Morgunblaðið - 23.09.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Þór Sigfússon endurkjör-
inn formaður Heimdallar
-Erindi um Báknið burt, aukinn hlutur kvennar í stjórn
ADALFUNDUR Heimdallar, f<
Reykjavik, var haldinn í Valhöll
um var m.a. kosin ný stjórn og
Þór Sigfússon var á fundinum
endurkjörinn formaður. I ræðu
sem hann hélt á fundinum sagði
hann stór verkefni vera framund-
an í starfi felagsins á næstu
mánuðum. Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í október, alþingiskosn-
ingar og sextíu ára afmæli
félagsins á næsta ári.
í hinni nýju stjórn eiga sæti
Qórar stúlkur og er það hæsta
hlutfall kvenna í stjórn í tæplega
sextíu ára sögu félagsins. Það eru
þær Eva Georgsdóttir, Laufey
Jóhannessen, Jensína H. Finn-
bjamardóttir og Halldóra Vífils-
ilags ungra sjálfstæðismanna í
síðastliðinn laugardag. A fundin-
samþykkt stjóramálaályktun.
dóttir sem sæti eiga í nýju
stjóminni.
Auk stúlknanna eiga sæti í
stjóminni þeir Sveinn Andri
Sveinsson, Andres Magnússon,
Steingrímur Sigurgeirsson, Olaf-
ur Þ. Stephensen, Stefán Jón
Friðriksson, Ingimar F. Jóhann-
son og Benedikt Bogason.
Á fundinum hélt Friðrik Soph-
usson, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, erindi um tillögur ungra
sjálfstæðismanna um „Báknið
burt“ sem em tíu ára um þetta
leyti.
Þór Sigfússon.
70% aukning á félögum á
framhaldsskólaaldri í fyrra
- segir Halldóra Vífilsdóttir, for-
maður skólanefndar Heimdallar
HALLDÓRA VÍFILSDÓTTIR , átján ára nemi i Menntaskólanum
við Sund, var nýverið kosin formaður skólanefndar Heimdallar.
Morgunblaðið átti stutt spjall við Halldóru um hvað væri framund-
an hjá skólanefndinni í vetur.
„Skólanefndin mun í vetur sinna
sínum hefðbundnu verkefnum.
Námskeiðahaldi, ferðum, fundum
og útgáfu“, sagði Halldóra.
„Afram verður að sjálfsögðu hald-
ið útgáfu blaðsins Nýs skóla, sem
nú er á sínu sjöunda útgáfuári
og verður dreift í alla framhalds-
skóla á landinu. Einnig er ætlunin
að gefa í vetur út kynningarit um
félagið starf þess og stefnumið.
Við verðum með námskeið fyrir
nýja félaga þar sem reifuð verða
grundvallaratriði stjómmála og
vonandi einnig nokkur fyrir þá
sem aðeins lengra eru komnir í
þessum efnum.
Eins og gefur að skilja byggir
starf sem þetta mikið á samheldni
og því mikilvægt að félagslífíð sé
í góðu lagi. Skólanefndin heldur
reglulega s. k. kölluð „Opin hús“
og einnig verður farið í skíðaferð
og ekki sýnd nein miskun í þeim
efnum, af minni hálfu.
Að sjálfsögðu verður svo aftur
kosinn þingmaður ársins í vetur.
Eyjólfur Konráð Jónsson hlaut
þann titil á síðasta ári og verður
spennandi að sjá hvemig þetta fer
nú. Stigagjöfin er í fullum gangi.
Annars verður spennandi að
takast á við þetta verkefni. Sjálf-
stæðisstefnan á tvímælalaust
miklu fylgi að fagna meðal ungs
Halldóra Vífilsdóttir.
fólks og sést það kannski best á
því að 70% aukning varð á félags-
mönnum á framhaldsskólaaldri í
félaginu á síðasta vetri.
Stjórnmálaályktun Heimdallar:
Draga verður úr ríkisum-
svifum og lækka skatta
Stjórnmálaályktun Heimdall-
ar, samþykkt á aðalfundi
félagsins 20. september, síðast-
liðinn er á þessa leið:
Aðalfundur Heimdallar fagnar
þeim árangri sem náðst hefur í
baráttunni við verðbólguna á
þessu ári. Lágt verðbólgustig er
ein af helstu forsendunum fyrir
styrku atvinnulífí sem getur boðið
ungu fólki tækifæri til þess að
komast áfram. A næsta ári verður
að staðfesta þennann árangur og
ná verðbólgunni niður á sama stig
og í nágrannalöndum okkar. I
góðærinu opnast ennfremur
möguleikar fyrir því að bæta hag
þeirra sem lægst hafa launin.
