Morgunblaðið - 23.09.1986, Page 30
30
MOKGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
' -
A-.S':
Kjamorkuvígbúnaður í Evrópu:
* ’ ■/
s ♦ ^. r * <* -•
^s:
r , Z:tí WfafcÍ-*
m
Zlh.W': V'’ V
Sovétmenn fallast á megin-
kröfu Bandaríkjamanna
Genfar-viðræður taka ekki til kjarnorkuvopna Breta og Frakka
Washington, AP.
m ■■■ 4 "■ u
Kjarnorkuveríð í Chernobyl eftir slysið.
EDUARD Shevardnadze, ut-
anrikisráðherra Sovétríkjanna,
sagði á laugardag að Sovét-
stjórnin væri reiðubúin til að
undanskilja kjarnorkuflaugar
Breta og Frakka í viðræðum um
takmörkun vígbúnaðar í Evr-
Kostnaður Sovétmanna á
annað hundrað milljarða
Moskvu, AP. Cr
SOVÉZKIR ráðamenn hafa skýrt
frá þvi að beinn kostnaður vegna
slyssins í kjarnorkuverinu í
Chernobyl í april sl. nemi jafn-
virði a.m.k. 2,9 milijarða dollara,
eða 120 milljarða ísl. króna.
Að sögn Boris Gostev, flármála-
ráðherra, hefur jafnvirði 885 millj-
óna dollara, eða rúmlega 35
inilijarða króna, verið veitt til að
kaupa nýtt húsnæði fyrir rúmlega
eitthundrað þúsund menn, sem
flýðu eða voru fluttir á brott frá
landssvæðum, sem verst urðu úti
vegna sprengingarinnar í kjam-
orkuverinu í Chemobyl. Innifaldar
í þeirri upphæð eru bætur fyrir
eignatjón, sem fólkið varð fyrir.
Þá kostar jafnvirði 590 milljóna
dollara, eða jafnvirði um 24 millj-
arða ísl. kr., að endurbyggja
kjamakljúfinn, sem sprakk. Kostn-
aður vegna tapaðrar raforkusölu
er einnig tilfinnanlegur. í kostnað-
ardæmið em einnig reiknaðar
tvöfaldar tekjur, sem borgaðar voru
mönnum, sem unnu að hreinsun á
mesta hættusvæðinu, sem náði 30
km frá orkuverinu, og ennþá hærri
laun til þeirra sem tóku þátt í
hreinsun orkuversins sjálfs.
Ráðherrann sagði að 1500
ferkílómetrar akurlendis í nágrenni
verksmiðjunnar væm óræktanlegir
vegna mengunar og geislavirkni í
kjölfar Chemobyl-slyssins 26. apríl
sl. Staðfest var að 31 maður hefði
beðið bana af völdum geislunar.
ópu.Þar með hafa Sovétmenn
fallist á eina meginkröfu Banda-
ríkjamanna varðandi afvopnun-
arviðræðumar í Genf. George
Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, telur ólíklegt að
fyrirhugaður fundur leiðtoga
stórveldanna komist á ef Sovét-
stjórnin reynist ófáanleg til að
hleypa bandaríska blaðamannin-
um Daniloff frá Sovétrílgunum.
Shultz og Eduard Shevardnadze
áttu viðræður í Washington á
laugardag um leiðtogafundinn.
Að þeim loknum sögðu þeir að
nokkuð hefði miðað i samkomu-
lagsátt.
Eduard Shevardnadze boðaði til
fréttamannafundar í sovéska sendi-
ráðinu í Washington á laugardag.
Sagði hann Sovétstjómina hafa fall-
ist á þá meginkröfu Bandaríkja-
manna að afvopnunarviðræðurnar
í Genf tækju ekki til kjarnorku-
flauga Breta og Frakka. Shev-
ardnadze sagði Sovétmenn vera
reiðubúna til að semja við Banda-
ríkjastjóm um jafnan fjölda kjam-
Finnski herinn vill banna
útgáfu endurminningabókar
Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunbladsins í Helsinki.
INNAN skamms munu finnskar
bókabúðir hefja sölu á bók sem
getur haft í för með sér að
höfundur hennar lendi í fang-
elsi. Höfundurinn, Pentti Syrja
hershöfðingi, var með fyrstu
Finnum sem fóru i nám í
Frunze-herforíngjaháskólann i
Moskvu i byrjun áttunda ára-
tugarins. Nú hefur herforingja-
ráð Finna lýst því yfir að SyrjS
ljóstrí upp hernaðarlegum
leyndarmálum í bók sinni, sem
segir frá námsárí hans í
Moskvu. Af þeim sökum getur
hann hlotið fangelsisdóm fyrir
landráð.
