Morgunblaðið - 23.09.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
31
KONUNGLEG SKÍRN
„Þú skalt heita Vestur-Gautland og megi hamingjan vera þér hliðholl í hafdjúpunum,“ sagði Karl
Gústaf XVI., Svíakonungur, þegar hann gaf þessum kafbáti nafn í Kockums-skipasmíðastöðinni í
Málmhaugum. Kafbáturinn er af gerðinni A17 og er sá fyrsti af fjórum, sem smíðaðir verða í stöð-
inni fram til 1989. Bengt Schuback, yfirmaður sænska sjóhersins, sagði, að A17-bátamir myndu
gegna miklu hlutverki í vörnum landsins. Þeir eru búnir níu tundurskeytarörum og afar fullkomn-
um tölvubúnaði.
Luxemborg:
Refir gerðir ónæm-
ir fyrir hundaæði
Luxemborg, AP.
UM HELGINA hófst í fyrsta
skipti í Evrópu tilraun tU þess
að gera refi ónæma fyrir hunda-
æði. Luxemborg og nágrannarík-
in Vestur—Þýskaland, Frakk-
land og Belgía eiga aðild að
tilrauninni.
Ónæmisaðgerðin fer þannig fram
að dreift er fóðri sem mótefni gegn
hundaæði hefur verið sett í. Fóðrinu
verður dreift um alla Luxemborg,
auk aðliggjandi svæða í hinum lönd-
unum þremur. Refir eru helstu
smitberar sjúkdómsins og hingað
til hefur einkum verið beitt þeirri
aðferð gegn sjúkdómnum að svæla
út tófugreni. Umhverfisvemdar-
menn hafa verið mjög andvígir
þeirri aðgerð, þar sem hún sé
grimmdarleg og verði jafnframt
greifingjum að fjörtjóni, þar sem
þeir deili grenjum með refiim.
Luxemborg er fyrsta ríkið í Evr-
ópu, sem hefur sett það í lög að
gera beri refi ónæma fyrir hunda-
æði.
Svíþjóð:
Bann við sölu
hreindýrakj öts
Stokkhólmi, AP.
SÆNSK yfirvöld bönnuðu í gær „Þetta mál allt er bein ógnuii við
sölu óskoðaðs hreindýrakjöts
veg^na ótta við, að í því kunni að
vera geislavirk efni frá Chem-
obyl.
„Frá og með deginum í dag verð-
ur að skoða hvert einasta hreindýr
áður en leyft verður að selja af því
kjötið,“ sagði í tilkynningu stjóm-
valda en við athuganir í sænskum
sláturhúsum hefur komið í ljós, að
allt að 70% af þeim 70.000 dýmm,
sem á að fella á þessu hausti, hafa
of mikið af geislavirkum efnum.
tilveru okkar Lappanna," sagði
Lars Pittsa, einn af frammámönn-
um Lappa í Norðurbotni. Lappar
hafa frá fomu fari lifað á hreindýra-
búskap oggera enn að miklu leyti.
Við sumar athuganir hefur cesí-
ummagnið í hreindýrum mælst
tífalt það, sem fólki er talið hættu-
legast, og þetta geislavirka efni
eyðist mjög hægt. Talið er, að það
hverfi ekki úr hreindýramosa og
öðrum gróðri fyrr en eftir fimm til
tíu ár.
Leeds aðdáendur
láta ekki af ólátum
Bradford, Englandi, AP.
SVÍI, sem ásakaður er fyrir
grjótkast á knattspyrnuleik milli
Bradford og Leeds, var dæmdur
í 28 daga fangelsi í gær, eftir
að hafa játað sig sekan af ákær-
unni.
Mikil ólæti brutust út á knatt-
spymuleiknum. Kveikt var í sölu-
tumi og lögreglan grýtt. 60 manns
vom handteknir og færa þurfti tvo
lögreglumenn og níu knattspymu-
áhugamenn í sjúkrahús til aðhlynn-
ingar.
Ólætin áttu sér stað á Odsal leik-
vanginum, sem Bradford City notar
sem sinn heimavöll á meðan gert
var við leikvang félagsins, en hann
brann á síðasta ári. Þá létust 56
manns. Þá er þetta í fyrsta skipti
í 15 mánuði sem hinum alræmdu
stuðningsmönnum Leeds liðsins er
ieyft að fylgja liði sínu til annarra
borga. Þeim var bannað það eftir
að 15 ára gamall unglingur tróðst
undir á leik við Birmingham á
síðasta ári.
Svfinn er kunnur stuðningsmaður
Leeds. Hann sá 26 leiki liðsins á
síðasta keppnistímabili og 22 leiki
á tímabilinu þar á undan.
Ráð gegn nauðgurum:
Hrópið „eldur“ frek-
ar en „nauðgun“
Banisley, Englandi, AP.
KONUR, sem verda fyrir árás nauðgara, er ráðlagft að hrópa frekar
„eldur“ en „nauðgun", þar sem miklu meiri líkur eru á því að fólk
bregðist við brunakalli, að sögn tveggja brezkra sérfræðinga í sjálfs-
vörn.
¥
„Staðreyndin er sú að fólk leiðir
hjá sér nauðgunarhróp, eða telur
það gabb eða brandara. Brunakall
er árangursríkara því fólk kemur
alltaf út úr húsi til að horfa á eld
og slökkvilið að starfi, auk þess sem
það vill ganga úr skugga um að
það séu ekki eigur þess sem kvikn-
að hefur í,“ segir John Lang, annar
sérfræðinganna, en hann er fyrrum
hermaður og herlögregluþjónn.
Lang segir að það sé einnig góð
aðferð til að vekja athygli fólks að
brjóta rúður í verzlunarglugga.
^1946111986^1
STÓRKOSTLEG HELGI
FRAMUNDAN!
☆ ☆ ☆
☆ ☆ ☆
FÖSTUDAGS-OG
LAUGARDAGSKVÖLD
matargestum
Heíðar. Þeír
Um næstu helgi ^ ?
verður að vanda
míkíð um að
vera í ÞÓRSCAFÉ. H
S
Dans- og s
dægurlagasveítín
SANTOS og SONJA
Ieíka fyrír dansí. \ \
Jón Möller leíkur .' \ \ * Vi
Ijúfa dinnertónlist p \' . * \
fyrír matargestí.
ÓMAR RAGNARSSON skemmtír
ásamt undírleíkara sínum Haukí
félagar flytja glænýja og bráðfyndna skemmtí-
dagskrá sem kítlar hláturstaugamar svo um
munar. Munið að panta borð í tíma hjá veitinga
hmmoj jm stjóra í síma 23335.
Ragnar !3p0k A matseðlínum er
Bjamason H ^ fjórréttuð glæsímáltíð:
syngur R * / IM Yonémr:
nokkrar w ||M rjómasveppasópa
^ívínwlAr J w MíUiréttur.
MV!ftft5ot:iai ^ INNBÖKUÐ LAXASNEIÐ
dægurflugur. \ Aðairéttur:
f LÉTTSTEUCT LAMBAFILLÉ
Jón og Ólí sjá um að spíla hnetutrifre
öll nýjustu Iögín í diskótekinu.
Snyrtilegur klæðnaður - aldurstakmark 20 ára.
ÞÓRSCAFÉ; STÖÐUGT FJÖR ( 40
Ómar Ragnarsson
Húsíð opnað
kl: 20.00
Dískótekíð opnar
kl: 20.00
opið tíl kl. 03.00
ÁRin
☆ ☆
☆ ☆