A undanfömum árum hafa
skuldir þjóðarinnar erlendis stór-
aukist og nema nú 1100 þúsund
krónum á hverja ijögurra manna
íjölskyldu í landinu. Vaxtagreiðsl-
umar af þessum lánum em tollur
á lífskjörin og gera unga fólkinu
erfiðara fyrir að halda Islandi í
hópi velferðarríkja í framtíðinni.
Höfuðkapp verður að leggja á að
stöðva skuldasöfnun þjóðarinnar
erlendis.
Skattgreiðslur til íslenska ríkis-
ins samsvara nú því að hver kona,
karl og bam í landinu láti af hendi
um 12.000 krónur á mánuði. Fyr-
ir fjögurra manna Qölskyldu þýðir
þessi upphæð um 48.000 kíonur
á mánuði eða 275-300 krónur á
hvem dagvinnutíma þegar ein
fyrirvinna er fyrir slíkri meðalfjöl-
skyldu.
Skattheimtan á almenning hef-
ur aukist á undanfömum ámm.
Nokkur viðspyma hefur þó verið
hjá núverandi ríkisstjóm og ekki
síst í kjölfar febrúarsamningana.
En þrátt fyrir skattalækkanir í
febrúar em horfur á því að skatt-
tekjur ríkissjóðs verði hærri að
raungildi í ár en í fyrra.
Aðalfundur Heimdallar ítrekar
það stefnumál Sjálfstæðisflokks-
ins að draga úr umsvifum ríkisins
og lækka skatta. Hvetur fundur-
inn ráðherra og þingmenn flokks-
ins til þess að hvika ekki frá
sjálfstæðisstefnunni að þessu leyti
og minnir á tillögur Sambands
ungra sjálfstæðismanna um ráð-
deild í ríkisrekstri. Varanlegum
skattalækkunum verður ekki náð
nema að útgjöld ríkisins lækki á
móti. Eitt af mikilvægustu verk-
efnum þingmanna á næstu
mánuðum er að minnka umsvif
ríkisins til að tryggja að skatta-
lækkanimar frá því í febrúar verði
ekki teknar til baka. Ennfremur
verður að búa í haginn fyrir frek-
ari skattalækkanir. Þar ber án efa
hæst afnám tekjuskatts af al-
mennum launatekjum.
Heimdallur fagnar því að nýjar
útvarpsstöðvar hafa nú verið sett-
ar á laggimar. Ungir sjálfstæðis-
menn hófu fyrstir umræðuna um
frjálsan útvarpsrekstur fyrir tæp-
um tveimur áratugum. Nú loksins
hafa fijálslyndisöflin fengið sínu
framgengt í þessum efnum og
fáir munu í dag andmæla svo
sjálfsögðum hlut sem fijálsum
útvarpsrekstur er.
Ungir brunaverðir við nám
ELDVARNARVIKA stendur nú
yfir og hefur slökkviliðið í
Reykjavík nóg að gera við að
kenna skólaböraum rétt tök á
slökkvitækjum og allt það sem
að gagni kemur þegar koma á í
veg fyrir eld.
Skólabömin, sem hér um ræðir
em níu ára nemendur í gmnnskól-
um Reykjavíkur. Þau koma við í
slökkvistöðinni í Öskjuhlíð og þar
em þau frædd um eldvamir á heim-
ilum og kennt að nota slökkvitæki.
Þegar Ámi Sæberg, ljósmyndari
Morgunblaðsins, leit þar við í gær
leyndi sér ekki að bömin tóku vel
eftir og þegar þau kvöddu vom þau
staðráðin i að athuga hvort reyk-
skynjari væri heima hjá þeim og
hvort rafmagnssnúmr væm í lagi
svo fátt eitt sé nefnt.
Islandskynning í Grimsby:
Lýkur með 300
manna veislu
ÍSLANDSKYNNING stendur nú yfir í Grimsby í Bretlandi. Þrettán
íslensk fyrirtæki taka þátt í þessarri kynningu sem hófst á sunnudag-
inn, en henni lýkur í kvöld með því að haldin verður veisla fyrir
300 manns í Grimsby.
