reykjadalsá/Eyvindarlækur, Mýr-
arkvísl, Selá, Hofsá, Breiðdalsá,
Sogið og Hvítá í Ámessýslu.
Skrítið að þrátt fyrir stórlaxa-
fansinn vantar ár á listann sem nær
aldrei vantar, Grímsá og Þverá má
nefna.
Strá maðki í árnar?
Stórveiði fyrstu dagana eftir að
útlendingar ljúka veiðum í íslensk-
um Iaxveiðiám fer fyrir bijóstið á
ýmsum, en kvótar í flestum ám
valda því þó að veiðin fer varla fram
úr hömlum lengur og bijóstsviðinn
læknast fljótt. Mörgum finnst samt
óeðlilegt að sveiflur í veiði séu mikl-
ar yfír sumarið og það megi koma
í veg fyrir þær með ýmsum leiðum.
Það er alkunna að eftir að útlend-
ingamir hafa lúskrað á ánum með
flugu í 6—8 vikur þá ærist laxinn
gersamlega þegar maðkurinn er
reyndur á ný. Margir sækjast eftir
að komast í mokveiðina, en öðram
finnst hún forkastanlegur blóðvöll-
ur. Þeir hinir sömu velta fyrir sér
hvað megi meira gera en að setja
kvóta til að bremsa af moksturinn.
Þeir stinga nú upp á því að veiðirétt-
areigendur strái ánamöðkum í
hundraðatali á helstu veiðistaði
nokkram sinnum á sumri. Þannig
gleymi laxinn ekki maðkinum og
taki út reiði sína á honum þegar
öngull fylgir ekki í kaupbæti . . .“
Ósinn lélegnr?
Léleg veiði í Stóru-Laxá í sumar
hefur valdið leigutökum árinnar
sáram vonbrigðum og er óútséð um
.hvernig leigu á ánni verði hagað
næstu sumur. Einn kunnugur leit
inn á þáttinn og sagðist hafa litið
á ósinn á Stóra-Laxá í sumar og
eftir það væri hann ekki í vafa um
hvemig stæði á aflatregðunni í
ánni. Osinn væri hreinlega ónýtur,
svo grannur væri hann að það flyti
varla yfír laxinn. Sá hinn sami sagði
talsvert vera af laxi á Iðunni. Það
má því búast við að það komi góð-
ar göngur í Stóra-Laxá eftir að
veiðitíma lýkur. Eins og svo oft
áður.
— Rætt við Jón Fornason veiðikló við Laxá í Aðaldal
Það hefur verið sannkallaður landburður af „stórhvelum“ úr
íslensku laxveiðiánum í sumar, þær eru á þriðja tug laxveiðiárnar
sem skilað hafa 20—30 punda löxum á land í sumar og sums staðar
hefur hreinlega verið mikið um slíka stórlaxa og aðra enn stærri
sem ekki hafa náðst enn. Við sem ekki höfum fengið þann stóra í
sumar erum heldur kvekktir, það er engu likara en að allir „séu
að gera það gott...“ o.s.frv. og nú sé að hverfa e.t.v. besta tækifær-
íð til þess að næla sér í stórlax.
Svona tal er annars vart sam-
boðið sportveiðimönnum sem eiga
að vera bjartsýnir til hinstu stund-
ar. En hvað um það, Laxá í
Aðaldal, Vatnsdalsá og Víðidalsá
vora stórlaxadrottningarnar í sum-
ar og sú fyrst nefnda átti nú
vinninginn sem hinar tvær hafa
stundum hirt af henni síðustu árin.
Það eru ekki öll kurl komin til
grafar, en 20—27 punda laxar úr
Laxá eru einhvers staðar á milli
60 og 70 talsins. Tölu verður varla
kastað (ýkjur) á 15—19 punda lax-
ana, svo margir vora þeir. Það
þótti við hæfí að heyra hljóðið í
einhveijum laxármanni og fyrir
valinu varð Jón Fomason frá
Haga, en Orri Vigfússon í Glit
segir Jón einn fímasta fluguveiði-
mann Laxár og er þá mikið sagt,
því þeir era margir feyknasnjallir,
þ. á m. Orri sjálfur.
„Jú, þetta var býsna gott í sum-
ar, ég fékk að vísu ekki nema tvo
yfír 20 punda sjálfur, en það var
geysilega mikið um slíka laxa í
sumar og það mesta í að minnsta
kosti 20 ár, ég hef glöggvað mig
á því með því að skoða veiðiskýrsl-
ur. Og það sem meira er, margir
af 20—22 punda löxunum sem
veiddust, komu á land er farið var
að hausta eins og oft gerist, þá
hafa þeir alltaf lagt talsvert af,
enginn vafí að flestir hafa þeir
verið 23—26 punda nýrannir. Sá
stærsti í sumar var 27 punda lax
sem Þórarinn Sveinsson veiddi í
septemberbyijun á Óseyrinni.
Hann beitti Foxfly nr. 8 og viður-
eignin var stutt en rosalega hörð,
ég held að hjólið hans Þórarins
hafí farið illa í átökunum," sagði
Jón um stórlaxasumarið.
En þessi stóri sem Þórarinn
missti?
„Hann var gríðarlega stór, mun
stærri en sá sem hann náði, en ég
vil ekki nefna neinar tölur (Orri
Vigfússon hefur hins vegar eftir
Þórði Péturssyni, veiðiverði, að
hann hafí aldrei séð aðra eins
skepnu í Laxá og er Doddi þó róm-
aður fyrir snilli sína í að tippa á
þyngd laxa. Innsk. gg.). Og það
vora reyndar fleiri stórir, þeir vora
víða, t.d. á Hólmavaðsstíflunni.
Undir lokin var ég að glíma við
einn 19 punda sem lét illa. Eitt
sinn rauk fiskurinn út undir bakk-
ann hinu megin og stökk þar hátt
upp úr. Um leið stökk annar sem
fylgdi laxinum mínum eftir. Þeir
stukku næstum samsíða og það
STUBBAR
„Renndi bara vodkapela
upp í ginið á laxinum“