Morgunblaðið - 23.09.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
- segir Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins.
„MENN eru almennt sammála
um að þessi kaupstefna hafi te-
kist framar öllum vonum“, sagði
Kjartan Lárusson, forsU'óri
Ferðaskrifstofu ríkisins, er hann
var spurður hvernig til hefði te-
kist með fyrstu Norð-Vestur-
ferðakaupstefnuna, sem lauk í
Laugardalshöll á sunnudag.
Kjartan sagði, að þótt ekki lægju
fyrir nákvæmar tölur um afr-
asktur ráðstefnunnar væri það
sín skoðun, að þar hefði verið
lagður grunnur ferðaviðskiptum
sem næmi þremur til fimm mill-
jörðum íslenskra króna.
„Þetta er í fyrsta skipti sem þess-
ar þrjár litlu þjóðir, íslendingar,
Grænlendingar og Færeyingar
standa saman að svona ferðakaup-
stefnu og miðað við allar aðstæður
er óhætt að segja að myndarlega
hafi verið að þessu staðið", sagði
Kjartan ennfremur. „Það var
ánægjulegt að sjá hversu ferða-
málasamtök, víðs vegar um landið,
stóðu sig vel í að kynna sína lands-
hluta í ljósi þess að þetta er i fyrsta
skipti sem margir þessara aðila
koma nálægt slíkum hlutum."
Kjartan sagði, að um 70 aðilar
í ferðaviðskiptum frá Ameríku og
Evrópu hefðu sótt kaupstefnuna
sem væri mjög góður árangur. „Það
er auðvitað aldrei hægt að gefa upp
einhverja ákveðna tölu um árangur-
inn af slíkum kaupstefnum. En þar
sem að þama voru svo að segja
allir stærstu seljendur íslands er-
lendis, það er allir helstu þjónustu-
þættir ferðamálanna og helstu
kaupendur erlendis að íslenskri
ferðaþjonustu, kæmi það mér ekki
á óvart þótt þama hefði verið lagð-
ur grunur að viðskiptum, sem að á
næsta ári gætu skilað íslenska þjóð-
arbúinu eitthvað á milli 3 til 5
milljörðum íslenskra króna í erlend-
um gjaldeyri", sagði Kjartan.
Hér má sjá likan af íslenskum torfbæ, sem sýndur var á vegum
Ferðaþjónustu bænda.
Kjartan kvaðst byggja þessa á íslenskum ferðamálum fyrir
skoðun sína á tölum frá Þjóðhags- síðasta ár, en þar er meðal annars
stofnun þar sem miðað er við úttekt gert ráð fyrir að gjaldeyristekjur
Ferðakaupstefnan í Laugardalshöll:
Grunnur lagður að viðskiptum
upp á 3 til 5 milljarða króna
af erlendum ferðamönnum hafi ve-
rið 3 milljarðar, þar með innifalin
fargjöld og eyðsla innanlands.
Kjartan sagði að þegar þetta væri
skoðað frekar kæmi í ljós að gjald-
eyristekjur af ferðaúvegi í heild, þar
með innifaldar gjaldeyristekjur
íslenksra flugfélaga, hefðu verið um,
3.6 milljarðar til viðbótar.
„Ég reikna með að á þessari
kaupstefnu hafí verið gengið frá
um 85% viðskiptanna hvað varðar
sölu á Islandi erlendis þannig að
ljóst er að þama voru gerð stór
viðskipti þótt það hafi ef til vill
ekki borið mikið á því og yfirvöld
ekki sýnt þessu mikinn áhuga“,
sagði Kjartan. „Það er ekki mjög
oft sem svona hlutir eru gerðir yfir
eina helgi hér á landi þótt yfirvöld
hefi ekki séð ástæðu til að vera
með neina stórkokteila eða taka
þátt í þessu frekar en fyrri daginn
þegar ferðamál eiga í hlut. Það við-
horf á kannski eftir að breytast
þegar þessir peningar fara að skila
sér inn á næsta ári. Ríkið fær hlut-
fallslega langstærsta hlutann af
tekjunum af erlendum ferðamönn-
um, en skutlar aðeins litlum 18
milljónum í alla uppbyggingu ferða-
mála og þykist svo ætla að gera
mikil viðskipti. En þetta er önnur
saga og aðalatriðið er að þessi
ferðakaupstefna gekk framar von-
um okkar allra, sem að þessu
stóðu", sagði Kjartan Lárusson.