íslandskynningin hófst á sunnu-
daginn með því að fulltrúar þeirra
fyrirtækja sem þátt taka í henni
sóttu messu og síðan var boð hjá
íslenska konsúlnum í Grimsby, Jóni
Olgeirssyni. í gær vom íslensku
fulltrúamir í hádegisverðarboði hjá
borgarstjóraembættinu í Grimsby,
þar sem David Casswell tók á móti
þeim í Qarvem borgarstjórans. Þar
vom meðal annarra viðstaddir
Matthías Bjamason, viðskiptaráð-
herra, og Einar Benediktsson,
sendiherra í Bretlandi.
Úr hádegisverðarboðinu var
síðan haldið til Hull þar sem borgar-
stjorinn, Alfred Bowd tók á móti
hópnum. Því næst var haldinn fund-
ur með Þráni Þorvaldssyni, hjá
Útflutningsráði, þar sem stasrfsemi
ráðsins var kynnt.
Á dagskránni í dag var áætluð
ferð á fiskmarkað klukkan 7 um
morguninn og að þaðan yrði haldið
til að skoða verksmiðju Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í Grims-
by, Icelandic Freesingplant ldt. í
kvöld verður svo haldin veisla fyrir
um 300 manns, þar sem íslenskur
matur verður á boðstólnum. Kynnir
á skemmtuninni verður Magnús
Magússon.
Hraðfrystihús Keflavíkur:
Bæjarráð vill leggja fram
15 til 20 millj. með skilyrðum
Tillaga bæjarráðs mikil vonbrigði,
segir framkvæmdastjórinn
BÆJARRÁÐ Keflavíkur hefur fjallað um málefni Hraðfrystihúss
Keflavíkur og samþykkti bæjarstjórn tillögu um að bæjarsjóður legði
fram hlutafé að fjárhæð 15 til 20 mUljónir til fyrirtækisins að því
tilskyldu að „tryggt verði að tilkomi nýtt hlutafé í fyrirtækið sem
nemi 130 milljónum króna,“ eins og segir í bókun bæjarráðs.
„Þetta er okkar svar til forsvars-
manna fyrirtækisins við bréfi frá
þeim í sumar en í því er farið fram
á að við leggjum fram nýtt hlut-
afé,“ sagði Vilhjálmur Ketilsson
bæjarstjóri. „En í tillögum bæjar-
ráðs er það skilyrt að þeir leggi 110
til 115 milljónir á rnóti." Vilhjálmur
sagði að í tillögum frá Byggðastofn-
un og Landsbanka Islands, en til
þeirra var leitað eftir upplýsingum,
sé gert ráð fyirr að 116 til 130
milljónir þurfi til að endurskipu-
leggja fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
í bréfi til bæjarráðs kemur fram
að núverandi eigendur teldu ekki
framkvæmanlegt að auka hlutafé
samkvæmt tillögum Byggðastofn-
unar og Landsbankans og sagði
Vilhjálmur að ljóst væri að bæjar-
sjóður gæti alls ekki lagt fram
meira én 15 til 20 milljónir. Því
væri í tillögum bæjarráðs gert ráð
fyrir að leita eftir nýjum hluthöfum.
„Þessi tillaga bæjarráðs eru mér
mikil vonbrigði. Þetta gengur ekki,“
sagði Helgi Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Keflavíkur. Hann sagði að þegar
upphaflega var farið fram á að
Keflavíkurbær legði fram hlutafé,
var talið að 100 til 110 milljónir
nægðu til að rétta við fjárhag fyrir-
tækisins. „Nú samþykkja þeir að
leggja fram 15 til 20 milljónir af
130 milljónum með því skilyrði að
eigendur leggi fram 110 til 115
milljónir, en það var leitað til þeirra
vegna þess að eigendurnir treystu
sér ekki til að leggja fram þessar
110 til 110 mil'.ljónir sem á vant-
aði,“ sagði Helgi. „Það sem þama
er boðið er hrein viðbót við það sem
búið var að tala um. Þetta eru
þeirra tölur, við teljum okkur geta
sloppið með 100 til 110 milljónir."
I tillögu bæjarráðs er einnig
ákvæði um að bæjarstjóm beiti sér
fyrir stofnun hlutafélags um kaup
á togurum Hraðfrystihússins, þar
sem bæjarsjóður legði fram 10 til
15% af hlutafé, Samband ísl. sam-
vinnufélaga og dótturfyrirtæki allt
að 45% hlutafjár og önnur fisk-
vinnslufyrirtæki í Keflavík og
nágrenni 40 til 45%.