Morgunblaðið - 23.09.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
27
Kirkjan má ekki
tala neitt rósamál
Rætt við David Gosling, starfsmann Alkirkjuráðsins
DAVID GOSLING frá Englandi
er einn starfsmanna ráðsins og
hefur hann starfað á sviði sem
kallast Kirkja og samfélag þar
sem meðal annars er fjallað um
afvopnunarmál og siðferðilegar
spumingar, til dæmis þær er
snerta glasaböm, fóstureyðingar
og fleira. Upphaflega lærði Gosl-
ing eðlisfræði í heimalandi sínu
og starfaði meðal annars í Indl-
andi um 6 ára skeið en síðan nam
hann guðfræði í Cambridge, og
lauk doktorsprófi þaðan.
Kristnin leggoir
áherslu á frið í heil-
brigðu þjóðfélagi.
Það er ekki oft sem fyrirfínnast
menn með slíka menntun að baki
og því var ekki úr vegi að spyrja
hann fyrst að því hvað hefði fengið
hann til að snúa baki við eðlis-
fræðinni og læra guðfræði?
„Ég hafði verið starfandi í Ind-
landi um nokkurra ára skeið á
áttunda áratugnum og um miðbik
hans voru Indveijar að gera sínar
fyrstu tilraunir með kjarnorkuvopn.
Þetta varð til þess að ég fór að
velta þessum málum fyrir á sið-
ferðilegan hátt. Þama var ég,
eðlisfræðingurinn, og mér leið sið-
ferðilega mjög illa yfir þessu og það
varð til þess að ég fór að gefa guð-
fræðinni gaum,“ sagði David
Gosling.
Hann skýrði síðan út hvert hið
kristna viðhorf til þessarra mála
væri: „Kristnin leggur áherslu á
frið,“ sagði hann fyrst. „Þó má
ekki einungis skilja þetta friðar-
hugtak sem einungis svo að ófriður
sé ekki til staðar, heldur er um að
ræða frið í þeim skilningi að þjóð-
félagið sé heilbrigt. Og hugtakið
þjóðfélag má líta á sem eitt land,
nú eða sem allan heiminn, og
kristna viðhorfið vill koma á sam-
bandi allra kristinna manna í öllum
löndum,“ sagði hann.
Afvopnunarmál eru meðal þeirra
mála sem David Gosling hefur á
sinni könnu og aðspurður um þau
sagði hann að afvopnun ein og sér
væri ekki aðalatriðið, það sem væri
mest um vert væri að þjóðir störf-
uðu saman. „Alkirkjuráðið getur
komið góðu til leiðar á margan
hátt til dæmis með því að hvetja
kirkjumar til að taka höndum sam-
an og hafa áhrif í sínum iöndum.
Ráðið er til dæmis andvígt því að
kjamorkuvopn séu í eigu einhverrar
þjóðar, til dæmis er Alkirkjuráðið í
andstöðu við stefnu Bretlands í
þessum málum og ég lít á það sem
hinn eina raunhæfa möguleika til
að koma í veg fyrir hörmungar
vegna kj amorkustyrj aldar, að slik
vopn verði ekki eign þjóða.“
Gosling ræddi síðan um mikii-
vægi þess að komið yrði í veg fyrir
tilraunasprengingar með . kjam-
orkuvopnum.
„Sem eðlisfræðingur geri ég mér
mjög ljósa hættuna sem stafar af
notkun þessarra vopna, hvort held-
ur sem er í tilraunaskyni eða öðru.
Chemobyl slysið hefur verið mikið
í fréttum að undanfömu og mikið
verið gert úr þeirri geislun sem það
olli í heiminum. Það hefur hins veg-
ar minna verið rætt um það að á
6. áratugnum, þegar tilrauna-
sprengingar á Kyrrahafi stóðu sem
hæst, þá var meðalgeislun í heimin-
um svipuð og eftir Chemobyl slysið.