Heimsmeistaraeinvígið verður spennandi:
Karpov vann
biðskákina
SKÁK
Bragi Kristjánsson
KARPOV vann biðskák 18.
skákarinnar auðveldlega sl.
laugardag, og við það er heims-
meistaraeinvígið orðið mjög
spennandi. Kasparov hefu ráð-
ið ferðinni í einvíginu, og náði
þriggja vinninga forskoti eftir
16 skákir. Flestir töldu stöðu
Karpovs þá vonlausa, en hann
var ekki á sama máli. Hann
vann bæði sautjándu og átjándu
skákina, þannig að staðan er
nú sú, að Kasparov hefur 9 'h
v., en Karpov 8V2 v., og sex
skákum er ólokið. Kasparov
nægja 12 vinningar til að halda
titlinum, þannig að Karpov þarf
4 vinninga til að ná heimsmeist-
aratitlinum aftur. Næsta skák
verður tefld á morgun og hefur
Karpov hvitt. Margir telja þá
skák ráða úrslitum uin mögu-
leika hans til að vinna einvígið.
Atjánda skákin fór í bið í eftir-
farandi stöðu:
Biðleikur Kasparovs var 41. Hh4
Sennilega besti biðleikurinn, þótt
athuga mætti, hvort 41. Hxg7+
gefi meiri möguleika til að veita
viðnám.
41. - Hgd8, 42. c4 - Hdl+, 43.
Ke2 - Hcl, 44. a6 —
Næstu leikir eru þvingaðir, því
svartur hótar einfaldlega — Hc2+,
- Hd3 — b3 — bl mát.
44. - Hc2+, 45. Kel - Ha2,
46. Hb6 - Hb3, 47. c5 - Hal+,
48. Ke2 - Ha2+, 49. Kel - g3!
Þessi leikur tryggir Karpov ör-
uggan sigur.
50. fxg3 - Hxg3, 51. Kfl -
Hgxg2, 52. Bel - Hgc2, 53. c6
- Hal, 54. Hh3 -
Svartur hótaði 54. — Hccl ásamt
55. — Hxel+ o.s.frv.
54. - f4, 55. Hb4 - Kf5, 56.
Hb5+ - e5, 57. Ha5 - Hdl!
Nú kemst hvíta a-peðið upp í borð
og verður að drottningu, en á
meðan verður hvítur mát.
58. a7 — e3
og Kasparov gafst upp, því hann
verður mát eftir 59. Hf3 (svartur
hótaði 59. — Hf2+ ásamt 60. —
Hxel mát) 59. - Rh5, 60. a8D
- Rg3+, 61. Hxg3 (61. Kgl -
Hxel+, 62. Hfl - Hxfl mát) 61.
- Hf2+, 62. Kgl - Hxel mát.
Nlætum frosti með ESSO
þjónustu og ESSO f rostlegi!
Jafnvel þótt þú gerir ekkert annað fyrir bílínn þinn skaltu ganga úr skugga um frostþol
vélarinnar. Það er öryggisatriði sem gæti reynst dýrt að gleyma.
Renndu við á næstu bensín- eða smurstöð ESSO og fáðu málið á hreint.
Okkar menn mæla frostþoliö fyrir þig og bæta ESSO frostlegi á kælikerfið ef með þarf.
Rétt blandaður ESSO frostlögur veitir fullkomna vernd gegn frosti. Einnig ryði og tæringu allra
málma sem notaðir eru ( kælikerfum bensín- og dísilvéla.
ESSO FROSTLÚGUR - MARGFÚLD VERND!
Olíufélagið hf