Herforingjaráð hefur reynt að
sannfæra bókaforlagið WSOY um
að gefa ekki út bókina, en vegna
gildandi laga um prentfrelsi er
þetta aðeins beiðni en ekki skipun.
Margir sem hafa lesið bókina
í handriti, segja að herforingja-
ráðið hafi verið platað til að taka
þátt í auglýsingabrellu sem stefni
að því að bókin „Gruppa Fin-
landija" („Finnski hópurinn")
verði metsölubók haustsins. Bókin
er ekki talin vera neitt sérstaklega
spennandi, enda segir höfundur-
inn að mestu leyti frá hversdags-
legu lífi sínu í höfuðborg
Sovétríkjanna.
Herinn er samt sem áður þess
konar stofnun að hann getur lýst
yfir hvaða upplýsingar skuli njóta
leyndar. Þar sem forlagið ætlar
að gefa út bókina þrátt fyrir beiðni
hersins hafa hemaðaryfirvöld
ákveðið að allar upplýsingar í
henni séu leynilegar. En þá er
öllum hermönnum og fyrrverandi
hermönnum bannað að segja frá
þeim.
Syijá er kominn á eftirlaun
eftir 40 ára starfsferil í finnska
hemum. Hann hefur m.a. tekið
þátt í tveimur stríðum þar sem
óvinurinn kom úr austri. Honum
finnst sjálfsagt að segja frá náms-
ári sínu í bókarformi, þó að þar
komi fyrir lýsingar á heræfingum
þar sem óvinurinn kemur frá
vestri. Hann telur bókina ekki
lýsa neinum hemaðarleyndarmál-
um, enda segi þar frá 15 ára
gömlum atburðum. Og það sé
varla leyndamiál að væntanlegur
óvinur sovéthersins komi úr
vestri.
Bókaforlagið WSOY vildi ekki
taka neina áhættu og lét hemað-
arsérfræðinga og lögmenn fara
yfir bókina. Allir virðast vera sam-
mála: allar hernaðarlegar upplýs-
ingar em úreltar og hafa verið
birtar í vestrænum bókum og
tímaritum fyrir löngu.
Fréttaskýrendum finnst aug-
ljóst að yfirmönnum finnska
hersins hafi skjátlast. Finnskir
liðsforingjar hafa alla tíð farið í
nám í herforingjaskóla erlendis.
Vegna hlutleysisstefnu Finnlands
geta finnskir liðsforingjar sótt
nám bæði til austurs og til vest-
urs. Reyndar höfðu Finnar verið
góðir nemendur í t.d. banda-
rískum herforingjaskólum áður en
nokkmm datt í hug að fara til
Moskvu. Samstarfið við Fmnze-
háskólann komst á 1971. Allar
upplýsingar sem nemendur her-
foringjaháskólanna fá jafnt í
austri sem í vestri em „trúnaðar-
mál“, en varla leyndarmál. Flestir
herforingjaskólar heims taka
nemendur 'frá öðmm löndum, en
þeim er ekki kennt í sömu stofu
og þeim innlendu. Kerfið er eins
í West Point og í Fmnze.
Svo virðist sem finnska herfor-
ingjaráðið vilji ekki óvingast við
forráðamenn Fmnze-háskólans,
en Rússar em ekki vanir því að
fyrrverandi herforingjar gefi út
æviminningar. Okkur óbreyttum
borgurum dettur þó í hug, að
skólanefnd Fmnze-háskólans
fínnist kannski ekki mjög snjallt
af finnski herinn hafi hagað sér
þannig að bókin „Gmppa Fin-
landija" verður metsölubók í
staðinn fyrir að gleymast í hillum
bókabúðanna.