Þá kvartaði enginn því þá gerð’i
fólk sér ekki grein fyrir því hvaða
alvarlegu afleiðingar þetta gat haft
í for með sér. Auðvitað hefur margt
breyst síðan þá og hætt er að gera
tilraunir í andrúmsloftinu, en þess-
um tilraunum er samt haldið áfram
og það óttumst við,“ sagði Gosling.
Framkvæmdanefndin íjallaði á
fundi sínum hér í Reykjavík tal-
svert um alnæmi, en sá sjúkdómur
David Gosling, eðlisfræðingur og
guðfræðingur.
hefur valdið áhyggjum viða um lönd
og þeim fer stöðugt fjölgandi sem
bera veimna. Kirkjan hefur verið
gagnrýnd fyrir að hafa brugðist
seint og illa við. Margir hafa orðið
til þess að fordæma þá sem ganga
með sjúkdóminn.
Í yfírlýsingu sem nefndin sendi
frá sér að afloknum fundarhöldum
á föstudag segir að mikilvægt sé
að beina athygli kirkjunnar að
þessu brýna máli: „Við biðjum kirkj-
ur um að bregðast við á viðeigandi
hátt vegna brýnnar nauðsynjar á
sálusorgun, fræðslu til að fyrir-
byggja frekari útbreiðslu og ráðgjöf
í samræmi við þá þörf sem ríkjandi
er.“
„Alnæmi er sjúkdómur sem vírus
orsakar og það verður fólk að skilja.
Alnæmi er ekki refsing Guðs, og
það hljóta allir að sjá sem lesið
hafa guðspjöllin. Við trúum ekki á
Guð sem sendir plágur yfír fólk,“
sagði Gosling. Hann bætti því við
að kirkjan yrði að bregðast við á
heiðarlegan hátt og horfast í augu
við raunveruleikann. „Það má til
dæmis ekki gefa fólki vonir um að
einhverskonar kraftaverk muni ger-
ast, kirkjan verður að bregðast við
á allt annan hátt. Til dæmis með
sálusorgun. Það verður að kenna
fólki að lifa með þennan sjúkdóm
og einnig verða aðstandendur al-
næmissjúklinga að fá umönnun því
það getur lagst þungt á þá að vita
að ættingi eða vinur sé að hverfa
frá þeim. Einnig er mikilvægt að
alnæmissjúklingar verði vemdaðir
gagnvart ofbeldisverkum og
tryggja rétt þeirra á flesta vegu,“
sagði hann og benti á margvíslegar
hættur í þeim efnum.
Þá benti hann einnig á að fræðsla
væri mjög mikilvæg því þannig
mætti koma í veg fyrir útbreiðslu
hans.
„Alnæmi dreifíst mjög auðveld-
lega við samræði fólks og kirkjan
verður að horfast í augu við það.
Sumir innan kirkjunnar verða mjög
stressaðir þegar þeir heyra á þetta
minnst. Fólk verður að geta sagt
„smokkur" og einnig hlustað á orð-
ið, fræðslan má ekki fara fram á
neinu rósamáli. Kirkjan verður að
taka þátt í þessari fræðslu því það
er eitt af hlutverkum hennar að
græða sár og veita fræðslu. Prest-
arnir verða að taka þátt í að sinna
þessu hlutverki kirkjunnar, þeir
meiga alls ekki skorast undan því,“
sagði David Gosling að lokum.
Höfum opnað ífyrsta
sinn á íslandi
sérverslun með
biUiardborð
Öll þjónusta við eldri
billiardborð s.s. viðgerðir
á borðum og
dúkasetning.
Billiardborð fyrir heimili,
félagasamtök, skóla og hótel
Smidjuvegi 8 Sími 77960
SEUUM EINNIG KÚLUR,
KJUÐA, BÆKUR UM
BILLIARD OG YFIRLEITT
ALLT VARÐANDI BILLIARD.
BILLIARDBÚÐIN