Lesendur Morgunblaðsins geta
nú sjálfir dæmt hvort Syijá hers-
höfðingi skuli teljast njósnari og
landráðamaður. Sýnishomið sem
hér fylgir er þýtt eftir útdrætti
úr bók hershöfðingjans sem birtist
í finnska blaðinu Helsingin Sano-
mat fyrir skömmu. Hér fylgir smá
frásögn um hvemig kennslutíma
í Fmnze-háskólanum var háttað:
„Hafið þér borið saman skipu-
lag sovéskrar herdeildar og
samsvarandi bandarískrar
NATO-herdeildar? Hveiju á að
taka eftir? Með þessari spurningu
reyndi Ivanov að meta víðsýni
okkar og ef til vill einnig fá að
vita hvort við vomm búnir að
finna bókina Skipulag og bard-
agatækni NATO í bókasafninu,
en hún lýsir einmitt því sem um
er getið í nafni bókarinnar.
Hér höfum við aðeins yfirborðs-
lega kynnst upplýsingum um
NATO, en við vissum þegar að
sérstaklega í Bandaríkjaher er
hlutfall flutningasveita mjög
stórt. Bandaríkjamenn þurfa að
fá ís og bjór, einnig á vigvellinum.
Sovéskir hermenn bjarga sér á
brauði og súpu. En við Finnar
björgum okkúr á því sama, og í
neyðartilfelli nægir okkur að éta
hrökkbrauð.
Þér hittið aftur naglann á höf-
uðið, fékk ég í hrós frá Ivanov."
orkuflauga í vopnabúmm stórveld-
anna í Evrópu. Bandaríkjamenn
ráða nú yfír 140 kjarnorkuflaugum
þar en Sovétmenn hafa komið fyrir
240 flaugum af gerðinni SS-20 á
evrópsku landssvæði.
Kjamorkuvígbúnaður Frakka
samanstendur af eldflaugum á
jörðu niðri, flugvélum, sem geta
borið kjarnorkusprengjur, og flug-
skeytum um borð í kafbátum.
Bretar eiga hins vegar fjóra kaf-
báta, sem búnir em kjamorkuvopn-
um.
Gennady Gerasimov, talsmaður
utanríkisráðuneytis Sovétríkjanna
sagði í sjónvarpsviðtali í Banda-
ríkjunum á sunnudag að Daniloff-
málið væri „alls ekkert stórmál".
„Við viljum ekki að mál hans verði
til þess að spilla fyrir sarnbúð
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Við munum finna einhveija lausn
og leyfa honum að fara úr landi,"
sagði Gerasimov.
George Shultz sagði að Gennadiy
Zakharov, sem handtekinn var í
Bandaríkjunum fyrir njósnir í þágu
Sovétmanna, yrði dreginn fyrir
dómstóla. Sagði Shultz að mál
þeirra Zakharovs og Daniloffs væm
á engan hátt sambærileg.
Flæðir kókaín
yfir Evrópu?
London, AP.
BRESKUR embættismaður sem
nýkominn er heim úr ferðalagi
til fjögurra Suður-Ameríkulanda
varaði á mánudag Evrópubúa við
því, að trúlega myndu framleið-
endur fíkniefna bráðlega leita
markaða fyrir varning sinn í
Evrópu, þar sem horfur væru á
offramboði á þessum efnum á
Bandaríkjamarkaði.
Embættismaðurinn, David Mell-
ors, er stjómar baráttu bresku
ríkisstjórnarinnar gegn fíkiniefna-
neyslu, sagði eftir för sína til Perú,
Bólivíu, Kólumbíu og Ekvador að
hann teldi illmögulegt að koma í
veg fyrir að fíkniefni bæmst til
Evrópu frá þessum löndum. Þess
vegna yrði að leggja aðaláherslu á
að gera almenning afhuga fíkni-
efnaneyslu. Nú fyndist meira magn
af kókaíni en heróíni í Vestur-
Þýskalandi og á Spáni og styddi
það kenningar um að „kókaínbarón-
arnir" svokölluðu, leituðu nú nýrra
markaða í Evrópu.
John Dellow, einn af yfirmönnum
Scotland Yard, sagði á ráðstefnu
leynilögreglumanna og aðila er fást
við öryggismál, að hagnaður glæpa-
manna af sölu á fíkniefnum væri
að verða geigvænlegur í Bretlandi.
Hluti hagnaðarins væri síðan notað-
ur til vopnakaupa fyrir alþjóðleg
samtök hryðjuverkamanna.
Höfum flutt
skrifstofurnar að
FOSSHÁLSI27. -
Nýtt símanusner:
672000 W
\
y
\
\
f
\
y
\
\
N
/
/
/
/
HF. OLGERÐIN EGILL SKALLAGRIMSSON